Morgunblaðið - 20.12.1975, Side 34

Morgunblaðið - 20.12.1975, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1975 Zópónías Pétursson: Hínn nú svo frægi kjörfundur NLF-manna VEGNA ótrúlega margra upphringinga og fyrirspurna. sem sprottið hafa vegna greinar, sem birtist I Visi þ. 14 10. undir heiti „Furðulegasti kjör- fundur landsins," sting ég niður penna. Yfirleitt er spurt: Hvað var þarna á seyði? En þar sem einmitt svo margt var á seyði er erfitt að svara því I skyndi i sima eða á götum úti Hefi ég nú tekið þá ákvörðun að svara þessu fólki opinberlega í eitt skipti fyrir öll, þvi ég býst fastlega við að það sé fólk, sem aðhyllist málstað og stefnu NLF- manna Geri ég það I þeim tilgangi. að það geti e.t.v tekið höndum saman um að byggja upp það, sem mér og okkur mönnum þeim, sem vildu reyna að veita góðu og þörfu málefni lið tókst ekki. Verð ég þess vegna að hafa þetta svar mitt nokkuð ýtarlegt og eftir bestu sannfæringu minni. Byrja ég þvi á aðdraganda að þessum leiðinda ferli minum i NLFf, sem aldrei skyldi orðið hafa. Ég hefi frá þvi fyrst ég man eftir mér, verið mikið fyrir mjólk, brauð, græn- meti, ávexti og yfirleitt það, sem ég tel hollt fæði. Þá var það á árunum fyrir heimsstyrjöldina, að ég kynntist Edwin C Bolt, er var hér guðspekilegur fræði- maður á sumarskólum Guðspeki- félagsins Hann fræddi mig töluvert um náttúrulegt fæði Við borðuðum t.d saman hádegisverð á Skjaldbreið. sumarið 1939, sem samanstóð ein- göngu af grænmetisfæði Þetta varð til þess, að ég las bækur um þessi efni og reyndi gildi þeirra á sjálfum mér. Ég tók að lifa eingöngu á NLF-fæði og hætti um tlma að neyta kjöts. Fann ég brátt að þróttur minn dvlnaði og bætti ég þá aftur við kjöti, en þó svipað og kfnverjar gera, þ e.a.s. grænmeti með kjöti en ekki öfugt Með þvl fæði llður mér miklu betur Annars var ég alltaf að fá kvef og verða einhverra kvilla var Ég er þvl alls ekki sammála þeim háttum NLF-manna að telja eitthvert frelsis-evangelium að forðast alla dýra- fæðu, þvl það borðar sig enginn inn I himnariki. en það er engu líkara en margir þeirra haldi svo Langar mig til af gefnu tilefni að benda á það, sem mig grunar, að öll þessi joga-tfska eigi eftir að leiða margt ungt fólk út I öngstræti. Hinir og þessir menn, að mér virðist með gróðavon I huga, koma til landsins. Menn, sem við vit- um engin deili á, menn með alls konar sjálfskipaða titla, sem trúlega enginn kannar. Margt og raunar flest, sem ég hefi heyrt eftir þeim er snöggsoðið upp úr alls konar bókum, meira og minna brenglað Þetta á ekki hvað slst við um kenningar um fæði Ég hefi dvalið á Indlandi og kynnst mataræði þeirra indverja Ekki tel ég heppilegt fyrir okkur á þessu norðlæga landi, að fara að llkja eftir fæðu austur- landabúa. Það mundi aðeins valda hrörnun og dauða fyrir aldur fram. Vitur austurlandabúi sagði eitt sinn við mig: „Reyndu að hlusta eftir þörfum likama þins. Gerið sjálf tilraun með gát, en varist innantómar hugsjónir." Fyrir mörgum árum fór ég að borða á matstofu NLF I Kirkjustræti