Morgunblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.06.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNl 1976 Er Mao - TILKYNNINGIN i Peking um að Mao formaSur taki fram- vegís ekki i móti erlendum gestum er túlkuS þannig aS hann hafi hætt afskiptum af utanrikismálum og þá vaknar sú spurning hvort hann hættir einnig afskiptum af innanrikis- málum eSa sé þegar hættur þeim. Fréttir herma að dreift hafi veriS fölsuSum „fyrirmælum" í nafni formannsins á landsbyggðinni og þvi er talið nauSsynlegt aS svar fáist við þvi hvort Mao tekur ennþá virkan þátt i stjórnmálum. Teng Hsiao-ping, sem róttækir leiBtogar segjast hafa vikið frá vöidum meS stuSningi Maos. vitnaði til formannsins til að herða á baráttu sinni fyrir nútimabreytingum I efnahagsmálum i fyrra og nú er hann sakaður um að hafa dreift „fölsuðum" yfirlýsingum Maos og annarra leiðtoga, þará meðal „erfðarskrá" Chou En-lais. Erlendir gestir sem hafa rætt við Mao á undanförnum mánuðum hafa tekið þátt i þvi meS kinverskum yfirvöldum aS gera litiS úr þvi að heilsu hans hafi hrakað, að hugsuií hans sé orðin óskýr og að hann eigi erfitt með mál, aS sögn KinasérfræSings brezka blaðsins Guardian Hann telur þó þrátt fyrir þetta „þagnarsamsæri" að ekki geti farið á milli mála að kinverskur almenningur efist um að Mao geti gegnt hlutverki sinu, þar sem sýndar hafi verið kvikmyndir i Kina af fundum hans og erlendra gesta. Samt hefur Mao haft úrslita áhrif á þróunina i Kina á siðustu mánuðum. Þegar stjórn kommúnistaflokksins i Peking-háskóla sendi honum tvö bréf i ágúst og september i fyrra til að kvarta yfir litlum námskröfum og afskiptum vinstriöfgamanna varð það til þess tveimur mánuðum siðar að Mao hvatti til „umræðna" um málið og þar með hófst mikil áróðursspjaldaherferð sem stóð i allan vetur. Mao er einnig sagður hafa séð að Teng væri á „rangri braut" samkvæmt opinberum frásögnum og hafa sagt að hann „vissi ekkert um marxisma og leninisma", þar sem hann væri fulltrúi borgarastétt- arinnar, í „nokkrum mikilvægum fyrirmælum" síðan i fyrrahaust. Og það var Mao sem lagði til við miðstjórnina í april að Teng yrði vikið frá. Hins vegar bendir Guardian á að flest „fyrirmælin" frá Mao séu annað hvort mjög stuttorð eða nokkurra ára gömul. Jafnframt stendur yfir mikil barátta fyrir þvi á landsbyggðinni að hafa upp á fleiri „fölsuðum fyrirmælum" og það er talið gefa til kynna að mikil óvissa riki meðal kinversks almennings um hvað Mao segi. • TILRAUNIR eru hafnar til að víkja Carlos Arias úr emb- ætti forsætisráðherra á Spáni samkvæmt blaðafréttum, þar sem vitnað er í áreiðanlegar heimildir í Madrid. Þeir sem að þessum tilraun- Carlos Arias Navarro um standa eru annars vegar íhaldssamir áhrifamenn og hins vegar fyrrverandi ráðherr- ar, sem standa í tengslum við samtök rómversk-kaþólskra leikmanna, Opus Dei. íhaldssömu uppreisnarmenn- Manuel Fraga Iribarne irnir i valdaforystunni eru kall- aðir „Los tres Lopez" því þeir eru Lopez Bravo (fyrrverandi iðnaðarmála- og utanríkisráð- herra), Lopez Rodo (fyrrver- andi efnahagsþróunarráð- herra) og Lopez de Letona (sem kenndi Juan Carlos kon- ungi þegar hann var í háskóla og virðist enn hafa töluverð áhrif á hann). Mennirnir sem standa í tengslum við Opus Dei eru svo- kallaðir tæknikratar og voru pólitískir andstæðingar núver- andi ráðherra, sem eru kallaðir „framfarasinnar", einkum Manuel Fraga Iribarne innan- ríkisráðherra. Nokkrir ráðherr- anna úr Opus Dei voru sakaðir um afglöp þegar upp komst um