Morgunblaðið - 15.07.1976, Side 3

Morgunblaðið - 15.07.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULÍ 1976 3 Rœtt við Önnu Jackson frá brezka sjónvarpinu, sem er að láta gera hér sjónvarpsmynd um gróður landsins Við upptöku f Rann- sóknastofnun Fiskiðnað- arins. Anna Jackson: „Ég er stolt af því að vera hálf- íslenzk.“ „Þið eruð „ÞESSI þáttur er einn af tiu I sjónvarpsmyndaflokki um gróSur viSs vegar um Evrópu. Mynda- flokkurinn heitir Bellamy's Europe og er kenndur viS dr. David Bellamy, sem er grasafræSingur og kennir viS háskólann i Durham. Hann hefur veriS kynnir i mörgum fræSslumyndum, sem BBC hefur látiS gera. f sambandi viS þennan myndaflokk höfum viS veriS t.d. i Póllandi. þar sem viS bjuggum til þátt um ævafomt skóglendi og annan gerSum viS um gróSur á efstu tindum Dolomit-fjallanna á ftaliu." ÞaS er Anna Jackson, sem verS- ur fyrir svörum. en hún er stjórn- andi myndarinnar. ViS hittum sjónvarpshópinn á Rannsókna- stofu FiskiSnaSarins, þar sem þau voru aS mynda sýni af gróSri frá Deildartunguhver I gegnum smá- sjá. „Hér á íslandi beinist athygli okk- ar fyrst og fremst að þvi, hvernig sj álf - stæðari en flestir” plöntulíf þróast á ólífvænlegum stöðum, t.d. við jökulrandir og á hverasvæðum. Við getum tekið sem dæmi þessa þörunga, þeir eru úr farvegi heita vatnsins, sem kemur úr Deildartunguhver." Anna sýnir okk- ur u.þ.b. þriggja cm þykkt jarðlag Efsti hluti þess er fagurgrænn, síðan tekur við örþunnt rautt lag og neðst er „bara venjuleg drulla" eins og hún orðaði það „1 þættinum skýrir dr. Bellamy frá því hvernig græna og rauða jarðlag- ið eiga líf sitt hvort undir öðru — rauða lagið getur t.d aðeins þrifizt í þeirri birtu, sem það græna hleypir í gegn. Þessi samvinna verður dr. Bellamy umræðuefni, hann spjallar um hversu mikið mannfólkið gæti lært af henni og annarri sambæri- legri samvinnu, sem alls staðar fyr- irfinnst í náttúrunni " „Já, ég held nú það," svaraði Anna og hló við, „ég er hvorki meira né minna en hálfíslenzk. Móðir mín hét Ester og var dóttir sr. Friðriks Hallgrímssonar. Pabbi minn hét'Cyr- il Jackson, hann bjó hér um tíma og kenndi ensku við Menntaskólann á Akureyri m.a Ég hafði mjög gaman af því, að Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur, sem hefur verið okkur mjög hjálplegur, var einu sinni nem- andi pabba." „Ég er fædd í Garðastrætinu í Reykjavík og var hér til þriggja ára aldurs, en þá fluttust foreldrar mínir utan. Svo þegar ég var sex ára koma * ég hingað með þeim i sumarfríi. Ég var hér á þjóðhátiðinni og i fyrra- Sumar kom ég til að undirbúa þenn- an þátt." „Þegar ég er að koma til íslands með flugvél og flugfreyjan segir „Welcome to lceland" finnst mér hún vera að bjóða mig velkomna heim Hér er meiri hluti fjölskyldu minnar og landið er svo fallegt og fólkið gott og — já. mér þykir vænt um að vera islenzk Þegar við vorum að kvikmynda uppi i sveit og sáum hvernig gróðurinn berst fyrir lífi sinu á þessum hrjóstrugu svæðum, þá hugsaði ég til fólksins i landinu, sem býr við svo svipuð kjör að mörgu leyti, og ég var stolt af því að vera hluti af þvi fólki." Konur eiga erfitt upp- dráttar í Bretlandi. Anna er* upptökustjóri Ttrgeðslu- deild brezka ^jónvarpsins. í því starfi felst að stjórna sjálfri myndatökunni, gera handrit, velja upptökustaði og að ganga endanlega frá kvikmynd- inni, eða eins og Anna sagði sjálf: „Ég bý til myndina." „Er erfiðara fyrir konur en karla að komast í slíka stöðu hjá brezka sjón- varpinu?" „BBC er líklega ein skásta stofn- unin hvað