og sá Árna Ásbjörnsson oft þar. Eitt sinn vék hann sér að mér og spurði mig hvort ég væri ekki til með að hjálpa sér og koma I stjórn NLFl. Ég, sem þá hafði ákveðið að hætta störfum innan tíðar hjá Tryggingastofnun rlkisíns, svaraði þvl til, að ef ég gæti orðið til góðs og gagns, að hann teldi, þá stæði ekki á mér, en annars ætlaði ég að fará að draga mig I hlé frá störfum Ég lét sem sagt til leiðast og þannig komst ég I kast við þessa ringulreið. Hvað er á seyði? Við nokkrir gamlir félagsmenn vor- um sammála um það, að félagið væri komið langt út af vegi þeim, sem lagður var I upphafi og það á margvls- legan hátt Okkur langaði til að koma I veg fyrir, að hann stefndi eins og okkur fannst, I alranga átt. Félagið rekur, sem kunnugt er heilsuhæli I Hveragerði. Skoðun mln og annarra er sú, að þar sem um stórt og viðamikið hæli er að ræða, þá þurfi mjög vel menntaðan og fjölhæfan lækni, sem fær sé um að taka við öllum þeim sjúklingum, sem á heilsu- hæli þetta eru sendir. Þarna kemur fólk oft mjög illa haldið eftir erfiða sjúkra- húsvist, einnig sálrænt sjúkt, fólk kval- ið af gigt og illa farið vegna alls konar hjartasjúkdóma og áfalla o.s.frv. Þarna þyrfti að vera læknir, sem hægt væri að ná til allan sólarhringinn (en svo er ekki) ásamt hjúkrunarkonu. Læknirinn verður að hafa áhuga og tlma til að gefa sig að sjúklingunum og hugga þá og hressa á allan hátt. Heilsuhæli I nútlma þjóðfélagi. sem ar i móti öllum lyfjum og vltamln- um, hlýtur að heyra steinöldinni til, en svo er um heilsuhælið I Hveragerði. Við skulum llta um öxl Þegar hinn ágæti læknir Jónas heitinn Kristjáns- son stofnaði hæli þetta með slnum einstaka góðvilja, dugnaði og þraut- seigju, þá má ekki gleyma þvl, að þá voru t.d öll vltamln lltt kunn orðin og þau öll unnin ólífrænt Nú eru til kynstrin öll af vltamínum, sem unnin eru llfrænt og þekking um þau öll önnur Þá má og benda á ýmis lyf við hjartasjúkdómum, sem hreinlega gera fólki kleift að halda lifi og svona mætti lengi telja Nú spyr ég: Hvar stendur hæli sem þetta. ef forustumenn þess fylgjast ekki með tlma og tækni I svo ábyrgðarmiklu starfi, sem þeir þó gegna? Starf þeirra varðar, eða hlýtur að geta varðað, llf þeirra, sem þar dvelja, einmitt I sambandi við læknalyf nútimans. Ég hefi skoðað heilsuhæli erlendis, t.d I Tékkóslóvaklu og vlðar. Finnst mér hælinu hér vera I allflestu mjög ábótavant Meira að segja hefir þvl farið aftur frá tlð Jónasar Kristjánsson- ar, m.a I sambandi við heitu böðin og meðfylgjandi hvtld. Erlendir heilsu- læknar leggja nú mikla áherslu á heitu böðin, leirinn og hvlldina eftir hvort tveggja. Á hinum ágætu hælum erlendis er sérhver sjúklingur lagður I lök og teppi. eins og I tlð Jónasar, látinn svitna og hvllast þar jafnlengi og læknir hvers og eins ákvarðar I hverju tilfelli Á hælinu fyrir austan er allt sllkt fallið I fyrnsku. Miðað við framfarir þær, sem orðið hafa erlendis langaði mig einmitt til að breyta mörgu I svip- að form og ég sá þar. Einnig erum við félagarnir mjög óánægðir með fæðið á