Morgunblaðið - 09.09.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1977
Stórtap á inn-
anlandsfluginu
— segfr blaðafuUtrúi Flugleuki
— ÞAÐ ER stórtap á innanlands-
fluRÍ Flugleiða og þessi síðasta
hækkun kcmur alltof seint til
þess að hún komi að tilætluðu
gagni, sagði Sveinn Sæmundsson,
Viðskipta-
viðræður
við Pólland
DAGANA 6.—8. september s.l.
fóru fram i Reykjavik viðræður
um viðskipti Islands og Póllands.
Um viðskípti landanna gildir við-
skiphnsa/pningur-,- ^sem næf til
tímabilsjnS 1975 — 1980.
I frétt frá viðskiptaráðuneytinu
segir að i sameiginlegri fundar-
gerð, sem undirrituð var 8.
september s.l. af Þórhalli Asgeirs-
syni ráðuneytisstjóra, formanni
íslensku nefndarinnar, og
Zbigriiéw Kr/.yoztofowies skrif-
Framhald á hls. 2.'!
blaðafulltrúi Flugleiða,
við Mbl. f gær.
samtali
Svéinh sagði að meðan Flugfélg
Islands fékk sjálft að ráða verð-
inu hefði það rétt dugað til að
standa undir rekstrinum en eftir
að flugfargjöld fóru undir verð-
lagsákvæði hafi stöðugt þurft að
sækja ó brattann og innanlands-
flugið sé nú rekið með stórtapi. —
Eg hef ekki handbærar tölur fyrir
þetta ár en f fyrra var tapið á
innanlandsfluginu 100 milljónir
af 850 milljóna króna brúttóveifu,
sagði Sveinn.
Hann gat þess að lokum að flug-
vélarnar, sem notaðar væru i inn-
anlandsfluginu, væru að verulegu
leyti afskrifaðar, þannig hafi ekki
verið afskrifaðar nema 28 millj-
ónir i fyrrá eða aðeins rúmlega
3% af brúttóveltu. — Það er
slæmt að geta ekki safnað i sjóði
til að endurnýja tækin, þess i stað
verður félagið í rauninnl að
greiða með innánlahflsfluginu,
sagði Sveinn.
Sjálfstæðismenn í Kópavogi:
Opna nýtt félags-
heimili á laugardag
Sjálfstæðisfélögin í Köpa-
vogi taka formlega í
notkun nýtt félagsheimili á
laugardaginn kemur.
Félagsheimilið er á 3ju
hæð að Hamrabæ 1 í hjarta
bæjarins. Húsnæði þetta er
Hey til
Færeyja
BÚVORUDEILD Sambandsins selur
á þessu hausti nokkuð af heyi til
Færeyja og er þa3 afgreitt beint frá
Seyðisfirði. f sambandsfréttum kem-
ur fram að fyrr á árinu voru afgreidd
til Færeyja 15 tonn en nú, 10.
september, fara 17 tonn til viðbótar,
auk þess sem búast má við frekari
sölu síðar i haust. í fyrra seldi
Búvörudeildin einnig hey til Færeyja.
samtals um 50 tonn. Verðið, sem
fæst fyrir heyið, er u.þ.b. ein króna
færeysk fyrir hvert kíló komið um
borð i skip. eða um 33 krónur is-
lenzkar.
alls um 316 fermetrar að
stærö Efnt verður til
síðdegisboós í félagsheimil-
inu nýja á laugardag, þar
sem Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flytur ávarp og
Richard Björgvinsson,
formaður fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í
Kópavogi, mun lýsa fram-
kvæmdum.
ö
INNLENT
Keðjulestur
á Biblíunni
MARAÞONLESTURINN á Biblfunni, sem Mbl. skýrói frá 1 gær,
hófst í Safnaðarheimili aðventista í Keflavík á nfunda tímanum í
gærkvöldi. Prestar hófu lesturinn og síðan tóku leikmenn við og
lesa þeir hver af öðrum unz Biblfan hefur öll verið lesin, en
reiknað er með að keðjulesturinn taki um 70 klukkustundir.
Þessar myndir tók Heimir Stígsson við upphaf lestrarins f
gærkvöldi.
