Morgunblaðið - 20.12.1975, Síða 18

Morgunblaðið - 20.12.1975, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDÁGUR 20. DESEMBER 1975 Litli bróðir ogKalli á þakinu Höfundur: Astrid Lindgren Þýðing: Sigurður Gunnars- son Teikningar: Ilon Wikland Prentun: Prentsmiðjan Edda hf Útgefandi: Bókaútgáfan Fróði Lítill sjö ára snáði, Sveinn Sveinsson, kallaður Litli bróðir, er sá, sem allt snýst um í þess- ari sögu. Hann þráir að eignast félaga, hund. en fær ekki. Furðulegustu hlutir taka að ske. Litli bróðir unir við leiki og tiltektir, sem fullorðna fólk- inu, og reyndar stálpuðu krökk- unum líka, stendur beygur af. Snáðinn skemmir, snáðinn klifrar um þök húsa; fer inn um'glugga; leikur vofu. Þetta væri allt venjulegum strákapör- um líkt, ef Sveinn Sveinsson héldi því ekki fram, að með honum í þessu undarlega hátta- lagi væri vera, ósýnileg flest- um, — Kalli á þakinu. I huga drengsins var þessi trítill með flughreyfil á haki, þurfti að- éins að ýta á hnapp, rétt ofan nafla, og þá ræstist hreyfillinn. Kalli á þakinu gat meira að segja flogið með Litla bróður. Fvrst til þcss að sjá og viður- kenna þennan skringifélaga urðu leiksystkinin hans Kiddi og Gunna. Um að Kalli á þakinu vori raunverulegur, þurftu þau engan að spyrja, en skálkarnir Krúsi og Fúsi skipuðu honum á bekk með vofum. Þar kom að lokum, að mamma og pabbi hittu Kalla á þakinu, þó vildu þau aðeins hafa það milli sín og harnanna. Eins og allar góðar sögur, endar sagan um litla bróður vel, — hann stendur með eigin hund í fangi. Höfundur segir mjög skemmtiiega frá, stendur mörg- um þrepum ofar en flestir þeirra barnabóka höfunda, sem menn eyða hér orku í að þýða eftir bækur. Hún hefir eitthvað að segja, — og hún kann það. Þýðing Sigurðar er listagóð, málið mjög vandað, létt, og hann hefir lagt á sig að læra ritreglur og það vel. Myndir skemmtilegar. Prýða bókina. Prófarkalestur vandaður og prentun er góð. I einu orði: Prýðisbók. Hafið þökk fyrir. Fletti myndir Skoðum mvndir segjum sögur a. I sveitinni b. f borginni Teiknari: Barrv H. Finnev Hönnuður: Iris Grender Utgefandi: Örn og Örlygur Þetta eru tvær bráðsnjallar myndabækur iðandi af lífi og athöfn. Svo listilega eru þær gerðar, að það er sama, hvernig þú flettir, alltaf fellur spjaldið, sem upp kemur, inni heildar- myndina. Til slíks hefir þurft mikla yfirlegu, mikla kunnáttu. Þó myndirnar séu snjallar, þá er þó um hitt meira vert, að þær eru hjálp, — áskorun, ung- um börnum til þess að tjá sig. Slíkra bóka var vissulega þörf í þjóðfélagi sem hærra og hærra girðir aldurshópa sína af, gaml- ir í einu horni, driföfl vinnu- markaðarins í öðru, og börn ein að dútli fyrir utan þessi skot bæði. Bækurnar gera kröfu til þess að aldurshóparnir hittist við girðingar sínar, og skoði myndirnar saman. Foreldrar þurfa að hjálpa börnum sínum t.þ.a. koma auga á, hve frábær skemmtun er að slíkum bókum. Ég vildi vita þær á borðum skólabarna, og það við móður- málsnám. Já, enn einu sinni hefir Erni og Örlygi heppnast að senda frá sér athyglisvert verk, sem ég hvet forelda og kennara t.