Morgunblaðið - 03.09.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
Að skýla sér
bak við verka-
fólk
Björgvin Sigurðsson.
formaðar Verkalýðs- og
sjómannafélagsins
Bjarma á Stokkseyri,
sendir Morgunblaðinu
tóninn i blaðagrein í gær
og telur, að skrif blaðsins
um atvinnumál á Eyrar-
bakka, Stokkseyri og Þor-
lákshöfn sýni kaldar
kveðjur í garð verkafólks í
fiskvinnslustöðvum i
þessum byggðarlögum og
segir siðan: „I þessum
leiðara Morgunblaðsins er
þvi slegið föstu, að upp-
sagnir verkafólksins I
þessum þorpum og lokun
frystihúsanna sé sök fisk-
vinnslufólksins."
Hér staðhæfir Björgvin
Sigurðsson, verkalýðsfor-
ingi, að Morgunblaðið
hafi sagt lokun frystihúsa
á þessum slóðum „sök
fiskvinnslufólksins". Ekk-
ert er fjær sanni og þessi
verkalýðsforingi getur
hvergi fundið þessum orð-
um sínum stað i skrifum
Morgunblaðsins. Hins
vegar er þessi fölsun hans
á ummælum blaðsins
dæmigerð fyrir það kjark-
leysi, sem einkennir af-
stöðu of margra verka-
lýðsforingja, þegar vanda
ber að höndum og lýsti
sér glögglega í ályktun
verkalýðsfélaganna í Ár-
nessýslu, sem gerð hefur
verið að umtalsefni hér í
blaðinu. Hér er verkalýðs-
foringinn nefnilega að
reyna að skýla sér á bak
við verkafólk. En hinir al-
mennu félagsmenn verka-
lýðsfélaganna eru eitt og
foringjar þeirra annað.
Staða verka-
lýðsforingja
Viða i hinum vestræna
heimi, þar sem frjáls
verkalýðsfélög eru starf-
andi, hafa menn staldrað
við stöðu forystumanna
verkalýðsfélaga og þess
skrifstofuveldis, sem
byggt hefur verið upp i
kringum þá. í dag eru
verkalýðsfélögin með öll-
um þeim digru sjóðum,
sem þau hafa yfir að ráða
og safnað er saman i sam-
ræmi við kjarasamninga,
lifeyrissjóðum, sjúkrasjóð-
um, félagasjóðum og öðr-
um sjóðum, orðin veru-
legt fjármálaveldi jafn-
framt þvi sem pólitisk
áhrif þeirra eru geysileg
vegna þess lykilhlutverks,
sem þau gegna við
ákvarðanir um kaup og
kjör. Það er gjarnan svo,
að sömu menn gegna for-
ystuhlutverki i verkalýðs-
félögum kannski áratug-
um saman eins og titt er
hér á landi og það þýðir,
að geysileg pólitlsk og
peningaleg völd færast i
þeirra hendur.
Þessum forystumönn-
um verkalýðsfélaga tekst
misjafnlega að halda nán-
um tengslum við hina al-
mennu félagsmenn og fé-
lagsstarfsemi er mismun-
andi mikil i hinum ein-
stöku verkalýðsfélögum.
Sem dæmi um þetta má
nefna, að Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur,
sem er stærsta launþega-
félag á landinu, hefur
mjög öfluga félagsstarf-
semi, upplýsingastarfsemi
og fræðslustarfsemi.
Mjög stór hópur félags-
manna þess eru virkir
þátttakendur i starfi
Verzlunarmannafélagsins.
Forystusveit þess er einn-
ig mjög breið. Svo eru
önnur verkalýðsfélög, þar
sem félagsstarf semin er
mun minni og má nefna
sem dæmi i þvi sambandi
Verkamannafélagið Dags-
brún, sem i eina tfð var
öflugasta verkalýðsfélag
landsins og gegnir enn
þann dag i dag lykilhlut-
verki i kjarasamningum.
En þar hefur félagsstarf
smátt og smátt koðnað
niður, þannig að draga má
i efa, hversu sterk tengsl-
in eru milli forystu þess
félags og hinna almennu
félagsmanna.
Þegar allt þetta er haft i
huga er væntanlega Ijóst,
að verkalýðsforingi gegnir
mjög mikilvægu hlutverki
í okkar þjóðfélagi. Þau
völd, sem safnað hefur
verið saman í hendur ör-
fárra forystumanna verka-
lýðsfélaga bæði á hinu
pólitíska sviði og í fjár-
málum, eru gifurleg. Og
það er fyrir löngu orðið
tímabært að gerðar séu
kröfur til þeirra manna,
sem þessum störfum
gegna i samræmi við það
og þá ábyrgð, sem á þeim
hvilir.
