Morgunblaðið - 03.09.1977, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
Skemmtun til
styrktar lömuð-
um og fötluðum
A MORGUN, sunnudaginn 4.
sept., heldur Kvennadeild
Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra kaffisölu í Sigtúni við
Suðurlandsbraut kl. 2—6 e.h.
Þar verður veizlukaffi á
borðum, en skemmtiatriði annast
brúðuleikhús Jóns E. Guðmunds-
sonar og Sigríðar Hannesdóttur,
hljómsveit Hauks Morthens,
Ömar Ragnarsson og Magnús
Ingimarsson. Einnig verður
bingó. Spilaðar verða 6 umferðir,
þar á meðal umferð til sólarlanda
eftir eigin vali. Bingóið hefst kl.
5.
Félagið hefur á undanförnum
árum stutt Æfingastöðina við
Háaleitisbraut og starfsemina í
Reykjadal í ríkum mæli, og segir
það sig sjálft að félagskonur hafa
lagt mikla vinnu til þeirrar fjár-
öflunar. Nú sem endranær treysti
félagið á velunnara þess að leggja
því lið og fjölmenna í Sigtún. —
Til að forðast þrengsli er fólk
hvatt til að mæta tímanlega.
/nnilegar þakkir til allra þeirra er sendu mér
hlýjar kveðjur á 75 ára afmælinu.
Einar Olgeirsson.
Vinningur er
PHIUPS
26" litsjónvarpstæki meö eðlilegum litum
frá heimilistæki sf að verðmæti
kr 352.000
Smáauglýsingamóttaka í síma 86611 alla daga
vikunnar kl. 9 22 nema laugardaga kl. 1012 og
sunnudaga kl. 18-22 (6-10 e.h.)
Einnig er tekið á móti smáauglýsingum á
Auglýsingadeild VISIS Síðumúla 8 og í sýn-
Allir þeir sem birta smáauglýsingu í Vísi, dag
ana 26. ágúst til 11. september 1977, meðan
sýningin Heimilið'77 stendur yfir, verða sjálf
krafa þátttakendur I smáauglýsingahapp
Smáauglýsing i Vísi er engin
ingarbás Vísis á sýningunni Heimilið '77
Smáauglýsingin kostar kr. 1000,-
Ekkert innheimtugjald.
Ath. sérstakur afsláttur, ef auglýsing birtist
oft.
drætti Vísis. Eingöngu verður dregið
númerum greiddra auglýsingareikninga,
Dregið verður 15. sept 1977.
sma
auglýsing.
sími 86611
Allt til heimilisins i smáauglýsingum Vísis
ZEL
Á leið í skólann
Þótt barnið noti skðlabíi eða
strætisvagn þarf að kenna því
Hjálpið barninu að finna umgengni og skýra þær hættur,
öruggustu leiðina í skólann. sem fylgja stórum bílum.
Slysahæstu mánuðir
ársins ganga í garð
UM þessar mundir eru grunnskólarnir að taka til starfa og undan-
farin ár hefur þessi tími eða haustmánuðirnir verið slysahæstu
mánuðir ársins. Mörg börn eru nú í fyrsta skipti að fara frá sínu
heimaumhverfi og þurfa c.t.v. að fara yfir miklar umferðargötur á
Ieið til skóla sfns. Umferðarráð hefur gefið bækling er nefnist A
leið í skólann og er honum dreift til foreldra. t bæklingnum er að
finna ýmis heilræði og ábendingar um hættur í umferðinni, sem
verða e.t.v á leið barnanna í skólann.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík slösuðust alls
130 börn í umferðinni á árinu 1976. Þar af urðu 15 slys í september
og 17 í október. Þá slasast einnig árlega mikill fjöldi barna á
reiðhjólum, alls 24 á árinu, þar af 4 f september og 4 f október. Vill
Umferðarráð m.a. beina þeim tilmælum til foreldra að þeir láti
börn sín ekki fara á reiðhjóli f skólann fyrr en þau hafa náð 10 ára
aldri. Hér fara á eftir nokkur heilræði sem tekin eru úr
bækiingnum A leið í skólann.
TIL FORELDRA
Börn eru að jafnaði f meiri slysahættu en fullorðið fólk.
Þekkingar- og reynsluleysi getur verið ástæðan. Hlutverk okkar er
að kenna þeim almenna varkárni. Við megum ekki gera umferðina
ógnvekjandi í augum þeirra. Mjög er takmarkað hvað auka má
sjálfstraust barns sem vegfaranda, ef þvf hefur aðeins verið kennt
að hræðast hættur í umferðinni. Nauðsynlegt er að kenna einfaldar,
góðar reglur varðandi umferðarmál. Útskýrið hvernig skal hegða
sér. Við höfum e.t.v. einblínt á þær hættur sem börnum eru búnar,
en vanrækt að upplýsa um rétta hegðun þegar hættulegar kringum-
stæður blasa við.
Gætið þess að barnið hafi nægan tíma til að komast í skólann.
Hæfni barna til að stjórna reiðhjóli f umferð er mjög takmörkuð
undir 10 ára aldri. Ef hættulegir eða varasamir staðir eru á leiðinni
þarf að útskýra í hverju hættan er fólgin, og fylgið barninu fyrstu
skóladagana. Börn gleyma fljótt reglum og ráðum. Athugið því
kunnáttu barnsins öðru hverju. Gleymið ekki að gott fordæmi er
mikilvægt.
Til
barn-
anna
\a,
Þar sem engin gangstétt
er: Gangið alltaf á móti
umferð vinstra megin,
eins nálægt vegarbrún
og unnt er.
Gangið alltaf á gang-
stéttinni.
Notið alltaf gangbrautir
þar sem þær eru.
Stansið, bíðið og lítið vel
til beggja hliða áður en
þið gangið yfir akbraut-
ina.
Forðist að ganga út á
akbraut milli kyrrstæðra
bifreiða. Ef þið neyðist til
þess — sýnið þá sér-
staka varúð. Veljið ör-
uggari leiðina þótt hún
sé lengri.