Morgunblaðið - 21.12.1975, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 21.12.1975, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 1975 57 VELVAKANDI Velvakandi svarar i slma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags £ Barnabækur o.fl. Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifar: „Mig langar til að biðja fyrir þakklæti til þeirra, sem hafa ráðizt í það að gefa út bókina skemmtilegu „Tíu litlir negra- strákar" með teikningum eftir Mugg. Þetta er bók, sem alltaf var til á heimilinu þegar ég var lítil. Við vorum fjögur, systkinin, þannig að barnabækurnar urðu fyrir talsverðu hnjaski I tilveru sinni, en svo var þessi bók vinsæl, að hún var keypt aftur og aftur, þegar eitt eintakið hafði gengið sér til húðar. Nú hef ég árum saman reynt að spyrja eftir þess- ari bók handa mínum eigin börn- um, en hún hefur ekki fengizt. I þessu sambandi hefur mér dottið í hug hvort ekki mætti fara að gefa út fleiri vinsælar bækur handa börnum, sem nú orðið eru ófáanlegar. Nú geta þær jafnvel orðið enn skemmtilegri en áður vegna þess, að nú dytti vist eng- um í hug að koma með barnabók, sem ekki væri með litmyndum. Pappirinn er líka betri i barna- bókum nú til dags en þá var, og þvi ættu þær að endast betur. 1 sambandi við negrastrákana, þá þyrfti bókin að vera með stif- um spjöldum, þvi að þannig þurfa barnabækur að vera enn frekar en aðrar bækur. Og úr þvi að ég er farin að gera þetta að umræðuefni, þá langar mig til að flytja Svölu Valdimars- dóttur beztu þakkir fyrir flutning hennar á sögunni um hana Malenu litlu I Morgunstund barnanna. Þetta er skemmtileg saga og vel þýdd, en sennilega er hún bezt fyrir það, að hún lýsir á svo næman og heilbirgðan hátt sálarlifi telpunnar. Malena reynir eitt og annað, bæði skemmtilegt og sorglegt, — nú siðast missir hún mömmu sína. Áður hefur verið sagt frá þvi er hún eignaðist bróður, þegar hún fór fyrst í skóla og öðru, sem kemur fyrir flest börn, en ekki gengur alltaf snurðulaust fyrir sig. Það er ekki nóg með að börnin min hafi gagn og gaman af þvi að hlusta á sög- una, sjálf hef ég ekki siður haft ánægju af. Guðrún Aðalsteinsdóttir.“ 0 Gagnslausar stofnanir Guðmundur Öli Scheving, Bjarnarflagi, Mývatnssveit, skrifar á þessa leið og segir starfs- menn Dofra æskja svara við þeim spurningum, sem fram koma: „Það vantar ekki að sett séu upp plögg frá Öryggiseftirliti — Ja. Rg veit það eiginlega ekki. Veðrið. Við sögðum svo sem ekki margt. Ég fer af stað til vinnu minnar klukkan hálf nfu. Ég vinn í rafveitunni f Stowerton. Ég sagði að veðrið væri dásam- lega gott og hún sagði já, en það mvndi áreiðanlega vera of gott til að haldast svona og sennilega færi hann aftur að rigna. Og hún reyndist sannspá, Það var eins og hellt væri úr fötu allan fyrri hluta dagsins. — Og þér fóruð svo í vinnuna. Ifvernig? Með strætísvagni, lest eðabfl? — Ég á ekki bfl. . . Það var því líkast að hann ætlaði að fara að romsa upp öllu þvf sem hann átti ekki heldur, svo að Wexford greip hraðmæltur fram f fyrir honum: — Með áætlunarvagninum? — Ég tek alltaf bflinn sem fer af torginu klukkan 8.37. Ég kvaddi hana. Hún fvlgdi mér ekki út, en það er