Morgunblaðið - 15.07.1976, Page 1
36 SIÐUR
152. tbl. 63. árg.
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblartsins.
Bandaríkin
hóta að hætta
Montrral. 14. Júlí. AP. Reuter.
BANDARÍKIN hótuðu f dag að hætta við þátttöku sína í
Olympíuleikunum vegna deilunnar um þátttöku
Taiwans í leikunum samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um AP.
Hótunin varó til þess aó fram-
kvæmdanefnd Alþjóðaolympiu-
nefndarinnar var kölluó til
skyndifundar. Nokkrir fulltrúar
bandarísku Olympíunefndarinn-
ar eru taldir andvigir hótununni
þar sem þeir telja að hún geti ]eitt
til þess að Olympiuleikarnir liði
undir lok.
Ford forseti lét i ljós í dag
Killanin lávarður, tormaður AlpjOðaolympfunefndarinnar (aftast fyrir miðju), f
forsæti á einum margra funda sem nefndin hefur haldið um þátttöku Taiwans í
Olympfuleikunum.
Skipað að skjóta
brezkar flugvélar
Nairobi, 14. júlí. Reuter. AP.
STJÓRNIN í Uganda hef-
ur skipað herflugvélum
sfnum að skjóta niður
brezkar herflugvélar sem
fljúga yfir landið að sögn
útvarpsins f Kampala.
Talsmaður Ugandahers
sagði að Iff brezkra borg-
ara í Uganda kæmist f
hættu ef Bretar sendu her-
flugvélar til Uganda.
Talsmaðurinn sagði þetta
vegna fréttar i brezku blaði um að
arezkum flugsveitum hafi verið
skipað að vera við þvi búnar að
fljúga til Uganda og sækja þangað
500 brezka borgara sem enn eru
búsettir I Iandinu. Brezki flugher-
inn bar fréttina til baka.
Jafnframt segja blöð í Kenya
að mikill fjöldi Kenyamanna flýi
yfir landamærin frá Uganda og
spennan i sambúð landanna fer
vaxandi. Kenyastjórn hefur sakað
Ugandamenn um fjöldamorð á
Kenyamönnum og óttazt er um
öryggi brezkra borgara, en Idi
Amin forseti kveðst engar ráð-
stafanir ætla að gera gégn Bret-
um meðan Öryggisráðið fjallar
um árás Israelsmanna á Entebbe-
flugvöll.
Þó krafðist Ugandastjórn þess i
dag að brezki sendifulltrúinn i
Kampala, James Horrocks, yrði
kallaður heim. Peter Chandley,
öðrum sendiráðsritara Breta, var
Framhald á bls. 20
Eanes sver
embættiseið
l.issahon, 14. júlf. AP. Reuter.
ANTONIO Ramalho Eancs
hershöfðingi vann I dag emh-
ættiseið sinn sem fyrsti þjóð-
kjörni forseti Portúgals f hálfa
öld.
Hann hét því að standa vörð
um st jórnarskrána, berjast
gegn „minnihlutahópum
lýðskrumara" og koma á lög-
um og reglu. „Við verðum að
útrýma andrúmslofti stjórnar-
hyltinga og stjórnlcysis," sagði
Eanes forseti.
Hann hefur sagt að hann
muni skipa sósfalistaleiðtog-
ann Mario Soares forsætisráð-
herra og fela honum myndun
minnihluta stjórnar.
áhyggjur af deilunni um þátttiiku
Taiwans þar sem halda ætti
næstu Olympíuleika i Moskvu
1980 og skoraði á bandarisku
olympiunefndina að gera það sem
hún gæti til að tryggja þátttöku
Taiwans. Blaðafulltrúi hans, Hon
Nessen, vildi ^kki segja hvort for-
setinn mundi hvetja til þess að
bandariska liðið tæki ekki þátt i
leikunum.
Nessen sagði fyrir hönd Fords
að Kanadastjórn hefði engan rétt
til að setja pölitisk skilyrði fyrir
þátttöku i leikunum. Hann sagði
að forsetinn hefði til athugunar
hvaða ráðstafanir hann mundi
gera en þær færu eftir þvi hvern-
ig málin þróuðust.
Forseti bandarisku ólympiu-
nefndarinnar, Philip Krumm,
sagði seinna að Bandaríkjamenn
væru „alvarlega að hugsa um að
hætta við þátttöku sina á
Olympíuleikunum i Montreal."
„Við höfum ekki tekið endan-
lega ákvörðun þvi að svo mikið er
í húfi, sagði hann. „Við viljum
vita hvaða endanlega ákvörðun
Alþjóðaolympiunefndin tekur".
