Morgunblaðið - 20.12.1975, Side 32

Morgunblaðið - 20.12.1975, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1975 Sr. Þorsteinn Briem lýkur upp ritningunum Það er alltaf hnýsilegt að handleika nýja bók. Og lesand- inn verður þeim mun forvitnari sem látin hefir verið meira af höfundinum. Nú stend ég einn daginn með húslestrabók sr. Þorsteins Briems i höndunum, veg hana og skoða í krók og kring og þykir bókin falleg og mikil að vöxtum. Og það rifjast upp fyrir mér, að í æsku heyrði ég oft minnzt á stjórnmála- manninn og ráðherrann Þor- stein Briem, einnig á snjallan prédikara prestinn á Akranesi. Og mér varð um og ó, því að hvað var vísara en ræðuskör- ungurinn hefði fengið að láni eitthvað af ljóma þjóðmálaskör- ungsins, en eftir sætum vér á miðjum 8. tug aldarinnar með hismið, þar sem kjarninn til- heyrði öðrum tíma, ólystilegur nýrri kynslóð. Vitanlega gegnir öðru máli um kirkjuræður en skáldskap, þær geta aldrei, komizt til fullra aðila í bók, en um það tjóar ekki að fást. Allt að einu nutu sumar postillur meiri vin- sælda fyrrum en aðrar bækur á Islandi. Engu skal spáð um, hversu lífseig eða útbreidd þessi nýja bók verður í heimil- um í landinu. Postilluöldin er um garð gengin. En hitt er Ijóst, að hér birtist óvenjulegt og eftirsóknarvert Iestrarefni hverjum þeim, sem lætur sig kirkju og kristindóm nokkru varða, og raunar fleirum, því að viðfangsefnið er tekið þeim tök- um, hér er sú listasmíð, að það á erindi til allra. Þessar kirkjuræður hins mikilsvirta prófasts eru ósvikn- ar hugvekjur. Það er hægt að sitja við og lesa ræðu eftir ræðu sér til ánægju og sálubótar. Sjaldan fellur ræða hans niður á stig venjubundinnar prédik- unar. Hugkvæmni hans, skarp- skyggni vitmannsins og auð- mýkt trúmannsins fallast í faðma, svo að af síðum bókar- innar rísa hugðnæmar myndir mikillar stærðar hver af annarri. Og margar ræðurnar eru með þeim hætti, að enginn gæti verið höfundur þeirra annar en sá, sem hefði verið mikill listamaður. Hann kann þau tök á efni sínu, að hann fyllir lesandann eftirvætingu blaðsíðu eftir blaðsíðu. Það er ótrúlegt um húslestrabók á vor- um tímum. Og þannig sat ég lengi við og hlustaði á hann leika á töfra- flautu heiðríkjunnar. Honum tekst ekki aðeins að varpa ljósi á trúarhimin Krists, svo að vér hversdagsfólkið hrífumst af, hann lýsir jafnframt upp um- hverfi vorrar eigin samtíðar með vizku sinni og mannþekk- ingu. Svo nánu sambandi nær enginn prédikari við heyranda sinn nema vitmaður mikillar og barnslegrar trúareinlægni. Kannski erum vér næmari á efni þvllíkra bóka á jólaföstu en í annan tíma. Samt ætla ég að leyfa mér að taka svo djúpt i árinni, að með því að gjöra kirkjuræður sr. Þorsteins Briems handgengnar sem flest- um heimilum í landinu munum vér eignast betra ísland. Otgefandi bókarinnar, sem hefir hlotið nafnið Himinn í augum, er Hallgrímsdeild Prestafélags Islands. En sá vandi, sem það er að fara hönd- um um prédikanir annars manns, hefir þó einkum hvílt á formanninum, sr. Jóni Einars- syni í Saurbæ. Lofsvert er það framtak, sem árvökulir menn hafa gengizt hér fyrir, og það því fremur, sem unnið hefir verið af sýnilegri virðingu fyrir verkinu. Bjarni Sigurðsson Bjarnþór Aðalsteinsson: Skráning og eftir- lit með ökutækjum FRUMVARP TIL LAGA um breytingu á umferðarlögum nr. 40, 23. apríl 1968, sbr. lög nr. 23 3. maí 1972 og lög nr. 25, 24. aprfl 