Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977
23
Fyrsta sýning
Gudrúnar Svövu
í Gallerý Súm
I dag opnar Guðrún Svava
Svavarsdóttir fyrstu málverkasýn
ingu sfna I Gallerý Súm vi8 Vatns-
stlg.
Guðrún Svava er fædd I Reykjavik
árið 1944 Hún stundaði nám við
Myndlistarskólann I Reykjavlk árin
1963 — 65. Lærði I eitt ár við
Stroganov-myndlistarháskólann I
Moskvu, hóf slðan nám árið 1 972 I
Myndlistarskólanum I Reykjavlk og
hefur verið I læri þar samfleytt slð-
an, undir leiðsögn Ragnars Kjartans-
sonar og Hrings Jóhannessonar.
Guðrún Svava gerði leikbrúður og
tjöld fyrir Leikfélag Reykjavlkur I
Sæmund Fróða á Listahátlð 1974
Árið 1975 vann hún leikbrúður,
tjöld og búninga I Milli himins og
jarðar, fyrir Þjóðleikhúsið og á þess-
um vetri gerði hún leikbúninga I
Makbeð fyrir LR. Guðrún hefur einn-
ig annast blómaskreytingar, til að
mynda I Tlu þjóðsögur, Laxdælu og
Eiðinn eftir Þorstein Erlingsson, sem
út kom á vegum Helgafells.
Guðrún sýnir 1 5 málverk I Gallerý
Súm, og auk þess teikningar og
graflkmyndir. Sýningin verður opin
frá klukkan 4 — 10 daglega til 12.
aprll.
Fyrsta einkasýning
Gunnlaugs Stefáns
1 Norræna húsinu
1970, svo og f farandsýningum
um Norðurlönd, sem hét Fjórar
kynslóðir í islenzkri myndlist.
Gunnlaugur stundaði nám f
Handfða og myndlistarskóla
tslands dí tvö ár.
Sýning hans verður opin til
11. aprfl og er opin frá klukkan
15 — 22 daglega.
1 DAG opnar Gunnlaugur
Stefán Gfslason sýna fyrstu
sýningu á 39 vatnslitamyndum
I Norræna húsinu.
Þetta er fyrsta einkasýning
Gunnlaugs en hann hefur áður
tekið þátt i samsýningum i
Reykjavík og Hafnarfirði, m.a.
á Listahátíð í Reykjavfk árið
Hshinhua:
Hua verðugur arftaki Maós
segir formaður Menningarfélags Islands og Kína
I FRÉTTABRÉFI kfnversku
fréttastofunnar Hshinhua frá
27. marz s.l. birtist eftirfarandi
frétt frá Peking:
„Menningarfélag Islands og
Kina héit aðalfund 23. marz f
Reykjavfk, að þvf er segir f
fregnum þaðan.
Kristján Guðlaugsson, for-
maður féiagsins, flutti skýrslu
á fundinum. Formaðurinn kvað
árið 1976 hafa verið ár reynslu
fyrir Kfnverska alþýðulýðveld-
ið, eins og gffurleg átök öreig-
anna og borgarastéttarinnar
innan kfnverska kommúnista-
flokksins bæru vott um.
„Fjögura manna klfkan“ —
Wang Hung- Wen, Chang
Chun-Chiao, Chiang Ching og
Yao Wen-Yuan — hefði not-
fært Ser fráfall Maós formanns,
reynt af fremsta megni að
hrifsa til sfn vöidin f flokknum
og rfkinu öllu, snúizt gegn Maó
formanni, Chou forsætisráð-
herra og stefnu flokksins, um
leið og megináherzla hefði ver-
ið lögð á að stofna til iliinda.
Þeir reyndu eftir megni að
eyðileggja eininguna innan
flokksins og hið sósfalfska
skipulag, f hinni misheppnuðu
tilraun til að bylta alræði öreig-
anna og hverfa tii heimsvalda-
stefnu.
Guðlaugsson minntist þess
sfðan, að þegar framtfð sósfa-
lismans f Kfna hefði verið f
óvissu hefði Hua Kuo-feng af
hyggindum sfnum og ein-
drægni sundrað „Fjögurra
manna klfkunni", sigrazt á erf-
iðleikunum, sameinað þjóðina
og leitt hana fram til sigurs
enn einu sinni. Hua formaður
hefði sýnt og sannað að hann
væri verðugur arftaki Maós og
sannur leiðtogi.
Menningarfélag tslands og
Kfna fagnar af hlýhug sigri
kfnversku þjóðarinnar undir
forystu Hua formanns, lýsir
yfir fullum og afdráttarlausum
stuðningi við Hua formann og
óskar honum áframhaldandi
sigurgöngu, sagði hann.
Fundurinn lýsti ánægju
sinni með störf félagsins á
liðnu ári og vonum um að á
hinu nýja ári yrði haldið áfram
á þeirri braut að stuðla að gagn-
kvæmum skilningi og vináttu
fslenzku þjóðarinnar og hinnar
kfnversku.
Arnþór Helgason var kjörinn
formaður félagsins og Jakob
Benediktsson var kjörinn vara-
formaður,“ segir að lokum f
fréttinni frá Peking.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
Á NÆSTUNNI
FERMA SKIP VOR
TIL ÍSLANDS
SEM HÉR SEGIR:
ANTWERPEN:
Grundarfoss 4. apr.
Úðafoss 1 1. apr.
Grundarfoss 18.apr.
Úðafoss 25. apr.
ROTTERDAM:
Grundarfoss 5. apr.
Úðafoss 12.apr.
Grundarfoss 19.apr.
Úðafoss 26. apr.
FELIXSTOWE:
Mánafoss 5. apr.
Dettifoss 12.apr.
Mánafoss 19.apr.
Dettifoss J£6. apr.
Mánafoss 3. maí
HAMBURG
Mánafoss 7. apr.
Dettifoss 14.apr.
Mánafoss 21.apr.
Dettifoss 28. apr.
Mánafoss 5. maí
PORTSMOUTH:
Bakkafoss 4. apr.
Selfoss 6. apr.
Brúarfoss 13. apr.
Bakkafoss 25. apr.
HALIFAX:
Brúarfoss 18.apr.
COPENHAGEN:
Múlafoss 5. apr.
írafoss 12.apr.
Múlafoss 19.apr.
írafoss 26. apr.
Múlafoss 3. ma
GOTHENBURG:
Múlafoss 6. apr.
írafoss 13.apr.
Múlafoss 20. apr.
írafoss 27. apr.
Múlafoss 4. mai
HELSINGBORG:
Pep Avalon 4. apr.
Tungufoss 18.apr.
KRISTIANSAND:
rs Pep Avalon 5. apr
|Sll Tungufoss 1 9. apr
ffl STAVANGER:
(jjjTÍ Tungufoss 20. apr
TRONDHEIM:
Álafoss 4. apr
y ROSTOCK:
L~fl| Fjallfoss 4. apr
GDYNIA/GDANSK:
Skógafoss 21.apr
VALKOM:
Skógafoss 18,apr.
VENTSPILS:
Skógafoss 19.apr.
WESTON POINT:
Kljáfoss 5. apr.
Kljáfoss 19.apr.
Reglubundnar ferðir
hálfsmánaðarlega
frá STAVANGER,
KRISTIANSAND
OG HELSINGBORG
ALLT MEÐ
EIMSKIP
mmsm