Morgunblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 15. JÚLÍ 1976 Gunnar Bjarnason, formaður SO-nefndar: Svartolíubrennsla í íslenzkum togurum A undanförnum missirum hef- ur ýmislegt veríð ritað um svart- olíu (auðkennd SO hér á eftir) og SO-brennslu í fiskiskipum. Flest hefur þetta verið á þá lund, að greinarhöfundar vara menn við að taka upp þessa olíunotkun í skipum sínum, þótt hún sé tals- vert ódýrari en gasolía ( auð- kennd GO hér á eftir). Hún valdi sliti vélanna, jafnvel svo að þær verði ónýtar á fáum árum, erfiði vélstjóranna aukist úr hófi og ým- islegt fleira, sem varla er ástæða til að endurtaka. Tilgangur greinahöfunda virðist vera að forða útgerðarfyrirtækjum frá þeim voða að taka upp SO- brennslu, sér og þjóðinni til tjóns. Ætla mætti að bjargvættir þess- ir væru kunnáttumenn um SO- brennslu og byggi annaðhvort á eigin kunnáttusamlegri reynslu eða raunhæfri þekkingu, en ekki virðist neinu slíku til að dreifa, a.m.k. verður þess ekki vart í skrifum þeirra. Sumir þessa vökumanna eru gamlir nemend- ur mínir, þ.e. vélstjórar, svo mér er vel kunnugt um þekkingu þeirra eins og hún var, þegar þeir luku námi. Síst af öllu vil ég á nokkurn hátt gera lítið úr mennt- un þeirra eða færleik við vél- stjórastörf. En það verður að segj- ast eins og er, þekkingu á SO eða SO-brennslu hafa þeir ekki hlotið í Vélskólanum, og ekki er að sjá að þeir hafi bætt við sig á þessu sviði síðar. Ekkí hafa þeir heldur starfað við vélar, sem brennt hafa SO. Það má að mínu áliti teljast fullmikið sjálfsálit hjá þessum rithöfundum, að þeir telja sig þess umkomna að gerast opinber- ir leiðbeinendur og fræðarar um þessi mál, í andstöðu við innlenda og erlenda sérfræðinga. Aðrir í þessarí fylkingu eru al- gerir leikmenn á sviði kunnáttu um vélar og er því ekki að vænta að þeir hafi neitt skynsamlegt til þessa máls að leggja. Þeir hafa greinilega meiri trú á brjóstvitinu heldur en fræðunum. Sameigin- legt báðum þessum hópum er að þeir leggja kapp á að gera þá tortryggilega er að þessum mál- um starfa og starfaö hafa, sumir um 4—5 ára skeið. Reynt er að læða því inn, að þetta séu kunn- áttulitlir áróðursmenn, sem lítið sé mark á takandi. Alþingismaður einn og útgerð- armaður telur að skipa þurfi nefnd til að rannsaka hvort nokk- urt vit sé í því að brenna SO í fiskiskipum. Eíns og síðar kemur betur i Ijós virðist þessi málglaði þingmaður ekki hafa kynnt sér framvindu máls þess er hann hér fjallar um. Látum vera að þing- maðurinn trúi betur vinum sínum heldur en fræðunum og láti mata sig gagnrýnislaust á skoðunum þeirra, en er það ekki fulllangt gengið þegar hann telur skýrslur og störf SO-nefndar hingað til ómerkilega ringulreið, án þess að kynna sér þau gögn er fyrir liggja? Eina prentaða heimildin, sem þessir menn virðast þekkja, er fjölrituð grein á ensku úr hol- lensku riti um útgerðarmál. Grein þessi fjallar um olíunotkun fiski- skipa Hollendinga á heimamið- um, en þau eru talsvert minni en togarar okkar. Það er því mis- skilningur að hún eigi við um þá SO-brennslu sem hér er til um- ræðu. Athyglisvert má telja og tákn- rænt, að ofannefndur flokkur, ég var næstum búinn að segja sér- trúarflokkur, lætur sig litlu skipta fengna reynslu af SO- brennslu í isl. fiskiskipum. Eyrir nokkru birtust í Dagblaðinu við- töl við viðurkennda og þekkta út- gerðarmenn, sem brennt hafa SO í skipum sínum, þá