hælinu. Það er allt of fábreytt og engan veginn rétt meðhöndlað, miðað við það sem annars staðar tíðkast nú á tlmum. Heilsuhælið hefir ágætis garðyrkju- mann og gróðurhús Óskandi væri að þarna væri betri nýting, með þeirri góðu aðstöðu, sem er fyrir hendi Sllka fábreytni hefi ég hvergi séð á þeim heilsuhælum, sem ég hefi skoðað, nema I Hveragerði. Þá er annað málefni, sem við erum mjög uggandi yfir og er það einn af hinum gömlu draugum sem lengi hefir elt mannfólkið, en hann heitir „fanatlk". Sérstaklega eltir hann fólk. sem er af kyni þvi, sem telur sig I ætt við svonefnt hugsjónafólk, og hefir sjálfskipað sig I það embætti að frelsa annað fólk að þvl forspurðu Mótherjar okkar I NLFl virðast haldnir þessum draug, þvl þeir telja verslanir Pöntunarfélags NLF hreinlega vera að selja eitur, með þvl að hafa frjálst vöruval á boðstólum. „Eitur" þetta er m.a. hveiti, sykur, kaffi, vlta- míntöflur, kex, pakkasúpur o.fl. Gengur þetta svo langt að forstjóri NFL-hælisins hefur tilkynnt starfsfólki verslananna. að það varðaði uppsögn, ef það reykti eða drykki kaffi, ekki aðeins á vinnustað heldur jafnvel einn- ig heima hjá sér! Hefur mikið verið þrasað um að taka „eitur" þetta úr búðunum. En þar sem draugur þessi gengur við hlið þessara ráðamanna, hversu langt mun hann ekki teyma þá áður en llkur? Ekki býst ég við að nútlmafólk láti nokkra „fanatlkara" ráða innkaupum slnum og skoðunum Þar með hljóta verslanir þessar hrein- lega að llða undir lok, er þeir nú taka við þeim um áramótin Mér er kunnugt um að sama fólkið hefir keypt nauð- þurftir sinar I báðum verslunum Pöntunarfélags NLF. Mig langar til að geta þess hér, að fyrir allmörgum árum, var aðeins ein verslun, á Týsgötu 8. Hún var nær gjaldþrota, en þá réðst til hennar núverandi verslunarstjóri, Ásbjörn Magnússon. Þessi maður hefir með óskiljanleg- um dugnaði og hreinum þrældómi náð þeim svo vel upp, að Pöntunarfélagið rekur nú tvær verslanir, aðra við Óðins- torg og hina á Laugavegi 20 B Þá hefir verið komið upp nýtlsku brauðgerðarhúsi, sem selur brauð hér 1 bæ I mörgum verslunum og einnig út á land Þá er búið að kaupa stórhýsið að Laugavegi 20 B Nú hafa verslanirnar greitt það mikið af eigninni, að húsið stendur undir sér. Pöntunarfélagið var stofnað árið 1953 af áhugamönnum, sem aðhyllt- ust hollt fæði og hreinlega lifnaðar- hætti. Fólk þetta var, eins og sýnt er, gott og vel hugsandi. Þótt til þessara verslana væri stofnað með það fyrir augum að útvega félögum þess hollt fæði, þá varð það strax Ijóst, að enginn rekstrargrundvöllur var fyrir þær, nema með frjálsu vöruvali og svo er enn. Þar sem verslanirnar og brauð- gerðarhúsið var nú farið að ganga svona vel, varð draumur okkar gömlu Pöntunarfélagsmanna sá, að nýja hæl- ið, sem farið er að bóla á I Hveragerði, gæti nú risið upp. m a með fjármagni, sem verslanirnar gæfu af sér. Við vorum farnir að gleðjast I hugum okkar yfir öllu þvl, sem við ætluðum að betrumbæta fyrir þá sjúku, sem þarfnast hjálpar. Þetta er brýn þörf fyrir þjóð vora og ekki minnkar hún, svo okkur fannst fyrir miklu að berjast. Ekki voru það eigin hagsmunir, þvl stjórnarmeðlimir eru ekki launaðir Við höfum mikið verið spurðir um það, þvl I ósköpunum við ekki kærum kosninguna, sem getið var I umræddri grein I Visi þann 14. 