Morgunblaðið - 15.07.1976, Síða 20

Morgunblaðið - 15.07.1976, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULI 1976 Kópaskersbú- ar óánægðir með mat á tjóni „JU ÞAÐ er rétt að við vorum óánægðir með mat matsmanna á skemmdum hér á Kópaskeri í jarðskjálftunum, og mótmæltum matinu," sagði Friðrik Jónsson oddviti I samtali við Morgunblað- ið í gær, „en hingað eru nú komn- ir 3 matsmenn til þess að ræða málið og leiðrétta og skýra ýmis atriði. Hér er einnig um að ræða sitt- hvað sem ekki var komið í ljós þegar matið var gert, en menn voru óánægðir með ýmis atriði og Innri-Njarð- víkurkirkja 90 ára UM ÞESSAR mundir, eða nánar tiltekið 18. júlf, eru rétt 90 ár sfðan Innri-Njarðvfkurkirkja var vfgð, og vill svo skemmtilega til að afmælisdag hennar ber nú upp á sunnudag. Af þessu tilefni verður sérstök hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni kl. 14.00. Þar mun biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson, predika, en sóknarpresturinn, séra Páll Þórðarson, þjónar fyrir altari. Að guðsþjónustu lokinni býður sóknarnefndin öllum við- stöddum til kaffidrykkju í safnað- arheimilinu. Þess má geta, að undanfarið hafa þau hjónin Jón og Gréta Björnsson unnið við að mála og skreyta kirkjuna að innan. „Píslarvættis- dauði” kínverks hershöfðingja Prking. 14. Júlf Reuler. PI TING-Chun, yfirmaður her- sveita Kína i Foochow-héraði, sem er andspænis Formósu, einn af æðstu hershöfðingjum Kina, lézt 7. júlí „pislarvættisdauða við skyldustörf", eins og það er orðað í frétt hinnar opinberu kínversku fréttastofu Hsinhua i dag. Hann var 62 ára að aldri, og átti sæti í miðstjórn Kommúnistaflokksins. Kringumstæður andlátsins eru á huldu, en fréttaskýrendur í Pek- ing telja sennilegt að hann hafi beðið bana i slysi. Orðalag til- kynningarinnar þykir ekki benda ótvírætt til þess að hann hafi far- izt i átökum. Tónleikar í Norræna húsinu TÓNLEIKAR á vegum Snorra Sigfúss Birgissonar pfanóleikara og Manuelu Wiesler flautuleik- ara verða haldnir f Norræna hús- inu, laugardaginn 17. júlf kl. 15.00. Á efnisskrá þeirra eru fimm verk, þar af tvö eftir íslenzk tón- skáld, þá Leif Þórarinsson og Atla Heimi Sveinsson. Sum verkanna hafa Manuela og Snorri leikið áð- ur á tónleikum í Norræna húsinu. Þau Mauela og Snorrí eru senn á' förum til Kaupmannahafnar, þar sem þeim var boðið að leika þessi sömu verka á tónleikum i konsertsalnum I Tivolí. einnig viljum við heyra rök fyrir ýmsu í matinu eins og t.d. þeirri firru að afskriftir skuli gilda eins stíft og raun ber vitni i sambandi við mat á tjóni af völdum þessara náttúruham.fara. Mannvirki sem höfðu hátt brunabótamat hafa verið metin á mun minna i mati sérfræðinganna og þannig hefur ýmislegt kynlegt komið i ljós í þessu sambandi." — Reynt að greiða úr Framhald af bls. 36 bjartsson, forstöðumann Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, var mælst til þess við skipstjóra veiðiskipanna, að þeir sæju til þess að sía sjóinn frá loðnunni áður en hún færi i lestar skip- anna. Myndi það nást með þvi, að dæla loðnunni hægar úr nótinni, þannig að síubúnaður skipanna gæti annað að sía sjóinn frá. Einnig að rotverja loðnuna um borð með formalini, þannig að hún yrði stinnari og geymdist bet- ur. 1 dag landar I Siglufirði ms. Gullberg VE og ms. Guðmundur RE 29 í Bolungarvík. Astand loðn- unnar í þessum förmum er talið miklu betra en áður enda loðnan átulítil. Ráðgert er að setja formalín um borð í þessi skip og fer fulltrúi frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins með m.s. Gullberg til að leiðbeina um notkun þess. Síðdegis I dag (miðvikudag) til- kynnti ms. Jón Finnsson komu sina með loðnufarm til Siglufjarð- ar á fimmtudagsmorgun. Eftir ýmiss konar lagfæringar á vinnslukerfi SR i