Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977
ÍSLANDSMEISTARAR Fram l meistaraflokki kvenna: Aftari röð frá vinstri: Helga Magnúsdðttir,
Guðrún Sverrisdóttir, Krístfn Orradóttir, Bergþóra Aámundsdóttir, Guðrún Haildórsdóttir, Elín Hjör-
leifsdóttir, Jenný Grétudóttir og Jón Friðsteinsson formaður Handknattleiksdeildar Fram. Fremri röð:
Guðjón Jónsson þjálfari, Jenný Magnúsdóttir, Þorbjörg Albertsdóttir Oddný Sigsteínsdóttir, Kolbrún
Jóhannesdóttir, Guðrfður Guðjónsdóttir, Steinunn Helgadóttir og Sylvfa Hallsteinsdóttir. (Ljósm. RAX).
Tvær sekúndur
frá bikarsigri
Er afleíns tv»r sekúndur voru eftir af urslitaleik KR og Ármanns I
bikarkeppni kvenna I handknattleik I gærkvöldi leiddi ÁrmannsliSiB með einu
marki, staftan var 9:8 fyrir Ármann, en þð braust ein KR-stúlkan inn úr hægra
horninu og skorafti gott mark. Þar meft var jafnteflift tryggt og liftin þurfa aft
mætast aft nýju.
Annars var þetta einkennilegur leikur. KR haffti alla yfirburfti I fyrri
hálfleiknum og skorafti þá 6 mörk gegn einu. sigurinn blasti þvi vift liftinu. í
seinni hálfleiknum snerist dæmift vift og Ármann skorafti hvert markaft af
öftru. Náfti Ármann aft jafna um miftjan hálfleikinn, 7:7, og komst siftan yfir,
9:8, I fyrsta skipti i leiknum. Lokasekúndunum er áftur lýst og liftin verfta þvi
aft leika annan úrslitaleik. HG
VALSMENN tryggðu sér
fslandsmeistaratitilinn
handknattleik er þeir sigr-
uðu Framara með 24 mörk-
um gegn 20 í gærkvöldi.
Hlutu Valsmenn því 24
stig f 1. deildinni í ár og
töpuðu aðeins fjórum stig-
um. Misstu þeir þau gegn
Víkingum, sem urðu f öðru
sæti með 22 stig.
Eru Valsmenn vel að
þessum sigri sfnum komn-
ir, þeir léku jafnbeztan
handknattleik allra lið-
anna í 1. deildinni í vetur
og þ:ð var fyrst og fremst
liðsheildin, sem stóð að
baki sigrinum.
Leikur Vals og Fram í gær-
kvöldi var einn af skemmtilegri
leikjum íslandsmótsins og hníf-
jafn allt þar til stundarfjórðung-
ur var eftir af leiknum og þá um
leið islandsmótinu. Var staðan þá
16:16, en með mjög kraftmiklum
leikkafla komust Valsmenn í
23:17 og gerðu út um leikinn.
Börðust Framarar mjög framan
af leiknum og var engu líkara en
þeir væru að berjast fyrir íslands-
bikarnum. Grimmd þeirra i vörn-
inni og létt spil í sókn virtist
koma Valsmönnum í opna skjöldu
og tók það þá langan tima að
finna sig í leiknum. Var staðan í
leikhiéi 12:10 fyrir Fram og mun-
aði aldrei meira en 1—2 mörkum
á liðunum allt þar til staðan var
16:16 og var Fram yfirleitt á und-
an til að skora. Er Valsmenn kom-
ust í fyrsta skipti tvö mörk yfir í
leiknum var ísinn líka brotinn og
eftirleikurinn var þeim næsta
auðveldur.
