Morgunblaðið - 03.09.1977, Síða 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK
195. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rhódesía:
Bretar vísa málinu
til öryggisráðsins
Lundúnum, 2. september — Reuter.
DAVID Owen utanríkis-
ráðherra Breta, skýrði frá
því rétt eftir heimkomuna
frá Rhódesíu, að Bretar
myndu á næstunni vísa
Rhódesíu-deilunni til
Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna og fara fram á að
það tilnefndi fulltrúa til
viðræðna um hvernig fara
ætti að því að halda uppi
lögum og reglu í landinu
og semja vopnahlé þannig
að hægt yrði að koma á
meirihlutastjórn og viður-
kenna sjálfstæði landsins.
Ian Smith, forsætisráðherra
Rhódesíu, vísaði á bug ýmsum
helztu tillögum stjórnar Bret-
lands og Bandaríkjanna til lausn-
ar deilunni, en sagði þó, að hann
hefði ekki hafnað drögunum í
heild, heldur hygðist hann fara
ofan í saumana á tillögunum á
næstu vikum.
I tillögunum er ráð fyrir því
Framhald á bls. 20. ~
Nixon segist
trúa ungfrú
Woods
New York 2. september AP.
BREZKI sjónvarpsmaðurinn
David Frost sagði I dag, að Nix-
on fyrrum Bandaríkjaforseti
segði f sfðasta viðtalsþættinum
við sig, sem sýndur verður á
sunnudag, að hann tryði fram-
burði Rosmary Woods. einka-
Mynd þessi var tekin á Klna-múrnum f gær er Tftó Júgóslavfuforseti skoðaði þetta
sögufræga mannvirki ásamt hinum kínversku gestgjöfum sfnum. (AP-simamynd).
Styrjöldin í Eþíópíu:
Arabar senda sovézk vopn til Erítreu
gegn vaxandi áhrifum Sovétrfkj-I
anna á Afríkuhorninu, en að
undanförnu hafa Sovétmenn séð
Eþíópiuher fyrir vopnum i bar-
dögum um Ogadeneyðimörkina
og Erítreu.
Hin opinbera fréttastofa i
Addis Abeba skýrði frá því i gær
Utanríkisráðherrafundur Norðurlandanna:
Stuðningur við tillögur
Breta og Bandaríkjamanna
tíl lausnar Rhódesíudeilunni
um efnahagslegum prýstingi í þvi
skyni að knýja stjórnina þar til að
láta af kúgun meirihluta íbúanna
i landinu, og kom fram i ályktun-
Framhald á bls. 20.,
Helsinki, 2. september
— einkaskeyti AP til Mbl.
UTANRtKISRAÐHERRAR
Norðurlandanna fögnuðu í dag
áætlun Breta og Bandarikja-
manna til lausnar Rhódesíu-
deilunni og tilkynntu, að Norður-
löndin væru reiðubúin til að lýsa
yfir fullum stuðningi við hana á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Þá samþykktu ráðherrarnir að
frumkvæði Knud Frydenlunds,
utanríkisráðherra Noregs, að
stofna sérstaka nefnd til að leita
leiða til að beita S-Afríku aukn-
að frá upphafi átakanna um
Ogaden fyrir sex vikum hafi Eþíó-
píuher skotið niður 23 af 50 Mig-
orrustuþotum Sómaliuhers, og
hafa heimildarmenn, sem yfir-
leitt hafa reynzt marktækir, látið
í ljós þá skoðun að ekki geti ske'ik-
að nema örfáum þotum að þessi
tala sé rétt.
Það hefur vakið athygli að stór-
sókn Sómalíuhers, sem hófst í
fyrradag, hafi byrjað i sama
mund og Siad Berre Sómaliufor-
seti sneri heim úr erindis-
leysunni á fundi Sovétleiðtoga i
Moskvu. Sómalir hafa jafnan vís-
að á bug ásökunum um að þeir
tækju beinan þátt í átökunum um
Ogaden, en hafa hinsvegar viður-
kennt stuðning við Frelsishreyf-
ingu Vestur-Sómaliu.
ritara sins, um að hún hefði af
slysni þurrkað úr 18'A mfnútu
af einni Watergatesegulbands-
spólunni.
Frost vildi ekki segja meira
um hvað þátturinn fjallaði, þar
sem hann hefði lofað forsetan
um að ekkert læki út fyrir sýn
ingu hans.
Framhald á bls. 20.
Stjórnarkreppa yfir-
vofandi á Spáni?
