Morgunblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.07.1976, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JULI 1976 tslenzku varnarleikmennirnir áttu oft f vök að verjast f leiknum f gærkvöldi. Þarna á Ólafur Sigurvinsson f höggi við Matti Paatelainen frá Finnlandi og virðist hafa betur að þessu sinni. (Sfmamynd AP) # Oheppið sundfólk AUSTUR þýzka stúlkan B:r- bara Krause. sem ð heimsmetið i 400 metra skriðsundi kvenna, mun ekki geta keppt á Ólympiu- leikunum i Montreal. Var hún nýlega lögð á sjúkrahús i Berlln meB igerS i hálsinum. AUstur þýzka sundliSið hefur þvi orðið fyrir miklum áföllum þar sem Wolfram Sperling. sem margir spáðu frama I bringusund- um lenti nýlega i bifreiðarslysi ásamt tveimur öðrum sundmönn- um Lutz Loescher og Hartmut Flöckner. Meiddist Sperling alvarlega, en félagar hans sluppu öllu betur. Þó er óvíst að þeir geti keppt i Montreal. Kúbumenn fjölmenna UM 160 fþróttamenn frá Kúbu munu taka þátt I Ólympluleikun- um I Montreal og keppa þeir í 14 iþróttagreinum. j frjálsum iþrótt- um verða keppendurnir 29. og meðal þeirra er hinn tvitugi Silvio Leonard, sem er einn af heims- methöfunum i 100 metra hlaupi. 11 hnefaleikamenn munu taka þétt i leikunum, og eru i hópnum þeir þrir er hlutu gullverðlaun á leikunum I Munchen 1972: Teofilo Stevenson. Emilio Correa og Orlando Martinez. Af öðrum fræknum iþrótta- mönnum frá Kúbu sem keppa á leikunum má nefna Alberto Juan- torena sem keppir i 400 og 800 metra hlaupi. Alejandro Casanas sem keppir I 110 metra grinda- hlaupi og Silvia Chivas sem kepp- ir i 100 metra hlaupi. en hún hlaut bronsverðlaun I þeirri grein á leikunum i Múnchen 1972. Cheng fór YNOIGE Chi Cheng frá Formósu ákvað að taka saman föggur sin- ar og halda heimleiðis þegar stjórn alþjóða Ólympfunefndar innar ákvað að ganga að kröfu framkvæmdanefndar leikanna i Montreal og útiloka keppendur frá Formósu á leikunum. Chi Cheng hlaut bronsverðlaun i 100 metra hlaupi kvenna á leikunum i Mexikó 1968 og um tima átti hún heimsmetið i þeirri grein. t Oheppinn kúiuvarpari MATTI Yrlölá náði bezta árangr- inum i kúluvarpi i Finnlandi i ár á móti sem fram fór i Helsinki í siðustu viku. Varpaði hann 20,84 metra. Finnska Ólympiunefndin var búin að gefa upp nöfn finnsku keppendanna á leikunum er Yrlölá vann afrek sitt og fær hann þvi ekki að fara til Montreal. Þangað senda Finnar einn kúlu- varpara, Reijo Stálberg. sem varpað hefur bezt 20,45 metra í ár. Frá Sigtryggi Sigtryggs- syni f Helsinki: EKKI verður annað sagt að fslenzka knattspyrnulandsliðið hafi valdið miklum vonbrigðum I landsleik sfnum við Finna I gær- kvöldi á Olympfuleikvanginum f Helsinki. I.iðið náði sér aldrei á strik og má teljast heppið að hafa ekki tapað nema 1—0 fyrir finnska liðinu. Varla gat heitið að íslenzka liðið ætti umtalsvert marktækifæri f þessum leik og heildarsvipur liðsins var f daufasta lagi — það vantaði allan kraft og baráttu sem verið hefur aðalsmerki liðsins í landsleikjun- um að undanförnu. Áhorfendur að leiknum voru 6.469 og fengu þeir lítið fyrir aurana sína, þar sem knattspyrn- an sem sást var fremur tilþrifa- lítil allan timann og fátt gert í leiknum sem mikils hróss var vert. Sem fyrr greinir tókst íslenzka liðinu aldrei að sýna neitt í líkingu við þá knattspyrnu