þ.a kynna sér náið. Látið ekki nægja að skoða bæk- urnar óupprifnar, flettið þeim og sjáið hvað skcður. Kg hefði kosið, að hækurnar væru ekki rifbækur, heldur skornar af útgáfufyrirtækinu sjálfu. Þær hefðu orðið fallegri þannig. Hafið innilega þökk fyrir frábært verk. Hœðargerði á uppleið Höfundur: Max Lundgren Þýðing: Evvindur Eiríksson Prentun: Prenlsmiðjan Set- herg Utgefandi: Iðunn. Þetta er saga um knatt- spyrnulið í þriðju deild, frá- sögn af því, hvernig liðið vinn- ur sig með dugnaði til afreka á knattspyrnuvöllum; saga um menn sem fórnuðu fjölskyldu fyrir íþróttaframa; drengi sem urðu fyrir háði og spé kennar- ans, þar eð æfingar kröfðust tíma frá námsbókum; en þetta er líka saga um dugnað við vinnu og hugkvæmni. Vissu- lega er þetta líka saga fyrir stálpaða drengi, sem hafa ánægju af knetti, og slíkir eru margir, ef draga má ályktun af þeirri alúð sem fjölmiðlar leggja við þessa íþróttagrein. Höfundur segir söguna þokkalega, heldur ekki meir. Það er eins og hann nái ekki tökum á verkinu, nær ekki að gæða frásögn sína nema hálfu lífi. Bðkmenntlr Sigurður Haukur Guðjónsson skrif- ar um barna- og unglingabækur Þýðanda var mikill vandi á höndum, því að þó íþróttagrein- in hafi aðlagazt íslenzkum fót- um, þá hefir hún ekki náð takti við íslenzka tungu. Ef litið er á verkið allt, hefir honum tekizt vel, en stundum er sem hann sitji örþreyttur og leiður við verk sitt: ,,hélt áfram að messa“ (60); „kann heilmikið í fótbolta“ (77), „Kraftaverk í smáum stfl“ (81), „Hann sendi aldrei boltann bara eitthvað" (81), „En um hið „raunveru- lega“ Iíf vissi ég ekki margt. Hann stóð háðum fótum í þvf miðju." (85), „sólaði einn ósa- manninn enn“ (98), Þetta kalla ég hálfklæddar hugsanir. Próf- örk er vel lesin. Vinna prent- smiðju góð. Bók fyrir knattunn- endur. Bílar, flugvélar og öll heimsins furðulegustu farartœki Höfundur: Richerd Scarrv Þýðandi: ? ? ? Setning: Edda h.f. Prentun og hand: Gyldendal Þetta er frásögn af grísafjöl- skyldu í skemmtiferð. Margt hendir, margur farkosturinn þýtur hjá. Höfundur notar Lilju löggu og Bósa hund t.þ.a. auka eftirvæntingu lesandans, lætur þau þreyta kapp á síðum bókarinnar. Myndirnar eru listagóðar, svona teiknar ekki nema kunn- áttufólk. Hver er þýðandinn? Það er ekki líkt Erni og örlygi, því vandaða útgáfufyrirtæki, að fela slíkt. Þýðingin er góð, ef undan eru skildir hortittir eins og „afturbyggður bíll“ (43) hvaða bifreið er það ekki?, eða ... ekki lengur um snjó að ræða“ (62), hingað til hefúr slíkt verið nefnt auð jörð. Prentun og setning góð, ef horft er yfir mistökin á síðu 23. Þetta er skemmtileg fjölskylda, sem gaman er að ferðast með. Jólasveinar og jólatré JÓLASVEINAR eru nú víða komnir á krei.k og stefna til byggða. I gær varð vart við jóla- sveina í Akrafjalli og kváðust þeir vera á leið til Akraness og verða á Akratorgi í dag, laugardag. A Akratorgi verður kveikt á jólatré kl. 4. Tréð er gjöf frá vina- bæ Akraness, Tönder í Dan- mörku. Þorvaldur Þoryaldsson kennari afhendir tréð fyrir hönd gefenda, en Magnús Oddsson bæjarstjóri veitir þvi viðtöku fyrir hönd Akranesbæjar. Kirkju- kór Akraness syngur jólalög. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá Æskulýðsráði og Skagaleikflokknum munu jóla- sveinarnir vera væntanlegir á torgið þá strax á eftir. Njáls sagaí franskri þýðingu Uppreisn í Mozambique Jóhannesarborg, 18. desember Retuer STJÓRNIN í Mozambique bældi niður uppreisn i höfuðborginni Lourenco Marques i dag sam- kvæmt fréttum sem bárust til Suður-Afríku. Hópur 400 hermanna og lög- reglumanna reyndi að ná höfuð- borginni á sitt vald og margir féllu í bardögum uppreisnar- manna og liðsmanna Frelimo, þjóðfrelsishreyfingar Mozambique. Umsáturslið fær liðsauka Amsterdam, 18. des. Reuter HOLLENZK yfirvöld sendu í dag liðsauka til indónesísku ræðis- mannsskrifstofunnar þar sem að- skilnaðarsinnar frá Suður- Mólukkaeyjum haida enn 25 manns í gíslingu. Samningamaður frá Suður- Mólukkaeyjum séra Semuel Metiagi, gerði árangurslausa til- raun til að fá mennina til að sleppa gislunum og gerir aðra tilraun á morgun. NJÁLS SAGA er nú komin út í pappírskiljuútgáfu hjá forlaginu Union Générale d’Éditions í París í nýrri franskri þýðingu eftir Elín- borgu Stefánsdóttur og eiginmann hennar, Gérard Chinotti. Á frönsku nefnist Njáls saga La saga de Njall le Brulé og á bókarkápu er hún kölluð eitt af meistara- verkum heimsbókmennt- anna. Þau Elínborg og Gérard skrifa einnig for- mála, skýringar og skrá yfir nöfn og hlutverk helztu persóna. Lasaga de NjaU le Brulé Mál kvenna á þingi Sameinuðu þjóðanna New York, 7. des. Kvennaárið og framhald þess í næstu 10 ár hefur verið mikið rætt á 30. allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna, enda kemur f hlut þeirrar stofnunar að fylgja eftir þeirri stefnu, sem tekin hefur verið til að rétta hlut kvenna um allan heim, svo að þær verði jafn réttháar karl- mönnum í þjóðfélaginu. Is- lenzka sendinefndin hefur tek- ið mikinn þátt í þessum störf- um í nefndum. Ásamt fleiri þjóðum flutti tsland 2 tillögur um þessi mál í 2. nefnd, sem fjallar um efnahags- og þróun- armál, og hafa báðar verið sam- þykktar. Atta tillögur um fram- hald kvennaársins voru lagðar fram í 3. nefnd, sem fjallar um félags- og menningarmál og fékk því yfirlýsinguna og fram- kvæmdaáætlunina frá Mexico- ráðstefnunni til meðferðar. Urðu þar miklar umræður, sem ísland tók þátt í. Elín Pálma- dóttir, sem er í íslenzku sendi- nefndinni, flutti þar ræðu sl. fimmtudagskvöld, þar sem m.a. var sagt frá vel heppnuðum að- gerðum ísl. kvenna á árinu. Tillagan í annarri nefnd, sem ísland átti hlut að með 11 öðr- um löndum, gerir m.a. ráð fyrir að aðgerðir og skýrslur um bætta stöðu kvenna í heiminum verði felldar inn í aðrar þróun- aráætlanir gegnum efnahags- og félagsmálaráð SÞ. Tillagan í 6. nefnd, sem tsland var með- flytjandi að, miðar að því að auka hlut kvenna í starfsliði Sameinuðu þjóðanna, þar sem aðeins 3 konur eru í hópi rúm- lega 100 karla í efstu stöðum og þar sem hlutur kvenna í emb- ættisstörfum hefur jafnvel far- ið heldur lækkandi á sl. ári. Gerir tillagan, sem var sam- þykkt m.a. ráð fyrir að stefnt skuli að þvi að auka hlutfall kvenna á næstu 4 árum um 5% í stöðum, sem ráðið verður í og jafnframt að hvatt skuli til um- sókna frá hæfum konum, um leið og þess skuli gætt að ráðn- ipg kvenna til SÞ jafnist meira á hina ýmsu hluta heims. Tillögurnar átta, i félags- og menningarnefndinni, voru all- ar samþykktar á kvöldfundi á fimmtudagskvöld og fara nú fyrir allsherjarþingið til stað- festingar. Þær fjalla um marg- víslega þætti málsins. Sam- þykkt var að vinna á næsta ára- tug að því að koma i fram- kvæmd yfirlýsingunni og fram- kvæmdaáætluninni frá Mexico, helga áratuginn 1976—85 því verkefni að jafna stöðu kvenna og karla í