Alþýðublaðið - 25.09.1958, Page 1

Alþýðublaðið - 25.09.1958, Page 1
XXXIX. árg. Fimmtudagur 25. sept. 1958 217. tbl. FRIÐRIK ÓLAFSSON var væntanlegur heim í gær kvöldi með flugvél frá Flugfélagi íslands, er koma átti frá Kaupmannahöfn og Glasgow. Sökum veðurs . tafðist för vélarinnar og kemur hún ekki til Reykja- víkur fvrr en í dag, líklega milli kl. 10 og 11 árdegis. Er Friðrik Ólafsson kemur nú heim verður honum fagnað sem fyi’sta íslenzka stórmeistaranum í skák, en sá titill var honunr veittur, meðan hann kepptj á mótinu í Júgólafíu fvrir skemmstu, þar sem hann varð meðal sigurvegara. Alþýðublaðið býður Friðrik velkominn. Ástand batnandi á Quemoy Taipeh, miðvikudag . í DAG geisaði mikil loftor- usta yfir Formósu-sundi milli flugvéla-hóps þjóðernissinna og um 100 þota kommúnista af gerðinni MIG-15. Þjóðernissinn ar héldu því fram eftir bardag- ann, að a. m. k. 12 flugvélar komúnista hefðu verið skotnar niður, en létu ekki uppi hve margar vélar þeir liefðu sjálfir misst. Amerískar heimildir vildu hvorki staðfesta né and- mæla upplýsingum þjóðernis- sinna, en bent var á, að til þessa hefðu slíkar upplýsingar þeirra verið áreiðanlegar. Þjóðernissinnar segja, að bardaginn hafi farið fram í 1000 metra hæð yfir sundinu og hafi staðið í tíu mínútur, en þá hafi flugvélar þeirra lent á For- mósu. ÁSTANDIÐ BATNAR Á QUEMOY. Yfirmaður ameríska hersins á Kyrrahafi sagði í dag, að á- standið á Quemoy færi nú batn andi. Segja þjóðernissinnar, að flutningar um loftbrúna til Que moy hafi aukizt um 50% síðan 1. september. Telur AFP, að birgðir þær, sem kastað er nið- ur á eyjuna nú fari langt með að nægja bæði hernum og borg- urum. Gcðar kínverskar heimildir í Taipeh telja, að stjórn þjóðern- issinna muni fallast á vopnahlé á Quemoy-svæðinu, en hún muni ekki láta af hendi neina af eyjunum við meginlandið. — Komúnistar verði þó að hætta skothríðinni, því að þeir hafi byrjað hana. Segja heimildivn- ar, að stjórnin hafi tekið þessa afstöðu eftir viðræður við ame- rísk stjórnarvöld. ÞÓTT komið sé fram yfir venjulegar réttir, eru göng- ur ekki byrjaðar sums stað ar á landinu. Þannig er það t. d. á Melrakkasléttu. Þar verður ekki farið í göngiir fyrr en um mánaðamót. Viða eru hins vegar seinni rétt- ir um þetta leyti. Beirut, miðvikudag. TÆPUM sólarhring eftir að Cliehab, hershöfðingi, tók við embætti forseta, kom til illvíg- ra óeirða í Beirut í dag Opinber ir aðilar halda því fram, að 10 rnanns hafi látið lífið, en upp- reisnarforinginn Saeb Salam heldur því fram, að liann hafi einn misst 15 manns, auk þess sem 50 hafi særzt illa. Eftir harða götubardaga í morgun greip herinn inn í síðdegis með skriðdrekum og fótgönguliði, o£ var allt rólegt orðið á yfir- borðinu víðast hvar í borginni, er kvöldaði. Hinir hægrisinnuðu falangist ar reyndu með valdi að koma á allsherjarverkfalli, en er nokk- ur fyrirtæki í höfuðborginni hlýddu ekki verkfallsboðmu, hófu ,,stormsveitir“ flokksins aðgerðir, og skömmu síðar var bardaginn milli falangista og vinstri manna kominn í a!- gleyming. Þá skarst herinn í leikinn. Jafnframt var send út tilkynning um, að allir óbreytt- ir borgarar, sem fyndust með vopn á sér, yrðu þegar í stað skotnir, og stórskotalið mundi þegar í stað skjóta á hvert það hús, er hermdarverkamenn byggju um sig í. Skömmu síð- ar lognuðust bardagar út af> en þó ríkir en mikil spenna í bæn. um. Góðar heimildir í Beirut segja, að Chehab hafi beðið fyrrverandi ! uppreisnarleiðtoga í Tripolis, um að mynda nýja stjórn í land I inu, Þetta hefur ekki fengizt opinberlega staðfest, en meðal! uppreisnarmanna er því haldið 1 j frarn, að Karamf hafi verið fal- j | in stjórnarmyndun ,er hann í kvöld var í heimsókn hjá Che- hab. ÁÐUR FORSÆTISRÁÐ- HERRA. Karami hefur einu sinni áð- 1 ur verið forsætisráðherra í Líb- j anon ,en sagði af sér eftir fáa mánuði árið 1955. Hann er ekki Rashid Karami, Framliald á 2. síðu. | Allt í strand | | í Varsjá | Washington, miðvikudag. SAMNINGAVIÐRÆÐUR Bandaríkjamanna og kínverska „alþýðulýðveldisins hafa nú strandað með öllu, segir góð heimild í Washington. Menn vona þó, að fundur sendiherr- anna á morgun muni veita frek ari von um skjótt vopnahlé á Formósusundi. Opinherr aðilar eru þeirrar skoðunar, að það mundi vera diplómatiskt krafta verk, ef þessir aðilar geti komið sér saman, svo mikið her á milli. VARÐSKIPSMENN hafa skýrt svo frá, að yfir menn brezku herskipanna á Islandsmiðum hafi bein línis hvatt landhelgis- brjóta til ógæfu- og ofbeld isverka. „Ágætt.“ og „Áfram, strákar!!< er tónninn í svörum þeirra, þegar víg- reifustu togaraskipstjór- arnir leggja fyrir þá sam- vizkuspurninguna: „Eig- um við bara ekki að reyna að granda þessum náung- um með því að sigla skip- in þeirra niður?“ Alþýðublaðinu kemur ekki til hugar að véfengja framburð varðskipsmanna. Þetta eru heiðarlegir og grandvarir sjómenn. — Þeir kunna einfaldlega ekki að búa til stríðs- og æsifréttir. En það hefur enginn ábyrg- ur aðili hrezkur ennþá hreyft mótmælum. Því miður. Brezka svarið er nístandi Þögn. Þó eiga Bretar vissulega leik eins og nú er komið. Islending- ar eru friðsaanir menn. Þeir hafa andstyggð á morðtólum, hvaða nafni sem þau nefnast. Framhalð á 2. siðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.