Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 16

Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 197? „Miðað við ástand fiskstofnanna er fiski- skipaflotinn of stór” — sagði Matthías Bjamason við upphaf sjávarútvegsráðstefnunnar í Hnífedal (,Það erlangt sfðan að ég gerði mér Ijóst hve nauðsynlegt það væri að auka tengsl sjávarútvegs- ráðuneytisins og þeirra stofnana, sem heyra undir það, við starf- andi fólk f sjávarútvegi bæði til sjós og lands. Nokkuð hefur verið gert f þessum efnum og góð sam- vinna hefur verið við ýmis heild- arsamtök sjómanna, útvegs- manna og framleiðenda, sem að- setur hafa í Reykjavfk, en minni samskipti við landsbyggðina en ég hefði kosið,“ sagði Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra við upphaf sjávarútvegsráðstefn- unnar f félagsheimilinu f Hnffs- dal s.I. sunnudag. Ráðstefnan f Hnffsdai tókst mjög vel og voru umræður mjög fjörugar. Fyrir hádegi voru flutt framsöguerindi, en eftir matar- hlé svöruðu framsögumenn fyrir- spurnum ráðstefnugesta sem voru um 80 auk starfsmanna sjáv- arútvegsráðuneytisins, sem mætt- ir voru. í umræðunum kom m.a. fram, að Vestfirðingar óttast að hálfgert „borgarastríð" geti orðið f landinu ef meiri og frekari afla- takmarkanir verði settar á fiski- skipin. Ennfremur virtust menn vera sammála um að fiskvinnslu- stöðvar á Suðurnesjum væru of margar og eins rækjuverksmiðj- ur við Isaf jarðardjúp. I upphafi ræðu sinnar minntist sjávarútvegsráðherra á það ástand sem var í efnahagsmálum þjóðarinnar á miðju ári 1974, er rekstrarhalli veiða og vinnslu var kominn í 1.740 millj. kr. um mitt ár á ársgrundvelli. Hins vegar hefði gengislækkunin lækkað þennan halla veruleg og eins hefðu verið sett sérstök bráða- birgðalög um ráðstafanir f sjávar- útvegi og um ráðstöfun gengis- hagnaðar. Þá minntist Matthias Bjarnason á þær ráðstafanir sem gerðar voru til að bæta greiðslustöðu út- gerðarfyrirtækja og fiskvinnslu- stöðva og er talið að þær aðgerðir hafi bætt lausafjárstöðu 327 fyrir- tækja um 3.273 milljónir króna. Því næst vék ráðherra að þeim lögum sem sett voru í fyrra um útflutningsgjald og stofnfjársjóð, og samþykkt voru á alþingi 16. febrúar í fyrra. Sagði ráðherra að fulltrúar útgerðarmanna og sjómanna hefðu á sínum tíma lof- að að ef þessar breytingar fengjust i gegn, þá myndu samningar ganga vel fyrir sig. Brugðust loforðunum „Allir þekkja að sem gerðist ög hvernig ýmsir fulltrúar þeirra sjómanna, sem að þessum tillög- um stóðu, brugðust þeim loforð- um sem þeir gáfu, en vegna þess voru sett bráðabirgðalög hinn 6. september s.l. um kaup og kjör sjómanna, til þess meðal annars að tryggja að þau sjómannafélög sem höfðu samið bæru ekki skarðan hlut frá borði,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Þegar sjávarútvegsráðhera vék að stjórnun fiskveiðanna sagði hann, að miðað við núverandi ástand fiskstofnanna væri ljóst, að fiskiskipafloti landsmanna væri of stór. Afleiðingin hlyti að vera minni afli á hvert skip og þar með aukinn kostnaður á sóknar- einingu og lakari rekstrarafkoma. Ríkisstjórnin hefði gert sér þetta ljóst áður en svarta skýslan kom út og þvi ákveðið að fella niður allar ríkisábyrgðir sem veittar höfðu verið í sambandi við innflutning fiskiskipa en þær námu 13% af kaupverði. Þá skýrði sjávarútvegsráðherra frá því hvað gert hefði verið til að draga úr sókn í þá fiskstofna, sem eru taldir í mestri hættu, eins og stærri og fleiri friðuð svæði, stærri möskvar o.fl. 150 m kr. í fiskileit Á síðasta ári voru veittar 250 millj. kr til fiskileitar og í leit að nýjum fiskimiðum. Það kom fram hjá sjávarútvegsráðherra, að á þessu ári verða veittar 150 millj. kr. til þessara hluta, enda hefði þessi leit gefið sérstaklega góðan árangur á s.l. ári. Um samstarf þjóða um fisk- vernd sagði Matthías Bjanason m.a., að vegna einhæfrar út- flutningsframleiðslu væru Is- lendingar háðari alþjóðlegum samskiptum en flestar þjóðir aðr- ar. I þessum skiptum verðum við að sýna einurð og drengskap, og láta gerðir okkar stjórnast af þvi sem við teljum að þjóðarheildinni sé fyrir beztu. I því sambandi mættum við ekki láta ofstopafulla og í mörgum tilfellum háværa en fánienna hópa ráða gerðum okkar heldur kaldar staðreyndir. A s.l. ári nam útflutningur Is- lendinga til EBE-landa 31.1% af heildarútflutningi landsmanna, þar af voru sjávarafurðir tæp 50% og er ljóst að þetta hlutfall mun stóraukast á næstu árum vegna lækkandi innflutningstolla, en hinn 1. júlí n.k. falla þeir niður af flestum sjávarafurðum. Rækjutoll- urinn fellur niður 1. júlí Sjávarútvegsráðherra