sem við höfum séð til þess í undan- farandi landsleikjum. Er greini- legt að Tony Knapp landsliðs- þjálfari þarf að leysa ýmis vanda- mál, ef við eigum ekki að fara ilia út úr leikjum okkar við Holland og Belgíu í undankeppni heims- meistarakeppninnar í haust. Mark á 12. mínútu Finnska liðið byrjaði leikinn mun betur og komst íslenzka markið fljótlega í hættu. Þannig hafði Finnland fengið tvö mjög góð marktækifæri áður en markið Jón Pétursson og Matti Paatelain- en f baráttu um knöttinn f feikn- um f gærkvöldi. VÍÐIR VANN ÁRMAIMIM 1-0 VÍÐIR úr Garði sigraði Ár- mann með einu marki gegn engu í Bikarkeppni KSÍ í gærkvöldi, en leikið var í Garðinum. Markið skoraði Ingimundur Guð- mundsson með fallegu langskoti í fyrri hálf- leiknum. Sem kunnugt er leikur Víðir í 3. deild, en Ármann er í 2. deild og eitt af betri liðunum þar. kom á 12. mínútu. Aðdragandi þess var sá, að finnsku sóknar- mönnunum tókst þá að plata íslenzku vörnina svo um munaði með því að leika fallegan þríhyrning og endahnútinn á þessa sókn rak Esa Heiskanen með góðu skoti af um 20 metra færi sem Árni átti ekki möguleika á að taka. Var þetta ekki í eina skiptið í leiknum sem íslenzka vörnin var illa á verði. Sóknarlotur íslenzka liðsins voru fáar og máttlausar og næst því að skora komust Islendingar um miðjan fyrri hálfleik, þegar Guðgeir Leifsson tók hornspyrnu og Jóhannes Eðvaldsson skallaði að markinu. Tókst þá Finnum naumlega að bjarga. Aftur á móti fengu Finnarnir nokkur tæki- færi, en voru klaufskir uppi við markið og í eitt skipti bjargaði Árni Stefánsson sem kom inn í liðið á síðustu stundu fyrir Sigurð Dagsson mjög vel. Finnar áttu dauðafæri og stangarskot* Eftir mjög slakan fyrri hálfleik var hægt að gera sér vonir um að íslenzka liðið myndi standa sig betur í seinni hálfleiknum. En það var öðru nær. Sá hálfleikur var enn slakari hinum fyrri. Það var • helzt að hætta skpaðist ef Guðgeir Leifsson var með knött- inn, en aðrir leitcmenn virtust ekki geta hrist af sér slenið og leikið knattspyrnu. Er ekki hægt að segja að finnska markið hafi nokkru sinni komist i hættu i hálfleiknum. Finnarnir voru hins vegar oft ágengir og sköpuðu sér færi. Þannig átti fyrirliði þeirra, Matti Paatelainen, eigi færri en þrjú dauðafæri i hálfleiknum og mistókst í öll skiptin og einu sinni áttu Finnar skot í þverslá. Flestir áttu slæman leik Þessi landsleikur er einn sá slakasti sem undirritaður hefur séð til islenzka landsliðsins i ára- raðir. Baráttan var engin í liðinu og flest mistókst sem reynt var. Framlinumennirnir Guðmundur Þorbjörnsson og Teitur Þórðar- son máttu sin lítils gegn varnar- mönnum Finna með atvinnu- manninn Tolsa í broddi fylkingar, enda má með sanni segja að þeir hafi fáar góðar sendingar fengið frá tengiliðunum. Leikmennirnir sem léku þá stöðu áttu afleitan dag, ef undan er skilinn Guðgeir Leifsson sem reyndi allan tímann að byggja upp sóknarlotur og hann sýndi raunar þá einu knatt- spyrnu sem sást til íslenzka liðs- ins. Aðrir tengiliðir voru Matthías Hallgrímsson, Ásgeir Elíasson og Árni Sveinsson. 