Morgunblaðið - 15.07.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULI 1976
27
áratuga samveru, og hans ljós og
skuggar í lifinu voru einnig henn-
ar. Dásamlegt er að minnast
þeirra orða hans, er hann lét falla
til konu sinnar nú fyrir stuttu, er
þau komu eitt kvöld til okkar. þá
nýkomin úr afmæli bróður hans,
hann sat og horfði fullur aðdáun-
ar til konu sinnar og mælti: ,,Hún
var unglegri og fegurri en allar
hinar og bar af þeim öllum."
Þorsteinn dáðist að konu sinni
og mat hana að verðleikum, og
þess er gott fyrir hana að minnast
nú þegar leiðir hafa skilist um
sinn.
Að endingu vil ég þakka góð
en alltof stutt kynni, sem eru
ógleymanleg, og votta eiginkonu
og öðrum aðstandendum samúð
mína og minna.
Guðrún Jóhannsdóttir.
Þegar dauðinn kallar vini yfir
móðuna miklu fyilist hugurinn
trega. Óviðbúinn og vanmáttug
mætum við þeirri staðreynd að
það sem almættið ákveður fær
maðurinn ekki breytt. Lif okkar
mannanna er eins og laufblað á
trjánum, sem brumar, blómstrar
og fýkur svo burt þegar tími þess
er kominn.
„Vort líf sem svo stutt og stopult er
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.“
Það var að kveldi dags 5. júlí 1976
að Þorsteinn var skyndilega
kvaddur frá þessari jarðvist.
Hann var á ferðalagi ásamt fjöl-
skyldu sinni í hinni fögru sveit
Öræfum er lifsstrengur hans
brást. Fyrstu spor sín mun hann
hafa stigið í fögru umhverfi is-
lenzkrar sveitar og þar lauk þeim
einnig.
Þorsteinn var fæddur á Neðra-
Seli í Landssveit einn af ellefu
systkinum. Foreldrar hans voru
Loftur Jakobsson og Anna
Þorsteinsdóttir. Þriggja ára flutt-
ist Þorsteinn að Holtsmúla í sömu
sveit og ólst upp við algeng sveit-
arstörf framan af árum en fluttist
siðar til Reykjavikur, stundaði
fyrst sjómennsku uns hann gerð-
ist bifreiðastjóri hjá Bifreiðastöð
Reykjavikur og því starfi gegndi
hann til dauðadags.
16. mars 1928 var mikill happa-
dagur i lífi Þorsteins. Þá gekk
hann að eiga eftirlifandi konu
sína Sveineyju Guðmundsdóttur
mikla myndarkonu, dóttur hjón-
anna Önnu Sigríðar Sveinsdóttur
og Guðmundar Guðmundssonar.
Þorsteinn og Sveiney eignuðust 3
mannvænleg börn sem öll eru
uppkomin, Svein, Sólveigu og
Ólaf.
Sambúð hjónanna var eins og
best verður á kosið, í blíðu og
stríðu öxluðu þau hvor annars
byrðar, og samhjálp og kærleikur
var allsráðandi á heimili þeirra.
Nú hefur Sveiney mikils að
sakna, en eftir stendur vitundin
um góðan og traustan mann. Þær
minningar græða sárin er fram
liða stundir.
„Iláa skilur hnetti
himingeimur.
Blað skilur bakka or egg.
Kn anda. sem unnast.
fær aldregi
eilífð að skilið."
Menn hafa leitað huggunar i
þeirri trú að andinn leiti á æðra
stig að loknu lífi hér og margur
hefur þessvegna mætt dauða sín-
um ótta og æðrulaust. Engum er
gefið að dæma með öruggri vissu
um hvort svo sé eða ekki, en ótrú-
lega margir sem hafa trúað því að
líf vort stefni á æðri leiðir hafa
öðlast við það ómetanlegan styrk
og sálarró bæði í lífi sinu og
dauða. Ég ætla að Þorsteinn hafi
horfið yfir móðuna miklu í þeirri
trú að líf vort hér sé aðeins stutt-
ur kafli á langri leið og við taki
sólarströnd fyrirheitna landsins.
Ég og fjölskylda mín þökkum
Þorsteini fyrir allar þær gleði og
ánægjustundir sem við höfum átt
með honum. Við metum mikils að
hafa átt hann að vini og nágranna
í nær tuttugu ár. Eftirlifandi
konu hans, börnum og barnabörn-
um, svo og tengdafölki, vottum
við innilegustu samúð okkar.
Blessuð sé minning hans.
Eyþór Magnússon.
— Minning
Kristján
Framhald af bls. 23
börn höfðu gaman af að lesa þær.
Hann vann að félagsmálum
kennara og lét sig miklu skipta
hagsmunamál þeirra.
18. júlí 1940 gengu þau í hjóna-
band Kristján og eftirlifandi kona
hans, Jóhanna Ölafsdóttir,
Eyvindssonar, húsvarðar í Lands-
banka íslands og konu hans Elín-
ar Jónsdóttur.
