Alþýðublaðið - 31.12.1930, Page 3

Alþýðublaðið - 31.12.1930, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 ................. ........................... EiniiiitiiiiiuiiDiHiiniiiiiiiiiíniiiniiiiiititiiiininniiiiiiiiinii I 11 Gleðilegt nýár! Tóbaksverzlun íslands h. f. L pS!i5iiSiiSiiSiSi§S«!S!!niimimiimimiimi I í Beztu egipzku cigaretturnar í 20 stk. pökk- um, sem kosta kr. 1,25 pakkinn, eru Sons^a Glgarettnr frá Nieolas Soussa fréres, €ala*0. Einkasaiar á fslasidh TóbasverzEnaB Íslasids h* f. bókaútgáfufélag. En gamla sam- bandiö — samband ungu komm- únistanma — telur 600 — sex hundruð — félaga í 4 félögum. Þessir ógæfusömu menn eiga ekkert blaÖ, nema verklýðsblaö fiokksins síns, sem engin áhrif hefir, kemur út einu sinni í viku og er dáMtið stærra en Verklýðs- blaðið íslenzka. — Kommúnista- fiokkurinn danski hefir klofnað að meðaltali einu sinni á ári pessi 10 ár. Og í sumar er leið gengu 17 af forvigismönnum flokksins úr honum og inn í jafnaðar- ma'nnaflokkinn. Aðalforingi þessa dainska Spartverjaflökks er alt af á þönum milli, Moskvu og Kaup- mannahafnar. Alt af þegar hann er kominn heim til Hafnax er hann kallaður aftur til Moskvu til að gefa skýrslu um deiluna innan flokksins. Moskva á svo að dæma. Því að í kommúnistaflokk ríldír strangur agi(!). Danskir kommúnistar hafa aldr- ei átt fulitrúa á þingi eða í hæj- arstjómum. Að visu hafa þeir boðið fram lista við þingkosn-- ingar. 10 000 meömæJendux þarl •tíJ að listi sé tekinn gildux. — Þessi 10 000 hafa kommímistarnir fengið — sem meömælendur frá íhaldinu — en ekki við kjörboxð- ið. Hæsta atkvæðatala þeixra var áxið 1922 — 6000. Árið 1918 gekk norski verka- mannaflokkurinn inn í Al- þjóðasamband kommúnista. En hann klofnaði við það. Styrkleika flokkanna er handhægast að miða við þingmannafjölda þeirra. Eft- ir kolfninguna höfðu sodaldemo- kratar 8, en verkamannaflokkur- inn 24. 1924 klofnaði verkamanna- flökkurinn. Moskva dæmdi. Kom- múnistaflokkurinn var stofnaðar og tveir af fremstu foringjum i norskra verkamanna komust í stjóm hans. Má þar nefna Sverri Stöstád og Sverre Krogh. Verka- mannaflokkuiinn og social-demo- kratar sameinuðust i einn flokk: ,JDet samlede norske Arbejder- parti,‘< Þessi sameiinaði flokkur taldi þá 26 þingmenn. Kommún- istar höfðu 6. Við kosningarnar 1927 fékk sameinabi flokkurinn 59 þingmenn, en kommúnistar 3 •— Scheflo, Löhre og S. B. Aass. Stöstad og Sverre Krogh gengu úr kommúnistaflokknum. — Þeg- ar kommúnistaflokkurinn ákvað, að fulltrúar hans skyldu gxeiða atkvæði með íhaldinu gegn því að Trotski, sem var og er land- flötta, yrði leyfð landsvist í Nor- egi, en hann hafði beðið um það, þá þoldu þeir Scheflo og Aase ekki „agann" og greiddu atkvæði með Trotski gegn íhaldinu. Kom- múnLstaflokkurinn rak þessa tvo foxingja sína. — Við síðustu kosningar fengu kommúnistar engan þingmann. Mörg blöð þeirra eru hætt að koma út og þeir hafa tapað næstum ölltím bæjarstjómarsætum sínum í norskum bæjum, að „Litia-hel- víti" (Odda) tmdanskyldu. En þar er og verkalýöurinn bókstaflega brendur lifandi með eitursýmm (í zink- og blý-verksmiðjum þar). Svo djúpt er þessi norska komm- únistahieyfing sokkin, að alþjóð- arsamband norskra verkamanna hefir neyðst til að lýsa verkbannl yfir eitt blað þeirra, „Arbejdet" á Hamar, því að þar unnu verk- fallsbrjótar. — Og raunasaga þessa flokks er ekki búin enn. Hinir svonefndu „Mot Dagistar" — kommúnistiskir stúdentar — kljúfa þenna flokk á hverju ári. Hjá þeim kemur hið sama fram og hjá brennubræðrum þeirra ís- lenzkum: — ,^portid“. I Sviþjóð eru kommúnistar sterkastir á Norðurlöndum. Þeg- ar Moskva byrjaði að styrkja er- ienda kommúniataflokka, þá fóra allir peningarnir í gegnum hend- ur Svíanna. Þeir ávöxtuðu pen- ingana og fengu vextína. Það var þeárra styrkur. 1925 klofnaði kom- múnistaflokkuxinn þar og Zeth Höglund gekk með stóran hluta flokksins inn í jafnaðarmanna- flokkinn. í fyrra haust klofnaði flokkurinn aftur, og nú era tveir kommúnistaflokkar í Svíþjóð. Annar, sem vildi beygja sig und- ir Moskvu, og binn, sem vildi ekki beygja sig. Nú spyrja Sví- ar: Hver er hver? Hvað er hvað? — Og verkamennirnir fylgja hvorugum. Við bæjarstjórnar- kosningar í Gautaborg síðast í október töpuðu kommúnistar öU- um sinum bæjarfulltrúasætunr. Jafnaðarmenn unnu þau öll og fengu hreinan meirihhrta. Þannig er það á Norðurlönd- utn. En hvernig er það í Þýzka- .landi, háborg kommúniismans j Vestur-Evrópu? Hvar erRuth Fis- cher, hin glæsilega kona, er barð- ist djarfast fyrir verkalýðinn? Hvar era þeir Korz og Úrbanz, foringjarnir frá Hamborg? „Ag- inn“ frá Moskva drepur alt af sér. — Það er siður í þýzka þing- itnu, að. hver flokkux hafi sitt eigið borð á „Kringlu" þeirra Þjóðverjanna. Kommúnistamir hafa 3 borð, — era þríklofnir. — A Englandi. eru kommúnistar gersamlega áhrifalausir. Þeir höfðu einn fulltrúa í þinginu, Sa- klatvala, en við siðustu kosning- ar féll hann við engan orðstý. í stuttri blaðagreisn er ekki hægt áð fara itarlega út í þessa sögu. Og nauðsynlegt er að skýré nokkuð frá þvi, hvort samraúrí* sé í kenningum þessara manná og jafnaðarstefnunnar. Það verð- ur ef til vill gert síðar. En það verður gaman að sjá kommúnistaflokkinn, þegar hann fer að ganga á eigin fótum. Ég er hræddur um að feeturnir sláj hvom annan til blóðs, hendurnar |Iari í krók hvor við aðra, augun horfi aldrei til sömu áttar og eyran rifist um það, hvort hafi heyrt réttar. V. S. V.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.