Morgunblaðið - 24.06.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNl 1976
13
0 ÞAR sem Jimmy Carter er
talinn öruggur um a8 verða
tilnefndur forsetaefni demó-
krata og skoðanakannanir
gefa til kynna að hann hafi
meira fylgi en Ford forseti og
Ronald Reagan beinist áhugi
manna i Bandaríkjunum meir
og meir að því hvern hann
velur fyrir varaforsetaefni.
Sex af 14 varaforsetum
Bandarikjanna ð þessari öld
hafa orðið forsetar, en þó
hefur val þeirra oftast verið
handahófskennt og þeir hafa
verið taldir misjafnlega hæf-
ir, til dæmis Spiro Agnew. Nú
er sagt að Carter ætli að
vanda valið og fá úr þvi skor-
ið með skoðanakönnun hvern
af 14 mönnum, sem hann
telur koma til greina, banda-
ríska þjóðin vilji helzt, en það
er algert nýmæli.
Carter er Suð-
urrikjamaður og
varaforsetaefnið
þarf að vera full-
trúi annars lands-
hluta eða annarra
skoðana-, hags-
muna eða þjóðfé-
lagshópa til að
tryggja „jafn-
vægi." Það sýna
þau 14 nöfn, sem
sagt er að Carter
sé að velta fyrir
sér:
Tom Bradley,
borgarstjóri i Los
Angeles, er
blökkumaður,
Þingkonan Bar-
bara Jordan frá
Texas er einnig
þeldökk og full-
trúi kvenþjóðar-
innar, Adlai
Stevenson öld-
ungadeildarmað-
ur frá lllinois er
frá Norðurrikjun-
um og nýtur auk
þess stuðnings
Mondale
Richard Daly,
borgarstjóra Chi-
cago, Birch Bayh
öldungadeildar-
maður frá Indiana
er frjálslyndur og
Cranston öld-
ungadeildarmað-
ur frá Kaliforníu
og Church frá
Idaho eru frá
vesturrikjunum.
Peter Rodino þingmaður
frá New Jersey gæti losað
þjóðina við minningarnar um
Watergate þar sem hann var
formaður dómsmálanefndar
fulltrúadeildarinnar (um
hann er einnig rætt sem
dómsmálaráðherra) o.sv.frv.
Aðrir, sem sagt er að Carter
hafi i huga, eru geimfarinn
fyrrverandi, John Glenn öld-
Stevenson
Muskie
Church
Jimm.v Carter virðist hafa tekizt að
sameina demókrata um framboð sitt og
leitar nú að varaforsetaefni.
ungadeildarmaður frá Ohio,
Edward Kennedy öldunga-
deildarmaður, sem virðist
hafa nokkurn áhuga á starf-
inu, rikisstjórarnir Hugh
Carey frá New York, Michael
Dukakis frá Massachusetts
og Wendell Anderson frá
Minnesota og öldungadeild-
armennirnir Edmund Muskie
frá Maine og Walter Mondale
frá Minnesota.
Siðan hafa aðrir látið i Ijós
áhuga á varaforsetaframboði
auk þeirra 14 sem Carter
hugleiðir og hér hafa verið
taldir. Þeirra á meðal eru
Henry Jackson öldungadeild-
armaður, John Gilligan, fyrr-
verandi rikisstjóri i Ohio, og
borgarstjórinn i Pittsburg.
Pete Flaherty, sem hefur vak-
ið athygli.
Þrir eru taldir liklegastir:
öldungadeildarmennirnir
Mondale, Muskie og Church.
sem allir virðast traustir, heið-
arlegir og mætir menn og
þeir eiginleikar skipta miklu
máli á þessu kosningaári.
Hins vegar gæti Mondale
virzt of frjálslyndur, Muskie
of mikill hrakfallabálkur
vegna fyrri ósigra og Church
of leiðinlegur.
Gert er ráð fyrir að ferill
allra þeirra, sem til greina
koma. verði rækilega rann-
sakaður, jafnvel með stuðn-
ingi blaða og FBI, áður en
Carter velur varaforsetaefni
sitt — og það hefur heldur
ekki verið gert áður.
-v—. -VV—J
POLAND
vr-.
■SiOVAKIN.
