Morgunblaðið - 03.09.1977, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
11
HEIMILIÐ ’77
Helga Þorkelsdóttir.
„Ofninn er sjatf-
hr einsandi’ ’
Rætt við Helgu Þorkelsdóttur hjá
Bræðrunum Ormsson h.f.
— ÞETTA fyrirtæki er gamalt, verður 55 ára á þessu ári, sagði
Helga Þorkelsdóttir hjá fyrirtækinu Bræðurnir Ormsson h.f.
— Við höfum öll hugsanleg heimilistæki til sölu, sjónvörp og
útvörp auk ýmissa handverkfæra þ.e. borvéla o.þ.h. Við erum
einnig með fólkslyftuumboð og umboð fyrir ýmis röntgentæki.
Merkin sem við erum með eru margvfsleg, t.d. AEG, Bosch,
Telefunken o.fl.
— Nýjungar eru alltaf að koma og það nýjasta sem við kynnum
hér á sýningunni er tölvustýrður bökunarofn, eina gerðin sem fæst
hér á landi. Hann er útbúinn með helluborði, það eru engar
eiginlegar hellur, einungis ein plata með hringlaga flötum sem
hitna.
— Þessi ofn hefur 120 „prögrömm", og eitt þeirra er sjálfhreins-
andi þannig að hann brennir óhreinindin og er sjálflæstur á meðan
það gerist, síðan er hægt að sópa öskunni út. Þetta tæki kostar um
730 þúsund krónur. Ofninn hefur einnig sjálfvirka klukku og
timastilli.
— Svo eru hér fjórar nýjar tegundir eldavéla, sú fullkomnasta
með stálborði, klukku sem kveikir og slekkur á sér sjálf upp á
sekúndur og er auk þess með vekjara, viftublæstri og er sjálfhreins-
andi. Þessi gerð nefnist AEG FN-619 og er ekki alveg komin á
markaðinn, en verður til i byrjun október, sagði Helga að lokum.
Forstjóri hjá Bræðrunum Ormsson h.f. er Eiríkur Ormsson, en
framkvæmdastjórinn er Karl Eiríksson.
Bpmcu
„Gamla hurðin
fær nýtt útlit”
Rætt vid Rögnu Hauksdóttur hjá
Brúnás h.f. og Formco s.f.
— ÞAÐ ER Brúnás h.f. á Egilsstöðum sem framleiðir Saturn
klæðninguna en Formeo s.f. er framleiðslu- og söluaðilinn í Reykja-
vík, sagði Ragna Hauksdóttir hjá Formco s.f.
— Saturnklæðningin er plastklæðning, og hún er framleidd á
innihurðir í alla ibúðina, og auk þess á eldhússkápa og skúffur,
einnig á húsgögn og veggklæðningar. Þetta er sérstaklega gert fyrir
skemmdar eða illa farnar hurðir, og fá þær þannig nýtt útlit.
— Við höfum sjö litanúmer m.a. með viðaráferð og antikliti,
formin á hurðirnar eru sex, en hægt er að breyta út af þvi á ýmsa
vegu.
— Þessi klæðning er flutt frá Bandarikjunum, og ein hurð kostar
um 15 þúsund, mynztruð beggja megin og kantlimd allan hringinn.
Afgreiðslufresturinn er um fimm til sjö vikur, þ.e. þessi tími fer í að
gera „filmu“, en svo getur það tekið einn til tvo daga að setja á
hurðina sjálfa, sagði Ragna að lokum.
* -4
■" m
Ragna Hauksdóttir
Mýrdalsjökull 300—400 metra
þykkur, botn jökulsins kannaður
Dagana 19. ágúst til 26. ágúst
stóð Raunvísindastofnun Háskól-
ans að rannsóknarleiðangri á
Mýrdalsjökli. Meginverkefni leið-
angurins var að prófa ný tæki til
mælinga á þykkt jökla, sem smíð-
að hefur verið á stofnuninni.
Verkcfnið hefur verið kostað af
Visindasjóði og með styrk frá
Eggert V. Briem. Félagar úr
björgunarsveitinni Víkverja í
Vík aðstoðuðu við mælingarnar,
segir í fréttatilkynningu frá
Raunvísindastofnuninni.
Hin nýju tæki teyndust vel og
unnið var að könnun á landslagi
undir hájökli Mýrdalsjökuls. Alls
var botn jökulsins mældur á 65
km. Iangri leið, viða á hájöklin-
um.
Allgóð vitneskja fékkst um
landslag undir jöklinum. Há-
jökullinn er víðast 300—400 m.
þykkur og hvílir þvi á frekar
sléttum botni i 900—1000 m. hæð
yfir sjó. Nokkrar hæðir rísa upp
af sléttunni, 50 m. háar. Skörð,
um 100 m. djúp, ganga út úr slétt-
unni niður að Kötlujökli og Entu-
jökli. í gegnum þessa hásléttu
skerst hins vegar 200—300 m.
djúpur dalur í stefnu NA—SV.
