Alþýðublaðið - 08.12.1930, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.12.1930, Blaðsíða 2
2 " AEÞYÐQBfcAÐIÐ SjávarútvegnriDD. Fisfeimálaráðuneyti. — Hrað- frvstihús. — Fisfeisamlag. Ríldsstjórnin hefix í sumar, að því er bezt er vitað, veitt erlendu auðfélagi svo að segja kvaðalaust sérleyfi til að reisa 6 stór frysti- hús hér á landi og starfrækja þau. Saltfiskverzlunin er vegna skipulagsieysis og fávíslegrar samkeppni útflytj'enda komin í það öngþveiti, að nálgast tekur hörmungarástand það, sem sáldar- verzlun og -útgerð var sokkin aiður í áður en einkasalan var stofnsett. Og öllum kemur saman um, að okkur Islendingum sé nú orðið það hreint og beint lifs- skilyrði að geta selt sem mest af fiskinum kælt eða fryst til út- landa. En íslenzka útgerðarmenn virðist skorta bæði framsýni, djörfung og samheldni til að koma þessari breytingu í fram- kværnd. Þeir mæltu með þvi við stjórnina, að hún veitti erlendu, risavöxnu auðfélagi skilyrðislaust sérleyfi til að reisa hér frystihús, en það 'þýðir, að félag þetta nær í sínar hendur nærri því öllum útflutningi á frystum og kældurn fiiski, ef af' verulegum fram- kvamidum verður hjá því. Alþýðuflokkurinn krafðist þess, að ef sérleyfið yrði veitt, þá yrðu jafnframt sett ströng skilyrði til tryggingar því, að félagið yrði eigi landsmönnum ofjarl, að það mætti ekki eiga hér land eða lóðir, en yrði að leigja af því opinbera, er gæti ttekið frystihús- in í sínar hendur eftir ákveðinn tdma og haft nokkuð hönd í bagga og eftirlit með starfsemi félagsins. Sérleyfismál þetta var talsvert rætt á sambandsþingi Alþýðu- flokksins í sambandi við önnur sjávarútvegsmál, og þótti fulltrúum stjórnin litla fyrir- hyggju og framsýni hafa sýnt í inálum þessum. Eftirfarandi tillögur mn sjávar- útvegsmál voru samþyktar í eitiu hl jóði: i. Fiskimál iráoimeij!i: Stofnað’ verði sérstakt fiskimálaráðuneyti, er standi undir atvinnumálaráð- herra. Undir það heyri: fiskirann- sóknir, væntanlegar vélfræði- og byggingar-leiðbeiningar á íiski- báíum, fiskiklak, tilraunastöðvar fyrir hagnýtingu afla og nýrra veiðarfæra, markaðsfréttir og annað það, er að sjávarútvegi lýtur. Fiskimátaráðuneytið gefi út mánaðarrit eða vikublað, er leggi sérstaka áherzlu á að kynna mönnmn nýjungar í veiðiaðferð- um og hagnýtingu 'aflans, svo og annað það, er sjávarútveginum má að haldi koma. Fiskifélagið, eins og það nú er, sé lagt niður, en fiskideildirnar sjarfi áfram undir eftiriiti íiski- málastjóra, og fái fjórðungssam- bönd nokkur fjárráð. II. Hraðjrystihús. Ríkið byggi svo fljótt, sem unt er, hraðfrysti- hús, sem rekin séu með líku fyr- irkomuiagi og síldarverksmiðja ríkisins, mánst 'eitt í hverjum landsfjórðungi. III. Fiskisamlag. Lögboðið verði fiskisamlag, er hafi einkasölu á útfluttum fiski fyrir alt iandið.“ Nái tillögur þessar fram að ganga, er það tvimælalaust tiJ hagsbóta fyrir útgerðarmenn um land alt, einkum hina smærri, sem bæði skortir fé og tækifæri til að komia við nauðsynlegum til- raunum til breytinga á veiðiað- ferðum og verkunar. Og salt- fiskverzlunin kemst aldrei í sæmilegt horf, nema hin heimsku- lega og skaðlega samkeppni út- flytjenda innbyrðis falli niður með öllu, Ríkið leggur nú fram stórfé árlega til að byggja frysti- hús fyrir kjötið, sem þó ekki nemur nema tæpum tólfta til tí- unda hluta fiskútflutningsins að verðmæti. Ef ekki er aðhafst, verður þess skamt að bíða, að saltfiskverzl- unin verði sams konar áhættuspil og síldarverzlumn var og útflutn- ingur á nýjum fiski verði eín- okaður af erlendu auðfélagd, sem kaupir nokkra ríkustu fiskikaup- mennina og útflytjendurna með friðindum til liðs við sig. Rannsðfenar ferafist. Hinn 27. október var í Vík í Mýrdal verið að skipa út. kjöti í vélbátinn Fylki úr Vestmanna- eyjum, eða öllu heldur átti að fara að gera það. Féll þá járn- taíía úr bómunni, sem nota átti, iOg í höfuíjið á einum manninum, sem var í uppskipurxarbát viðj hlið vélbátsins. Hét maður þessi Oddur Sverrisson og var bóndi í Skammadal, Hneig hann þegar í ómegin, hafði fengið tvö meiðsl á höfði, og kom síðar í Ijós, að enn meiri meiðsl voru, Var hann þegar fluttur í land, en lézt næsta dag, hafði að eins rétt sem snöggvast fengið meðvitund. Skipstjóri á Fylki var Sigurður Bjarnason, en stýrimaður