Siglufirði hefur tekist að halda vinnslu áfram, þó að enn sé með hægum gangi og afföllum á eðlilegri nýtingu." ar. 3. hluti Þá náði Morgunblaðið tali af Hjálmari Vilhjálmssyni fiskifræð- ingi um borð i Bjarna Sæmunds- syni á loðnumiðunum nyrðra. Hann sagði, að enn væri ekki orð- inn verulegur gangur i loðnuveið- unum umfram það sem verið hefði. Jón Finnsson bættist í hóp loðnuskipanna í fyrrakvöld og var síðdegis i gær kominn langleiðina með að fylla sig, svo og Súlan EA. Hjálmar sagði, að bátarnir hefðu i fyrrinótt verið á svæðinu 90 sjm. norður af Horni. Þar var töluvert kastað, en loðnan stygg, mikill straumur og erfitt að ná henni. Gullberg fór þó um nóttina áleiðis til Siglufjarðar með fúllfermi og Guðmundur til Bolungarvíkur um svipað leyti með rúmlega 300 tonn. A miðunum i gær voru Sig- urður, Súlan og Jón Finnsson, sem bættist I hópinn í gærkvöldi. Skipin voru i gær að kasta nokkru norðaustar en áður og fengu nokkur sæmileg köst en árangur var þó misjafn. Bjarni Sæmunds- son leitaði sunnan og suðvestan við veiðisvæðið allt, norðvestur frá Straumnesi. Hjálmar sagði, að það væri greinilega mikið af loðnu á þeim slóðum eins og á sjálfu veiðivæðinu en hún væri dreifð og ekki hefðu fundist veið- anlegar torfur, hvorki fyrir nót né flotvörpu. í samtali við Morgunblaðið sagði Páll Guðr.iundsson á Guð- mundi, að hann væri bjartsýnn á þessar sumarloðnuveiðar. Kvaðst hann í upphafi hafa óttast, að loðnan sem þarna myndi veiðast, kynni að verða blönduð smælki innan um, og mikil veiói á því hefði getað gengið nærri stofnin- um seinna meir. Raunin hefði hins vegar orðið önnur og þarna fengist nær eingöngu stór og fall- eg loðna. Varðandi erfiðleikana á vinnsl- unni sagði Páll að í síðasta farmí Guðmundar hefði enn verið tölu- verð rauðáta en hins vegar hefði Gullberg fengið loðnu sem var tiltölulega laus við rauðátuna en hún smærri og ekki eins feit. Sagði Páll, að hann tryði ekki öðru en úr rættist með þessa vinnsluörðugleika með samhentu átaki bæði skipshafna veiðiskip- anna og forráðamanna verksmiðj- anna, enda hefðu t.d. Norðmenn fyrir löngu leyst þetta vandafnál. Bræðsla var ekki hafin í Bol- ungarvík og því ekki séð hvernig •gengi með vinnslu á farmi Guð- mundar. — Demókratar Framhald af bls. 1 Henry Jackson frá Washington- riki og Frank Church frá Idaho. Carter bauð niu rikisstjórum á sinn fund til að ræða val varaforsetaefnis en þeir sögðu að þeir hefðu ekki reynt að hafa áhrif á val hans. Leonard Woodcock, forseti sambands verkamanna i bilaiðnaði (UAW), gekk hins vegar á fund Carters og skoraði á hann að velja Mondale. Þar sem Carter er Suður- ríkjamaður er talið að hann muni auka sigurlíkur sínar ef hann veldi Norðurrikjamenn- ina Mondale eða Muskie. Samkvæmt skoðanakönnun AP hafði Carter stuðning 1794 fulltrúa áður en atkvæða- greiðslan hófst en hann þarf 1505 atkvæði. Bæði Morris Udall frá Arizona og Edmund Brown frá Kaliforníu bjóða sig fram gegn honum. Udall hafði 316 atkvæði og Brown 281 sam- kvæmt könnun AP. Muskie gaf i skyn i dag að hann hefði ekki áhuga á vara- forsetaboði ennþá einu sinni og Mondale sýndi heldur ekki mik- inn áhuga. Glenn sagði hins vegar að hann kæmi enn til greina og að Charles Kirbo, ráðunautur Carters, hefði rætt við sig. Leiðtogar Demókrataflokks- ins héldu fundi í dag til að tryggja áframhaldandi ein- drægni á flokksþinginu, en i ræðum sem hafa verið haldnar á þinginu hefur megináherzlan verið lögð á flokkseiningu og sigur. Hubert Humphrey öld- ungadeildarmanni var klappað lof í lófa i fimm mínútur þegar hann sagði: „Demókrati verður kosinn — og hann heitir Jimmy Carter." Flokksþingið hefur samþykkt stefnuskrá sem er að miklu leyti samin samkvæmt hug- myndum Carters og þar er lögð áherzia á félagslegar