1 öftustu vörn- inni voru þeir Jóhannes Eðvalds- son, Marteinn Geirsson, Jón Pétursson og Ólafur Sigurvins- son. Þeir voru óvenjulega óörugg- ir í leik sínum og gerðu stundum hrikaleg mistök. Árni Stefánsson markvörður stóð hins vegar fyrir slnu. Finnska liðið sýndist fremur jafnt I þessum leik og var góð barátta einkenni þess. Leik- mennirnir voru oftast fljótari á knöttinn en Islendingar og reyndu að byggja upp spil, en þegar að markinu dró byrjuðu mistök á mistök ofan hjá liðinu. Tvær breytingar voru gerðar á liðinu í leiknum. Halldór Björns- son kom inná fyrir Matthías Hallgrimsson á 72. mínútu og Óskar Tómasson kom inná fyrir Guðmund Þorbjörnsson á 65. mínútu. < Dómari f leiknum var enskur, Homewood að nafni, og dæmdi hann vel. Margt sem leitar á hugann eftir svo slaka frammistöðu - sagði Tony Knapp landsliösþjálfari eftir leikinn — ÞETTA var hörmufegur leikur — sá versti hjá fslenzka liðinu frá þvf að ég tók við þvf fyrir þremur árum, sagði Tony Knapp landsliðsþjálfari eftir leikinn f Helsinki f gærkvöldi. Það var lengi vef eins og það væri aðeins eitt lið á vellinum — það finnska. Okkur vantaði tilfinnanlega Ásgeir Sigurvins- son, en fjarvera hans er samt engin afsökun fyrir lélegri frammistöðu f þessum leik. Það var hreinlega engin barátta f liðinu, leikinn út f gegn. Það eru margar spurningar sem leita á hugann eftir þetta tap, og þeim mun ég reyna að svara, þegar ég kem heim til Islands, sagði Tony Knapp. Guðgeir Leifsson sagði að ís- lenzka liðið hefði byrjað leik- inn illa og fengið á sig mikið klaufamark. — Þetta lagaðist mikið þegar á leið, en samt ekki nógu mikið, sagói Guðgeir. — Þetta var ekki herfilegur leikur hjá okkur, þótt hann geti ekki talist neitt framúrskarandi góð- ur. Ef Ásgeir hefði verið með, held ég að leikurinn hefði orðið öðru vlsi af okkar hálfu og þar með úrslitin. — Ég er ekki ánægður með frammistöðu okkar I þessum leik sagði Marteinn Geirsson. — Þetta er víst áreiðanlega botnleikur okkar. Það var eng- in barátta I þessu hjá okkur t.d. á borð við það sem var I leikn- um gegn Noregi. Homewood, hinn enski dóm- ari Ieiksins, sagði að sér hefði fundist þetta skemmtilegur leikur sem auðvelt hefði verið að dæma. — Ég tek aldrei eftir einstökum leikmönnum þegar ég dæmi, og því get ég ekki tjáð mig um íslenzku leikmennina, sagði Homewood, þegar hann var spurður að því hvaða ís- lenzkur leikmaður hefði staðið sig bezt að hans dómi. Eric Batty, blaðamaður hjá Wold Soccer, var hins vegar ófeimnari við að tjá sig um það atriði. — Leikmaður nr. 7 (Guð- geir Leifsson) var bezti maður liðsins sagði hann. Batty sagði að þetta væri fyrsti leikurinn sem hann sæi Islenzka landslið- ið leika og hefði hann orðið fyrir miklum vonbrigðum. — Ég átti von á mun betri leik hjá liðinu miðað við þann árangur sem það hefur náð að undan- förnu, sagði Batty. Þjálfari finnska liðsins, Rytkonen, sagði að það sem hefði komið sér mest á óvart I leik þessum væri það hversu lítil barátta hefði verið I hon- um, en Finnarnir hefðu verið búnir að búa sig undir mikinn baráttuleik. — Leikurinn var að minu mati ekki mjög slæmur sagði Tykonen. Ég sá Island leika 1974 á móti Finnum og liðið ykkar hefur tekið framför- um síðan, að ég tali nú ekki um frá árinu 1949 þegar ég lék með finnska landsliðinu sem tapaði 2—0 fyrir Islandi. Mér fannst Guðgeir Leifsson bezti leikmað- ur islenzka liðsins, en fleiri ágætir knattspyrnumenn eru greinilega I liðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.