Alþýðublaðið - 27.11.1930, Síða 2
2
AEÞSÐDB&AÐIÐ
■
Alþýðusambandsþingið.
I gær var pingið sett kl. 1 og
stóð það til kl. 5. Jón Baldvins-
son, forseti sambandsins, flutti
skýrslu uxn stjórnmálastarf Al-
þýðuflokksins. Stóð ræða hans á
aðra klukkustund, og verður
útdráttur af henni birtur hér
i blaðinu. Stefán Jóhann Stef-
ánsson, gjaldkeri sambandsins,
tplaði um fjármál þess og las
upp reikninga þess, Alþýðublaðs-
ins og Alþýðuprentsmiðjunnar. í
sambandi við reikningana talaði
Haraldur Guðmundsson. Bjöm
Bl. Jónsson gaf skýrslu um starf
sambandsstjórnar fyrir bættum
kjörum vega- og brúa-gerðar-
manna. Ekki voru að þessu sinni
neinar umræður um skýrslu sam-
bandsstjórnar eða reikningana, en
nú var gengið að kosningú í 'fast-
ar nefndir.
Pannig var kosið í eftirtaldar
nefndir:
Löggjafarmálanefnd:
Jón A. Pétursson,
Ólafur Friðriksson,
Kjartan Ólafsson (Rvík).
Fjárhagsnefnd:
Stefán Jóh. Stefánsson,
Finnur Jónsson,
Jónína Jónatansdóttir,
Kjartan Ólafsson (Hafn.),
Ingólfur Jónsson.
Stefnuskrárnefnd:
Haraldur Guðmundsson,
Héðinn Valdimarsson,
Finnur Jónsson,
Kjartan Ólafsson (Hafn.),
Sig. Einarsson.
Verklýdsmálanefnd:
Jóhanna Egilsdóttir,
Sigurður Ólafsson,
Felix Guðmundsson,
Guðm. Jónsson frá Narfeyri,
Magnús H. Jónsson.
Skipulagsmála- og laga-nefnd:
, Sigurjón Á. Ólafsson,
Jónas Guðmundsson,
Gunnar Jóhannsson.
Blaöanefnd:
Haraldur Guðmundsson,
Jónas Guðmundsson,
Einar Olgeirsson.
Að þessum kosningum loknum
var fundi frestað til kl. 1 i dag.
0r skýrslu gjaldkera Alþýðusambandsins
(Stefáns Jóh. Stefánssonar).
Félög í flokknum eru 36.
Verklýðsfélög 28 með 5485 félaga
Iðnfélög 2 — 135 —
Jafnaðarm. fél. 6 — 332 —
Auk þess hefir félagatalan á ár-
inu aukist um hér um bil 550,
svo að sennilega mun félagatalan
nú um 6500.
Hætt störfum hafa 3 félög:
Verkamannafélag Bolungavikur,
Jafnaðarm.félag Vestmannaeyja,
Verkakvennafélagið Hvöt.
Ný félög hafa bæzt við:
Jafnaðarmannafélag Siglufjarðar með 28 félaga
Félag vörubílaeigenda — 117 —
Verkakvennafélagið Von á Hellissandi • — 20 —
Sjómannafélag Siglufjarðar — 38 —
Jafnaðarmannafélag Hafnarf jarðar —. 37 —
Jafrvaðar-og verka-mannafélag Ólafsvíkur — 47 —
Verkamannafélagið Fram, Seyðisfirði — 230 —
'VeTkamannafélag Patreksfjarðar — 211 —
Jafnaðarmannafélag Seyðisfjarðar — 20 —
Alls með 748 félaga.
Efling
verklýðssamtakanna.
t
Eins og segir í skýrslu yfir fé-
•lög í Alþýðusambandi íslands, er
biírt var hér í blaðinú í gær, voru
um síðustu áramót 1220 félagar í
verkamannafélaginu „Dagsbrún"
og 410 í verkakvennafélaginu
„Framsókn“. Nú eru yfir 1400 fé-
lagar í „Dagsbrún" og um 750
í „Framsókn". Hefir fjölgað um
kringum hálft sjötta hundrað fé-
lagsmanna í þessum tveimur fé-
lögum það sem af er þessu ári.