Nairobi, 2. september — Reuter
STÖRFELLD vopnaviðskipti
standa nú yfir milli Sómalíuhers
og stjórnarhersins f Eþfópfu f
lofti og á landi í norðurjaðri
Ogaden-eyðimerkurinnar. Haft er
eftir áreiðanlegum heimildum I
Addis Abeba, að orrustan hafi
byrjað á miðvikudag er lið frá
Sómalfu hafi gert atlögu að einu
sfðasta vfgi Eþfópfuhers á þessum
slóðum. Eþfópíuher berst nú á
mörgum vígstöðvum, og f fyrra-
dag herma fregnir að þriggja
vikna umsátri um bæinn Aogrdat
f Erftreu hafi lokið með þvf að
aðskilnaðarsinnar hafi náð þessu
mikilvæga vfgi stjórnarhersins
á sitt vald.
Frá Beirút berast þær fregnir
að Palestínuarabar hafi með full-
tingi Sýrlendinga sent tvo skips-
farma af sovézkum vopnum til
aðskilnaðarsinna f Erftreu, og sé
þar um að ræða vopn, sem friðar-
gæzlusveitir Arababandalagsins
hafi gert upptæk við lok styrj-
aldarinnar f Lfbanon. Stjórn-
málafréttaritarar telja þessa
vopnaflutninga vera staðfestingu
á þvf að Arabarfkin vilji standa
Barizt um Ogaden
ísraelsmenn yf-
ir landamærin?
Beirút, 2. september
— Reuter
ISRAELSKIR hermenn réðust í
gær yfir landamæri Suður-
Líbanons og tóku herfangi að
minnsta kosti 16 manns úr tveim-
ur þorpum, að þvf er óstaðfestar
fregnir hermdu seint f gærkvöldi.
Heimildarmenn, sem venjulega
hafa reynzt áreiðanlegir, segja að
árásin hafi byrjað með stórskota-
liðsárás á þorpin, sem eru rétt við
landamærin, en sfðan hafi um 500
fsraelskir hermenn haldið yfir
landamærin.
Samkvæmt fregn þessari voru
gíslarnir 16 teknir til yfirheyrslu
í bækistöð Israelsmanna skammt
frá landamærunum, en 12 þeirra
voru siðan látnir lausir.
Undanfarna mánuði hafa annað
veifið borizt fregnir af árásum
Israelsmanna yfir landamærin,
en af hálfu þeirra hefur slíkum
ásökunum verið vísað á bug jafn-
harðan.
Madrid 2. september
— Reuter
ADOLFO Suarez, forsætis-
ráðherra Spánar, sneri í
dag heim úr ferðalagi sfnu
til höfuðborga EBE-
ríkjanna degi fyrr en ætlað
var vegna vaxandi misklíð-
ar innan Sambands mið-
demókrata og útlits fyrir
að stjórnarkreppa kunni
að vera yfirvofandi. For-
seti neðri deildar þingsins
Fernandi Alvarez de
Miranda, lýsti því fyrir við
fréttamenn í dag, að nauð-
I synlegt væri að samsteypu-
j stjórn tæki við stjórn
landsins.
De Miranda er leiðtogi kristi-
legra demókrata innan Sambands
miðdemókrata sem mynduðu
stjórn eftir kosningarnar í júní.
Hann lét svo um mælt, að hryggi-
legt væri ef tækifærið til að koma
á lýðræði á landinu glataðist
vegna þess að ekki væri hægt að
mynda samsteypustjórn.
Þau ágreiningsatriði, sem nú
ber hæst innan sambandsins,
snerta fyrst og fremst sjálfstjórn-
armál Baska og Katalóniumanna
en einnig efnahagsmál. Þá sækja
sósíalistar,- næst stærsti flokkur
landsins, hart að stjórninni,
vegna átaka sem urðu í siðustu
v.iku milli lögreglu og mótmæl-
enda, þar sem einn þingmanna
flokksins átti hlut að máli.
Þegar opinber talsmaður Sam-
bands miðdemókrata var inntur
eftir þvi i dag hvort um deilur
væri að ræða innan sambandsins
og hvort stjórnarkreppa væri í
aðsigi, vildi hann ekki neita að
ágreiningur væri fyrir hendi, en
sagði að hann væri ekki svo djúp-
stæður að stjórnin væri i hættu.
Blöðin E1 Pais og Diario 16, sem
bæði eru frjálslynd, skýrðu frá
þvf að ágreiningurinn innan
stjórnarinnar væri alvarlegur, og
Diario 16 sló þvi föstu i fyrirsögn
yfir þvera forsiðu, að hér væri um
að ræða alvarlegustu erfiðleika,
sem stjórn Suarezar hefði staðið
andspænis fram til þessa.