Þau eignuðust fjögur börn.
Guðríði, lauk stúdentsprófi, var
fulltrúi í Landsbanka íslands,
kennari á Neskaupstað, hennar
maður er Helgi Geir Valdimars-
son skipstjóri. Gunnar, lauk
verslunarskólaprófi, lærði síðar
niðursuðu i Þýskalandi og er nú
togarasjómaður, hans kona er
Helga Loftsdóttir. Hanna Karen
stúdent og Ólafur Barði við nám i
menntaskóla, eru í heimahúsum.
Einnig hafa þau alið upp dótt-
urson sinn Kristján Halldórsson.
Þau Hanna og Kristján hafa átt
indælt heimili. Þau eru vinmörg
og alltaf ánægjulegt að sækja þau
heim. Þau voru aufúsugestir á
heimilum vina sinna. Kristján var
góður ræðumaður og honum var
lagið að flytja skemmtilegar og
hugnæmar tækifærisræður. Það
var jafnt hvort það voru ferming-
arbörnin, ungu hjónin, jafnaldr-
arnir eða þeir sem voru komnir á
efstu ár, hann átti alltaf orðaval,
sem hentaði hverju sinni.
Eftir að þau Hanna og Kristján
fluttust til Reykjavíkur náði hann
aftur sambandi við systkini sín,
sem hann fjarlægðist tveggja ára
gamall. Með þeim tókst góð fjöl-
skylduvinátta og í þeim hópi hafa
systkini hans og fjölskyldur
þeirra notið sín vel.
Við hjónin og börnin okkar
þökkum Hönnu og Kristjáni þá
vináttu, sem þau alltaf hafa sýnt
okkur. Við biðjum Guð að styrkja
Hönnu og börnin hennar f þessum
sviplega ástvinarmissi. F'jölskyld-
um þeirra vottum við innilega
samúð okkar. Kristjáni óskum við
fararheilla yfir í hin nýju heim-
kynni. Og við trúum að þar verði
tekið vel á móti honum.
Guð blessi minningu hans.
Baldur Guðmundsson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
aftnælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. Greinar mega ekki
vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að
vera vélritaðar og með góðu
ltnubili.
t
Útför mannsins míns, föður okkar tengdaföður og afa
JÓSEFS EGGERTSSONAR,
vélstjóra, Hátúni 10 A,
ferframfrá Fossvogskirkju föstudaginn 16 þ m kl 1 3 30
Marta S.H. Kolbeinsdóttir,
Hulda Jósefsdóttir, Jón Ágústsson,
Gréta Jósefsdóttir, Þorsteinn Halldórsson,
Esther Jósefsdóttir, Guðbergur Ólafsson,
Eggert Jósefsson, Sigurborg FriSgeirsdóttir,
Ágúst Jósefsson, Elln Þorvaldsdóttíf,
og barnaböm
Ullarverksmiðjan Gefjun auglýsir eftir tillögum að prjónuðum
og hekluðum flíkum fyrir næsta hefti af prjónabókinni Elínu.
GREIÐSLA:
Um 40 uppskriftir verða keyptar til birtingar. Greiddar verða
allt að 25 þúsund krónur fyrir meiri háttar uppskrift og allt að
15 þúsund krónur fyrir minni háttar uppskrift.
SAMKEPPNISREGLUR:
Flíkurnar eiga að vera á börn, unglinga og fulloróna.
Handprjónaðar, vélprjónaðar eða heklaðar. Einnig hvers konar
prjón eða hekl til heimilisnota eða heimilisprýði. I bókinni
verða flíkur úr öllum tegundum Gefjunargarns.
Eftirtaldar tegundir eru framleiddar:
Grilon Merino, fínt
- , gróft
, eingirni
Golfgarn
Dralon Baby garn
Sportgarn
S - Kambgarn
Grilon - garn
Gefjunar ullin Super Wash
Grettisgarn
Loðband, einfalt, tvöfalt, þrefalt.
Hespulopi
Plötulopi.
Senda skal tillögur greinilega merktar dulnefni til Auglýsinga-
deildar Sambandsins, Sambandshúsinu Reykjavík, fyrir 31. jan.
1977. Tillögum fylgi nafn og heimilisfang sendanda í lokuðu
umslagi, merktu sama dulnefni. í sama umslagi skal fylgja
uppskrift af flíkinni í þremur stærðum.
Æskilegt er að uppskriftir séu útfærðar samkvæmt sérstökum
leiðbeiningum sem fást á öllum helstu útsölustöóum Gefjunargarns.
Allar nánari upplýsingar gefur Gunnsteinn Karlsson, sími 28200.
Dómnefnd lýkur störfum þ. 15- feb. 1977. Þær flíkur, sem ekki
verða keyptar verða endursendar.
ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN
PRJÓNABÓKIN ELÍN.