Aukapóstur frá Kirkjubæjar-
klaustri er væntaníegur hingað í
dag.
Togamrriir. „Sindri" kom af
veiðum i gær með 750 körfur ís-
fiskjar.
Háskóiastúdenfar
mótmæla brottFekstri úr
mentaskólumim Syrir stjórn-
málaskoðanir.
1 gærkveldi var haldinn fundur
í Félagi háskólastúdenta, og var
brottrekstur Ásgeirs Bl. Magnús-
sonar úr Mentaskólanum á Ak-
ureyri á dagskrá. Eftir langar og
heitar umræður var svolátandi
tillaga samþykt rneð 24 atkv.
gegn 8:
„Almennur fundur í Félagi há-
skólastúdenta lýsir sig mótfallinn
þvi ákvæði i reglugerðum menta-
skólanna á Akureyri og í Reykja-
vik, er banna nemendum að láta
skoðanir sínar opinberlega í Ijós,
og telur rétt, að þær séu numd-
ar úr gildi.“
MJélkursalaii.
Bœrinn verðnr að taka
~"ni]ólkurs51una i sfinar
hendur.
Svo er kallað, að verzlun með
mjólk sé hér frjáls. Ágæti frjálsr-
ar samkeppni, frjálsrar verzlunar,
ætti því að sýna sig ljóslega í
mjólkurverðinu og öllu fyrri-
komulagi mjólkursölunnar.
Vegna þess, hve skamt er á
milli ' mjólkurframleiðenda og
neytenda og þeim kunnugt um
hagi hver annars, er tiltölulega
auðvelt að gera sér grein fyrir
því, hvernig hin frjálsa sam-
keppni hefir reynst nejdendum
og framleiðendum á þessu sviði.
Fyrir neytpndur eru aðalatriðin
tvö:
1) að mjólkin sé jafnan Sægi-
lega mikil og sem ódýrust,
2) að trygt sé, að að eins sé
seld næringarmikil, hrein og
heilnæm mjólk.
Fyrir framleiðendur er það að-
alatriðið að fá sem' hæst verð
fyrir mjólkurframleiðslu sina í
heild og andvirðið greitt jafn-
óðum.
Hvemig hefir þá hin frjálsa
mjólkurverzlun reynst bændum
og Reykvíkingum ?
Því er fljótsvarað:
Reykvíkingar verða að greiða
44 til 54 aura fyrir hvern mjólk-
urlítra, og tryggingin fyrir því,
að mjólkin sé hrein, heilnæm og
næringarmikil, er, vægast sagt,
langt frá þvi að vera fullnægj-
andi. Nokkurn hluta ársins er
svo mikil mjólk flutt til bæjarins,
að hún gengur ekki út og spill-
ist, á öðrum tímum liggur við
beinum mjólkurskortd. Með fullri
vissu er ekki unt að segja að svo
stöddu, hve mikið bændur austan
fjalls fá fyrir mjólkina. „Tíminn"
skýrði frá því í haust, að þeir
fengi um 13 aura fyrir lítrann.
Það er sjálfsagt of lágt áætlað.
Gagnkunnugur maður hefir sagt,
að þeir myndu sennilega fá til
uppjafnaðar um 16,2 aura, og
þeir allra bjartsýnustu tala um
18—20 aura. En eftir miklum
hluta andvirðisins verða þeir að
bíða mánuðum saman eða jafn-
vel missirum, meðan afurðimar,
t. d. ostar, eru að verða sölu-
hæfar og seljast. Mun því láta
nærri að áætla verðið til bænda
fyrir mjólkina til uppjafnaðar
heima hjá þeim 16—17 aura.