Eins og áður sagði er það liðs-
heildin, sem stendur að baki þess-
um íslandsmeistaratitii hjá Val. 1
þessum leik var þó þáttur þeirra
Stefáns Gunnarssonar, Gisla
Blöndai og Jóns Karlssonar afar
mikilvægur, en þessir reyndu
leikmenn drifu Valsliðið áfram og
Jón og Gísli gerðu dýrmæt mörk í
leiknum. Þorbjörn og Jón Pétur
áttu einnig góðan leik. Ekki er
hægt að segja að neinn útileik-
manna Vals hafi átt slakan leik að
BIKARINN
HÖFN HJÁ VAL
þessu sinni, en mikilvægi leiksins
gerði nokkra þeirra greinilega
óstyrka í fyrri hluta leiksins.
Af Frömurum komust Jón
Árni, Pálmi og Arnar einna bezt
frá þessum leik, en allt annað var
að sjá til Framara í þessum leik,
en fyrri leiknum á móti Val og
leiknum gegn Vikingi á dögunum.
MÖRK VALS: Jón Karlsson 6,
Þorbjörn 5, Jón Pétur 4, Gisli 3,
Steindór 2, Gunnsteinn, Stefán,
Björn og Bjarni 1 hver.
MÖRK FRAM: Pálmi, Arnar og
Jón Árni 4 hver, Andrés, Gústaf
og Árni 2 hver, Sigurbergur og
Pétur 1 hvor.
Stefáni Gunnarssyni var vikið
af velli i 2 mínútur af ágætum
dómurum leiksins, Kjartani
Steinbeck og Kristjáni Ingibergs-
syni. — áij
VAL.ame.ryry — isiandsmeistarar f meistaraflokki karla 1977. Aftari
röð frá vinstri: Ægir Ferdinandsson formaður Vals, Ágúst ögmunds-
son liðsstjóri, Björn Björnsson, Karl Jónsson, Þorbjörn Guðmundsson,
Gisli Blöndal, Jón Pétur Jónsson, Stefán Gunnarsson, Bergur Guðna-
son, Þorsteinn Einarsson, Hilmar Björnsson þjálfari og örn Höskulds-
son formaður handknattleiksdeildar Vals.
Fremri röð: Steindór Gunnarsson, Bjarni Guðmundsson, Jón Breið-
fjörð, Jón H. Karlsson fyrirliði, Garðar Kjartansson, Gunnsteinn
Skúlason, Jóhannes Guðmundsson og Ólafur Guðjónsson.
VALUR: Jón Breiðf jörð 1, Garðar Kjartansson 1, Stefán Gunnars-
son 2, Jón Pétur Jónsson 2, Jón Karlsson 3, Bjarni Guðmundsson
2, Björn Björnsson 2, Steindór Gunnarsson 3, Gísli Blöndal 3,
Gunnsteinn Skúlason 1, Þorbjörn Guðmundsson 3.
FRAM: Jón Sigurðsson 2, Pétur Jóhannesson 1, Pálmi Pálmason
2, Jón Árni Rúnarsson 3, Ragnar Hilmarsson 1, Gústaf Björnsson
2, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Arnar Guðlaugsson 3, Andrés
Bridde 2, Árni Sverrisson 2.
Vfkingur og Þróttur gerðu jafn-
tefli án þess að mark væri skorað
f Reykjavfkurmótinu f knatt-
spyrnu f gærkvöldi. Var leikur
liðanna frekar slakur. Hafa Vfk-
ingar nú 4 stig eftir þrjá leiki, en
Þróttarar 3 stig að jafn mörgum
leikjum loknum.
Valur vann Kr 2:0
VALSMENN unnu KR, f einum
bezta leik Reykjavíkurmótsins f
knattspyrnu til þessa, með tveim-
ur mörkum gegn engu á Melavell-
inum f fyrrakvöid. Ingi Björn
Albertsson, skoraði bæti mörk
leiksins. Hafa Valsmenn nú hlot-
ið 3 stig eftir þrjá leiki.
FH OG HAUKAR leika f Litlu
bikarkeppninni í kvöld og hefst
leikur þeirra klukkan 19. Verður
örugglega hart barizt hjá þessum
erkifjendum úr Friðinum. A
morgun mætast sfðan ÍBK og ÍA í
sömu keppni og hefst sá leikur
klukkan 14.