ekkert athugavert við það. Það gerði hún aldrei. Hún var önnum kafin við að þvo upp. — Minntist hún á hvað hún ætlaði að taka sér fvrir hendur? — Ég býst við það hafi verið þetta vanalega, kaupa f matinn og rikisins. Finir menn, sem kallaðir eru sérfræðingar, eru sendir á staðinn til ráðlegginga, eftirlits og úttektar á stöðu viðkomandi, aðstöðu á vinnustað og svo fram- vegis. Þegar sérfræðingur frá Rafmagnseftirliti ríkisins hafði lokið eftirliti var skrifuð skýrsla og virtist allt vera i lágmarki og óskað var eftir lagfæringu á raf- kerfi, sem jaðraði við að vera ónýtt. En Orkustofnun fékk frest i eitt ár. Þá mátti þetta drasla og má enn, þótt um mannslíf sé að tefla. Hver ber ábyrgð ef eitthvað kemur fyrir? Er það Orkustofnun eða er það sérfræðingurinn, sem veitir frestinn? Fyrir hálfum mánuði hringdi starfsmaður i Rafmagnseftirlitið og kvartaði. Og þá stóð ekki á því að senda sérfræðing norður í Kröflu til athugunar á rafmagns- málum á gufubornum. Þarna var kominn sérfræðingurinn, sem verið hafði þar fyrir ári. Nú blöskraði honum svo, að hann gekk um og klippti í sundur flestar leiðslur og dæmdi allt ónýtt í annað sinn. Og enn fær þetta að drasla. Að visu er búið að setja þrjá leka- leiða og tengja þá, en þeir eru engin framtíðarlausn. Það eru ónýtir tenglar, óvarin ljós, og ónýtar snúrur úti um allt. Alls staðar eru rafmagnsslysagildrur. Ég veit að það er vélstjórinn hér á bornum, sem er allra manna harðastur I að fá þetta I lag, en honum hefur bara tekizt að fá svona bráðabirgðaviðgerðir á hlutunum, þegar rafvirkjarnir hér um slóðir mega vera að þvi að lita við. # Öryggismál á vinnustað Upplýsingaþjónusta i sambandi við meðferð öryggistækja og öryggismál er akkúrat engin. Verkstjórar og aðrir yfirmenn á borsvæðinu hafa sennilega ekki fengið neina fræðslu í öryggis- málum því að þeir virðast sofandi fyrir þessum málum. Það hlýtur að vera nausyn fyrir menn, sem hafa mannaforráð, að geta gripið til réttra öryggistækja, og aðgerða þegar eitthvað kemur fyrir. Eru það einhverjir mennta- menn, sem þjóðfélagið hefur sett i þessar stöður, af þvi að enginn veit hvað annað á að gera við þá?“ Guðmundur vikur siðan að þvi, að taka þurfi þessi mál til gagn- gerrar endurskoðunar og um- ræðu. Hann öskar eftir annarra áliti á öryggismálum og eftirliti, og leggur til að gert sé átak til að koma þessum málum i betra horf en nú er. HÖGNI HREKKVÍSI Jólasveinninn hefur sallað á sig smákökunum og allri mjólkinni. LUXO LAMPINN ER NYTSÖM JÚLAGJÖF . ' ; ili LUXO er ljósgjafinn, verndið sjónina, varist eftiiiíkingar ALLAR GERÐIR - ALLIR LITIR SENDUM í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut 12 sími 84488 Hvers vegna ekki vandað úr? Æjggg.1. Stórkostlegt úrval af: Herra-úrum Dömu-úrum | Skóla-úrum Hjúkrunar- og vasa-úrum Einnig stofu- eldhús og vekjaraklukkur Verð — gæði og útlit fyrir alla Ur og skartgripir Jon og Oskar Laugavegi 70 sendum í póstkröfu sími 2491 0. EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU SIGGA V/GGA £ iiLVtAAU 6K4VUH K0H4 ■48)'' MLURtSfVÍ iiiui, mwA9 mii&T IfÍÍ iJ^c 'r7?; WAQ YitmzfA KER77 OGfoa- V/NVO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.