umbætur en jafnframt lofað að draga úr rikisbákninu og skera niður út- gjöld. Því er lýst yfir að að þvi verði stefnt að draga úr at- vinnuleysi um 3% á fjórum ár- um. Flokksþingið samþykkti að draga úr herútgjöldum en sam- kvæmt stefnuskránni verður að viðhalda kjarnorku- og hernað- armætti Bandaríkjanna. ísraelsmönnum er heitið stuðn- ingi en sagt að Bandaríkin eigi ekki að knýja fram „utanað- komandi lausn" I deilumálun- um í Miðausturlöndum. — Soarez Framhald af bls. 1 kvæði með tillögu um afnám 37 árá gamalla laga um bann við starfsemi stjórnmálaflokka. Skýringin á naumum rn'éiri- hluta sem frumvarp stjórnarinn- ar fékk í dag er nýtt orðalag. 1 nýju lögunum segir að hópar sem berjast fyrir því að innleiða ein- ræðisstjórn og standi í tengslum við alþjóðasamtök skuli vera bannaðir á Spáni. Hægrisinnaðir andstæðingar stjórnarinnar héldu því fram f dag að orðalagið ætti að vera ský- lausara og vegna þess væru lögin ekki nógu öflugt vopn gegn kommúnistum. Landelino Lavilla Alaina dóms- málaráðherra segir að lögin með því orðalagi sem var samþykkt sýni að stjórnin vilji varkára en ákveðna þróun í átt til nútímalýð- ræðis. — Bandaríkin Framhald af bls. 1 yrðu leikarnir að engu,“ sagði Krumm. Olympíunefndin á Taiwan hefði áður hafnað þeirri tillögu Al- þjóðaolympíunefndarinnar að fþróttamenn frá Taiwan tækju þátt í Olympíuleikunum án þess að nota nafnið Lýðveldið Kína og fána landsins. Þó hefur Alþjóðaolympíunefnd- in enn ekki gefið upp alla von um að takast megi að finna lausn á málinu þannig að Taiwan taki þátt í leikunum. Ákvörðun Olympfunefndar Taiwan kom á óvart, en sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum tilkynnti formaður hennar, Henry Hsu, að iþróttamenn frá Taiwan mundu ekki keppa á leik- unum án þess að bera spjald með nafni landsins og undir Olympíu- fánanum. Þetta skilyrði hefur Kanadastjórn sett fyrir þátttöku Taiwans i leikunum og Alþjóða- olympfunefndin gekk að því. Fundi þeirra 67 fulltrúa sem skipa Alþjóðaolympíunefndina var frestað tvisvar sinnum meðan framkvæmdanefndin ræddi við fulltrúa Taiwans. Alþjóðaolympíunefndin mun gera aðra tilraun til að finna málamiðlunarlausn að þvi er áreiðanlegar heimildir herma en það hefur ekki verið skýrt nánar. Það er henni kappsmál að Taiwan taki þáttí leikunum undir ein- hverjum fána svo að tryggt verði að sú regla verði höfð í heiðri að engu liði verði meinuð þátttaka af pólitískum ástæðum eða vegna kynþáttasjónarmiða. Jafnframt er enn óttast að Afrikuríki ákveði að hætta við þátttöku sfna f leikunum til að mótmæla því að Ný-Sjálendingar keppa við Suður-Afríkumenn f rugby. Það getur oltið á :fstöðu Abraham Ordia frá Nfgerfu, for- manns fþróttaráðs Afríku. — Sovézkur Framhald af bls. 1 foringi, sagði í dag að myndir sem voru teknar úr togaranum Labrador sem var að veiðum í um 300 metra fjarlægð bentu til þess að það hefði verið sovézkur kjarnorkukafbátur sem festist i vörpunni. Verdens Gang i Ósló segir að kafbáturinn hafi verið af Novembergerð og sé aðallega notaður til að leita uppi óvina- kafbáta. Bátar af þessari gerð voru teknir í notkun á árunum 1958 til 1963 og eru með 88 manna áhöfn. Þeir eru 3.500 lestir og ganghraðinn 20 hnútar (20 hnútar í kafi). Búizt er við að kvikmyndir og ljósmyndir sem skípverjar á Sjövik tóku úr aðeins 50 metra fjarlægð verði birtar á morgun þegar flotasérfræðingar hafa rannsakað þær. Bruland sagði að um 200 kaf- bátar væru út af Kola-skaga. Jafnframt stunda nokkur hundruð togarar veiðar á Bar- éntshafi. — Fangar Framhald af bls. 17 sfna án eftirlits og kæmu áfram bréfum og jafnvel seg- ulbandsupptökum til annarra hermdarverkamanna innan og utan múranna. Fjórar hermd- arverkakonur sluppu úr fang- elsi f Vestur-Berlín I sfðustu viku eftir að