►BudapesU
HUNGARY
Belgradei
Bucharest •
YUGOSLAVIA
> BULGARIA
Sofia .
Ceusescu
• OVÆNT hreins-
un hefur verið gerð
í rúmensku stjórn-
inni og nokkrir ráð-
herrar settir af, þar
á meðal landvarna-
ráðherrann, Ion
Ioanita hers-
höfðingi. Breyting-
arnar virðast sýna
að völd Nicolae
Ceusescu forseta
hafi enn aukizt og hann eigi stöðugt
erfiðara með að þola gagnrýni á stefnu sína.
Ioanita hershöfðingi var einn þeirra
manna, sem hjálþuðu Ceusescu að komast
til valda 1965 og hefur verið landvarnaráð-
herra síðan. Eftirmaður hans er forseti
herráðsins, Ion Coman hershöfðingi.
Hinir valdamennirnir, sem voru settir af,
voru Paul Niculescu-Mizil menntamálaráð-
herra, sem eitt sinn var þriðji valdamesti
maður flokksins, Radu Paun heilbrigðis-
málaráðherra og Gheorghe Cioara, aðal-
ritari kommúnistaflokksins í Búkarest.
Eftirmennirnir eru sagðir tryggir flokks-
menn. Nicolae Niculescu var skipaður heil-
brigðismálaráðherra og Suzana Gadea,
vararektor verkfræðiháskólans i Búkarest,
var skipuð menntamálaráðherra en ekki
var tilkynnt hver tæki við af Cioara.
Breytingarnar fylgja í kjölfar víðtækra
hreinsana i menningar- og áróðursstofnun-
um. Blaðamenn virðast einkum hafa orðið
fyrir barðinu á þessum hreinsunum og
blaðamannafélagið hefur verið lagt niður
en í þess stað myndað svokallað blaða-
mennsku- og útgáfuráð sem verður aðili að
prentarafélaginu.
Niculescu-Mizil, Cioara og Ioanita halda
sætum sínum í framkvæmdaráði flokks-
ins, en búizt er við að þeim verði vikið úr
því svo lítið beri á. Þeir hafa fengið ný
heiðursstörf og þar með er talið að reynt sé
að láta lita út fyrir að klofningur hafi ekki
komið upp i valdaforystunni. Niculescu-
Mizil var skipaður formaður neytendaráðs-
ins, en Ioanita og Cioara aðstoðarforsætis-
ráðherrar án þess að verkefni þeirra væru
tilgreind. Nú eru níu aðstoðarforsætisráð-
herrar.
Opinberlega var sagt að breytingarnar
ættu að bæta vinnuskipulagningu stjórnar-
innar. Þó er bent á að ekkert lát hafi orðið á
skorti á brýnustu nauðsynjavöru, áhuga-
leysi verkamanna og almennri óánægju
með stefnu Ceusescus innanlands.
Þessarar óánægju mun einnig gæta á
æðstu stöðum og hún beinist einkum gegn
þeim ásetningi Ceusescus að hraða iðn-
væðingu á kostnað neytenda og að taka sér
meiri og meiri völd. Breytingarnar hafa það
í för með sér að fækkað hefur valdamönn-
um, sem geta látið I ljósi aðrar skoðanir en
þær sem Ceusescu hefur.
uð sem hugsanlegt skotmark og
hvað eftir annað sent njósnara til
þessara landa til að standa fyrir
undirróðri og skemmdarverkum.
Utþensla Sovétríkjanna er alvar-
leg ógnun við sjálfstæði og öryggi
Norðurlanda. Sovézku endurskoð-
unarsinnarnir hafa lengi ágirnzt
tsland vegna mikilvægrar legu
landsins. Fréttir i vestrænum
blöðum hafa getið þess að
„Atlantshafsvarnarlína" Sovét-
ríkjanna hafi verið færð til Græn-
lands, Islands, Færeyja og Skot-
lans og nái æ lengra inn á Atlants-
hafs — bæði ofansjávar og neðan.
Framkoma Moskvustjórnarinnar
í deilu Breta og tslendinga af-
hjúpar einmitt löngun þeirra í
Island og hún hefur í hyggju að
auka útþenslu sína á þessu svæði.