það varðar i Bretlandi Þai hefur t d verið launajafnrétti frá upphafi Það vill oft brenna við að konur þurfi að vera tvisvar sinnum betri en karlarnir til að komast jafn hátt í stiganum — ekki þannig að það eigi endilega við um sjálfa mig," bætir hún við hlæjandi. „En i minni deild er líklega tæplega þriðjungur starfsfólksins konur Það kemur þó til af því að þetta er fræðsludeildin og þar eru fleiri konur en annars staðar trúlega vegna þess hve marg- ar konur eru kennarar og þvi vel hæfar til slíkra starfa." „Annars verður að hafa það í huga, t.d i samanburði við ísland, að í Bretlandi er við ævafornar stofn- anir og hefðir að etja i jafnréttismál- um Hér er ekki um slíkt að ræða og hér er heldur ekki langt síðan bæði karlar og konur voru öll jafn rétt- indalaus gagnvart Dönum Auk þess er á íslandi aðeins u.þ.b. mannsald- ur, ef ekki styttri tími, siðan bæði kona og karl urðu að leggja jafn mikla vinna af mörkum á heimilinu, konan sá kannski alveg um landbún- aðinn á meðan karlinn sótti sjóinn " Þið eruð sjálfstæðari „Líklega er það þess vegna, sem mér virðast íslendingar vera sjálf- stæðari og meiri einstaklmgshyggju- menn en Bretar. Ég minnist þess t.d. ekki að hafa heyrt islenzka konu kynna sig sem eiginkonu mannsins sins, eins og svo oft er gert í Bret- landi " Nú var ekki hægt að tefja Önnu lengur frá upptökunni. Þörungarnir voru að þorna upp undir smásjánni Um leið og við kvöddum bað hún okkur fyrir kveðju til allra þeirra. sem höfðu komið þeim til aðstoðar við gerð myndarinnar, ekki sizt Ingólfs Daviðssonar grasafræðings og Brian Holt, ræðismanns Breta á íslandi Ms 7-------- Eru þeir að fá 'ann ■ Göður afli hjá bátum og tog- urum — Unnið er fram á kvöld í mörgum frystihúsum Vatnsdalsá Ekki tókst þættinum að afla sér nákvæmra talna úr Vatns- dalsánní er við hringdum norð- ur nú fyrir skömmu. Ljóst er þó, að laxveiðin hefur verið sára treg það sem af er, og miklu minni en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir nokkrar bata- horfur undanfarna daga. Sömu sögu er reyndar að segja um flestar árnar þar um slóðir. Veiðin hófst i Vatnsdalnum 15. eða 16. júni og er veitt á 5 laxastengur og 8 silungasteng- ur. Siiungsveiðin hefur að sögn einnig verið frekar treg. Veðrið fyrir norðan hefur eins og víðar undanfarið hentað betur til heyskapar en laxveiða og á það eflaust sinn þátt i doðanum. I fyrra var metveiði í Vatnsdalsá. Þá veiddust í henni 832 laxar og var meðal- þungi þeirra mjög góður, eða 8,8 pund. — 0 — Eftirfarandi upplýsingar fékk þátturinn hjá Benedikt Jónmundssyni á Akranesi. Jöfn veiði í Flekkudalsá Veiði hófst í Flekkpnni 1. júlí og hefur veiðin verið nokkuð jöfn siðan. Ekki vissi Benedikt nákvæmlega hve margir laxar væru komnir á land, en taldi, að það væri svip- að og á sama tima í fyrra. Veitt er á 3 stangir og hefur maðkur- inn verið aðalagnið til þessa. Vatnið i ánni hefur verið mjög gott og fer hlýnandi. — 0 — Haukadalsá U.þ.b. 170 löxum hefur verið landað úr Haukunni síðan veiði hófst þar þann 17. júní og er mikið af þvi stórlax. Þetta er þó dálitið minna en á sama tima i fyrra. Veiðin fór mjög hægt af stað, vatnavextir og kuldar hömluðu laxagöngum. En um siðustu helgi varð mikil breyting til hins betra, vatnið sjatnaði og áin snarhlýnaði um leið. Lét þá laxinn ekki á sér standa, mikill fiskur sást og vel veiddist. Horfurnar eru því allgóðar í Haukadalsá, en þar komu 914 laxar á land í fyrra. — 0 — Andakílsá Veiði hófst i Andakílnum 25. júní siðastliðinn og hafa aðeins milli 20 og 30 laxar veiðzt