1974. Meginefni frumvarps þessa er að hætt verði að umskrá ökutæki vegna flutninga milli umdæma (öll ökutæki hafi fast skráningar- merki) svo og Bifreiðaeftirlit rík- isins annist skráningu og eftirlit með ökutækjum Iandsmanna f stað lögreglustjóra. Einnig er fjallað um skráningu beltabif- hjóla (snjósleða) og réttindi til aksturs þeirra. Ekki er hægt að sjá í þessu frumvarpi, að á nokkurn hátt sé leitast til um að leysa þá galla, sem gildandi reglur hafa. Bif- reiðaeftirlit ríkisins losnar við umskráningar, og þá skoðun sem því er fylgjandi, og mun það vera meginkostur þessa frumvarps. Umdæmaauðkenni munu falla niður og ekki er vikið einu orði að því, hvernig eigi að leysa þau vandamál, sem við það skapast. Samkvæmt þeirri reynslu, sem fengist hefur af gildandi reglum, er ljóst að til róttækra breytinga verður að grípa. Verður þá fyrst af öllu að hafa í huga, að breyting- in hafi úrbætur I för með sér, en auki ekki á þau vandkvæði sem fyrir eru. Nefni ég nokkur dæmi um þau vandamál, sem við er að glfma í dag og nauðsynlegt er að leysa hið fyrsta. ökutæki ganga kaupum og söl- um án þess að tilkynnt sé um eigandaskipti. Reynist oft erfitt fyrir löggæslumenn að ná til umráðamanna slíkra ökutækja, þótt i gildandi lögum eigi að til- kynna eigandaskipti tafarlaust. I frumvarpinu er gefin 'A mánaðar umþóttunartími til að tilkynna eigandaskipti. Orelt fyrirkomulag aðalskoðun- ar fær ekki lengur staðist með aukinni bifreiðaeign landsmanna. Er öllum orðið ljóst að ófært er að úthluta bifreiðaeiganda einhvern ákveðinn dag ársins til að fá bif- reið sína skoðaða. Aðalskoðun fer fram allt árið og er því álagið á Bifreiðaeftirliti ríkisins allmikið nú þegar og kallar á aukinn mannafla og tækjakost árlega. Aðstaða og tækjakostur Bifreiða- eftirlits ríkisins er áratug á eftir og úrbætur I þeim efnum, miðað við óbreytt fyrirkomulag, mundi kosta þjóðina tugi milljóna. Frumvarpið felur f sér afnám skoðunar, þar sem um umskrán- ingu er að ræða. Koma verður í veg fyrir, að ökutæki geti verið f umferð án lögboðinna trygginga. I dag er tryggingartímabil ábyrgðartrygg- inga ökutækja frá 1. marz til 29 febrúar, þannig að ökutæki sem komið er með til aðalskoðunar fyrir 1. marz, fær fullnaðarskoð- un þótt skammt sé I nýtt trygging- artímabil. Af þessu leiðir að öku- tæki eru oft án ábyrgðartrygging- ar og eru það því aukin verkefni lögreglumanna að fyrirbyggja að þessi ökutæki séu f umferð. Frumvarpið gerir ráð fyrir, að hækkuð verð um helming upp- hæð ábyrgðartrýgginga ökutækja. Eftirlit með aðalskoðun öku- tækja er mörgum vandkvæðum bundið. Þegar ökutæki hefur ver- ið fært til aðalskoðunar, er skráð í skráningarskirteini þess, hvort það hefur reynst í lagi eða verið fundið að einhverjum atriðum. Er þá einnig settur lítill miði í fram- rúðu ökutækisins, er segir til um niðurstöðu skoðunarinnar og á að vera löggæslumönnum til upp- lýsingar. Þetta er mjög ófull- nægjandi, þar sem miðar þessir eru litlir og eins er auðvelt að taka þá af rúðunum. Gerir þetta löggæslumönnum talsvert erfjtt fyrir og hefur það komið fyrir, að ökutæki hafa ekki verið færð til skoðunar svo árum skiptir. Hjá dómsyfirvöldum og lög- reglustjórum hrannast upp ógreiddar, eða að öðru leyti ófrá- gengnar sektargerðir. Stafar þetta almennt ekki af því að menn séu sektum þessum ósam- mála, né viðurkenni ekki brot sitt, heldur oft vegna gleymsku