Guðmund Jör- undsson sem gerir út togara sinn Narfa og Kristin Pálsson frá Vest- mannaeyjum, en hann er formað- ur félags eigenda japanskra skut- togara, FJAS, og talar fyrir munn þeirra, en þeir eru 10 talsins, gerðir út viðsvegar um landið. Báðir eru þessir útgerðarmenn mjög vel ánægðir með brennslu SO í skipum sínum og umbjóð- enda sinna. Guðmundur Jörundsson hefur brennt SO í skipi sínu, Narfa, um alllangt skeið. Ólafur Eiríksson véltæknifræðingur hannaði kerf- ið i Narfa 1969 og var skipið rekið með SO í 17 mán. Þá henti það að ioftþjappa bilaði vegna vatnstær- ingar og var vélin rekin einar 3 víkur án hennar. Kom þá mikið slit í strokkhlífar og fór fram mik- il viðgerð í því sambandi. SO var kennt um og hætt við hana í bili. Snemma á árínu 1972 áttum við Ólafur Eiríksson viðræður við Guðm. Jörundsson um frekari til- raunir með SO-brennslu i Narfa. Bentum við m.a. á að ekkert sam- band gæti verið á milli vatnstær- ingar í loftþjöppunni og SO- brennslunnar. Þessu lyktaði þannig, að í ágústlok 1972 hófst SO-brennsla að nýju í Narfa og hefur svo verið óslitið síðan. Var þá þegar farið að ræða um að hér gæti verið um svo mikið hags- munamál fyrir útgerðina i heild og þar með þjóðarbúið að ræða að eðlilegt væri að hið opinbera hefði á hendi þessar tilraunir. Fylgdumst við Ólafur Eiríksson mjög náið með SO-brennslunni fyrsta árið eða svo og fór ég með skipinu fyrstu veiðiferðina á þessu SO-brennslutímabili. Hún hófst 28/8 1972 og stóð ‘A mán. Af ofanskráðu má ráða að Guð- mundur Jörundsson hefur all- langa reynslu af rekstri með SO og er þvi áreiðanlega vel fær að dæma um nothæfni þessarar olíu í skipi sínu. Þess má geta að vélin í Narfa er af Werkspoorgerð, sömu tegundarogrætt var um í fjölrituðu greininni, sem getið var hér að ofan, og menn mis- skilja að ekki sé hægt að reka með SO. I fyrrnefndu viðtali telur Guðmundur Jörundsson að sparn- aður i rekstri vegna brennslu SO undanfarið hafi forðað útgerð sinni frá miklum taprekstri. Þá- verandi yfirvélstjóri á Narfa, Helgi Guðmundsson, ritar í bréfi til SO-nefndar, dags. 8/10 1974 í Harlingen i Hollandi m.a.: „Mér er það mikil ánægja að geta sagt með góðri samvisku að við þá ná- kvæmu skoðun, sem fram fór á aðalvélinni, kom ekkert það i ljós, sem mælt getur gegn SO í þessari vél.“ Það voru kunnáttumenn frá Werkspoor, sem skoðuðu vélina. Eins og fyrr er sagt er Kristinn Pálsson formaður félagsins FJAS, sem telur innan sinna vébanda 10 jap. skuttogara. Félagar innan þessara samtaka komu sér saman um að kosta sameiginlega breyt- ingu fyrir SO-brennslu á einum togara, Rauðanúp, til að kanna hvernig hún gæfist í þessari teg- und véla. Hún fór fram um og fyrir áramót 1973—74. Vegna ým- issa orsaka m.a. í sambandi við afhendingu oliu á staðnum, var reynsluferð á Rauðanúp ekki far- in fyrr en 24/6 — 74. Árangur af rekstri þessa skips með SO, þótt erfitt reyndist stundum að fá af- greidda olíu á staðnum, var á.þá lund að félagsmenn ákváðu að breyta vélum í öllum skipum sín- um til SO-reksturs. Einn togarinn var reynslukeyrður 13/3 1975, síð- an 3 í apríl, 3 í júní, 1 í júli og 1 i desember 1975. SO-nefnd sá að öllu leyti um breytingar í skipum þessum og hefur haft eftirlit með rekstri þeirra síðan. Segja má að hann hafi gengið mjög sómasam- lega og eru útgerðarmennirnir ánægðir með útkomuna, eins og fram kemur í áðurnefndu viðtali við Kristin Pálsson. Bilanir hafa vitanlega komið fyrir, þó engar alvarlegar og erf- itt að fullyrða að SO sé um að kenna sérstaklega. Um allar bil- anir á það við að reynt er að finna orsakir þeirra og taka fyrir end- urtekningu. Ekki er því að leyna að byrjun- arörðugleikar hafa skotið upp kollinum fyrst í stað, þó aldrei svo að til vandræða horfði. Leggja vil ég á það ríka áherslu, að þáttur vélstjóranna í þessum góða ár- angri er ekki hvað minnstur. Þeir hafa fullsannað að þeir ráða fylli- lega yfir þeirri tækni, sem beita þarf í sambandi við SO-rekstur, enda hefur samstarf SO-nefndar við þá verið með þeim hætti að ekki verður betra á kosið. Svartolíunefnd, tilurð hennar, tilgangur og starfshættir 5. mars 1973 skipaði sjávarút- vegsráðuneytið 5 manna nefnd er fjalla skyldi um notkun SO í disil- skipum. í nefndina voru skipaðir: Guðmundur Björnsson véla- verkfr., prófessor og deildarfor- seti Verkfræði- og raunvísinda- deildar Háskóla íslands, Ólafur Eirfksson véltæknifræðingur, kennari við Vélskóla íslands, Auðunn Ágústsson skipaverk- fræðingur, starfsmaður tækni- deildar Fiskifélags íslands, Ing- ólfur Ingólfsson vélstjóri, formað- ur Vélstjórafélags íslands, og undirritaður fyrrv. skólastjóri Vélskóla islands, formaður nefndarinnar. Nefndin starfaði ötullega og leitaði upplýsinga víða, innan lands og utan. M.a. fór formaður hennar ferð til viðræðna við er- lenda vélaframleiðendur, 19.—23. marz '73. i þeirri för heimsótti hann Werkspoor í Hollandi, MAN í Augsburg í V-Þýzkalandi og Mirrlees í Stockport í Englandi. Nefndin skilaði áliti, 28 vélrit- aðar siður með fylgiskjölum, dag- sett 18. mai 1973. i því segir m.a.: „Nefndin telur, að brennsla svartoliu í íslenskum skipum sé bæði hagkvæm og æskileg, ef henni verður við komið með til- hlýðilegu öryggi.“ „Nefndin telur það vera mjög mikilvægt, að framkvæmdir við undirbúning og reynslunotkun SO fari fram undir nákvæmu eft- irliti kunnáttumanna, sem til þess yrðu skipaðir. Verði fenginni reynslu þar með safnað á einn stað, þar sem hún veði aðgengileg þeim, er hennar hafa þörf. Þá er mikilvægt, að vélstjórar hljótj góóar og traustar leiðbeiningar í notkun svartolíunnar.“ Þetta voru aðalniðurstöður nefndarinnar og skrifuðu allir nefndarmenn undir hana ágrein- ingslaust. Með bréfi sjávarútvegsráðu- neytisins dags. 13. júlí 1973 var svo núverandi SO-nefnd skipuð. Formaður var skipaður undirr. fyrrv. skólastjóri og meðnefndar- menn þeir Guðmundur Björnsson prófessor og Ólafur Eiriksson vél- tæknifræðingur. Sakir anna varð Guðmundur Björnsson að fá sig lausan úr nefndinni i nóv. 1974 og tók þá Valdimar K. Jónsson véla- verkfræðingur og prófessor sæti hans. I skipunarbréfi ráðuneytisins segir m.a.: „Ráðuneytið hefur ákveðið að skipa nefnd til að undirbúa notk- un SO i disilvélum, safna frekari reynslu þar um og annast nauð- synlegar leiðbeiningar um að- gerðir og gæslu hvað notkun þess- arar oliu snertir.“ Eitt af höfuðatriðum, sem vakti fyrir hvatamönnum að stofnun SO-nefndar var að tilraun yrði gerð til að flytja þekkinguna á þessu sviði inn í landið. Það ætti að vera nokkurnveginn augljóst að það er mikilvægt hverri þjóð að hafa yfir að ráða þekkingu á grundvallaratriðum þeirrar tækni, sem aðalatvinnuvegir hennar hvíla á. Að þessu leyti höfum við islendingar lengi vel staðið höllum fæti, en allmikil breyting hefur þó á orðið siðustu 2—3 áratugina. Flestar eða jafnvel allar breyt- ingar í þessa átt hafa mætt and- spyrnu skammsýnna manna, mis- mikilli eftir atvikum. Um þetta mætti nefna mörg dæmi, en hér er eitt látið nægja. Það eru ekki ýkjamörg ár siðan undirritaður átti í blaðadeilum um það hvort timabært væri að stofna Tækni- skóla á islandi. Frammenn tækni- fræðinga þeirra tíma töldu slikt fráleitt, við gætum ekki ráðið við slíkar framkvæmdir, bæði vegna kostnaðar og skorts á hæfum kennurum, svp væri iðnaður og athafnalíf hér á svo lágu stigi tæknilega að nemendur ættu ekki kost á hæfilegri þjálfun. Öðrum þræði held ég að gamalgróin minnimáttarkennd hafi spilað þarna nokkuð inn í. Ég hefi litið þjáðst af þeirri sýki um dagana og hélt því fram þá og geri enn, að okkur sé lífsnauðsyn að flytja þekkinguna inn í landið, þannig að athuganir og niðurstöður kunnáttumannanna grundvallist á hérlendri aðstöðu og atvinnu- háttum. Tækniskólinn er löngu orðinn staðreynd og ég trúi að menn séu almennt sammála um að þar hafi rétt skref verið stigið. Segja má að brennsla SO í ísl. fiskiskipum sé einnig orðin stað- reynd. Meira en 12 togarar brenna þessari oliu að staðaldri, með góðum árangri. Þetta er stað- reynd, sem breytist ekki þótt ein- hver í ákafa geri hróp að þessari viðleitni til hagkvæmari reksturs og kalli það „svartolíuæði eða eitt- hvað því um líkt. Síðan SO-nefnd hóf starf sitt fyrir þrem árum, hefur hún átt beina aðild að og séð um breyting- ar á vélum 13 togara auk Akra- borgarinnar. Nefndin hefur hannað kerfin í þessi skip og séð um framkvæmdir þeirra. Hún hefur leiðbeint vélstjórum skip- anna um rekstur vélanna með SO og i því skyni hefur hún samið og látið prenta leiðbeiningar þeim til handa. Vélakaupendum hefur hún leiðbeint og rætt við mörg útgerðarfyrirtæki um SO- brennslu í skipum þeirra. Þá hef- ur hún haft eftirlit með rekstri þeirra véla, sem tekið hafa upp SO-brennslu á hennar vegum. Nefndin hefur haft samband við og heimsótt ýmsa vélaframleið- endur og rætt við þá um vanda- mál í sambandi við SO-brennslu í vélum þeirra. Þessir vélafram- leiðendur eru: MAN, MAK og Deutz (V-Þýskaland), Sulzer (Sviss), Mirrless (England) og Normo (Noregur). Ennfremur hafa nefndarmenn heimsótt Tækniháskólann í Þrándheimi og rætt um SO-brennslu, m.a. við Langseth dócent, sem kunnur er á heimsvísu fyrir rannsóknir og skrif sín um þessi mál. Yfirleitt hefur verið rætt við forstöðumenn rannsóknarstofa fyrirtækjanna, en mjög oft hafa aðrir sérfræðingar verið kvadd- ir til. Hefur nefndarmönnum hvarvetna verið mjög vel tekið og hafa þessar ferðir þeirra verið mjög jákvæðar, m.a. að því leyti að þeir hafa fengið tækifæri til að sannprófa raungildi þeirra álykt- Framhald á bls. 24 Ánægjan endist alla leið ef forsjá er með í ferðum í langferðina bjóðum við m. a. eftirtalinn búnað í flestar tegundir bifreiða: Platinur, kveikjuhamar, kveikjulok, Champion kerti, háspennukefli og þétti, straum- loku, viftureim, pakkdósir, pakkningar og pakkningalím, vatnsdælu, vatnskassaþétti og vatnskassahreinsivökva, hemla- vökva, benzíndælu, fjaðrablöð, lím, bætur, loftdælu og lyftu, Trico þurrkublöð, startkapla, þurrkvökva fyrir rafkerfið, ryð- olíu, einangrunarbönd, hemlavökva, verkfærasett, 5 lítra benzínbrúsa, þvottakúst og farangursgrindur. Allt á sama staó Laugavegi 118 - Simi 22240 EGILL VILHJALMSSON HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.