stórfellt fjármálahneyksli, svo- kallað Matesa-hneyksli, sem var í þvi fóigið að rikisfé var mis- notað undir þvi yfirskini að styrkja ætti fyrirtæki í vefnað- arvöruiðnaði. Fraga var þá upplýsingaráð- herra og þótt blöðin væru rit- skoðuð leyfði hann þeim að birta að vild það sem þau vissu um málið og gagnrýna samráð- herra sína fyrir að vera við- riðna hneykslið. Fraga gekk þó of langt því að Franco hershöfð- ingi krafðist þess að hann segði af sér. Nú virðast sem sé þessir fyrr- verandi tæknikratar ætla að gera alvarlega tilraun til að víkja andstæðingum sinum, framfarasinnunum. Töf hefur orðið á því að þingið samþykki lög um breytingar á hegninga- lögum þannig að þróunin í lýð- ræðisátt hefur stöðvazt í bili og þar með segja þeir að vonir Spánverja um inngöngu í Efna- hagsbandalagið hafi orðið fyrir áfalli og efnahagsmálin komizt i alvarlega hættu. Leiðari Dagblaðs alþýðunnar í Peking: „Þorskastríðið leiddi í ljós löngun USSR í ísland” HIN opinbera kínverska fréttastofa segir í frétta- sendingu nýlega frá leiðara í Dagblaði alþýðunnar í Peking sem ber yfirskriftina „Uggvæn- leg áform“ og segir frá „lævfslegum ráðagerðum sovézku sðsíalimperíal- istanna um að auka út- þenslu sína f Norður- Evrópu með því að notfæra sér deilu Breta og Is- lendinga“, eins og segir í fréttasendingunni. Leiðari Dagblaðs alþýðunnar er á þessa leið: Bretar og ís- lendingar undirrituðu nýlega samkomulag um veiðar Breta í íslenzkri fiskveiðilögsögu. Með við- ræðum og skoðanaskiptum bundu ríkin tvö enda á þessa langvarnadi deilu sfna og tóku upp að nýju stjórnmálasamband 2. júní. Bætt samband Breta og íslendinga er ekki aðeins þessum tveimur löndum í hag, heldur einnig mikilvægt öryggis- málum á þessu svæði og því styðja og fagna Evrópulönd þessum lykt- um. Hins vegar veldur þetta ókyrrð meðal sovézku sósfál- imperíalistanna sem alltaf hafa hrópað hátt um „gott og vinsam- legt samband" við Norðurlönd. Á það má minna að þegar deilur risu milli Breta og íslendinga og stjórnmálasambandi þeirra var slitið glöddust mjög sovézku endurskoðunarsinnarnir. Sovézka Tass-fréttastofan lýsti á undir- förulan hátt sambandi þessara tveggja fullvalda ríkja sem átökum stórveldis og „lítils bandalagsrikis", og reyndi að kynda undir og notfæra sér deiluna með því að hella olíu á s/f/' / V Norður flotinn 400 Skip' 160 Kafbátar Kort þetta sýnir greinilega athafnasvæði sovézka flotans, sem aðsetur hefur á Kolaskaga, á hafsvæðinu milli tslands og Noregs. Örin, sem vfsar út úr Eystra- salti, gefur til kynna, að sovézki Eystrasaltsflotinn hefur við flotaæfingar sameinazt norðurflotanum og örin neðst á myndinni gefur til kynna, að skip úr Miðjarðarhafsflota Sovétríkjanna hafa einnig komið þar við sögu. Kortið sýnir greinilega, að bæði Noregur og fsland eru á því svæði, sem Sovétríkin, í krafti hins aukna flotaveldis, seilast nú til vaxandi áhrifa á. eldinn af krafti og auka sundur- þykkju. Ekki verður komizt hjá því að spyrja: Hver er tilgangur sovézku endurskoðunarsinnanna með því að magna deilurnar? Ekki er erfitt að finna svarið ef litið er á hegðan sovézku endurskoðunarsinanna á þessu svæði. Að keppa um yfirráð i Evrópu — hernaðarlega mikil- vægasta svæðinu. Sovézku endur- skoðunarsinnarnir hafa árum saman á árásargjarnan hátt aukið ásælni sina I Norður-Evrópu. Þeir hafa hamslaust byggt upp hernaðarstyrk norðurflota síns, oftsinnis haldið heræfingar þar sem norður-evrópsk lönd eru not-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.