Morgunblaðið - 09.09.1977, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 09.09.1977, Qupperneq 32
AUil.YSIMíASIMINN KK: 22480 PlorgimbTflíiiö nri0]iwMaS!>í®i FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1977 Verkfræðingar og borgin:_ Málin þokuðust áleiðis „ÞETTA er allt heldur vænlet>ra. Þaö mjakaöist svona á fundinum i dag eg ég hef hoöaö þá til min aftur á mánudag", sagði Torfi Hjartarson, sáttasemjari, er Mbl. spurði hann um fund hans með fulltrúum Reykjavikurborgar og verkfræðinganna. Mbl. hafði sam- band við talsmenn aðila, en þeir vildu ekkert segja annað en það, að málið væri á ,,mjög viðkvæmu stigi“. Þá mættu bæjarstarfsmenn í Köpavogi og viðsemjendur þeirra hjá sáttasemjara í gær og sagði Torfi Hjartarson, að þar væru menn að skiptast á skoðunum, en aðalmáiin væru ekki komin á dag- skrá að ráði. ISI: Rannsakar væntanlega lyfjamálið ÞESSAR upplýsingar koma mér mjög á óvart og þetta mál verður sjálfsagt rætt og athugað hjá okk ur“, sagði Gisli Halldórsson, for- seti íþróttasambands íslands, þeg- ar Mbl. spurði hann, hver yrðu viðbrögð ábyrgðarmanna íþrótta hreyfingarinnar við þeim upplýs ingum, sem fram komu í grein Ásmundar Brekkan yfirlæknis um afreksíþróttir og lyfjanotkun, sem birtist í Mbl. í gær. Gísli gat þess, að íslenzkir iþrótta- menn hefðu þurft að ganga undir rannsóknir í sambandi við mót. en aldrei hefðu þær leitt í Ijós neyzlu stera-lyfja Kvaðst Gisli nú í lok mánaðarins sitja þing forystumanna íþróttahreyfinga á Norðurlöndum. þar sem misnotkun íþróttamanna á lyfjum og aðgerðir gegn henni yrðu einmitt til umræðu — Þetta lyf er bannað af íþrótta- samtökum hvar sem er í heiminum og við reynum að fylgjast með að þess sé ekki neytt hér á landi, sagði Örn Eiðsson, formaður Frjálsíþrótta- sambandsins, i samtali við Morgun- blaðið í gær — Á stórmótum frjál- íþróttamanna hafa verið gerðar kannanir á því hvort um notkun anabol steroida hafi verið að ræða og eins og aðrir hafa íslenzkir íþróttamenn gengizt undir slík próf Ekkert hefur komið fram við þau, sem bendir til þess að svo sé Elddans Þunnfljótandi helluhraun spýttist af miklum krafti úr gossprung- unni norður af Leirhnúk í gærkvöldi, en þegar líða tók á kvöld minnkaði rennsliö. Myndina tók Friðþjófur af elddansinum í sprungunni og glóandi hraunsprænum frá gígbarminum. Engin síldar- söltuní Eyjum? SÍLDARÚTVEGSNEFND hefur hafið flutning á tómum síldartunnum frá Vestmannaeyjum aftur, en samning- ar um kaup og kjör við sildarsöltun náðust ekki á fundi i gærkvöldi og var annar fundur ekki boðaður. „Mér sýnist allt benda til þess að ekkert verði af sildarsöltun hér i Eyjum að þessu sinni", sagði Stefán Runólfsson i samtoai við Mbl. „Við höfum boðizt til að greiða eftir Hornafjarðarsamningunum sem koma til með að gilda, þar sem saltað verður. Við fáum sama verð fyrir okkar sild og aðrir og getum og höfum þvi ekkert upp á annað að bjóða". Jón Kjartansson, formaður verkalýðsfélagsins, sagði i samtali við Mbl. i gærkvöldi, að sér virtist áhugi viðsemjenda verkafólkssins fyrir síldarsöltun ákaflega lítill. Jón Kjartansson sagði að frá sinum sjónarhóli snérist málið um það, hvort afleggja ætti hringinn ofan á tunnunni eða ekki í Hornafirði væru borgaðar 718 krónur fyrir tunnuna með 19 lögum og án hrings, en í Eyjum væri boðið upp á 759 krónur fyrir tunnuna með þremur lögum i hring, eða 41 krónu fyrir hringlögin Þá sagði hann, að þeir gerðu kröfu um að fólkið, sem vinnur við söltun í kring um ákvæðis- hópinn, fengi nú greitt eftir 4 taxta. sem hefði komið i stað 8 taxta, sem áður var greitt eftir, en í Hornafjarðar- samningunum væri kveðið á um greiðslur eftir 3 taxta, sem