Andspænis ógn þeirri sem
stafar af hinum metnaðarfullu
sovézku endurskoðunarsinnum,
hafa rikisstjórnir og þjóðir
Vestur-Evrópu gert sér ljósar enn
greinilegar en fyrr þörfina á
aukinni árvekni og styrkari sam-
stöðu. Sagan kennir þeim að sam-
staða er styrkur en sundrung
ofurselur þær yfirgangi. Hvers
konar ósamkomulag og deilur
sem skilja þær að er unnt að leysa
á réttan hátt með viðræðum sem
byggjast á gagnkvæmri virðingu,
jafnrétti og gagnkvæmum hags-
munum. Slik lausn leiðir til sam-
einaðra aðgerða gegn sameigin-
legum óvini. Á síðustu árum hafa
vestur-evrópsk lönd komið saman
til að skapa virki gegn yfirráða-
stefnu stórvelda, einkum gegn
ógnun sovézkrar hernaðarút-
þenslu. Slík þróun er algjört
grundvallarskilyrði fyrir
tryggingu sjálfstæðis þeirra og
öryggis. Bætt samband Breta og
tslendinga er sannarlega
fagnaðarefni að þessu leyti segir
að lokum í leiðara Dagblaðs
alþýðunnar.
OFFSETFJÖLRITUNAR-
STOFA
Til sölu offsetfjölritunarstofa. Offsetfjölritari,
stenslagerðarvél, rafari, pappírsskurðarhnífur
o.fl.
Tilvalið fyrir þá sem vilja stofna eigin atvinnu-
rekstur eða fyrirtæki sem þurfa á mikilli prentun
að halda.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 30.6. '76 merkt:
„fjölritun — 3929".
Peugeot station
7 manna árg. 1973, lítið ekinn og í mjög góðu
ásigkomulagi er til sýnis og sölu.
HAFRAFELL HF.
GRETTISGOTU 2I SIMI 23511
SNYRTIVÖRUR
EllenBeatrix -Sans Soucis - Biodroga - Juvena
Phyris - Lancome - Yardley - Max Factor
Pierre Robert - Endocil - Cosmea
Ar-Ex ofnœmissnyrtivara Í
Hórsnyrtivörur
í úrvali
■P'-V...,.
)'Ý \\
Íf^iM u \
Fegrunarsérfrœóingar
aóstoóa vió
vöruval
i['Sk.v
- ' X i
^HoltsapÓtek snyttivöradeild
^Langholtsvegi 84 Simi35213
sýningarsalur
Tökum allar gerðir notaðra bitreiða í umboðssölu
Fiat 126 árg. '74,
verS 550 þús.
Fiat 126 árg. '75,
verS 600 þús.
Fiat 125 spesial.
árg. '71. verS450 þús.
Fiat 125 Berlina.
árg. '72. verS 580 þús.
Fiat 125 P. árg. '72.
VerS 450 þús.
Fiat 125 P, árg. '74.
verS 700 þús.
Fiat 127. árg. '72.
verS 400 þús.
Fiat 127. árg. '73.
verS 550 þús.
Fiat 127, árg. '74,
verS 650 þús.
Fiat 128, árg. '71.
verS 320 þús.
Fiat 128, árg. '72,
verS 460 þús.
Fiat 128. árg. '73.
verS 570 þús.
Fiat 128. árg. '74,
verS 730 þús.
Fíat 128, árg. '75.
verS 900 þús.
Fiat 128 Rally, árg, '74,
verS 800 þús.
Fiat 128 Rally árg. '75.
verS 950 þús.
Fiat 128 Rally árg. '76.
verS 1.150 þús.
Fiat 132. árg. '73,
verS 950 þús.
Fiat 132, árg. '74,
verS 1.1 millj.
Fiat 132 GLS, árg. '75.
verS 1.350 þús.
Ford Eskord, árg '74,
verS 750 þús.
Toyota Carina, árg, '74,
verS 1.250 þús.
Datsun 180 B. árg. '72.
verS 1.2 millj.
Austin Mini. árg. '73.
verS 480 þús.
Citroen GS. 1220,
árg. '74, verS 1.350 þús
Lancia Beta. árg. '74,
verS 1.8 millj.
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.#
SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888