Morgunblaðið - 24.04.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 24.04.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAÚGARDAGUR 24. APRÍL 1976 53 brezkir togarar við Týr skar á vörpur 3ja ALLS voru 75 erlend veiði- skip á íslandsmiðum í gær, þar af voru 53 brezkir tog- arar og hafa ekki verið fleiri í langan tíma. Að undanförnu hefur lítið borið til tíðinda á miðun- um, en í fyrrakvöld tókst varðskipinu Tý að klippa á veiðarfæri 3 brezkra tog- ara, sem voru að veiðum um 43 sjómílur ANA af Bjarnarey. Varðskipin Ægir og Óðinn voru einnig á þessum slóðum, gerðu þau mikinn usla meðal tog- Bókauppboð Klaustur- hðla í dag GUÐMUNDUR Axelsson list- munasali og uppboðshaldari í Klausturhólum heldur bóka- uppboð í Tjarnarbúð klukkan 14 I dag. Á uppboðinu eru alls 130 númer. Má þar nefna íslenzka- danska orðabók eftir Sigfús Blöndal, Skemtilega Vina- Gleði í fróðlegum samræðum og ljóðmælum leidd í ljós af Magnúsi Stephensen, útgefna í Leirárgörðum 1797, ferðabók George Stuart Mackenzie frá íslandi 1810, 3 dýrabækur Bjarna Sæmundssonar í frum- útgáfum, Andvökur Stephans G. frá 1909 — ’IO, Kvæði Egg- erts Ólafssonar 1832, Biskupa- sögur Jóns Halldórssonar í Hít- ardal 1903^—’15. Biskupasög- ur Hins íslenzka bókmenntafé- lags 1858 — ’78, Lífs-sögu Jóns Jónssonar forðum sýslumanns í Rangárvallasýslu, útgefna 1794 og Í verum, sögu Theó- dórs Friðrikssonar. aranna, þótt ekki tækist þeim að klippa á togvíra. Mikil þoka hefur verið á þessum slóðum og í fyrra- dag lentu tveir brezkir tog- arar í árekstri. Kom gat á annan þeirra. Að sögn talsmanns Landhelgis- gæzlunnar, þá var það um kl. 18.53 í fyrrakvöld, sem Týr kom að togarahópi austur af Bjarnarey. Stuttu síðar tókst varðskipinu að klippa á forvir Northern Gift GY—704 og kl. 19.30 klippti varðskipið á báða togvíra Benella H—132. Síðan var það um kl. 21, að Týr kom að Artic FORDUMBOÐIÐ Sveinn Egilsson h.f. hélt upp á 50 ára afmæli sitt á sumardaginn fyrsta með því að nokkrum gestum var boðið i nýtt skrifstofuhúsnæði, sem tekið hef- ur verið f notkun í Skeifunni 17 f Reykjavík, en þar hefur starf- semi fyrirtækisins verið til húsa sfðustu 8 ár. I tilefni afmælisins komu hing- að til lands fjórir fulltrúar Ford Motor Company, A1 Bass, Georg Beach, Pedro Kraus og Horst Hoyler. Afhentu þeir við þetta tækifæri Þóri Jónssyni, fram- kvæmdastjóra Sveins Egilssonar h.f., sérstakan skjöld frá-Henry Ford II, en á skildinum þakkar Vandall H—344, sem var að hífa vörpuna. Náði varðskipið að rífa alla vörpu togarans. Um svipað leyti komu tvær freigátur og einn dráttarbátur á vettvang og reyndu að þjarma að varðskipinu án árangurs. Togararnir hættu allir að toga og í allan gærdag voru þeir lítið að veiðum. Undan Austurlandi er nú mikil þoka og vita skipstjórar togar- anna ekki hvað er togari, dráttar- bátur eða herskip á ratsjám sín- um. Því þora þeir vart að dífa trolli í sjó. Herskipin reyndu þó að fylgjast með varðskipunum, en missa oft af þeim. Eins og fyrr segir voru 53 brezkir togarar við landið í gær- Ford, sem nú er stjórnarformaður FMC, dygga þjónustu fyrirtækis- ins við Ford-eigendur i 50 ár. Með tilkomu hins nýja skrif- stofuhúss hefur verið opnað 600 fermetra sýningarsalur í kjallara þess, en á jarðhæð hússins er varahlutaverzlun fyrirtækisins. Auk Ford-umboðsins eru tvö ná- tengd fyrirtæki til húsa í Skeif- unni 17, Þ. Jónsson & Co og Bíla- ryðvörn h.f. Stærð húsnæðisins í Skeifunni 17 er samtals 5.600 fer- metrar. Þess má og geta að á síðasta ári sameinuðust tvö Fordumboð í eitt, er Kr. Kristjánsson gekk til liðs við Svein Egilsson h.f. landið togara morgun, 2 voru á leið til Bret- lands og 1 til Færeyja í viðgerð. Þá voru 16 v-þýzkir togarar við landið, 3 færeyskir og 3 belgískir. Eins og fyrr segir þá lentu tveir togarar í árekstri í þokunni. Voru það Boston Halifax og Boston explorer. Varð annar þeirra að leita hafna vegna leka. GUNNAR Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Islands, lézt á sjúkrahúsi I Reykjavík f fyrrinótt eftir all- langa sjúkralegp-nýorðinn 64 ára. Gunnar var fæddur f Reykjavík 25. marz 1912, sonur hjónanna