það sem af er, á tvær stengur. Er þetta miklu minni veiði en um svipað leyti í fyrra. Laxinn er yfirleitt smár, 5—6 pund, en einn og einn vænni innan um. Utlitið er þó alls ekki dökkt i Andakilsá. Áin var mjög köld i vor, en hefur hlýnað til muna síðustu daga og laxinn um leið farið að sýna sig i ríkari mæli. Þess má að lokum geta, að enn mun eitthvert Iítilræði vera til af veiðileyfum i þrjár siðastnefndu árna/'í lok veiði- timans. ÁGÆTUR afli var hjá bát- um og togurum víða um land i lok júní og fyrri part júlímánaðar. Mbl. hafði samband við útgerðar- menn og verkstjóra á nokkrum stöðum úti á landi og leitaði fregna af veiðum undanfarið. tsafjörður Jón Páll Halldórsson hjá Norð- urtanga á Isafirði sagði að veiðar hefðu gengið vel hjá bátum þar að undanförnu. Agætur afli hefði einnig verið hjá togurunum sein- ast i júní og fyrstu vikuna i júlí, en siðan hefði ekki veiðzt jafnvel. Jón sagði, að hjá handfærabátum hefði verið rokafli í Reykjafjarð- arálnum og hefðu bátarnir þar fengið stóran og góðan fisk, og aflinn verið óvenjulegur miðað við árstíma. Tregur afli var hjá 'inubátum á ísafirði i júní, en íúna eru sumir þeirra komnir á ^-álúðuveiðar og hafa fiskað sæmilega. I frystihúsum á ísafirði er næg vinna um þessar mundir og unnið fram á kvöld og á laugardögum. Jón Kristmannsson hjá ísfiskfé- lagi isfirðinga sagði Mbl. að hjá þeim bærust á land um 250 tonn á viku af tveim togurum og 10 trillubátum og væri það nægur afli til að halda öllu vel gangandi. I fyrstihúsi tsfiskfélagsins vinna um 120—130 manns i sumar. Akureyri — Togarar Utgerðarfélags Ak- ureyringa hafa aflað sæmilega að undanförnu og verið með 150—200 tonn i hverri veiðiferð, að sögn Gísla Konráðssonar hjá Utgerðarfélaginu. Sagði Gisli að Grímseyjarbátar afla sæmilega SÆMILEGUR afli hefur verið hjá Grimseyjarbátum að undan- förnu, að sögn Alfreðs Jónssonar i Grfmsey, en veiðn hefur þó erð skrykkjótt, suma daga veiðzt ágætlega en aðra daga ekki eins vel. í sumar eru gerðir út 12 bátar frá Grimsey, 3—12 tonn að stærð. Mikið er um aðkomufólk i eynni i sumar og lætur nærri að ibúa- fjöldi þar tvöfaldist yfir sumar- mánuðina, en í Grimsey búa um 90 manns allt árið. Verið er að byggja fimm íbúðarhús i eynni og er ríkjandi almenn bjartsýni með- al eyjarskeggja að sögn Alfreðs. Veður hefur verið með afbrigðum gott í Grímsey í sumar. aflinn að undanförnu hefði verið með betra móti og veiddist mikið af ufsa, karfa og þorski. Mikil og stöðug vinna er i fyrstihúsi Ut- gerðarfélagsins, þar sem togarar félagsins leggja upp afla sinn, en fjórir togarar félagsins hafa verið að veiðum að undanförnu. Vestmannaeyjar — Þar hefur verið ágæt veiði hjá trollbátum allt frá þvi að hinni hefðbundnu vetrarvertið lauk í maí og fram yfir mánaða- mótin júní—júlí og þess dæmi að trollbátar kæmu þá inn með allt að 50 tonn eftir 5—6 daga útivist, að því er Stefán Runólfsson hjá Vinnslustöðinni i Vestmannaeyj- um tjáði Morgunblaðinu i gær. Stefán sagði þó, að síðustu daga hefði heldur dregið úr aflanum og hann orðinn viðráðanlegri fyrir fiskvinnslustöðvarnar i Eyjum, sem naumast hefðu haft undan þegar mest barst að. Hefur verið geysileg vinna i stöðvunum allt fram á þennan dag, og unnið þar til tíu á hverju kvöldi þá daga, sem mátt hefur vinna. Framleiðsla allra vinnslustöðv- anna í Eyjum er að sögn Stefáns orðin töluvert meiri en hún var i fyrra. Fiskurinn, sem fengizt hef- ur, hefur yfirleitt verið fallegur þorskur, ufsi og ýsa i bland.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.