hafa fengið að- stoð utan frá við að ná lyklum og skammbyssu. — Sýrlenzkt Framhald af bls. 1 flutningi Sýrlendinga frá stöðv- unum fyrir ofan Sidon tíu kíló- metra f austri til fjallabæjarins Xezzin. Sýrlendingar gerðu engar ráð- stafanir til að flytja lið sitt frá öðrum stöðvum sem tryggja þeim yfirráð yfir mestöllum norð- austur- og suðurhlutum Lfbanons — alls 13.000 hermenn og 450 skriðdreka. Skæruliðar og vinstrimenn sök- uðu Sýrlendinga um að halda áfram árásum á stöðvar þeirra í Norður- og Austur-Líbanon til að neyða þá til uppgjafar. Beirút- útvarpið sagði að eftir ætti að koma í ljós hvort Sýrlendingum væri alvara með brottflutningn- um eða hvort eitthvað lægi á bak við. 1 Kaíró var skýrt frá því að sex olfuríki Araba mundu senda elds- neyti til Líbanon og að það væri liður í tilraunum Arababanda- lagsins til að draga úr áhrifum borgarastríðsins. Arabaríkin ætla einnig að senda matvæli til Líbanon og hjúkrunargögn verða send til Kýpur og afhent Alþjóða Rauða krossinum sem sendir þau til sjúkrahúsa f Lfbanon. Eldsneytið verður sent sjóleiðis frá Saudi-Arabíu, trak, Kuwait, Líbýu, Qatar og Arabíska fursta- sambandinu í samræmi við ákvörðun utanríkisráðherrafund- ar Arababandalagsins. Brottflutn- ingur Sýrlendinga frá Sidon er talinn styrkur þeirri ákvörðun fundarins að reyna að koma af stað viðræðum milli Sýrlendinga og Palestínumanna — Skipað Framhald af bls. 1 skipað að fara heim í fyrradag. Amin forseti sakaði Hörrocks opinberlega um að hafa verið á Entebbe-flugvelli þegar Israels- menn gerðu árásina. Bretar harð- neita því að Horrocks eða nokkur annar fulltrúi brezku stjórnarinn- ar hafi vitað um árásina fyrir- fram. Indverskur. kaupsýslumaður sem flúði til Nairobi frá Uganda sagði i dag að ástandið f Kampala væri orðið skuggalegt og að eng- inn hætti sér út á nóttunni. Varað hefur verið við svartamarkaðs- braski með bensín og öryggisþjón- ustan hefur fengið skipun um að skjóta alla sem eru staðnir að því að hamstra bensín eða selja það ólöglega. Bensínskömmtun hefur verið sett á. I New York benti allt til þess að tvær ályktunartillögur um árás- ina á Entebbe-flugvöll yrðu felld- ar þegar dró að lokum umræðna um þær. I tillögu Afríkuríkja er árás Israelsmanna fordænid. Bretar og Bandarikjamenn styðja hina tillöguna þar sem flugvélar- rán eru almennt fordæmd. — B-52 Framhald af bls. 17 vera fyrsta skrefið f nýrri stefnu hvað varðar starf sjðhersins. Sem lið í þessari stefnu hafa ráðamenn i varnarmálaráðuneyt- inu verið að íhuga að beita hinum taktfsku orrustuflugvélum hers- ins til að koma i veg fyrir að hinar nýju sprengjuflugvélar Sovétrfkj- anna sem búnar eru eldflauga- vopnum geti náð að bandariskum flotadeildum á hafinu. Hins vegar gaf Pentagon til kynna að þetta nýja verkefni B-52 sé fyrst og fremst eftirlit. I tilkynningu ráðuneytisins seg- ir að langdrægni og flugþol B-52 leggi eftirlitsstarfinu til mögu- leika á þvf að sjá, staðarákvarða og tegundargreina skip á hafinu með sérstaklega skjótum hætti, m.a. með rafeinda- og ljósmynd- unarútbúnaði. Embættismenn gefa í skyn að B-52 muni einkum fylgjast með sovézkum herskipum úr mikilli hæð, en lágt eftirlits- flug verði hins vegar í höndum P-3 eftirlitsvélanna — Viðræður Framhald af bls. 17 Andreotti, sagði í dag að hann væri ekki f framboði i leiðtoga- kjörinu. Viðræður Andreottis I dag eru taldar benda til þess að hann hyggist reyna að fá stuðning a.m.k. tveggja af smáflokkum ítalíu við ríkisstjórn undir for- ystu kristilegra demókrata. Hinn áhrifamikli Kommúnista- flokkur landsins sagði í dag að hann teldi að aðeins ríkisstjórn á breiðum grundvelli sem hefði við- tækan stuðning gæti leiðbeint Italíu út úr núverandi ógöngum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.