Guðmundar H. Guðnasonar gull- smiðs og Nikólfnu H. Sigurðar- dóttur. Gunnar var í fyrsta árgangin- um, sem útskrifaðist frá Laugar- vatnsskóla. Síðan stundaði hann HAUKUR Angantýsson bar sigur úr býtum f landsliðsflokki Skák- þings Islands, sem lauk á sumar- daginn fyrsta. Hlaut Haukur þar með nafnbótina Skákmeistari Islands 1976, en hann hefur ekki áður hlotið þá nafnbót þó hann hafi um margra ára skeið verið f hópi öflugustu skákmanna lands- ins. Haukur háði harða baráttu við Helga Olafsson um titilinn. Voru þeir jafnir fyrir sfðustu um ferðina, en f henni tapaði Helgi óvænt fyrir Haraldi Haraldssyni á sama tfma og Haukur vann skák sfna gegn Jónasi P. Erlingssyni. Hlaut Haukur 9 vinninga af 11 mögulegum en Helgi hlaut 8 vinninga. Sigur Hauks Angantýssonar í skákinni við Jónas P. Erlingsson var sannfærandi. Aftur á móti var skák Helga og Haralds tvísýn. Skömmu áður en skákin fór í bið fórnaði Helgi manni þannig að hann fékk hrók fyrir tvo létta menn. Þegar biðskákin var tefld fann Helgi ekki vinningsleið og svo fór að hann tapaði skákinni og þar með titlinum. önnur úrslit f 11. og síðustu umferðinni urðu þau að Margeir Pétursson vann Þóri Ólafsson, Júlíus Friðjónsson vann Björn Þorsteinsson, Ásgeir Þ. Arnason vann Gylfa Þórhalls- son en jafntefli varð hjá Ingvari Asmundssyni og Braga Halldórs- syni. 1 10. umferðinni urðu úrslit þau, að Helgi vann Braga, Haukur vann Þóri, Björn vann. Ásgeir, Haraldur vann Jónas en jafntefli Gunnar Guðmundsson verzlunarnám í London um skeið og vann að verzlunarstörfum eftir að hann kom heim, eða allt þang- að til að hann var ráðinn fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar islands árið 1963. Gunnar tók alia tíð mikinn þátt í tónlistarlífi, söng i mörg ár með Karlakórnum Fóstbræðrum. Þá sá hann um þáttin Hljómplötu- safnið í útvarpi. Gunnar var kvæntur Kristínu Matthíasdóttur og eiga þau tvö uppkomin börn. varð hjá Margeiri og Júlíusi, Ing- vari og Gylfa. Sem fyrr segir hlaut Haukur 9 vinninga, Helgi 8 vinninga, Ingvar 7 vinninga en 6 vinninga hlutu Margeir, Júlíus og Björn. Þrfr fyrstnefndu skákmennirnir skipa landslið íslands en um fjórða landsliðssætið verða þrír síðastnefndu skákmennirnir að heyja einvígi. í áskorendaflokki urðu Jón Þor- steinsson og Gunnar Gunnarsson efstir og jafnir með 8 vinninga af Framhald á bís. 19. F élagsmálanám- skeið á Bolungar- vik og á ísafirði DAGANA 29. aprfl til 2. maf n.k. munu Landssamband sjálfstæðis- kvenna og Samband ungra sjálf- stæðismanna f samráði við sjálf- stæðisfélögin á tsafirði og f Bolungarvfk efna til félagsmála- námskeiða. Námskeiðin hefjast kl. 20.30 á fimmtudag og föstudag og kl. 14 á laugardag. Auk almennra félags- starfa verður leiðbeint í ræðu- mennsku, fundarsköpum og fundarstjórn. Leiðbeinendur verða Friðrik Sóphusson, Fríða Proppé og Ernir Ingason. Þátttaka tilkynnist Mariu Haraldsdóttur í Bolungarvík og skrifstofu Vesturlands á tsafirði. Námskeiðin verða öllum opin. 300 þúsunda við- bótarlaun fyrir fimm síðna kver FIMMTÁN rithöfundar hafa skrifað Vilhjálmi Hjálmars- syni menntamálaráðherra bréf þar sem þeir mótmæla 300.000 króna viðhótarritlaunum, sem Dagur Sigurðarson hefur hlotið fyrir fimm blaðsfðna pésa, sem hann samdi á árinu 1974. Að auki fara bréfritarar þess á leit við ráðherra, að hann hlutist til um, að formaður úthlutunar- nefndarinnar, Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor, gefi op- inbera skýringu á ástæðum fyr- ir veitingunni. Bréfið er svohljóðandi: Hr. Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra. Menntamálaráðuneytinu, Reykjavík. Við undirrituð mótmælum þeirri ósvinnu, að úthlutunar- nefnd viðbótarritlauna, að und- anskildum Bergi Guðnasyni, Framhald á bls. 19. A1 Bass, fulltrúi Ford Motor Company, afhendir Þóri Jónssyni fram- kvæmdastjóra Sveins Egilssonar h.f. veggskjöldinn með undirritun Henry Ford II. — Myndin er tekin f afmælishófinu á sumardaginn fyrsta. Sveinn Egilsson hf. 50 ára: Fengu kveðjur frá Henry Ford Gunnar Guðmunds- son látinn Haukur Angantýsson Skákmeistari íslands

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.