Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 17

Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 17 Matthfas Bjarnason sjávarútvegsráðherra flytur erindi sitt. Ljósm. Mbl.: Friðþjófur. hefði einkum hindrað kúffisk- vinnslu hingað til, væri þegar vel væri að gáð verð og vinnslukostn- aður. Þó hefðu tilraunir bæði hér og erlendis sýnt að nota mætti vélar a.m.k. við sum þessara vinnslustiga, m.a. væri hægt að úrskelja með hörpudiskvélum. Nú þyrfti að gera nákvæmari arðsemisútreikninga og alvar- legar veiði- og vinnslutilraunir, þar sem framleitt væri nægilegt magn il markaðsathugana. 2500 lestir af rækjuúrgangi Það kom einnig fram hjá dr. Birni Dagbjartssyni, að áætlað er að árlega falli til hérlendis Kristján Ragnarsson 2000—2500 lestir af rækjuúr- gangi. Væri þessi úrgangur hálf- gerð vandræðavara víða um heim, þar sem próteininnihald rækju- mjöls væri mjög lágt. Rannsókna- stofnunin' hefði undanfarin ár gert á því athuganir hvort hægt væri að nýta rækjuúrganginn í tnnlenda fiskfóðursframleiðslu, þar sem litarefnið í skelinni væri sama eðlis og litarefnið í holdi fiska. Tilraunir hefðu reyndar ekki heppnazt eins og vonir stóðu til, silungurinn sem fengið hefði fóðrið hefði sennilega verið orðinn of gamall, en þeir fiskar, sem mest hefðu etið af fóðrinu, hefðu litazt bezt og bragð af þeim verið betra en af hinum. I lok framsögu sinnar sagði dr. Björn, að hann væri jafnsann- færður og áður um það, að „dagur kolmunnans" kæmi, og það gæti reynzt þýðingarmikið ef Is- lendingar ættu frumkvæðið i koi- munna vinnslunni og næðu fót- festu á einhverjum markaði fyrir kolmunna afurðir. Ingólfur Ingólfsson, formaður Vélstjórafélags Islands og fulltrúi í Verðlagsráði sjávarútvegsins, fjallaði um starf Verðlagsráðsins og alla starfstilhögun þar, og sagði síðan: Gagnasöfnun veldur töfum „Einn er sá skuggi, sem hvílt hefur á Verðlagsráði og störfum þess, en það er sá dráttur, sem alltaf hefur orðið á verðákvörðun- um og þá einkum aðalverð- ákvörðuninni, sem gilda frá ára- mótum, og vitna gagnrýnendur gjarnan til þess, sem vissulega er rétt að samkvæmt ákvæðum laga skal verð liggja fyrir 20 dögum áður en nýtt verðtímabil hefst. En hér er úr vöndu að ráða." Sagði Ingólfur, að samkvæmt ákvæðum laga og reglugerðar ætti Verðlagsráð m.a. að hafa hliðsjón af markaðsverði sjávar- afurða á erlendum mörkuðum, af- komu fiskvinnslugreina og fiski- flotans og hliðsjón af tekjum sjómanna. — Meginhluti þeirra upplýsinga, sem Verðlagsráði er lagt til, eru afkomureikningar vinnslugreinanna í heild og á sama hátt uppfærðir afkomu- reikningar útgerðarinnar, gerðir af Þjóðhagsstofnun og byggðir eru m.a. á framleiðsluskýrslum, fyrirtækjareikningum og skatt- Dr. Björn Dagbjartsson framtölum. Einnig leggur Fiskifélag Islands og Reikninga- skrifstofa sjávarútvegsins til mikið af þvl efni sem Þjóðhags- stofnunin byggir á. Sagði Ingólf- ur að iðulega yrði óviðráðanlegur dráttur á gagnaöflun, sem svo aftur ylli töfum á störfum ráðsins. „Ég leyfi mér að fullyrða, að dráttur á verðákvörðun er fulltrú- um í Verðlagsráði engu geðfelldari en þeim, sem þeir eru fulltrúar fyrir," sagði hann. Ingólfur sagðist vilja minna þá menn á, sem ekki myndu langt aftur i tímann, að sá háttur hefði verið hafður á, að t.d. var verð á síld til bræðslu ákveðið af ráðherra eftir tillögum stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins og verð á sild til söltunar var ákveðið af Síldarútvegsnefnd. Þessi háttur var hafður á um 20 ára skeið. Árin 1956 til 1960 var fiskverð tii sjómanna ákveðið með sérstökum lögum og árið 1960 áttu útvegs- menn og fiskkaupendur að semja um verð fyrir árið, en ekki gekk það betur en svo að samkomulag náðist ekki fyrr en i lok vetrar- vertíðar. Varð sá dráttur m.a. til þess að sett voru lög um Verðlags- ráð sjávarútvegsins. Nú vék Ingólfur að Verðjöfn- unarsjóði fiskiðnaðarins. Kvað hann stjórn sjóðsins setja sérstakt viðmiðunarverð við hverja fisk- verðsákvörðun og væri það gert fyrir hverja fisktegund fyrir sig. Viðmiðunarverðið gæti verið það markaðsverð sem i gildi væri á þeim tima, eða verð sem talið er liklegt að fáist fyrir þá fram- leiðslu, sem ekki hefði verið sam- ið um sölu á. Jafnframt þessu væri ákveðið svokallað verðbil og greiðsluhlutfall i og úr sjóðnum. Fyrri hluti -Verðjöfnunarsjóður hefur sannað gildi sitt „Framan af stóð nokkur styr um gildi Verðjöfnunarsjóðs sem ef til vill var ekki nema von. En i dag tel ég að-fullyrða megi, að hann hafi svo rækilega sannað gildi sitt, að það er varla hugsan- legt að nokkur maður sem hags- muni sína á undir sjávarútvegi vildi leggja hann niður. Og ef ég ætti að nefna nokkur dæmi þá er nærtækast að minnast þess þegar verðfallið var á loðnuafurðunum, en þá hefði verið óhugsandi að gera út á loðnuveiðar, ef ekki hefði komið tit greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði. I öðru lagi má þess minnast, að þegar verðfallið varð á frystiafurðunum í árslok 1974 greiddi sjóðurinn á árinu 1975 um 1300 milijónir króna vegna fyrstingarinnar og hefði verið erfitt að halda jafnvægi i útgerð og vinnsiu og tekjum sjómanna, ef ekki hefði verið hægt að grípa til sjóðsins," sagði Ingólfur. Breytt vidhorf til sjávarútvegsmála Dr. Jakob Magnússon fiski- fræðingur flutti erindi á ráðstefn- unni um nýtingu fiskstofna. I upphafi sagði hann, að á þvi léki enginn vafi að viðhorf manna til sjávarútvegsmála hefðu tekið miklum breytingum á siðustu árum og ætti það jafnt við stjórn- völd og þá, sem störfuðu beint við sjávarútveg. „Það má ef til vill segja að ili nauðsyn hafi knúið á um aðgerðir, sem hafa átt sinn þátt í þessum viðhorfsbreyt- ingum. En ég tel að skilningur manna fyrir ýmsum aðgerðum til tryggingar viðgangi fiskstofna hafi stóraukizt. Þó hefur stundum staðið styr um ýmsar aðgerðanna, enda ekki óeðlilegt, þar sem þær kunna hafa snert afkomu manna í augnablikinu og raskað gamalli hefð um frjálsar veiðar. Er þá ekki nema að líkindum að sitt sýnist hverjum i þeim efnum." Jakob sagði, að síðustu 20 árin hefði meðalársafli þorsks á Islandsmiðum verið um 400 þús- und tonn. Miklar sveiflur í heildaraflanum hefðu þó verið á þessu timabili. Þær ættu rætur að rekja til breytinga á stofnstærð og aukningu sóknar. Eftir nokkrar sveiflur hefði síðast verið met- veiði árið 1970 eða um 470 þús. tonn en farið stöðugt minnkandi síðan og verið komin niður i 340 þús. tonn árið 1976, en lagt hefði verið til að veiðin færi ekki yfir 280 þúsund tonn það ár. 2.6 millj tonn 1955 „Á þessu timabili var þorsk- stofninn — þ.e. fiskur þriggja ára og eldri stærstur árið 1966 og var hann þá talinn vera um 2.6 milljónir tonna. En vegna aukinnar sóknar og vegna lélegra og miðlungi sterkra árganga minnkaði stofninn og var kominn niður i 1.5 milljónir tonna árið 1965. Siðan stækkaði han nokkuð á árunum 1966—1969 vegna sterkari árganga við Island og fisks, sem gekk hingað frá Græn- landi. En síðan 1970 hefur stofn- inn minnkað hröðum skrefum og hefur hann aldrei verið minni en á s.l. ári. Var hann þá kominn í um það bil 1 milljón tonna, þ.e. rúmlega þriðjung af þvi sem hann var, þegar hann var stærstur árið 1955,“ sagði Jakob. Hrygningarstofninn 180 þús t í fyrra Það kom fram hjádr. Jakobi að Framhald á bls. 25 Holtablómið Férmingarblóm, skreytingar, fermingar- servíettur, fermingarkort, spánskar styttur til fermingagjafa, fallegt og ódýrt'kera- mik, páskaskraut, kerti og páskaservíett- ur, ný sending kaktusar. Opið allar fermingarhelgar. Holtablómid, Langholtsvegi 126, sími 3671 1. Morgunbladid óskareftir blaðburðarfólki Austurbær: Bergstaðastræti Vesturbær: Neshagi Upplýsingar í síma 35408 r Sölusýning á handavinnu vistmanna Arnarholts og kaffisala Kvenfélagsins Esju, verður haldin að Fólkvangi Kjalarnesi, dagana 2. og 3. apríl frá kl. 1 3.00 — 1 8.00 báða dagana. Margt góðra og fallegra muna. Góðar kaffiveitingar. Geðdeildin Arnarholti. Kvenfélagið Esja. Benidor m - kvöld Festt Grlndavík sunnud. kl. 19:00. Grfsavelzla. Stórbingó Skemmtiatriði Vinmngar 3 utanlandsferöir Sæmi og Didda — rokka Baldur Bgansson — töframaöur Július Bgánsson — kynnir Feröakynning og feröirnar I sumar kyr Sýndar veröa myndir frá Benidorm og teröirnar i sumar kynntar. Á eftir veröur dansaó til kl. 02:00. Boröpantanir í síma 8389 =1 Feróamióstööin hf. ■T| j 11 Aðalstræti 9 Reykjavik ■ Sfmi 11255

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.