og eða hirðuleysis. Einnig hefur sú raun- in orðið, að þeir sem trassað hafa að greiða eða ganga frá sektum hafa f lokin greitt miklu lægri upphæðir að verðgildi, þegar inn- heimtuaðgerðir hafa harðnað. Hvað smærri umferðarlagabrot varðar, er ótækt að menn geti komist hjá að greiða gjaldfallnar sektir árum saman vegna seina- gangs á afgreiðslu. Þessum mál- um þarf að koma í Iag og væri ekki úr vegi að tengja þessi mál meira skráningu ökutækjanna. Ábyrgð ökutækiseiganda á öku- tæki, sem hann er skráður fyrir, er ekki nægileg í gildandi reglum. ökumenn eru helztu ábyrgðarað- iljar ökutækis, en f mörgum til- vikum er ekki nægilegur skilning- ur milli ökumanns og ökutækis- eiganda. Þótt skyldur og ábyrgð ökumanna séu ekki skertar, þarf að auka á ábyrgð ökutækjaeig- enda. Er því nauðsynlegt að tengja betur saman skráningu ökutækja og eigendur þeirra. HUGSANLEG LEIÐ TIL (JRBÓTA Hver ökutækiseigandi hafi fast (föst) skráningarmerki, sem fylgi honum til æviloka. Yrði hver öku- tækiseigandi að kaupa í upphafi þrjú sett af skráningarmerkjum á sama ökutækið, sem hefðu mis- munandi lit. Yrðu litir skráning- armerkjanna notaðir til að auð- kenna skoðun og skráningu á milli ára. Sem dæmi: Arið 1975 væri notað rautt skráningar- merki, árið 1976 yrði gult merki árið 1977 yrði grænt skráningar- merki og síðan væri aftur byrjað á rauðu merki fyrir árið 1978. Til að fá skráningarlit hvers árs, þyrfti ökutækiseigandi að láta skoða og ljósastilla ökutækið á viðurkenndu skoðunarverk- stæði, framvísa kvittun fyrir greiddan ökutækjaskatt (þunga- eða dieselskatt) og yfirlýsingu frá lögreglustjóra um að umferðar- sektir á skráningarnúmerið væru greiddar eða verið vísað til dóms. Einnig yrði ökutækiseigandi að leggja inn ti! Bifreiðaeftirlits ríkisins eldri skráningarlit. Bifreiðaeftirlit ríkisins viður- kenni bifreiðaverkstæði til að annast skoðun og stillingu öku- tækja. Bifreiðaeftirlit ríkisins annist skráningu, eftirlit með skoðun verkstæðanna, haldi skrá yfir öll ökutæki og annist geymslu skráningarmerkja. Bif- reiðaeftirlit ríkisins ákveði á hvaða tímabili aðalskoðun fari fram og hvaða skráningarlitur á skráningarmerki skuli notaður. Með því að tengja hvern öku- tækiseiganda ákveðnu föstu skráningarmerki, er verið að gera skráningarnúmerið persónulegra. Mundu menn almennt hugsa sig tvisvar um, áður en þeir létu öku- tæki af hendi, sem bæri skráning- armerki þeirra. Skoðun ökutækja færi fram á verkstæðum, sem Bifreiðaeftirlit ríkisins samþykkti. Ef fram kæmi bilun á ökutæki, sem fært hefði verið til slfks verkstæðis, ætti ökutækiseigandi þess kost, að fá gert við ökutækið á verkstæðinu. Einnig yrði ljósaskoðun og still- ing ljósanna framkvæmd á verk- stæðinu, þannig að ekki þyrfti að leita á fleiri staði til að fá ökutæk- ið lagfært og skoðað. Verkstæði þessi gæfu síðan út vottorð um ástand ökutækisins, sem eigandi gæti borið undir Bifreiðaeftirlit ríkisins, ef hann teldi dóm verk- stæðisins óraunhæfan. Bifreiða- eftirlit ríkisins hefði þar loka úr- skurðarvald. Einnig mundu menn frá Bifreiðaeftirliti ríkisins gera skyndikannanir á skoðun verk- stæðanna og yrðu verkstæðin lát- in sæta sektum, ef I Ijós kæmi að þau fylgdu ekki fyrirmælum Bif- reiðaeftirlits ríkisins. Bifreiðaeft- irlit ríkisins mundi auglýsa, hve- nær öll ökutæki ættu að vera komin með skráningarlit viðkom- andi árs og að þeim tíma loknum