Morgunblaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1977 3 Norðurland vestra: Engar ákvarðanir um þátttöku í skoðana- könnuninni MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við þau Guðrúnu Bene- diktsdóttur á Hvammstanga, Boga Sigurbjörnsson i Siglufirði og Stefán (iuðmundsson á Sauðár- króki og spurði þau, hvort þau ætluðu að gefa kost á sér í skoð- anakönnun þá sem fram á að fara á vegum kjördæmisráðs Fram- sóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra. Guðrún, Bogi og Stefán skipuðu þriðja, fjórða og fimmta sætið á lista Framsóknar- flokksins við sfðustu Alþingis- kosningar. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um þettá1', svaraði Guð- rún Benediktsdóttir. Bogi Sigurbjörnsson sagðist al- mennt vera hlynntur skoðana- könnunum eða prófkjörum sem eðlilegustu leiðinni við núgild- andi kosningafyrirkomulág, en það væri að hans mati löngu úrelt og þyrfti að breyta þvi til þess vegar, sem ungir menn í stjórn- málaflokkunum hafa lagt til. Híl- ið að svo stöddu. Fáir atvinnu- lausir í síð- asta mánuði ALLS VAR 231 tslendingur at- vinnulaus um síðustu mánaða- mót, en atvinnuleysisdagar I ágústmánuði voru samtals 2532 i mánuðinum. I júlímánuði voru atvinnuleysisdagar 2756. 1 Reykjavik voru 53 atvinnu- lausir á skrá um mánaðamótin, 38 voru skráðir atvinnulausir á Akranesi síðasta dag mánaðins og á Eyrarbakka 39 manns. Á tveim- ur síðastnefndu stöðunum stafar atvinnuleysið siðasta dag ágúst- mánaðar af lokun eða minnkandi vinnu í frystihúsunum. Atvinnuleysisdagar i ágúst voru 1016 í Reykjavík, 198 á Akranesi, 139 á Akureyri, 108 i Hafnarfirði og 114 á Eyrarbakka, en annars staðar á landinu innan við 100. Fjórir fá inni i húsi Jóns Sig- urðssonar 'STJÖRN húss Jóns Sigurðssonar i Kaupmannahöfn hefur ákveðið að veita fjórum mönnum kost á afnotum á fræðimannsibúð hússins á tímabilinu frá 1. september 1977 til 31. ágúst 1978, en 26 aðilar sóttu um dvöl í íbúðinni. Þeir sem dvelja þar næsta árið eru Björn Þorsteins- son sagnfræðingur sem dvelur þar til 30. növember n.k., Jakob Björnsson, orkumálastjóri dvelur frá 1. desember til 28. febrúar á næsta ár, Ölafur R. Einarsson sagnfræðingur dvelur þar næstu þrjá mánuðina á eftir og Einar Laxness menntaskólakennari dvelur svo i fræðimannsibúðinni til 31. ágúst 1978. (H> PIOIMEER TM Sambyggðu stereo-settin frá PIONEER eru úrvals hljómtæki eins og þau gerast best enda framleiðir PIONEER ekki annað. Bæði tækin KH-3500 og M-6500 eru með plötuspilara, kassettusegul- bandi og útvarpi. Að segja til um mismuninn á þeim teljum við vera 5 þínum höndum þegar þú hefur skoðað þau bæði vandlega. Verðið, getur enginn sem býður sambærileg gæði, keppt við. KH-3500 verð kr. 169.900 - M-6500 verð kr. 199.500.- Við mælum með 3 gerðum af hátölurum sem kosta: M-270 kr 21.900 - stk. CS-313 kr. 22.900 - stk. HPM-40 kr. 46.900 - stk. KARNABÆR LAUGAVEGI 66, 1. HÆÐ Simi fra skiptiborði 281S5 Þetta eru úrvals hljómtæki sem allir geta eignast

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.