Morgunblaðið - 15.07.1976, Page 19

Morgunblaðið - 15.07.1976, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIíviMTUDAGUR 15. JULl 1976 19 Hópur af ungu listafólki hefur efnt til sýningar á verkum sínum á Loftinu við Skólavörðustíg. Hér virðist ekki vera um neio sérstök samtök að ræða, heldur eru hér á ferð skólasystkini úr Myndlista- skólanum, sem hafa myndað þennan hóp. Margir af sýnendum hafa ekki áður komið fram með myndverk sín opinberlega og er því nokkuð forvitnilegt að líta inn á Loftið þessa dagana. Það er ætíð skemmtilegt að sjá myndir eftir unga og upprennandi listamenn, og eins og gengur er hér nokkuð misjafn hópur á ferð. En heildar- svipur sýningarinnar er snotur og ber með sér, að þetta fólk er al- varlegra og vandvirkara en margt af því sem sézt hefpr frá ungu fólki hérlendis á undanförnum árum. Ef til vill er meiri áherzla lögð á þessari sýningu á sjálft málverkið og útfærslu þess, ásamt tæknilegri getu, en hin hug- myndafræðilega hlið hefur á st'.indum tröllriðið framleiðslu i myndlist, bæði hér heima og ekki r Atta lista- mennáLoftmu síður sumstaðar erlendis. Sá leik- ur hefur stundum verið falinn á bakvið útjaskaðan dadaisma og pólitík, en í báðum tilfellum hef- ur hið myndræna orðið að vikja og útkoman hefur oft orðið ómerkileg og ekkert nema fálm. Það er þvi fengur að hópi ungs listafólks, sem virðist heldur hall- ast að því myndræna en allskonar uppákomum. Enda eru það bæði ný og gömul sannindi, að það myndræna er það eina, sem getur gefið listaverki gildi og lífsþrótt. Að vísu eru tilraunir i myndlist nauðsynlegar. En sannleikurinn er sá, að ekki er allt gull sem glóir Mvnd nr. 16 eftir Omar tskulason. Nlyndlisf eftir VALTY PÉTURSSON og aðgát skal höfð. Þessi hópur, sem nú sýnir á Loftinu, er að mínu áliti á réttri leið i myndlist og ég er sannfærður um að ef vel er á haldið kemur eitthvað gott frá þessu fólki. Auðvitað er ekki gott að átta sig á getu einstakra listamanna, sem sýna t.d. eitt verk á þessari sýningu. Samt ætla ég að spá því ofanskráða. Þessi hópur hefur ekki ánetjazt neinni sérstakri teoríu í myndlist. Hér eru abströkt verk, geómetrísk og ljóðræn, súrrealismi, og sem sagt sitt lltið af hverju. Heildin ber það nokkuð með sér, að sumir eru byrjendur og aðrir eru lengra komnir, eins og t.d. Sigurður ör- lygsson og Magnús Kjartansson, en þeir eiga þarna báðir verk, sem eru mjög I þeim stíl er áður hefur sézt frá þeirra hálfu. Ég held að þeir hafi hvor um sig skapað sér nokkur sérkenni i myndlist sem vel koma fram í þessum verkum þeirra. En mig grunar, að t.d. myndbygging Sig- urðar þarfnist frekar stórra lér- efta, og það er eins og mér finnist þessi myndbygging Sigurðar ekki njóta sín eins vel í litlu formati. Myndbygging Magnúsar fer að minu áliti mjög vel í þeim stærð- um er hann notar og segja mætti mér að þær hugmyndir er hann fæst við sem stendur, henti hon- um sérlega vel. Ekki má skilja :nál mitt þannig, að ég sé að finna að þessum verkum þeirra Sigurð- ar og Magnúsar, siður en svo, því að mér finnst þeir vera með því bezta á þessari sýningu, enda hafa þeir ef til vill meiri reynslu og þekkingu en aðrir sýnendur á þessari samsýningu. En hvorugur hefur brotið mjóu leiðina að und- anförnu. Örn Þorsteinsson sýnir mikla framför í þeim olíuverkum, er hann sýnir, en hann hefur aðal- lega sýnt grafik áður. Verk hans eru skemmtilega létt í byggingu og gefa hreina litatóna. Ómar Skúlason sýnir nokkur verk og kemur skemmtilega á óvart. Þeg- ar bezt lætur hjá honum, eru verk hans gerð af tilfinningu fyrir lit og byggingu. Einkum fór mynd no. 16 vel í mig. Margrét Auðuns sýnir nokkur tilþrif i því eina verki er hún sýnir, og Koibrún Björgólfsdóttir sýnir eingöngu keramik, sem er að mínum dómi sérlega hreint í formi og skreyt- ingu. Ég held að þessi verk séu með þvi betra á þessari sýningu, og er forvitnilegt aó sjá meir frá hendi þessarar listakonu. Krist- ján Kristjánsson sýnir klipp- myndir (collage) og hefur þægi- lega litatilfinningu og skemmti- lega myndsýn. Halldór B. Run- ólfsson sýnir verk er hann kallar Fragile og er samansett úr ýms- um efnum á skemmtilega og myndræna vísu. Það fer ekki á milli mála, aó hér eru hæfileikar á ferð hjá sumum af sýnendum, en ekki aefla ég mér þá dul hér að spá fyrir um hvern og einn. Það getur allt skeð á listabrautinni eins og allir vita, og því betra að tala varlega. En ég vil ljúka þessum fáu linum með því að óska þessum hóp til hamingju með fyrirtækið. Hér er ýmislegt á ferðinni, sem lofar góðu og er á allan hátt þeim til sóma, er að standa. Ég þakka svo fyrir ánægjustund á Loftinu. Vonandi láta ekki myndlistarunnendur •þessa sýningu fram hjá sér fara. FJÖLFRÆÐIBÆKUR AB lands og líta hér á nýrunnin hraun. Islendingar hafa alltaf vitað að þau myndast ekki i vatni". Idrisyn Oliver Evans: JÖRÐIN. Með myndum eftir John Smith. tslensk þýðing: Árni Böðvarsson. Almenna bókafélagið 1975. Ian Tribe: PLÖNTURtKIÐ. Með myndum eftir Henry Barnet. tslensk þýðing Jón O. Edwald. Almenna bókafélagið 1976. FJÖLFRÆÐIBÆKUR Almenna bókafélagsins eru nú orðnar sex: Fánar að fornu og nýju, Uppruni mannkyns, Fórnleifafræði, Rafmagnið, Jörðin og Plönturikið. Ritstjóri bókaflokksins er Örnólfur Thorlacius. t þessum ríkulega mynd- skreyttu bókum er leitast við að veita aðgengilegan fróðleik um sundurleitustu efni. Framsetn- ing efnisins er ljós og bækurn- ar eru I handhægu og smekk- legu broti. Allt hjálpast að til þess að gera þessar bækur að þarfaþingi fyrir fróðleiksfúsa leikmenn þótt efninu séu hvergi gerð tæmandi skil. Leita verður enn sem fyrr til hinna stóru alfræðibóka (á erlendum málum) í þvi skyni að fá svör sem duga. Jörðin eftir Idrisyn Oliver Evans er skemmtileg bók af- lestrar, efnistök fjölbreytt ag frásögnin einkar lifandi m.a. vegna þess hve Evans hefur gaman af óvenjulegum dæm- um. Eitt þeirra fjallar um þýska prófessorinn J.B. Bering- er i WUrzburg og myndsteina- kenningu hans. Beringer leist ekki á blikuna þegar steingerv- ingur með nafni hans sjálfs sýndi að nemendur hans höfðu hann að spotti. Hann hafði sam- ið viðamikla bók til að styðja kenningu sína rökum, en nú varð hann að eyða öllu fé sínu til að kaupa upp öll eintök hennar. Árni Böðvarsson segir rétti- lega um Jörðina í formála: „Þessi bók er greinargott yf- irlit um sögu jarðvísinda og ætti að vera Islendingum kær- komið lesefni, þótt raunar hefði hún eflaust orðið nokkuð öðru^ visi ef hún hefði verið gerð Á.S. Neill: SUMMERHILLSKÖLINN: Þýðing: SlNE-félagar Darmstadt. Mál og menning 1976. EFTIR lestur bókar A.S. Neill um Summerhillskólann undr- ast maður að hún skuli ekki hafa verið þýdd,fyrr á Islensku. Bókin var fyrst gefin út 1962. Neill stofnaði Summarhill- skólann á Englandi 1921. Þetta er frjálsskóliþarsem stjórnað er samkvæmt skilningi og um- burðarlyndi, en ekki aga og hörku. Á skólafundum eru teknar ákvarðanir um skólann og hafa allir jafnan atkvæðis- rétt: skólastjóri, kennarar og nemendur (þeir yngstu sex ára). Engin próf eru I Summer- hill. Stundaskrá er aðeins fyrir kennarana, börnin þurfa ekki að sækja tima nema þau óski þess sjálf. Flestir munu sjálf- sagt telja að úr slíkum skóla komi aðeins tossar, en raunin hefur orðið önnur. Ekkert bendir til þess að i Summerhill sé unnið fyrir gýg. _ Bók A. S. Neills er ítarleg. Hún skiptist í eftirfarandi aðal- handa þjóð sem alla tíð hefur haft fyrir augum gjósandi eld- fjöll eða haft spurnir af gos- virkni innan seilingar. Það er og vist að deilur jarðeldasinna og sjávarins sem sagt er frá meðal annars á bls'. 78—79, hefðu fljótlega hjaðnað ef menn hefðu haft þekkingu til að leita til eldfjallalandsins Is- kafla: Skólinn Summerhill, Barnauppeldi, Kynlíf, Trú og siðgæði, Vandamál barnsins, Vandamál foreldranna og Spurningar og svör. Kenningar sínar byggir Neill á eigin reynslu og tínir til fjölmörg dæmi máli sinu til sönnunar*. Allir vita að uppeldismál eru erfið viðureignar. Fólk getur þvi verið ósammála Neill um margt. En að skella skollaeyr- um við orðum hans er fávíslegt. Ástæða er til að benda kennur- um, foreldrum og öðrum uppal- endum á að kynna sér þessa bók. Aftur á móti er ljóst að margt þarf að breytast til þess að kenningar Neills geti al- mennt orðið að veruleika. En ekki sakar að gefa þeim gaum og taka mið af þeim að ein- hverju leyti. í formála eftir Erich Fromm er vikið að þeim kenningum Neills að ekki séu til erfið börn, heldur bara erfið- ir foreldrar og erfitt mannkyn. Það er meinið sem Neill vegur að. Frel§j án taumleysið eru einkunnarorð Neills. Fromm segir: „Foreldrar, sem hugsa málið, munu verða undrandi á Já, Islendingurinn er sjálfum sér líkur! Ian Tribe segir í formála bók- ar sinnar, Plönturikið, að plönt- ur njóti ekki verðugrar athygli þegar frá séu taldir áhugamenn Bðkmenntlr því, hversu miklum þvingunum þau beita i uppeldu barns síns, án þess í rauninni að vita af því. Bók þessi veitir orðunum ást, samþykki og frelsi nýjan skilning." Neill leggur áherslu á að for- eldrar segi barni sannieikann. „Barn sem lýgur, er annaðhvort hrætt við foreldra sína eða líkir eftir þeim. Falskir foreldrar eignast fölsk börn. Ef þið viljið, að börnin ykkar segi sannleik- ann, skuluð þið gera það sama gagnvart þeim." Neill heldur því fram að með því að segja barni sannleikann frá upphafi sé hægt að komast hjá hvers kyns misskilningi. En erfiðleik- arnir við að segja barni sann- leikann stafa af þvi að við segj- um sjálfum okkur ekki sann- leikann. Þau siðferðilegu mark- mið sem okkur var kennt að stefna að valda því aó við ljúg- um. Öhamingjusamt fólk veld- ur óhamingju barna sinna. Með Sigmund Freud að leið- arljósi fjallar Neill um kynlifið. Ég býst við að sá kafli bókar- innar muni valda mörgum heilabrotum og ef til vill fá um ræktun garðagróðurs og skrautblóma. Hann bendir á að hlutur þeirra sé litill mióað við allar bækur og kvikmyndir um dýr: „Þetta misræmi má eflaust rekja til þess að mannskepnan sjálf er hluti dýrarikisins." Plönturikið er að vonum sér- hæfðari bók en Jörðin. En óhætt er að lofa væntanlegum lesendum hennar þvi að sam- spil texta og mynda er með þeim hætti að hér er á ferðinni hin athyglisverðasta bók og um leið nauðsynleg. Fjölfræðibækur njóta held ég vinsælda hérlendis. Vert er að benda á Alfræði Menningar- sjóðs sem komin er nokkuð á veg, en gengur hægt. Með Fjöl- fræðibókum sinum kemur Almenna bókafélagið til móts við óskir margra. ýmsa til að fleygja henni frá sér. Neill gerist málsvari ástar- lifs unglinga. Andmnli gegn því lýsa að mati hans niður- bældum hvötum eða hatri á lifinu. Hann spyr: Hvers vegna gaf náttúran mann- inum sterka kynhvöt, ef ungl- ingarnir mega ekki njóta hennar, þar eð hinir eldri i samfóJ.aginu banna það?" Hömlur leiða af sér tauga- bilun og kynferðisafbrot eft- ir þvi sem Neill heldur fram. Neikvæð afstaða til liisins a sér kynferðislegar rætur. Um þetta efni er Neill sammála mönnum eins og Wilhelm Reich sem við vitum því miður litið um. Það er ekki ætlunin í stuttri umsögn að rekja kenningar A.S. Neills. En þótt bók hans beri þess nokkur merki að vera samin fyrir mörgum árum og þess vegna geti margt orkað tvimælis i henni skiptir mestu að hún á sér þann tilgang aó gera lifið hamingjusamara. Öll keppum við að frjálsræði. Til þess að öðlast það þarf að byrja á byrjuninni. _____' _ ' eftir JÓHANN FRJALS SKOLI, HJAL>1ARSá0N FRJÁLST MANNLÍF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.