Það eru viðhorf af
þessu tagi, sem liggja að
baki gagnrýni Morgun-
blaðsins á forystumenn
verkalýðsfélaganna í Ár-
nessýslu, þegar þeir
sendu frá sér yfirlýsingu
um, að stöðvun frystihúsa
i þeirra umdæmi væri rik-
isstjóminni að kenna. Það
er fáránlegt að ætla að
slíkir menn geti skýlt sér
á bak við félagsmenn i
verkalýðsfélögum þeirra
Þvert á móti er ástæða til
að hvetja félagsmenn i
verkalýðsfélögunum til
þess að gera meiri kröfur
á hendur forystumönnum
sinum en tiðkazt hefur til
þessa dags. Ein er sú
krafa, sem launþegar og
raunar þjóðin öll hlýtur að
gera til forystumanna
verkalýðssamtaka, hún er
sú, að þeir i kröfugerð
sinni hafi yfirsýn yfir alla
þætti þjóðfélagsins og
miði kröfugerð um kaup
og kjör við slika yf irsýn en
einblini ekki á einn þátt
kjaranna, sem er krónu-
tala launanna. Þegar svo
er komið, að frystihús
stöðvast, þrátt fyrir að
mikill fiskafli berst á land
og þrátt fyrir það, að verð-
iag á erlendum mörkuðum
er mjög hátt, hljóta starfs-
menn frystihúsanna ekki
sízt að beina spjótum sin-
um að forystumönnum
viðkomandi verkalýðsfé-
laga og spyrja þá, hvernig
á þessu standi, því að
ábyrgð þeirra á þvi, hvem-
ig komið er, er vissulega
ekki minni en annarra og
meiri en flestra.
Jilesiöur
á morgun
GUÐSPJALL DAGSINS:
Lúkas 10: Miskunnsami
Samverjinn.
LITUR DAGSINS:
Grænn. Táknar vöxt.
Einkum vöxt hins and-
lega lífs.
DOMKIRKJAN Messa kl. 11
árd. Séra Þórir Stephensen.
NESKIRKJA Guðsþjónusta kl.
11 árd. Séra Frank M. Halldórs-
son.
DÓMKIRKJA KRISTS
KONUNGS, Landakoti.
Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa
kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2
síód. Alla virka daga er lág-
messa kl. 6 síðd., nema á
laugardögum þá kl. 2 síðd.
HATEIGSKIRKJA Messakl. 11
árd. Inga Rós Ingólfsdóttir
leikur á celló. Organisti Hörður
Áskelsson. Séra Arngrímur
Jónsson.
Arbæjarprestakall.
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju
kl. 11 árdegis. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
HALLGRtMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Ingunn Gísladóttir
safnaðarsystir boðin velkomin
til starfans í söfnuðinum. Hún
flytur ávarp. Altarisganga.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPtTALINN Messa kl.
10 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
ASPRESTAKALL Messa kl. 2
siðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grimsson.
GRENSASKIRKJA Messa kl.
11 árd. Organisti Jón G.
Þórarinsson. Séra Halldór S.
Gröndal.
LAUGARNESKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Fermingarbörn, sem
eiga að fermast í haust, eru
beðin að koma í messu og tala
við sóknarprestinn að henni
lokinni. Sóknarprestur.
ELLI- OG HJUKRUNAR-
HEIMILIÐ GRUND Guðsþjón-
usta kl. 10 árd. Séra Jón Kr.
Isfeld prédikar.
FÍLADELFlUKIRKJAN Safn-
aðarguðsþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðsþjónusta kl. 8
siðd. Guðmundur Markússon.
BUSTAÐAKIRKJA Guðsþjón-
usta kl. 11 árd. Sr. Ólafur
Skúlason.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra
Arelíus Níelsson.
HJALPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 4
síðd. Hjálpræðissamkoma kl.
8.30 síðd.
KÖPAVOGSKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11 árd. Séra
Þorbergur Kristjánsson.
KAPELLA St. Jósefssystra i
Garðabæ. Hámessa kl. 2 síðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Altaris-
ganga. Séra Sigurður H.
Guðmundsson.
FRlKIRKJAN í Hafnarfirði
Guðsþjónusta kl.2 siðd. Séra
Magnús Guðjónsson.
GRINDAVlKURKIRKJA
Messa kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Almenn guðsþjónusta kl. 2
síðd. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA Guðsþjónusta
kl. 2 síðd. Séra Stefán Lárus-
sop.
HALLGRlMSKIRKJA 1 Saur-
bæ. Guðsþjónusta kl. 2 siðd.
Altarisganga Séra Jón Einars-
son.
AKRANESKIRKJA Messa kl.
10.30 árd. — í dag, laugardag,
syngur háskólakór frá Winni-
peg i kirkjunni kl. 5 siðd. Séra
Björn Jónsson.
VANTAR ÞIG VENNU
VANTAR ÞIG FÓLK
ÞÍ AL'GLÝSIR l’M ALLT
LASD ÞEGAR ÞL AL'G-
LÝSIR í MORGLSBLAÐISL
TILSÖLU
FORD CUSTOM 1974 Ekinn 16.000 mílur.
SÓLNING H.F.
Smiðjuvegi 32—34, Kópavogi,
simar 44880 — 43988.
Farið á norræna lýðháskóla I Danmörku.
DEN NORDISK-EUROPÆSKE FOLKELIGE HÖJSKOLE
UGE FOLKEH0JSKOLE
6360 Tinglev. 6 mán. nóv.—april. Skólaskýrsla send. Norræn
kennsla. Mörg valfög. Kynnist norrænum unglingum I skemmtileg-
um skóla
Myrna & Carl Vilbæk.
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 1 9. sept.
Styrkjandi fyrir konur á öllum
aldri. Tímar í húsi Jóns Þorstéins-
sonar. Kennari Gígja Hermanns-
dóttir. Uppl. og innritun í síma
13022
Gígja Hermannsdóttir