10. Ég vil taka það fram hér, að greinarhöfundur hefur lýst fundinum I öllum atriðum rétt, svo augljóst er að þessi kosning er hrein lögleysa og hægt væri þess vegna að kæra hana á stundinni. Það eru svo margar ástæður til þess og sú helsta er, að þetta er allt svo óhugnan- lega rotið, að ég get ekki hugsað mér að koma nálægt þvl á nokkurn hátt framar. Hugsunarhátturinn er svo von- laus, sem þarna rikir Hin nýmyndaða stjórn samanstendur af ungum og ekki minna „fanatlskum" mönnum en þeim, sem fyrir eru Þeir hafa enga reynslu I rekstri, hvorki heilsuhælis né verslana. Okkur félögunum óar þess vegna við framtlðarrekstri bæði hælisins og verslananna. Samstarfið við ráðamenn félags þessa er I megin atriðum þann- ig: Á hinu nýafstaðna þingi er NLF- menn héldu I „kapellu" heilsuhælisins I Hveragerði, bar læknir þess fram árlðandi tillögu, að honum fannst, sem hljóðaði þannig, að enginn, sem ræki eða væri meðeigandi I fyrirtæki, mætti starfa fyrir NLFf. Ef sllkur eða slíkir væru til, yrði þeim tafarlaust sagt upp störfum. Allir vissu við hvern var átt, þ.e. verslunarstjórann okkar, þann er ég fyrr gat um, sem reisti verslanirnar upp frá dauða Var þessi tillaga eingöngu borin upp til að fá annan mann til að stjórna verslununum, mann, sem væri svo hlýðinn ráða- mönnum og auðsveipur, að hægt væri að taka allt „eitrið" úr þeim. Verslunar- stjórinn hafði aftur á móti neitað þvi og af þeim sökum hafði hann sagt upp frá áramótum. Um uppsögnina vissi læknirinn ekki og þvi lá svona mikið á að losna við hann. Þá reis upp lög- fræðingur NLFl. Sennilega hefir alveg gengið fram af honum. Benti hann lækninum á það, að tillaga hans væri brnt á Islenskum lögum og varaði þing- heim við að samþykkja þetta Þrátt fyrir ábendingu lögfræðingsins. reis nú læknirinn, Björn L upp, og mótmælti og sagðist vilja fá þetta samþykkt strax, málið þyldi enga bið. En vit iögfræðingsins forðaði þó félaginu I þetta sinn frá endaleysu læknisins. Þess ber að geta, að verslunarstjórinn er meðeigandi I litlu heildsölufyrir- tæki. Þess ber og einnig að geta, að forstjóri heilsuhælisins, Árni Ásbjörnsson, er skráður I stjórn fyrirtækis sonar slns, Magni h.f. I Hafnarfirði, en er af mörgum talinn aðaleigandi. Fyrirtæki þetta nýtur og virðist hafa notið forréttinda um sölu afurða sinna til heilsuhælisins Þó hefir Árni áður flutt sams konar tillögu og læknirinn I stjórn NLFl, en fékk ekki, sem von var, stuðning þá. Það þarf varla að taka það fram, að tillaga þessi var aðeins stlluð á verslunarstjórann. en átti alls ekki að snerta Árna for- stjóra! Nú er að segja frá mlnum skerf. Á þessu umrædda ölöglega „kapelluþingi", tók Árni forstjóri að ræða um happdrættið, sem NLF( hefur rekið I nokkur ár. Á fyrsta ári þess fékk hann tvo menn til að sjá um það, þeirra verk