Botn þessa dals er i um 700 m.
hæð yfir sjó og yfir botni hans er
um 650 þykkur jökull. Dalurinn
er í stefnu Eldgjárinnar og nokk-
uð nærri þeirri Kötlugjá, sem dr.
Jón Austmann lýsti i lok Kötlu-
goss árið 1823.
Upptök Sólheimajökuls virðast
ná inn í dalinn. Sjá mynd. Sigkatl-
ar þeir, sem mynduðust við hlaup
úr Mýrdalsjökli 1955, lágu um
1—2 km. SA af dalnum. Katla
hefur verið talin liggja undir
þeim stað. Þess skal getið, að gos í
Mýrdalsjökli munu ekki ávallt
koma upp á nákvæmlega sama
stað.
Mikla athygli vöktu sigdældir,
sem sáust á yfirborði jökulsins.
Slikar dældir myndast vegna
bræðslu á jarðhitasvæðinu undir
jöklinum. Þegar sigdæld hefur
myndazt, kann svo að fara að
bræðsluvatn nái ekki að rennafrá
botni, en safnist í vatnsgeymi
undir sigdældinni. Myndun sig-
katla á Mýrdalsjökli er mjög at-
hyglisverð, þvi að ástæða er til
þess að ætla, að vatnsgeymar
myndist undir jöklinum fyrir
Kötlugos. Kötluhlaup nær mjög
fljótt hámarksrennsli. A örfáum
klukkustundum nær vatnsrennsli
100—200 þús. rúmmetra, að því
talið er. Fldgos getur ekki brætt
ís með þeim hraða. Því verður að
telja, að við Kötlugos opnist fyrir
vatnsgeymi. Óvist er hins vegar,
hve löngu fyrir gos vatn safnast í
Kötlukvos, hvort vatn safnast fyr-
ir allan timann milli gosa eða
nokkru fyrir gos vegna þess að
jarðhiti vex í eldstöðinni.
Mælingarnar á Mýrdalsjökli
voru liður i víðtækum Kötlurann-
sóknum Raunvísindastofnunar
Háskólans. Stofnunin hefur sett
upp jarðskjálftamæla umhverfis
Mýrdalsjökul, fylgzt með breyt-
ingum á efnasamsetningu jökuls-
vatns frá Mýrdalsjökli, Sigurður
Þórarinsson hefur stóraukið vitn-
eskju um sögu Kötlugosa með
öskulagarannsóknum. Leiðangur-
inn á Mýrdalsjökul var fyrsta
átak við könnun ábotni jökulsins.
Stefna þarf að þyi að ljúka þeim
mælingum fyrir næsta Kötlugos.
Ennfremur þarf að fylgjast vel
með breytingum á yfirborði jök-
ulsins, einkum myndun sigkatla,
fram að næsta gosi. Vonandi tekst
með ofangreindum rannsóknum
að vara við gosi í tima. An rann-
sókna tekst það ekki.
Mælingar á þykkt jökla á Is-
landi eru skammt á veg komnar.
Fjölmörg verkefni biða hins nýja
tækis. Jöklar þekja um tíunda
hluta landsins. Könnun á lands-
lagi undir jöklum er mikilvægur
þáttur i jarðfræðirannsóknum á
Islandi. Kanna þarf eldstöðvar og
jökullón, hvar ár renna undir
jökli, hvar þær koma fram undan
jökli, hvort jöklar gangi fram eða
hopi. Slikar rannsóknir eru mikil-
vægar þeim stofnunum, sem
virkja og brúa jökulár.
Vísindasjóður og Eggert V.
Briem hafa staðið undir kostnaði
við þröun og smiði mælitækjanna.
Nú þegar verk þetta er komið á
framkvæmdastig, er framhald
þess komið undir fjárveitingum,
sem það fær. Reynir þá á fjárveit-
ingavald, en búast má við að þær
stofnanir, sem vinna að vegagerð
og virkjun jökulvatna, hafi áhuga
á kortagerð af botni jöklanna.
Baðskápar
í geysimiklu úrvali
Á sýningunni
HEinilJD 77$
deild 10,
kynnum við og sýnum framleiðslu okkar:
Eldhúsinnréttingar, klæðaskápa, baðskápa og. sólbekki.
KOMIÐ OG SKOÐIÐ - SJON ER SÖGU RIKARI
Sýningartilboð — Greiðslukjör
10%við staðfestingu pantana -15% við afhendingu
Afgangur á 4 fyrstu mánuðum ársins 1978.
Gildir til 11. september.
TRÉVAL
AUÐBREKKU 55 KÓPAVOGI, SIMI 40800