Morgunblaðið - 15.07.1976, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULl 1976
— Svartolía
Framhald af bls. 12
ana, sem þeir hafa dregið af feng-
inni reynslu. Ég vona að það telj-
ist ekki óhæfilegur skortur á hæ-
versku þótt ég láti í ljós, að það
hefur 'verið okkur mikíð ánægju-
efni og örvun að verða þess varir
að við höfum verið og erum á
réttri braut í viðleitni okkar við
að glíma við vandamálin í sam-
bandi við SO-brennsluna.
Kerfi okkar hafa verið grann-
skoðuð og viðurkennd af þessum
aðilum, þegar tilefni hefur gefist
til. Þegar vélakaupendur hafa
leitað til SO-nefndar um ráðlegg-
ingar og þannig staðið á að þeir
hafa keypt vélarnar, útbúnar fyr-
ir SO-brennslu, hefur komið fyrir
að umframgreiðslur, breyting-
anna vegna, hafa verið óhóflegar,
að dómi SO-nefndar. Nefndin hef-
ur þá endurskoðað kerfi framleið-
andans, breytt þvi og farið á fund
hans til viðræðna um breyting-
arnar og hann (framl.) að lokum
fallist á þær. Á þann hátt hafa
sparast margar milljónir króna á
skipum, smíðuðum bæði hérlend-
is og erlendis.
Eins og drepið hefur verið á
hafa bilanir komið fyrir í togur-
um, sem breytt hefur verið i
SO—brennslu, t.d. jap. togurun-
um, sem eru 10 talsins og allir
eins. Þeir hafa nú verið á SO
talsvert meira en eitt ár, svo til
allir. Það eru helst, eða svo til
eingöngu, útblásturslokar, sem
bilað hafa, alls trúi ég að 14 stykki
hafi gefið sig, en þessir lokar eru
samt. 120 talsins í 10 togurunum.
1 4 togurum hefur þessi bilun
ekki orðið, í einum hefur 1 loki
bilað, í tveimur hafa 2 lokar bilað,
en 3 í þrem togurum. Tekið skal
fram að mjög líklegt má telja að
nú hafi verið tekið fyrir bilanir
þessar.
Mönnum hefur oðrið tíðrætt um
þessar bilanir og er því ekki úr
vegi að hugleiða þær nokkru nán-
ar. Vaknar þá fyrst spurningin
um hvort þetta sé alvarleg bilun?
Alvarlegar bilanir vil ég meina að
séu þær, sem valda þvi að skipið
þurfi að leita hafnar og tefjist frá
veiðum um tíma, eða að þær séu
mjög kostnaðarsamar. Hvorugt á
við um þessa bilun. Hægt er að
skipta um þessa loka á um 1 klst.,
öruggiega innan við 2 klst. og
hvar sem er. Mér er ekki kunnugt
um hve mikið svona lokakeila
kostar, en get mér tíl u.þ.b. kr.
40.000. Jafnvel þótt hún kostaði
1—200.000 kr. gæti það ekki talist
nein ósköp, miðað við í kring um 1
millj. króna sparnað á mánuði.
Ég hefi ekki í þessum hugleið-
ingum getið þess, hvort þessi bil-
un geti talist af völdum SO að öllu
eða einhverju leyti. Satt að segja
finnst mér það skipta litlu máli í
þessu sambandi. Sannleikurinn
mun vera sá, að bilanir getur
einnig hent þótt GO sé brennt. Ég
nefni ekki dæmi, en eitthvað
minnir mig um að skip hafi stöðv-
ast vegna vélarbilunar áður en
farið var að minnast á
SO—brennslu og það svo um
munar, jafnvel í nýjum togurum
þegar eftir heimkomuna. Það er
eins og sumir vilji gera meiri
kröfur þegar SO er brennt, þá er
ætlast til að ekkert komi fyrir. SO
er minna hreinsuð en GO, er lak-
ara brennsluefni og því ódýrara.
Smám saman hefur mönnum tek-
ist að taka fyrir æ fleiri bilanir og
nú er álitið að viðhald vélanna
þurfi ekki að vera meira þegar
henni er brennt, miðað við
GO—brennslu.
LOKAORÐ
Ég vona að mér hafi tekist að
bregða upp dálitilli mynd af störf-
um SO—nefndar, með þvl sem
sagt er hér að framan. Ég hefði
gjarnan viljað koma þessari
greinagerð, ef svo má nefna þetta,
á framfæri fyrr, en veikindi frá
því í aprílmánuði hafa hamlað
því. Fyrir mér vakir með þessu
skrifi að reyna að eyða þeim mis-
skilningi að SO—brennsla sé ein-
hvers konar æði, sem gripið hafi
nokkra menn. Ég fæ ekki betur
séð en að frá upphafi hafi verið
staðið að þessum málum á mjög
forsvaranlegan hátt. Samsetning
SO—nefndar hinnar fyrri ber
með sér að reynt hefur verið að
virkja þau öfl, sem likleg væru til
að geta haft skynsamlegar tillög-
ur fram að færa um þessi mál.
