Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 14

Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 14
I 14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 Elzta stéttar- félag landsins, áttatíu ára HIÐ íslenzka prentarafélag er 80 ára á mánudag, 4. apríl. Er það fyrsta stéttar- félag iðnaðarmanna á íslandi, stofnað 1897 og hefur það jafnan verið í forystu meðal stéttarfélaga og prentarar jafnan riðið á vaðið um nýmæli í samningum. Stofnendur voru 12 prentarar úr Isafoldarprentsmiðju og Félagsprent- smiðjunni, en síðar þróaðist það í að verða landsfélag. Þótt félagið sé nú 80 ára er forsaga þess nokkur, því að hræringar um samtök prentara höfðu hafizt nokkru áður. I þessari grein er ætlunin að rifja upp i stuttu máli sögu þessa merka stéttarfélags, sem í raun stendur blaði eins og Morgunblaðinu mjög nærri, því að félagar þess hafa frá því er blaðið eignaðist sína eigin prentsmiðju verið mikill hluti starfsmanna blaðsins. Það var árið 1886, að prentarar mynduðu með sér fyrsta félags- skapinn í Reykjavík. Var þetta skemmti- og fræðslufélag, sem þeir kölluðu Kvöldvökuna og varð þetta félag raunar fyrsti visirinn að stéttarfélagi iðnaðarmanna á Islandi, því að árið eftir stofnuðu prentarar félag, sem kallað var Prentarafélagið. Meðan Kvöld- vökufélagið starfaði gaf það út handskrifað blað, sem nefndist Kvöldstjarnan, en eftir að Prentarafélagið var stofnað, nefndist blaðið Prentarinn, en var eftir sem áður handskrifað. Þetta fyrsta stéttarfélag iðnaðar- manna á íslandi varð ekki langlíft og árið 1890 hætti það störfum vegna ýmissa félagslegra örðug- leika. Hiö íslenzka prentarafélag Tilgangur fyrstu laga félagsins Hús Hins íslenzka prentarafélags, Hvergisgata 21, Reykjavfk. I fyrstu lögum Hins íslenzka prentarafélags segir svo: „Til- gangur félags vors er: • að efla og styrkja samheldni meðal prentara á tslandi. • að koma í veg fyrir að réttur vor sé fyrir borð borinn af prent- smiðjueigendum. • að styðja að öllu því, er til framfara horfir í iðn vorri, og að svo miklu leyti, sem hægt er, tryggja velmegun vora í fram- tiðinni." Þegar iög félagsins og blaða- fregnir af stofnun þess eru skoð- uð, ber ekki á kröfum um kjara- bætur. Hins vegar kemur fram á fundum þess, að það sem knúið hefur á um félagsstofnunina er prentnemafjöldinn. Það var brýn- asta hagsmunamál stéttarinnar. að stemma stigu við honum, en að auki hefjast prentarar handa um samningagerð. Það sem mesta athygli vekur er þó ef til vill það, hve félagslegur þroski innan hins nýstofnaða félags hefur verið mikill því að undirtektir félags- manna við tillögu forseta þess um stofnun sjúkrasamlags, hins fyrsta sinnar tegundar á tslandi, voru mjög góðar. Tók það form- lega'til starfa hinn 18. ágúst 1897. Félagslíf var einnig mjög blóm- legt eins og sjá má af þvi að innan félagsins starfaði söngfélag og leikfélag og urðu ma’rgir virkustu starfskraftar þess tofnendur Leikfélags Reykjavikur. Félagið hélt opinberar skemmtanir og félagsfundir voru tíðir. Snemma kom til árekstra við vinnuveitendur Augsýnilegt er að í forystu fyrir prenturum á þessum árum voru menn, sem kunnugir voru starf- semi erlendra stéttarfélag. Sumir forystumenn félagsins voru að auki í góðtemplarareglunni og höfðu hlotið þar félagslega reynslu. Undravert er hve föstum tökum þessir brautryðjendur tóku prentarafélagið strax í upp- hafi og því var ekki að undra, þótt snemma kæmi tii árekstra milli félagsins og atvinnurekenda. Tveimur árum eftir stofnun þess, 1899 á félagið á áttunda hundrað króna í sjúkrasjóði og farið er að ræða um stofnun atvinnuleysis- styrktarsjóðs. Það sama ár ákveð- ur félagið kaupgjald prentara, bæði fyrir þá, sem vinna fyrir fastákveðið vikukaup og einnig fyrir ákvæðissetjara. Þá höfðu fé- lagar og gert með sér samkomulag um að vinna ekki i þeim prent- smiðjum, sem prentnemar eru fleiri en félagið ákveður og er það Núverandi stjórn H.I.P. Frá vinstri Pétur Ágústsson, gjaldkeri, Guðmundur A. Grétarsson, Hermann Aðalsteinsson, varaformaður, úlafur Björnsson, Úlafur Emilsson, formaður, Hafsteinn Hjaltason og Sæmundur Árnason. Meðal prentara bar nauðsyn félagsstofnunar oft á góma eftir að Prentarafélagið hætti störfum, en ekki varð af nýrri félags- stofnun fyrr en árið 1897 eins og áður er sagt. Hinn 4. apríl stofn- uðu síðan 12 prentarar nýtt stéttarfélag og hlaut það nafnið Hið íslenzka prentarafélag. Fyrsti forseti þess var kjörinn Þor- varður Þorvarðsson, en aðrir stjórnarmenn voru Friðfinnur Guðjónsson, féhirðir og Þórður Sigurðsson, ritari. Prentarar höfðu á þessum fyrstu árum þá sérstöðu meðal iðnaðarmanna, að andstæðurnar — meistarar, sveinar — mynd- uðust ekki hjá þeim í kaup- deilum. Atvinnurekendur (prent- smiðjueigendur) voru yfirleitt útgefendur vikublaðanna í Reykjavík og stóðu sem slikir utan stéttarinnar. Við þetta urðu hagsmunaandstæðurnar milli prentara og atvinnurekenda hins vegar enn meiri. Atvinnurekend- ur lögðu mikla áherzlu á að geta rekið fyrirtækin sem ódýrast og slíkt bitnaði að sjálfsögðu á prent- urum og var algengt að þeim væri sagt upp vinnu strax að námi loknu og teknir inn nemar í þeirra stað. Þeir voru mun ódýr- ara vinnuafl. Aðstaðan á vinnu- stöðum var einnig mjög slæm, auk þess sem mikið var um ákvæðisvinnu, sem var óhagstæð prenturum. Öryggisleysi háði þó stéttinni mest og var atvinnuleysi títt meðal fullnuma prentara. Formaður Hins Islenzka prentarafélags, Úlafur Emilsson, ásamt tveimur fyrrverandi formönnum félagsins, Jóni Ágústssyni til vinstri og Stefáni ögmundssyni til hægri. Aftan við þá er fáni félagsins. — Ljósm.: Úl.K.M.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.