Guðni Jónsson. Stjórn Slysatryggingarmnar hefir nú skrifað stjómarráðinu og krafist þess, að frekari rann- sókn fari fram í þessu máli og þeir menn verði látnir sæta á- byrgð, er sekir kunna að reyn- ast um hirðuleysi í sambandi við slys þetta. Frá sjómonnnnnœ. FB., 8. dez. Farnir á fiskiveiðar. Kærar kveðjur til vina og vandamanna. Skipshöfnin á „Nirði“. Leitln að „Aprílu. Leitinni að „Apríl“ var hætt í gærkveldi, og höfðu varðskipin þá verið að leita hans í 3V2 sól- aThring, en árangurslaust. Var sdðast leitað djúpt út og suður af Vestmannaeyjum. Hefiir verið ieitað alla leið austur fyrir land og vestur fyrir Vestmaimaeyjar tii hafs. Farþegar á „April“ eru Pétwr Hafstein bæjarfulltrúi og Ragn- ar Kristjánsson, Sæmundssonar,, héðan úr Reykjavik. Auk þeirra skipverja á togar- anum, sem blaöinu var kunnugt um í fyrra dag, er Einar Hann- esson, Laugavegi 11, hjálpanmat- sveinn, 17 ára. f,Harvestehideu strasadar. Togarinn, -sem strandaði ná- lægt Hádfigi-sskeri austan við Al- viðruhamra á Mýrdalssandi, er „Harvestehude“ frá Cuxhafen, sá, er bjargaði mönnunum af „Ametu“ í haust, en síðan misti þrjá menn er „Ameta“ sökk. Hafði skipið strandað um kl. 9 föstudagsmorgun, en skipverjar ekki komist í land fyr en á há- degi. Héldu þeir vestur yfir sand- inn og komu í Hjörleifshöfða kl. 9 um kvöldið. Þar hafast nú eng- ir við, en hús standa þar, og gátu þeir búið þar vel um sig. Kyntu þeir bál næsta dag og sást það frá Vík, og var rnaður sendur að vita hvað sætti. Bra skipbrotsmenn þessir nú á leið til Reykjavíkur. RejrbjaTife að síga til sjávar. Guðmundur G. Bárðarson nátt- úrufræðingur benti í fyrirlestri sínum mn Reykjanesskagann á þá staðreynd, að landið hér um slóðir er að síga, þótt hægt faril, og isjórinn þvi að ganga á strend- umar. Benti hann enn fremur á, að sennilegt sé, að til þess liggi sú orsök, að eldgos hafa verið /mörg hér í nágrenninu, og þegar hraunið vellur upp, þá er ekki ólíklegt, að tóm verði undir yfir- borðinu, en af þunga yfirlaganna, er eykst við tilkomu nýrra hrauna, sígi yfirborðið smám sarnan, ellegar þá að fljótandi fifni, í iðrum jarðar á þessu mikla eldgosasvæði færist til og stafi landlækkunin þar af á sama hátt. Hann benti á, að jarðsprungur imiklar og margar liggja sam- hldða eftir Reykjanesskaganum í stefnu frá suðvestri til norðaust- urs. Hafa oft komið gos úr sum- um þeirra. Líklegt er, að svæðin á milli þessara sprungna hafi stundum sígið út af fyrir sig og því fylgt jarðskjálftar, — að sumir jarðskjálftar hér um slóð- ir stafi af þeim orsökum. — — Þótt sig landsins og ágangur sjávar á það verði hægt og á löngum tíma, þá kvað G. G. B. þó óvarlegt að byggja hús án grunnhækkunár hér i miðbænum, þvi að að þvi geti rekið fyrr en varir, að sjór sæki þangað upp i lægðina, svo að sérstakar ráðr stafanir þurfi að gera til þess að verja miðbæinn sjávarflóðum. Einnig sé af sömu ástæðu ó- hyggilegt að byggja mikið af húsum á grandanum milli Reykjavikur og Seltjarnarness. Til Sirandarkifkju. Áheit frá N, í. S. 10 kr. Frá G. 5 kr. Dómnr i rússnesfen safeamáí- nnnm. Moskva, 8. dez. Unáted Press. — FB. Ramzin, Zarichev, Kalinnikov,, Tœlotæv og Chamovsky voru dæmdir til lífláts, en Ochkin,. Kuprianov og Sitnin voru dæmd- ir í 10 ára fangelsi. Frabkland stjórnlanst. i Paris, 8. dez. United Press. — FB. Louis Barthou, sem var falín stjórnarmyndun, hefir tilkynt, að 'hann hafi verið til neyddur að hætta við þá tilraun vegna þess, að hann hafi eigi getað aflað sér nægs fylgis í þinginu. Kristján bóngnr lendir í bif- reiðaárebstrí. Khöfn, 8. dez. United Press. — FB. Bifreið Kristjáns konungs rakst á Fordbifreið í útjaðri borgar- innar í gærkveldi. Brotn- hðu rúður í ’bifmðinni og hrukku brot í andlit konungi og særðu hann, en ekki stórvægilega. Togararnir. Frá Englandi hafa komið „Max Pemberton" og „Baldur“ í fyrriinótt og „Þörólftur" í gærmorgun. Hafði hann tafist í Englandi vegna viðgerðar. „Gyllir“ kom af veiðum í morg- un með 1700 körfur ísfiskjar. Skipafréttir. „Dettifoss" kom úr Akureyrarför og „Botnía“ frá út- löndum bæði kl. 1 í nótt og á sama tíma fór „Brúarfoss“ vest- íur og norður um land og fer þaðan utan. „Alexandrína drottn- ing“ kom í morgun kl. 5 frá útlöndum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.