„Mexikó menn hafa sagt okkur
að þeir muni fara að dæmi okkar
og fleiri þjóðir eru sama sinnis.
Þær kunna að vera sex og þær
kunna að vera 70, en þar með
Framhald á bls. 20
Sýrlenzkt lið hörfar
úr stöðvum við Sidon
Demókratar
krýna Carter
New York, 14. júlí. AP. Reuter.
JIMMY Carter verður tilnefnd-
ur forseti demókrata t nótt eft-
ir sautján mánaða baráttu en
heldur vali varaforsetaefnis
síns leyndu fram á sfðustu
stundu.
Carter er spáð sigri f forseta-
kosningunum f haust sam-
kvæmt flestum skoðanakönn-
unum og fulltrúar á flokks-
þingi demókrata eru sigri hrós-
andi. Hver ræðumaðurinn á
fætur öðrum hefur lýst því yfir
að Carter muni sigra f haust.
Val varaforsetaefnisins verð-
ur kunngert á blaðamanna-
fundi sem Carter heldur á
morgun en þrír koma helzt til
greina: Edmund Muskie frá
Maine, sem var varaforsetaefni
demókrata 1968 en neitaði að
vera varaforsetaefni 1972.
Walter Mondale frá Minnesota,
eftirlæti Huberts Humphreys
og frjálslyndra stuðnings-
Carter f ræðustól á flokksþing-
inu
manna hans og John Glenn,
fyrsti geimfarinn sem hringsól-
aði um jörðina.
Þrír aðrir koma og {il greina:
Adlai Stevenson féá Illinois,
Framhald á bls. 20
Beirút, 14. júlí. AP. Reuter.
SÝRLENDINGAR hófu í
dag brottflutning 4.000
hermanna og skriðdreka
frá hæðunum fyrir ofan
hafnarborgina Sidon f Suð-
ur-Lfbanon.
Þar með virðast þeir
vilja búa f haginn fyrir við-
ræður við skæruliða eins
og utanrfkisráðherrar
Arabalandana hafa hvatt
til á fundi sfnum í Kafró,
Suarez fær
lögum breytt
Madrid, 14. júlf. Reuter. AP.
SPÆNSKA þingið samþykkti í
dag breytingar á refsilöggjöfinni
og bjó þar með f haginn fyrir
starfsemi stjórnmálaflokka á
Spáni. Stjórnmálastarfsemi
kommúnista og stjórnleysingja
verður þó bönnuð sem fyrr.
Atkvæðagreiðslan var talin
prófsteinn á möguleika hinnar
nýju stjórnar Adolfo Suarez for-
sætisráðherra á að standa við lof-
orð sitt um að hraða pólitfskum,
félagslegum og efnahagslegum
umbótum á Spáni.
245 þingfulltrúar greiddu at-
kvæði með tillögu stjórnarinnar,
175 á,móti en 57 sátu hjá. I síðasta
mánuði greiddu talsvert fleiri at-
Framhald á bls. 20
en enn er barizt f norður-
og austurhluta landsins.
Palestinskur talsmaður sagði að
friðarviðræður gætu ekki hafizt
fyrr en Sýrlendingar hefðu flutt á
brott allt herlið sitt.
Jafnframt kom forsætisráð-
herra Libýu, Abdul Salam
Jalloud, til Beirút og hafði með-
ferðist tillögur sem gætu leitt til
fundar milli Sýrlendinga og
Palestinumanna á morgun sam-
kvæmt áréiðanlegum heimildum.
Jalloud og skæruliðaforinginn
Yasser Arafat fylgdust með brott-
Framhald á bls. 20
Sovézkur kjarnorkukafbátur af November-gerð á Atlantshafi.
Sovézkur kafbátur í
vörpu norsks togara
Oslð. 14. júlf.
Reuter. NTB.
NORSKUR togari fékk kafbát f
vörpuna og mvndir af honum
benda til þess að hann hafi
verið sovézkur og kjarnorku-
knúinn að sögn norsku her-
stjórnarinnar.
Togarinn Sjövik var að veið-
um á Barentshafi 1. júli þegar
skipverjarnir fundu harðan
kipp og skipið þeyttist aftur á
bak á fullri ferð.
Skömmu siðar kom ómerktur
kafbátur 75 til 90 metra langur.
upp á yfirborðið og skipverj-
arnir skáru togvirinn sem hann
hafði fest sig i. Kafbáturinn tók
siðan stefnu á sovézku strönd-
ina.
Talsmaður norsku herstjórn-
arinnar. Björn Bruland sjóliðs-
Framhald á bls. 20