URSLIT I ENSKU KNATT-
SPYRNUNNI I GÆRKVÖLDI:
1. DEILD:
Coventry — Vest Bromwich 1:1
Everton — Norwich 3:1
QPR — Manchester United 4:0
Manchester City — Birmingh. 2:1
2. DEILD
Hull—Orient 1:1
Carlisle—Wolverhamton 2:1
^ jHovjjunMnfrtfr ^
iiiTBTiiira
Oldham — Chelsea 0:0
Manchester City náði Liverpool
þar með að stigum á toppnum.
Mörk liðsins gerði Brian Kidd,
það fyrra hans 100. deildarmark,
en Kenny Burns gerði mark
Birningham. Don Givens, Eddi
Kelly og Peter Eastoe (2) skor-
uðu mörk QPR f stórsigri yfir
Manchester United.
FIRMAKEPPNI á skfðum fer
fram f Bláfjöllum á sumardaginn
fyrsta. Verður keppnin með ný-
stárlegu sniði, en keppt verður f
tveimur samsíða brautum, tveir
og tveir f einu. Er þetta keppnis-
fyrirkomulag sérstaklega
skemmtilegt fyrir áhorfendur,
hefst keppnin klukkan 14 á morg-
un, en nafnakal) klukkan 12.
Sama markatala
og í fyrra og
Framstúlkurnar
héldu bikarnum
FRAM varS íslandsmeistari I meistaraflokki kvenna I ár, er liðið vann Val
með yfirburðum, 13:5, í sfðasta leik liðanna f gærkvöldi. Vörðu Framstúlk-
umar því titil sinn frá fyrra ári með sóma og þess má geta að leikurinn f
gœrkvöldi var í raun endurtekning I úrslitaleiknum í fyrra, en þá vann Fram
einnig 13:5.
Fram skoraði þrjú fyrstu mörk leiks-
ins f gærkvöldi og leiddi 5:2 f leikhléi.
Fimm fyrstu mörk seinni hálfleiksins
gerðu út um leikinn, Fram skoraði þau
öll og staðan breyttist í 10:2 Átta
marka munur hélzt það sem eftir var,
13:5 urðu lokatölur og er það sjald-
gæft að svo miklu muni hjá Val og
Fram f kvennahandknattleiknum, en
þessi lið hafa yfirburði gagnvart örðum
íslenzkum kvennaliðum.
Það sem fyrst og fremst braut Vals-
liðið niður í þessum leik var stórgóð
vörn Framstúlknanna, börðust þær
mjög vel og voru samtaka Komust
skyttur Valsliðsins ekkert áleiðis og ef
knötturinn fór f gegnum vömina var
Kolbrún markvörður Jóhannesdóttir að
baki hennar og fékk hún aðeins á sig 2
mörk fyrstu 40 mínútur leiksins Var
Kolbrún valin „Leikmaður 1. deildar
kvenna ', að leiknum í gær loknum, og
kom það val víst fæstum á óvart. Að
valinu stóðu handknattleikskonur sem
hættar eru keppni og voru þær Sylvfa
Hallsteinsdóttir, Sigrún Guðmunds-
dóttir og Sigríður Sigurðardóttir f
nefndinni — eru reyndar tvær þær
fyrstnefndu byrjaðar að leika á ný.
Af Framstúlkunum stóðu þær sig
bezt, auk Kolbrúnar, Oddný, Jóhanna
og Guðríður, en það var þó fyrst og
fremst liðsheildin, sem stóð að baki
sigrinum. Um Valsliðið er það að segja
að þetta var einfaldlega ekki þeirra
dagur og varla nokkur annarri betri í
þessum leikl.
Mörk Fram: Oddný 3, Guðrfður 3,
Jóhanna 3, Kristín 2. Guðrún 1, og
Sylvía 1.
Mörk Vals: Björg G. 2, Halldóra.
Harpa og Ágústa 1 hver. —áij.