minnti á að áður en samningur Islands við EBE tók gildi hefði innflutnings- tollur á rækju verið 12%, en lækkað í 2,4% er samningurinn tók gildi og félli alveg niður 1. júlí n.k., en ef ekki hefði verið samið við EBE hefði tollurinn farið í 20%. í lok ræðu sinnar fjallaði Matthías Bjarnason nokkuð um þá áróðursherferð fyrir íslenzkan iðnaða sem enn virtist í fullum gangi. „Islenzkur iðnaður er góðra gjalda verður og við sem hér erum samankomnir munum ekki verða eftirbátar annarra í stuðningi við þessa atvinnugrein. En hvers vegna þennan enda- lausa samanburð á fyrirgreiðslu til sjávaútvegs og iðnaðar, eða eig- um við að trúa þvl að iðnaðar- framleiðsla nágrannaþjóða okkar sé niðurgreidd I samkeppni við íslenzkan iðnað á sama hátt og þessar þjóðir greiða niður allar sjávarafurðir sem þeir selja á erlendum mörkuðum 1 samkeppni við okkur? Gera þeir sér fulla grein fyrir að nágrannar- okkar Norðmenn greiddu tæplega 15 milljarða islenzkra króna i beina styrki til norsks sjávarútvegs á árinu 1975 á sama tima sem allt aflaverðmæti íslenzka fiskiskipa- flotans nam 16.7 milljörðum kr. Auk þess nam aukin lánafyrir- greiðsla og ábyrgðir um 26 milljörðum kr. og gert var ráð fyrir sambærilegri fyrirgreiðslu á s.I. ári. Þessir fjármunir eru að sjálfsögðu sóttir til annarra at- vinnugreina, en islenzkur sjávar- útvegur getur ekki sótt neitt til annarra atvinnugreina, hann hefur orðið að miðla öðrum grein- um islenzks atvinnulifs. Eina vörn hans er aukin framleiðni og aukinn afli á sóknareiningu." Næst á eftir ráðherra tók til máls dr. Björn Dagbjartsson for- Iftjóri Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins. Fjallaði hann í fyrstu um hlutverk Rannsóknastofnun- arinnar og sagði, að nú störfuðu 16 háskólamenntaðir sér- fræðingar hjá stofnuninni, en starfsfólk væri oftast um 40. Þá gat hann þess, að auk útibús Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins á Isafirði, væri útibúið í Nes- kaupstað nú tekið til starfa, einnig sæi stofnunin um rekstur rannsóknastofu fiskvinnslufyrir- tækjanna í Vestmannaeyjum. Kolmunninn þolir 15—20 kr. hráefnisverð Björn Dagbjartsson vék nú að kolmunnaveiðunum á s.l. sumri og sagði, að alls hefðu verið fram- leidd um 50 tonn af kolmunna- marningi og 13—14 tonn af kol- munnaskreið. Framleiðslumagnið hefði verið allmiklu minna en áætlað var og hefði það valdið nokkrum vonbrigðum. Hefði þetta stafað fyrst og fremst af því, að mjög miklar annir voru hjá fiskvinnslustöðvum þeim, sem móti aflanum tóku. „Það hefur alltaf verið ljóst að vinnsla á kolmunna verður ekki jafnarðbær og vinnsla á ýmsum öðrum verðmætari fiski, og kol- Dr. Jakob Magnússon munnavinnslan var þvi látin mæta afgangi i sumar. Þó bentu arðsemisútreikningar, sem gerðir voru við siðustu marnings- vinnsluna i Þorlákshöfn, til þess, að vinnslan stæði fyllilega undir sér miðað við að greiddar væru 15—20 kr. fyrir kg. Hitt er svo annað mál, hvort það borgar sig að veiða kolmunnann fyrir þetta verð, nema þá sem uppbót á bræðsluveiðar á svipaðan hátt og þegar loðnu er landað til fryst- ingar.“ Hirðum lifrina á ný Þá ræddi Björn nokkuð um þorskalýsisframleiðsluna og sagði að kringum 1960 hefði fram- leiðslan verið um 10.000 tonn á ári, en undanfain ár hefði hún varla farið yfir 4.000 tonn. Nú væri lögð mikil áherzla á að skip- in hirtu lifrina og trollbátar í Ingólfur Ingólfsson Vestmannaeyjum gerðu þar og auk þess 10—20 togarar suðvestanlands, a.m.k. af og til fyrir niðursuðuverksmiðju á SV- landi. Lifrin er ísuð i kassa i plast- pokum og þykir betra hráefni allt að 5—6 daga gömul en lifrin upp og ofan úr vertiðarbátum. Fyrir kilóið fær áhöfnin óskipt 45 kr. fyrir kilóið, en Björn sagði, að hann væri ekki nógur kunnugur þvi hvað togaramönnum þætti borga sig en þarna væri um ca. 10 þúsund kr. á mann á mánuði að ræða ef togari hirti 3 tonn af lifur á mánuði, sem yrði þó að teljast litið. Það kom fram hjá dr. Birni, að skömmu eftir áramót var boðið hingað til lands tveimur full- trúum frá bandariska skelfisk- eftirlitinu. Heimsóttu þeir frysti- hús, skoðuðu veiðiskip og héldu fundi með þeim aðilum hérlendis, sem helzt koma til greina við kúfiskveiðar. Umsögn þessara bandarísku sérfræðinga var mjög lofsamleg. Áhugavert kúffiskmið við Vestfirði Sagði Björn að fundizt hefðu mjög áhugaverð kúffiskmið við landið m.a. við Vestfirði. Það, sem íslenzkur sjávarútvegur sækir ekkert til annarra atvinnugreina - hann miðlar þeim Jón L. Arnalds, Matthias Bjarnason og Kristján Ragnarsson ræða maiin á ráðstefnunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.