þjóðfélaginu, og efna til ráðstefnu 1980 til að gera upp hvernig miðað hefur á þeirri braut. Að þessu skuli unnið á alþjóðavettvangi, 2 í heimalöndunum og hjá Samein- uðu þjóðunum og öllum stofn- unum þeirra. Verkefnið skuli tengt og fellt saman við önnur þróunarverkefni, og að unnið með könnunum, þjálfunar- og menntunaráætlunum, með sér- stökum aðgerðum til að bæta fjárhagslega aðstöðu kvenna, möguleika kvenna í afskekkt- um dreifbýlisstöðum á hnettin- um o.s.frv. Og ákveðið var að sjóður sá, sem stofnað var til með frjálsum framlögum til að standa straum af kvennaárinu og Mexicoráðstefnunni og enn á nokkurt fé, skuli halda áfram að starfa næsta áratug og verða efldur. Svo sem annars staðar á þessu allsherjarþingi S.þ. hafa arabaiöndin og stuðningsmenn þeirra blandað inn í tillögur um málefni kvenna tilvitnunum í nýlega samþykkt allsherjar- þingsins um að zíonismi sé kyn- þáttastefna, og þar með gert mörgum þjóðum illkleift að samþykkja tillögurnar óbreytt- ar. Var þannig í aðaltillögunni í 3. nefnd um framvindu mál- efna kvenna, vísað i Mexicoyfir- lýsinguna, sem inniheldur slík ummæli. Islenzka sendinefndin í Mexico gat því ekki fállizt á hana og gaf þar skýringu á sínu neikvæða atkvæði. Islenzka sendinefndin hjá Sameinuðu þjóðunum tók það ráð að sitja hjá, er atkvæði voru greidd um þessa einu grein, en samþykkja tillöguna að öðru leyti með atkvæðaskýringu, sem Ingvi Ingvarsson, sendi- herra okkar, gerði. Sagði hann, að hin jákvæða afstaða Islands beindist að stuðningi við að- gerðir til að bæta stöðu konunn- ar í þjóðfélaginu og gera konur fullgilda þátttakendur í þróun- inni og eflingu friðar í heimin- um, en hann tæki það skýrt fram að íslenzka sendinefndin gæti ekki sætt sig við neinar tilvitnanir í samþykkt Mexico- ráðstefnunnar, sem bendluðu zíonisma við kynþáttastefnu og kynþáttamisrétti. Tillagan var samþykkt með 88 atkvæðum gegn 2, 26 sátu hjá, þar á með- al Efnahagsbandalagslöndin. Danmörk og Noregur voru á móti, en Svíþjóð og Finnland með. Af þessari sömu ástæðu greiddi Island ásamt öðrum Norðurlöndum atkvæði á móti annarri tillögu varðandi friðar- mál, þar sm kynþáttamisrétti og zíonisma var blandað í nær hverja málsgrein. Og Island sat hjá við atkvæðagreiðslu um þriðju tillöguna um afnám mis- réttis gegn konum vegna sams- konar orðalags. Að öðru leyti samþykkti Island þær tillögur, sem fýrir lágu. Var æði mikill hiti í atkvæðagreiðslum af þess- um sökum. Fjölmargar þjóðir töldu sig knúðar til að gera grein fyrir atkvæðum sínum á undan og eftir atkvæðagreiðsl- um. flestar í sama anda sem ísland. Utan Saudi-Arabíu, sem kvað það einu ástæðuna til að hún samþykkti slíka tillögu um aðbæta stöðu konunnar, að zíon- istar væru þar sakaðir um kyn- þáttamisrétti. Áður hafði hinn litríki fulltrúi þeirra, Barudi, lýst því yfir f ræðu að konur hefðu ekkert að gera út af heimilunum. Menn sæju hvern- ig færi í Bandaríkjunum, konur tækju bara vinnuna frá körlum og sköpuðu atvinnuleysi. En sú rödd var mjög hjáróma á þess- um stað, þar sem allir fulltrúar aðrir, svartir hvítir og gulir, lýstu fylgi sínu við kvennaárið og 10 ára framkvæmdaáætlun þar sem átak til þróunar um heim allan væri óhugsandi án þess að þar kæmi til bætt staða kvenna. — E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.