varð þó aðeins að fara með miða I bílinn I Bankastræti. Var þvl vandalaust að sjá, að með þessu móti yrði einungis tap á happdrættinu og var það komið á heljarþröm með þess- um vinnubrögðum. Voru nú góð ráð dýr. Þá var það að Árni forstjóri bað mig um aðstoð, að koma austur á hæli, til að bjarga þv! sem bjargað yrði. Til þess þurfti aðstoð skrifstofufólks hælisins. þar sem að- eins var örstuttur tími til að koma miðum út með glrógreiðslum. Ég lét tilleiðast og tókst með mikilli vinnu minni og konu minnar að -fá inn kr. 778.000. —. Þar með bjargaðist þetta happdrætti. Salan I bifreiðinni I Banka- stræti varð aðeins kr. 266.000. Þá dróst og bifreiðin inn og var seld, en það er önnur saga og gæti verið, að hún yrði sögð siðar, af öðrum aðila. Seinna sannaðist að Árni forstjóri hefði tekið aSeins eina milljón út úr rekstri heilsuhælisins og bætt við happdrættið, hvernig sem hann hefur nú „hagrætt" þvl. Rétt er að geta þess, að núverandi bókhald var þá ekki komið I gang. Varð þvl um sýndar- gróða að ræða þetta árið, og átti þessi „hagræðingarmilljón" að sýna, að happdrættið hefði ekki vaxið I minni umsjá samanborið við forvera mlna. Við þingheim eignaði hann aðeins tvlmenningunum alla söluna þær 778.000 kr. er ég aflaði, voru eignaðar þeim, ásamt hinni hagræddu milljón. Þetta var, að hann hélt, hugvit- samlega útbúið, til þess siðar, i um- EKKI er að sjá sem verulegs sam- dráttar gæti f jólaverzlun fólks. Morgunblaðið hafði f gær sam- band við nokkra verzlunarmenn f gær og taldi enginn þeirra sig hafa orðið varan við umtals- verðan samdrátt f eftirspurn en sumir töldu sölu hafa aukist miðað við jólin f fyrra. í vöruhúsinu Domus var okkur sagt að fólk verzlaði öðruvísi en áður og keypti minna magn. Nú væri meira keypt af fatnaði og nauðsynjavörum til jólagjafa. Taldi verzlunarstjórinn sig finna inn á einhvern samdrátt i eftir- spurn er umferð væri samt engu minni en á fyrri árum. Verzlunarstjórinn í Útilifi í Glæsibæ sagði að sala væri tölu- vert miklu meiri í ár en í fyrra, og taldi hann sig ekki hafa orðið varan við neinn samdrátt. Sagðist hann halda að svipaða sögu væri að segja úr öðrum verzlunum í Glæsibæ. Hljómplötusala hefur aukist mikið í Karnabæ í Austurstræti, minni aukning hefur orðið á sölu fatnaðar. Sagði verzlunarstjórinn að fólk skoðaði nú meira og velti fyrir sér verði. Annars benti hann ræddri kapellu á hinu fræga þingi, að ráðast að mér, eins og hinum, sem ekki eru samdauna honum. Er þetta skemmtilega I stll við kjörorð for- stjórans: „Ég vil og ætla að ráða öllu alls staðar." Og önnur ágæt setning: „Þeir sem eru mér ekki sammála, eru óvinir mlnir." Því er eðlilegt, að forstjórinn þurfi að „losa sig við" mig, verslunarstjórann og bókarann og alla aðra starfsmenn, sem eru honum ekki sammála. En snúum okkur aftur að happdrættinu. Næsta ár tókst mér að hækka glróviðskiptin og urðu þau kr. 1.871.000.