Frekar ástæða til að efla
hótelrekstur í miðborginni
en gera Borgina að ráðhúsi
— segir Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri
„ÉG SKIL vel hug Arons
Guðbrandssonar til Hótel
Borgar og hans vilja til að
vegur þess húss sé sem
mestur. En ég tel æskilegt
að sú hefð haldist, að þarna
sé hótel í miðborginni «g
tel reyndar ástæðu til að
efla frekar þá starfsemi
heldur en hitt“, sagði Birg-
ir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri er Mbl. bar
undir hann í gær þá hug-
mynd Arons Guðbrands-
sonar, stjórnarformanns
Hótel Borgar, að Hótel
Borg yrði gerð að ráðhúsi
Reykjavíkurborgar.
Birgir ísleifur Gunnarsson
sagðist vera þeirrar skoðunar að
hótelrekstur i miðborginni væri
nauðsynlegur þáttur til að gæða
hann lífi og sá þáttur mætti sízt
missa sin.
Um ráðhúsmál að öðru leyti
sagði borgarstjóri að ekkert hefði
verið hugsað um byggingu ráð-
húss undanfarin ár. Ymis vandi.
sem ráðhús átti-að leysa, hefur
verið leystur með tilkomu Höfða
og Kjarvalsstaða og sagði borgar-
stjóri að af þeim sökum væri
bygging ráðhuss ekki eins knýj-
andi nauðsyn nú og fyrr hefði
verið.
„En auðvitað vona ég að þeir
tímar komi að Reykjavíkurborg
eignist sitt ráðhús", sagði Birgir
Isleifur Gunnarsson.
Nýtt loðnuverð ákveðið í gær:
LoðnuaHinn kominn
yfir 100.000 tonn
ELLEFU skip höfðu tilkynnt loðnu-
nefnd um afla síðasta sólarhring,
þegar Mbl. leitaði frétta um klukkan
23 í gærkvöldi; samtals 6.120 tonn
og er loðnuaflinn þá kominn yfir
100.000 tonn, sennilegast í um
104.000 tonn.
Vfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins ákvað í gær nýtt loðnuverð, sem er
9 krónur á kílóið miðað við 14%
fituinnihald og 1 5% fitufrítt þurrefni
Samkvæmt upplýsingum loðnunefnd-
ar í gær var fituinnihald loðnunnar
Hefði perrn ekki sprungið værum
við Wdegast ekki að tola saman nú
sagði Hjalti Jósepsson, sem brann
hjá aðfaranótt miðvikudagsins
„ÉG VAKNAÐI upp við hvell
og sennilega hefur það verið
peran í loftinu, sem sprakk,“
sagði Hjalti Jósepsson, bóndi á
Urðarbaki í Vestur-Hópi, er
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, en aðfararnótt miðviku-
dagsins, rétt eftir miðnætti,
kviknaði í íbúðarhúsinu og
hann, kona hans og tvö hörn
björguðust út á síðustu stundu.
„Þegar ég vaknaði var allt al-
elda í kjallaranum, sem var
fyrir neðan okkur, en mér gekk
ágætlega að vekja konuna og
börnin og komumst við klakk-
laust út úr dyrum hússins."
Eins og skýrt var frá í Morg-
unblaðinu í gær var íbúðarhús-
ið á Urðarbaki steinhús, en allir
innviðir þess úr timbri og ein-
angrun var hey. Hjalti sagði að
húsið væri svo til ónýtt og hann
kvað innbúið stórskemmt. Þeg-
ar Morgunblaðfð spurði hann
um tryggingar á húsinu og inn-
búinu, sagðist hann enn ekki
hafa haft tóm til þess að kanna
þau mál. Hann kvaðst ekki
sjálfur hafa gengið frá trygg-
ingum á húsinu i vetur, en
hreppurinn hefði hins vegar
gert það. Innbúið var á hinn
bóginn allt óvátryggt.
„Jú, ég byrjaði að búa á jörð-
inni i vor og auðvitað er þetta
talsvert áfall," sagði Hjalti og
bætti við: „Við búum nú hér i
nágrenninu hjá föður mínum,
en hjá honum áttum við inn-
hlaup með börnin. Ég er nú
ekki farinn að hugsa svo langt
að byggja upp á ný, en eitthvað
verð ég þó að gera.“
Hjalti kvað slökkviliðið hafa
komið merkilega fljótt eða um
hálfri klukkustund eftir að
hann gerði viðvart. Það hafi
bjargað því sem bjargað varð.
