Morgunblaðið - 03.09.1977, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
21
r r
Agúst Georg Olafsson:
Nýjar tegundir
þjóðsagna
Á Islandi er mjög rik flóra þjóö-
sagna. Til eru sagnir af ýmsum
yfirnáttúrulegum verum og öfl-
um. Til dæmis má nefna huldu-
fólk. Hver kannast ekki viö frá-
sagnir af Móra og Skottu? Eöa
tröllum og óvættum?
I hinum mismunandi þjóö-
sagnasöfnum okkar má lesa ótal
frásagnir um þessar verur og
margt annað. Flestar sagnanna i
þjóðsagnasöfnum eru frá siðustu
öld eða frá þvi um aldamót. En
þjóðsögum hefur líka verið safn-
að á þessari öld og gefnar út. Enn
er til fólk, sem kann kynstrin öll
af sögnum.
Megin hluti sagnanna, sem
safnað hefur verið á þessari öld,
er i stil við gömlu þjóðsagnasöfn-
in okkar, t.d. Þjóðsögur Jóns
Árnasonar. Þetta eru sögur og
sagnir, sem fyrst og fremst eru
sprottnar upp í gamla bændaþjóð-
félaginu.
Enn þann dag i dag er talað um
huldufólk og reimleika. Einkum
mun það vera úti á landsbyggð-
inni, þótt undantekningar séu
auðvitað til. Frásagnir hafa komið
um það í blöðin, fyrir ekki svo
ýkja löngu, að framkvæmdum við
vegi eð byggingar hafi verið frest-
að vegna afskipta huldufólks, t.d
hafa tæki bilað, svo eitthvað sé
nefnt.
Þetta, sem talað var um hér á
undan er ákveðinn hópur frá-
sagna. Má segja, að þær séu hinar
hefðbundnu þjóðsögur okkar.
Erlendis hafa auðvitað verið til
hliðstæðar sagnir, þótt það sé
kallað öðrum nöfnum þar. Á ég þá
við sagnir, sem runnar eru upp á
þeim tíma, er landbúnaður var
ráðandi atvinnuvegur.
Á siðustu árum hafa þjóðsagna-
fræðingar erlendis farið að gefa
gaum nýrri tegund sagna. Flestar
þessara sagna eru sprottnar upp
úr lffi borganna. Innihaldið er
meira og minna hryliingskennt. í
þeim speglast oft á tíðifm tor-
tryggni. öryggisleysi og ógnun,
sem fólk býr við. Þó eru margar
þessara sagna gamansögur eða
eins konar skrýtlur.
Sagnirnar greina oft frá bílum
og vegum, fljúgandi diskum,
hættulegum mat, líkum, morð-
ingjum og illum dauðdaga.
Söguhetjurnar eru ekki lengur
prinsar á hvitum hestum. Eða
karlsynir, sem kljást við tröll og
óvættir og hljóta að launum prins-
essuna og hálft kóngsríkið.
Sögur um, að menn finni rottu-
klær eða tennur i mat, eru sagðar
um stóran hluta heims. í Evrópu
eru það pizzastaðir og kínversk
veitingahús, sem verða fyrir barð-
inu á slíkum sögum. í Bandaríkj-
unum eru það mexikanskir mat-
sölustaðir og i Jap'an hamborgara-
staðir. Mikill fjöldi alls kyns
sagna er á sveimi vfða erlendis.
Sagnir nútimans verða til innan
um steinsteypu og bíla, en mynd-
ast lfka allsstaðar þar sem fólk er,
i borg og í sveit. Þær eru mótaðar
Spurningarnar hér á eftir varða svið þar sem búast má við
að mikið sé um alls kyns orðróm og sögusagnir. Sumt af
þessu er fremur fráhrindandi. Reyndu, þrátt fyrir það, að
svara eins vel og trúlega og þú getur. Það væri gott, ef þú
gætir gefið upp hvar og hvenær atburðurinn gerðist.
Gleymdu ekki að segja hver sagði þér söguna ! fyrsta skipti.
Ath.: Segðu líka hvað þér finnst sjálfum um innihaldið.
1. Hefur þú heyrt sagt frá einhverju óvenjulegu, sem gerðist á
ferSalagi erlendis. t.d á Spáni?
2. Hefur þú heyrt talaS um skorkvikindi eSa smádýr, sem hafa skriSiS
inn I manneskjur? — HefurSu heyrt eitthvaS um dýr I skólpræsum eSa
loftræsikerfum? — Um stórar rottur. sem ráSast á fólk? — Um
óvenjuleg dýr t IbúSum?
3. HefurSu heyrt einhverjar sagnir frá slSasta strfSi, þegar Island var
hemumiS? — ESa frá seinni tfmum, eftir aS herinn settist aS á
Keflavlkurflugvelli? — Um skipti hersins viS yfirnáttúruleg öfl? Um
prest. sem geymdi þýzk senditæki i kirkjuturninum? — ASrar sagnir frá
strfSstfmum, t.d. um óvenjulegt hráefni f sápugerS f Þýzkalandi?