Þau skrif, sem ég hefi séð, á
móti SO—brennslu i ísl. togurum,
hafa verið með þeim hætti að
erfitt hefur verið að taka þau
alvarlega. Á vaðið reið vinur
minn Ásgeir Jakobsson með grein
i Mbl. fyrir einum þrem árum,
sem hann nefndi: „Svartolíu-
draumurinn“. í henni telur hann
OVENJULEGA ÓVENJULEGUR
Það er alveg sama hvernig litið er
á BOLF, þá er hann óvenjuleg-
ur bíll. — Þó hann sé aðeins 3.70
m á lengd, þá er hann rúmgóður
fimm manna bíll — Þetta er
mögulegt vegna þess, að hjólhafið
er langt og vélin er staðsett þvers-
um. Ennfremur vegna þess, að
hann er óvenjuleqa breiður eða
1.60 m.
er fáanlegur þriggja eða
fimm dyra, að meðtalinni stórri
afturhurð. 350 lítra farangursrými,
sem er hægt að stækka í 698 lítra
með einu handtaki.
Það er ekki einungis í farþega- og
farangursrými sem BOLF býð-
ur upp á óvenjulega kosti heldur
einnig undir vélarlokinu. Þar er
vélin sem liggur þversum með
yfirliggjandi kambás, tvær stærðir
50 ha — eða 70 ha sem eyðir 8
lítrum á 100 km. — Aflið sem
vélin framleiðir svo auðveldlega
kemur að fullum notum í akstri.
BBLF hefur óvenjulega mikla
sporvídd og hjólhaf. Hann er fram-
hjóladrifinn.
BBLJFv,\ með:
Óvenjulega stórar dyr.
Óvenjulega örugg og aflmikil vél.
Óvenjulegt rými inni.
Óvenjuleg sporvídd og hjólhaf.
Óvenjulega hagkvæmur í rekstri.
Óvenjulega vel fjaðrandi.
Óvenjulega auðveldur
í hleðslu og afhleðslu.
FYRIRLIGGJANDI
rVESTUR-ÞÝZK GÆÐAFRAM LEIÐSLA
HEKLA HF.
Laugavegi 1 70— 1 72 — Simi 21240
að margt þarfara iiggi fyrir okkur
íslendingum heldur en að reyna
að leysa heimsvandamálin. Þá
þegar kemur fram þessi árátta að
við islendingar séum svo aumir,
að okkur sé hollast að vera áfram
attaníossar erlendra þjóða. Sem
betur fer er þessi hugsunarháttur
vikjandi, eins og áður er drepið á.
Við skulum vona að framtíð ísl.
útgerðar verði með líkum glæsi-
brag og fortíð hennar hefur verið.
Því hvað sem öðru líður, deilum
um aðferðir og leiðir, þá verður
ekki annað sagt, en að afrek hafi
verið unnin á. þessu sviði. Ég
nefni breytingu frá kútterum i
togveiðar, frá gufuskipum i dísil-
skip og margt fleira mætti telja.
Oft hafa breytingarnar verið
snöggar og miklar, jafnvel svo að
undrun sætir hversu vel og giftu-
samlega hefur tekist. Ég sé ekki
betur en að telja megi að við
íslendingar séum I fararbroddi á
sviði útgerðar og fiskveiða. Ég sé
ekki að viðþurfumað hafa neina
minnimáttarkennd.
Júlf, 1976
ORÐ I EYRA
Palli lystaskáld: Nocturne
felldu segl þín
óttuskip
af þessum
undarlegu kaktusum
falla krókódflstár
um blaðadálka
fráneygir bálstjórar
gánga úr fiðrinu
eftir miðnætti
meðan stólfætur gánga aftur
þessi saungmær
með plasthár og
pjáturbrjóst
komin af vítamfnsnauðum
farandmönnum
hefur rödd sfna hása
til taks
það var nú það
þessi náttsaungur
hljómár yfir vfðáttumikiar
hárbreiður
smýgur gegnum hnausþv kkar
höfuðskeljar
ojæja
heillavinir góðir
af kaupahéðnum næturinnar
og mannslögurum
hafa litlar fregnir borist
felldu segl þín
óttuskip
surtur fer sunnan
Kommóður
Hilluveggir
Ólituð fura.
Skrifborð
Brúnbæsað
Vörumarkaöurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna- og heimilisd. S-86-11 2
Matvörudeild S-86 111, Vefnaðarv.d. S-86 113