Þegar Morgunblaðið spurði
Hjalta að því, hvort hann gæti
hugsað sér, hvað gerzt hefði, ef
peran hefði ekki sprungið, og
svaraði hann þá: „Þá væri ég
líklegast ekki að tala við þig
nú.“
18—19%. en verðið breytist um 57
aura til hækkunar eða lækkunar fyrir
hvert 1% frávik frá 14% Fyrra verð
var 10 20 krónur kílóið miðað við
14% fituinnihald og 1 5% fitufrítt þurr-
efni og hækkaði það um 70 aura eða
lækkaði miðað við hvort tveggja, en
nýja verðið lækkar um 65 aura eða
hækkar fyrir hvert 1 % frávik i þurr
efnismagninu
Nýja verðið gildir til 31 desember
1977 en er uppsegjanlegt frá og með
1 október og síðan með viku fyrirvara
Framangreindar tölur um hækkun
verðsins og lækkun gilda hlutfallslega
fyrir hvert 0.1%. Verðið var ákveðið af
oddamanni, Ólafi Daviðssyni, og full-
trúum seljenda, Ágústi Einarssyni og
Tryggva Helgasyni, gegn atkvæðum
fulltrúa kaupenda, Guðmundar Kr.
Jónssonar og Jóns Reynis Magnús-
sonar
is hrakti loðnuskipin vestur á bóginn
frá miðunum. sem voru í fyrradag, en
Framhald á bls. 23
Jafnt
hjá Jóni
Heimsmeistaramót unglinga i
skák, þ.e. skákmanna 17 ára og
yngri hófst i borginni Cagnes I
Frakklandi í gær. Meðal kepp-
enda er íslandsmeistarinn i skák,
Jón L. Arnason Hann tefldi I 1.
umferð gegn skákmanninum
Soppe frá Argentinu og varð
skákin jafntefli i 52 leikjum.
Margeir Pétursson, aðstoðar-
maður Jóns, tjáði Mbl í gærkvöldi
að Jón hefði lengst af haft betra tafl
en Argentinumanninum tókst að
skipta upp i endatafli með snoturri
fléttu og náði þannig að jafna taflið
Margeir kvað Jón eiga talsverða
möguleika á sigri, hann væri stiga-
hæsti skákmaður mótsins og svo
skemmtilega hefði viljað til að hann
mætti þeim næst stigahæsta i
fyrstu umferðinni, en það er fyrr-
nefndur Soppe
í mótinu taka þátt 32 skákmenn
frá 30 þjóðum. Aðstæður allra eru
ágætar en mikill hiti eða tæp 40
stig á daginn og gerir það skák-
mönnum frá Norðurslóðum erfitt
fyrir. Tefldar verða 1 1 umferðir
eftir Monradkerfi
Bróðir Jóns, Ásgeir Þ Árnason,
teflir á heimsmeistaramóti skák-
manna 20 ára og yngri, sem fram
fer i Innsbruck i Austurriki. Að
fjórum umferðum loknum hafði Ás-
geir hlotið 2 vinninga, unnið tvær
skákir og tapað tveimur.
Loftþrýstingurinn
f ór af f arþegarými
ÞEGAR Flugleióavél var komin í
20 þúsund fet áleióis til tslands
frá Luxemburg á þriðja tímanum
í gær fór þrýstingurinn af far-
þegarýminu. Súrefnisgrimur
féllu nióur og flugmennirnir
lækkuóu snarlega f lugið og snéru
við, en urðu að losa- talsvert af
eldsneyti áður en þeir gátu lent
aftur í Luxemburg.
í ljós kom að ventill hafði bilað
og var fljótgert að laga það, en þá
kom í ljós að við eldsneytislosun-
ina hafði bilað annar ventill, sem
tímafrekara er að gera við og var
búizt við að þeirri viðgerð lyki í
nótt.
Önnur Fluleiðavél fór frá
Luxemburg skömmu síðar og
komust einhverjir farþegar úr
hinni vélinni með henni, en aðrir
voru fluttir á hótel.