— og nú þegar þetta er skrifað, eru þegar komnar inn yfir 2 milljónir og þó langt til dráttar þessa árs. Það er rétt að það komi fram, að það er mikil vinna við að koma á fót árvissu happdrætti með gírósendingum, og tekur 3—4 ár að byggja sllkt upp, sem hvertannað fyrirtæki, er koma skal á legg. Stendur það liðlega 4 mánuði ár hvert, en sá hluti, er snýr að þv! að sjá um happdrættisbifreiðina, er svo lltill hluti þess, að þess gætir alls ekki og getur aldrei talist til starfs, þótt greitt væri fyrir það 90 þús. kr. fyrsta árið, sem er rausnarleg greiðsla fyrir nokkrar gönguferðir niður I Banka- stræti. Ég er nú þegar farinn að hlakka til að sjá réttar tölur þessa árs, og síðan að fregna af næsta kapelluþingi um tölur „skáldsins" þar. Eftir að ég fór að kynnast rekstrinum austur á heilsuhæli, varð mér fljótt Ijóst, að bókhaldið var I algjöru lágmarki og brýn nauðsyn að bæta þar úr hið bráðasta. Það var þvl fyrir minn atbeina, að haustið 1 973 réðst til NLFÍ ágætis maður, Sæþór Skarphéðins- son. Við komu hans breyttist svo, að nú er bókhaldið með nútlma fyrir- komulagi og óaðfinnanlegt fyrir árið 1974, og það sem af er þessu ári. Nú er bókhaldið loks orðið að þvi stjórn- tæki sem vera ber I sliku stórfyrirtæki, sem heilsuhælið I Hveragerði er, ef það vari notfært sem sllkt. Það hefir aftur á móti ekki verið gert og verður ekki gert með núverandi stjórnendum. Þvl er nú bókhaldarinn einnig að hverfa þaðan, eins og verslunarstjórinn og verslunarfólkið Reikningar ársins 1973 lágu einnig fyrir þinginu I svo hörmulegu ástandi. að það tók annan félagsendurskoðandann 1 klst. að benda þingheimi á verstu villurnar. Gekk svo langt að þingið samþykkti að taka allt bókhaldið nokkur ár aftur I tlmann, hjá hinum löggilta endurskoð- anda félagsins til sérstakrar endurskoð- unar Þó hygg ég. að flestir viðstaddir þingfulltrúar hafi alls ekki skilið hversu alvarlegt mál er þarna á ferð. Ég fer ekki nánar út I þetta hér, þvl ég hefi heyrt að annar aðili hafi I hyggju að gera þv! all rækileg skil opinberlega Sllk eru heilindi þessara máttarstólpa hælisins. Ég er þeirrar skoðunar. að ef maður tekur að sér málefni, sem varðar heill þeirra, sem sjúkir eru og eiga bágt, þá verði góðvild, einlægni og fórnfýsi að sitja I hásætinu, en ekki baktjalda- makk, eigin hagsmunir. valdagræðgi og fanatlk. á að mestu verzlunardagarnir væru ennþá framundan. Bðkin heldur sfnu. Bóksala virist vera nokkuð mikil í ár eins og áður. Hjá Sig- fúsi Eymundsen kvað verslunar- stjórinn söluna hafa aukist frá því sem var í fyrra og sagðist hann ekki verða verulega var við að fólki fyndist bækur dýarar. Mál og menning kvað bók- söluna vera að magni til svipaða og í fyrra. „GuIIskipið týnda” — barnabók eftir Þröst Karlsson KOMIN ER út ný barnabók eftir Þröst Karlsson. Nefnist hún „Gullskipið týnda“. Er þetta þriðja bók höfundar um sömu söguhetjur, en þær fyrri eru „Flöskuskeytið" og „Náttúlfur- inn“. Hafa þær báðar hlotið vinsældir meðal yngstu lesend- anna. Herdís Hiibner hefur teiknað kápumynd og nokkrar myndir, sem prýða bókina. Útgefandi er Bókamiðstöðin. Lítill samdráttur í jólaverzlun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.