mundu eldri skráningarmerki verða tekin af ökutækjum og eig- endur þeirra látnir sæta sektum. Undanfarin ár hefur trygging- artímabil ökutækja ekki fylgt skoðunartímabilinu, sem hefur orsakast vegna hins mismunandi tfma, sem ökutæki eiga að skoðast á. Til að fyrirbyggja að ökutæki geti verið í umferð án lögboðinna trygginga, verður tryggingartfma- bilið og skoðunartímabilið að vera það sama. Með því fyrirkomulagi sem áður er getið, er auðvelt að samræma þessi atriði. Bifreiðaeft- irlit rikisins mundi ekki afhenda skráningarlit ársins, nema öku- tækiseigandi hefði greitt iðgjald af tryggingu ökutækis sfns, sem gilti að næstu skoðun. Eins og áður er getið, hefur innheimta og afgreiðsla umferð- arsekta gengið mjög seinlega. Til að gera innheimtu umferðarsekta auðveldari og koma henni í fast- ara form, væri raunhæft að gera ökutækiseiganda skilamann sekta er færðar hefðu verið á hans skráningarnúmer. Skráður eig- andi ökutækis yrði annaðhvort að greiða sektirnar sjálfur og inn- heimta þær hjá ökumanni, ef ekki væri um sama aðilja að ræða, eða að sjá um að ökumaður vísaði málinu til dóms. Að sjálfsögðu yrði mönnum að vera kleift að verja mál sfn, en í stað þess að sektir þessar færu sjálfkrafa til dóms, eins og nú er ef þeim er ekki sinnt, yrðu menn að óska eftir skriflega að mál þeirra væru afhent dómstólunum. Ógreiddar eða að öðru leyti ófrágengnar sektir vegna umverðarbrota, yrðu þess valdani að ekki fengist vott- orð frá lögreglustjórum, sem nauðsynlegt væri að framvfsa til áð fá viðeigandi lit skráningar- merkis. Umskráning yrði ávallt við eigendaskipti, sem væri fram- kvæmd einungis pappírslega hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins. Má fram- kvæma umskráninguna á marg- víslegan máta, en nefni ég hér eina aðferð, sem mætti nota: Skráningarskírteini ökutækis væri tveir samhljóða hlutar, ann- ar hluti skfrteinisins yrði fyrir seljandann og hinn fyrir kaupandann. Við eigendaskipti mundi kaupandi skrifa nafn sitt og skráningarnúmer á annan hluta skírteinisins, sem- seljandi framvísaði í bifreiðaspjaldskrá. Seljandi skrifaði á hinn helming- inn sem kaupandi framvísaði á sama stað ásamt venjulegum gögnum, veðbókarvottorði, afsali og fl. Umdæmaauðkenni eru nokkuð umdeilanlegt atriði. Mín persónu- lega skoðun er sú, að auðkenni eftir umdæmum auðveldi mjög eftirlit með ökutækjum. Auð- kennin mættu vera laus bókstaf- ur, sem ökutækiseiganda væri af- hent eftir búsetu hans. Ef búseta hans breyttist, breyttist bókstaf- urinn í samræmi við það. ökutæk- in væru ekki skráð eftir umdæm- um, en þó væri sú kvöð á öku- tækiseiganda, að hann auðkenndi ökutæki sitt réttilega. Við 14. gr. frumvarpsins, sem fjallar um 3. mgr. 28. gr. vil ég gera eftirfarandi athugasemd. Grein þessi fjallar um réttindi til aksturs beltabifhjóla. Aldurstak- mark um þar eiga að vera 15 ára og eldri og að viðkomandi hafi rétt til aksturs bifreiðar, bifhjóla, dráttarvéla eða léttra bifhjóla. Aldursmark þetta er augsýnilega of Iágt, því búast má við þvf að farartæki þessi verði meira f um- ferð í þéttbýli en til þessa. Einnig er nokkuð furðulegt að ekki skuli vera gert ráð fyrir, að hægt sé að öðlast réttindi til aksturs beltabif- hjóla, án þess að hafa eitthvað af áðurtöldum réttindum. Virðingarfyllst, Bjarnþór Aðalsteinsson Stórateig 20 Mosfellssveit.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.