4. HvaS hefur þú heyrt sagt um innflytjendur eSa fólk, sem hefur af
ýmsum ástæSum flutt hingaS og búiS hér. t.d. hermenn? — HefurSu
heyrt einhverja sagnir um sambýli f fjölbýlishúsum?
5. HefurSu heyrt einhverjar sagnir um mat á veitingahúsum, hérlendis
eSa erlendis? — Um verksmiSjuframleiddan mat (dósamat, pylsur og
þ.h)?
Sendið svörin til Ágústar Ólafs Georgssonar, Stofnun Árna Magnússonar,
Árnagarði, Suðurgötu, Reykjavik
af umhverfinu, sem hefur tekið
gúfurlegum stakkaskiptum á síð-
ustu áratugum, eða allt frá þvi að
stórfelld .iðnvæðing og borgarlíf
hófst.
Hvernig er með Island? Ætli til
séu sagnir hér, sem minna á þær
erlendu á einn eða annan hátt?
Hvað með tortryggni gegn tilbún-
um mat t.d.? Getur verið, að orð-
rómur hafi myndazt um, að hund-
ar og kettir væru notaðir í kjöt-
farsið? Eða að pylsurnar væru
drýgðar með álíka góðgæti? Hafa
þjóðsagnir islendinga haldizt
óbreyttar þrátt fyrir stórfelldar
breytingar á atvinnuháttum? Eða
hafa breytingar átt sér stað eins
og erlendis?
Þessi grein er skrifuð með það
fyrir augum að vekja athygli á
nýrri tegund þjóðsagna. Mark-
miðið er að reyna að safna inn
einhverju af þessu tagi.
Með fylgja nokkrar spurningar.
Vonandi sérð þú þér fært, lesandi
góður, að svara einhverri þessara
spurninga.
Framhald á bls. 29
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS:
Yfirgengi Kaupgengi miðað við pr. kr. 100.- innlausnarverð Seðlab.
1966 2 flokkur 1808 03 20.7%
1967 1. flokkur 1698.14 40 9%
1967 2. flokkur 1687,32 30.3%
1968 1. flokkur 1474.33 20 2%
1968 2. flokkur 1386 95 19.5%
1969 1 flokkur 1035.75 19.5%
1970 1. flokkur 952 32 40.2%
1970 2. flokkur 699.62 19.4%
1971 1 flokkur 661 08 38,9%
1972 1. flokkur 576 34 19.4%
1972 2 flokkur 495.02
1973 1. flokkur A 384 63
1973 2. flokkur 355 55
1974 1. flokkur 246 93
1975 1. flokkur 201 89
1975 2. flokkur 154 07
1976 1. flokkur 146.39
1976 2. flokkur 1 18.86
1977 1 flokkur 1 10.40
VEÐSKULDABREF:
Kaupgengi
pr. kr. 100.-
1. árs fasteignatryggð veðskuldabréf með 12—20% vöxtum
75.00—80 00 (ca.)
2ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með 12—20% vöxtum.
64 00—70.00(ca.)
3ja ára fasteignatryggð 63.00—64.00 (ca.) veðskuldabréf með 10% vöxtum
4ra ára fasteignatryggð 58.00—59 00 (ca.) veðskuldabréf með 20% vöxtum
5 ára fasteignatryggð 54.00— 55.00 (ca.) veðskuldabréf með 20% vöxtum
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RIKISSJÓÐS:
1973—B
1973— C
1974— 0
1975— G
1976— H
HLUTABRÉF:
íslenskur Markaður hf.
Sölugengi
pr. kr. 100,-
376.72 (1 0% afföll)
328.28 (10% afföll)
284 88(10% afföll)
140.41 (10% afföll)
135.97 (1 0% afföll)
Kauptilboð óskast
PfARPCmnCORFéUKi ÍftflDDf HA
VERÐBREFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 - R (Iðnaðarbankahúsinu)
Simi20580.
OpiSfrá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.
Grænmetis
kynning
Blómkál Salad Gulrófur
Hvítkál Paprika Rabbabari
Tómatar Steinselja Grænkál
Agúrkur Gulrætur Sveppir
Graslaukur
Púrrur
Sellerí
Já, nú kynnum við
GRÆNMETI
meðferð þess og hollustu
í Blómaval.
Þórunn Jónatansdóttir
húsmæðrakennari
kynnir:
Geymslu grænmetis, græn-
metisrétti. grænmetissalat,
uppskriftir og það sem máli
skiptir um meðferð og neyslu
grænmetis kl 2 — 3 og
5—6 í dag.
rATHUGIÐ
Við erum aðeins í 300 metra
fjarlæqð frá sýningunni
HEIHILID77
í Laugardal.
Verið velkomin í
Blómaval í dag.
r<‘*ario