Morgunblaðið - 21.12.1975, Page 13
(
/
t
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975
49
Litli grísinn
Einu sinni, þegar ég kom til frænku minnar, sem á heima í
sveit, var þar pínulfti 11 grís. Hann var hafður i kassa inni i
eldhúsi. Hann var þarna vegna þess að mamma hans ætlaði, að
borða hann, þegar hann fæddist, þvi að hann var svo lítill. Hann
var eins og nýfæddur kettlingur. Þegar hann vildi fá að borða
grenjaði hann eins og lítið barn og frænka min gaf honum að
drekka úr pela og svo fór hann að sofa.
Guðrún Elva 8 ára,
Miðvangi 90, Hafnarfirði.
Teiknið fljót-
legt jólaskraut
Tilvalið aó teikna þessa kostulegu hausa á þykkari pappír, lita þá fallega,
annaðhvort með vax- eða vatnslitum, setja spotta í og síðan má hvort heldur
sem er hengja þá á jólatré eða í herbergin vkkar til skrauts.
Sagan um Tuma og fílinn
EINU sinni var lítill strákur
hann hét Tumi og var sex ára
gamall. Tumi átti heima í litlu
húsi langt, langt úti í skógi.
Honum þótti mjög va*nt um öll
dyr.
Einu sinni fann Tumi lítinn
fugl, hann var vængbrotinn.
Tumi var dýravinur og þess vegna
Með sögunni sendi Örn þessa
teikningu af Tuma og Bimbó í
hinni ævintýralegu skógarferð
sinni.
batt hann um vænginn á fuglin-
um og gaf honum mat á hverjum
degi, þangað til fuglinn gat flogið
þá sleppti Tumi honum. Nokkrum
dögum seinna átti Tumi afmæli,
hann fékk litinn fílsunga i af-
mælisgjöf. Honum þótti mjög
vænt um litla fílinn sinn. Hann
gaf litla fílnum nóg að borða, svo
að litli fillinn óx og óx. Loks var
hann orðinn svo stór að Tumi gat
farið á bak á honum. Það fannst
Tuma gaman. Bimbó og Tumi fóru
í langt ferðalag. Bimbó er fíllinn
hans Tuma. Leiðin lá út i skóg,
þar var margt að sjá til dæmis
apa, krókódila og margt fleira.
Svo sá hann líka stóran björn.
sern var grimmur og a'tlaði að
ráðast á Tuma en þá varð Turni
hræddur og fór á bak Bimbós.
Hann hljóp langt út i skóginn.
Allt i einu stoppaði Bimbó og leit
á Tuma. „Nú rötum við ekki
heim," sagði Bimbó. Það var farið
að dimnra. Tumi fór að gráta
Kom þá litli fuglinn sem hann
hjúkraði og sagði: „Hættu að
gráta. Tunri litli Eg skal fvlgja
þér heim. „Þegar heim kom
kvaddi hann litla fuglinn og svo
fóru Tumi og Bimbó að sofa.