Greiða þá Reykvíkingar um
það bil þrefalt hærra verð fyrir
mjólkina en bændur austan fjalls
fá fyrir hana.
Kostnaðurinn við mjólkursöl-
tina er alveg gífurlegur. Hér í
bænum munu nú vera yfir 70
mjólkurbúðir. Húsnæðið er afar-
dýrt og hlýtur að kosta stórfé
fyrir allan þenna sölubúðagrúa.
Laun starfsfólks og allur kostn-
aður annar hlýtur og að marg-
faldast vegna þess, hve búðirnar
eru óhæfilega margar.
Áreiðanlega mætti komast af
með um 20 mjólkúrbúðir án þess
að auka bæjarmönnum óþægindi,
ef þær væru skipulega settar nið-
ur. Þó að starfsfplkinu væri
miklu betur launað en nú er og
fleiri um afgreiðsluna í hverri
búð, mætti sennilega lælika út-
sölukostnaðinn um helming með
því að fækka mjólkurbúðunum
niður í 20 eða þar um bil.
Þá væri jafnframt auðvelt að
koma við öruggu heilbrigðiseftir-
liti með mjólkinni og itarlegurr,
rannsóknum á næringaTgildi
hennar, fitu, gerlamagni og gerla-
tegundum, sem nú er nær ó-
kleift. Nú stendur mjólkin í opn-
um ílátum í búðunum oft dag-
langt, og er ausið upp í ílát
kaupendanna. Geta þar blandast
saman við hana óhreinindi og
alls konar gerlar og sóttkveikjur
úr loftinu, svo að gerilsneyðing
og hreinsun sú, sem nú mun
framkv'æmd i hinum stærri
mjólkuTStöðvum flestum, verður
til sáralítils gagns. Væri búðun-
um fækkað, eins og hér er gert
ráð fyrir, væri sjálfsagt að útbúa
þær samkvæmt ýtrustu kröfum
nútímans, geyma mjólkina á
köldum stað i lokuðum geymum
og láta hana renna um hana í
ílát kaupenda. Auk hreinlætisins
myndi leiða af þessu mikill tima-
sparnaður fyrir afgreiöslufólkiö.
En þó að þvi verði ekki neitað,
að mjólkursalan sé í megnasta
ólagi og kostnaðurinn við hana
óhæfilega mikill, er hann engan
veginn svo mikill, að hann auk
flutningskostnaðar og þess hátt-
ar geti skapað þann feikna mis-
mun, sem er á útsöluverðinu hér
og verðinu, sem bændur eystra
fá fyrir mjólkina.
Meginástæðan er sú, að mikinn
hluta ársins, einmitt þegar bænd-
ur eystra hafa mest af mjólkinni,.
geta þeir nauðalítið selt hingað
til Reykjavikur, heldur verða þá
að búa til úr henni nær allri
osta, smjör og skyr. En fyrir
þessar vörur fá þeir, að frádregn-
um öllúm kostnaði við tilbúning
þeirra og sölu, ekki nema lítið
brot af þvi verði, sem þeir hefðu
fengið fyrir það mjólkurmagn,..
sem' í þær fór, ef þeir hefðu get-
að selt það til Reykjavíkur.
Þetta verður til þess að lækka
meðalverð það, sem bændur fá
fyrir mjólkina, afskaplega og því
meira, sem meira af mjólkinni
fer til vinslu.
Mjólkurmarkaðurinn í Reykja-
v$k er í raun og veru því nær
lokaður fyrir bændur austan
fjalls. Mun hæpið, að mjólkur-
búin hafi í ár getað selt nema
tæpan 1/6 hluta þeirrar mjólkur,..
er félagsmenn hafa afhent þeim,
til Reykjavíkur. Verður því verð-
ið, sem þeir fá til uppjafnaðar,
ekki nema örlitið yfir vinsluverð
mjólkurinnar.
Mjólkurbúin treysta sér ekki tii: