Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977 5 Klukkan 21.30: Stjórnmál frá stríðslokum Uppsalakvöld í Norræna húsinu Frá Vatnaskógi Innritun hafín í sumar- FIMMTUDAGINN 21. aprll kl. 20:30 verður þess minnst með samkomu á vegum Norræna hússins, að aldursfor- seti norrænna háskóla, Uppsalahá- skóli, verður 500 ára á þessu hausti. Hann var opnaður í október 1477. Raunar hafði verið lagður nokkur grundvöllur að háskóla 1438, þegar sænska ríkisráðið ákvað að fé skyldi varið til fyrirlestrahalds og var það staðfest af konungi 1444 Fyrsti fyrirlesarinn var Anders Bondo, en fyrirlestrahald hans virðist hafa lagst niður allfljótt, og það er ekki fyrr en 1477 að háskólinn hefur raun- verulega starfsemi sína Norræna húsið hefur boðið Tore Frángsmyr dósent við Uppsalaháskóla hingað af þessu tilefni og á samkom- unni ræðir hann um háskólann og tengsl hans við ísland Ennfremur verður sýnd kvikmynd um háskólann og Stefán Sörensson og Valdimar Örnólfsson syngja Glúntasöngva við undirleik Guðmundar Jónssonar Glúntarnir eru eftir Gunnar Wenner- berg, sem stundaði háskólanám i Upp- sölum og tók ríkan þátt í stúdentalifinu þar Hann varð síðar kirkjumálaráð- herra Sviþjóðar oftar en einu sinni. Margir íslendingar hafa stundað há- skólanám í Uppsölum og nokkrir ís- lendingar hafa hlotið heiðursnafnbót þaðan Mætti þar nefna Einar Ól Sveinsson og Ármann Snævarr. Aðgangur er ókeypis og öllum heim- ill búðimar 1 Hin árlega kaffisala Skógar- manna KFUM verdur á morgun sumardaginn fyrsta, í húsi KFUM og K vió Amtmannsstfg í Reykja- vík. Frá klukkan 14 og fram eftir degi, til kl. 17 — 18, verða bornar fram veitingar, sem velunnarar starfsins 1 Vatnaskógi hafa lagt til. Um kvöldið kl. 20:30 verður slðan samkoma 1 umsjá Skógar- manna, þar sem sýndar verða myndir frá Vatnaskógi og starf- inu þar, Karlakór KFUM syngur nokkur sumar- og Skógarmanna- lög. Vatnaskógi Nú er hafinn undirbúningur að sumarstarfinu og vinnuflokkar dveljast í Vatnaskógi um helgar til að lagfæra girðingu og fleira og síðar i vor þarf að sinna skóg- ræktarstörfum. íþróttahús, sem verið hefur í byggingu undanfar- in tvö ár, er langt komið, og verð- ur unnið áfram við það í vor og sumar. Alls verða 10 dvalarflokk- ar í Vatnaskógi og er innritun þegar hafin. Fer hún fram á skrif- stofu KFUM, Amtmannsstíg, kl. 9:30 — 12 og 13:30 til 17 alla virka daga nema laugardaga. FERMINGARGJOFIN Vid seljum ekki ÓDÝRUSTU VASATÖLVUNA En ertu adeins ad leita ad því allra ódýrasta? vasatölva DAGSKRÁ sjónvarps- ins í kvöld lýkur með fimmta þætti franska framhaldsmynda- flokksins um stjórn- mál frá stríðslokum og nefnist þessi þáttur Stjórnmál í Asíu, og verður í þættinum lýst breytingum, sem verða i Japan eftir stríð. Þar kemst á lýð- ræði og efnahagur blómgast óðfluga. Mao Tse-tung stofn- ar alþýðulýðveldi í Kína árið 1949. Frakkar eru að missa ítök sín í Indókína og í Kóreu geisar blóðug styrjöld. Þýðandi og þulur er Sigurðu Pálsson. Frá eyðileggingunni í Hiroshima. <= SAGA VOPNANNA heitir þáttur, sem er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld að loknum fréttum. Er hér um að ræða teiknimynd í gamansömum ádeilutón um þróun og notkun vopna frá upphafi vega. Á með- fylgjandi mynd sjáum við nokkur sýnishorn. kr. 6.900 ÖRYGGI eins árs ábyrgd ÚJÖNIJSTIJ stærsta skriftvélaverkstædi landsins VARAHLIJTI fullkominn varahlutalager VIDGERDIR sérmenntada menn í vidgerdum elektrónískra reiknivéla VERD frá Kr. S.7SO Er ekki rétt ad athuga vel hvad er í bodi ? Kannski verdid sé hagstædast hjá okkur þegar allt er tekid med í reikninginn CH(. </L / SKRIFSTOFUVELAR H.F. cA ^ ' instsfeLaBBlH HVERFISGATA Sími 20560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.