samsvaraði 6 og 7 taxta, sem fyrir voru Stefán Runólfsson sagði „hrings- spursmálið ekkert mál", þvi í Hornar- Framhald á bls 18. Skemmdir á vegum, vatns- leiðslum og þróm Kísiliðiu Um skeið talað um brottftutning fólks BROTTFLUTNINGUR fólks af Reykjahlíðarsvæðinu var undirbúinn í skyndingu um hálftólfleytið I gær- kvöldi þegar almannavarnanefnd Mývatnssveitar bárust þær fregnir, að lítið eldgos væri hafið í Krumma skarði í Bjarnarflagi. Neyðarhring- ingu var hringt á öllum bæjum í Mývatnssveit en innan skamms kom I Ijós að fregnir um eldgosið voru ekki á rökum reistar og var þá hætt Tvær sprengingar og síðan steig eldsúlan Rætt við Gunnar Johnsen sem var við mælingar í Hlíðarf jalli. Mývatnssveit í gærkvöldf frá blaðamanm Mb' Ágústi Jónssyni GUNNAR Johnsen, eðlisverk- fræðingur, var við þyngdar mælingar vestan til í Kröfluöskj- unni einmitt þegar eldgosið norð- ur af Leirhnúki hófst. „Ég var búinn að heyra af og til drunur I fjarlægð, en varð ekki skjálfta var fyrr en skyndileqa fór að bera á stöðugum titringi á mælitæki mínu, þannig að vísirinn tifaði án afláts," sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið. „Ég var þá staddur norðaustur af Hliðar- fjalli. Litlu síðar fór ég að finna skjálftana sjálfur og heyrði siðan sprengingu með óheyrilegum hávaða og skömmu siðar heyrði Framhald á bls 18. við skyndiflutninginn. Var áformað að flytja fólk i Skútustaði, til Akur- eyrar og Húsavíkur. Ljóst er að all- miklar skemmdir hafa orðið af um- brotum í Bjamarflagi, sem mögnuð- ust svo mjög þegar leið á gærkvöldið að jörðin gekk í bylgjum Í Náma- skarði. Hita- og kaldavatnsleiðslur fóru i sundur á mörgum stöðum, Kröfluvegur var lokaður vegna sprungna, vegurinn i Námaskarði var margsprunginn og orðinn illur yfir- ferðar i gærkvöldi og um tvöleytið í nótt bárust þær fregnir að þrær Kísil- iðjunnar væru byrjaðar að skemm- ast, en starfrækslu Kisiliðjunnar var hætt i gærkvöldi. Jón lllugason og Arnþór Björnsson í almannavarnarnefnd Mývatnssveitar tjáðu fréttamanni Mbl eftir miðnætti í nótt að allt væri tilbúið að flytja fólk frá Reykjahlíðarsvæðinu með litlum fyrir- vara ef þörf væri talin á Ekki voru uppi ráðagerðir um að flytja fólk frá Kröflu- svæðinu að svo komnu máli, en Kröfluvegur var lokaður vegna sprungna á tveimur stöðum Hópur fólks, sem kominn var til að skoða eldgosið var tepptur í Kröflubúðum en í Reynihlíð átti að gista hópur starfs- manna við Kröflu, sem var í Reynihlíð og á Húsavik, en komst ekki að Kröflu Almannavarnanefndin ráðgerði að hafa vakt áfram allan sólarhringinn í sím- stöðinni í Reykjahlið en nefndin kom strax saman siðdegis i gær, þegar óróinn byrjaði á jarðskjálftamælunum í Reynihlið Nægur bílakostur var í Mývatnssveit til að flytja þaðan fólk ef ástæða þætti til og til vonar og vara voru fluttar þrjár jarðýtur til Mývatns- sveitar. ein úr Reykjadal og tvær af Mývatnsheiði Mikill straumur forvitinna vegfar- enda var að Mývatni svo að vandræði voru af Var löggæzla aukin í gær- kvöldi og lögregluvörður settur beggja vegna við Bjarnarflag. Sigurður Gissurarson, sýslumaður Þingeyinga, var kominn i stjórnstöð almannavarna i símstöðinni i Reykjahlíð til að hafa yfirumsjón með löggæzlunni Kristján Þórhallsson, fréttaritari Mbl símaði til blaðsins laust eftir miðnætti. Kvaðst hann vera nýkominn úr könnunarleiðangri frá Námaskraði, væri vegurinn orðinn illfær vestan i skarðinu þar sem landris hefði orðið þar og vegurinn sprungið Bjóst Kristján við því að vegurinn myndi Framhald á bls 18. Hélt að nýtt eldgos væri að byrja undir fótum mér — segir Hjörtur Tryggvason, vaktmaður á skjálftavaktinni. Reykjahlið FráÁgúsli Jónssyni, blm Mbl ,,ÉG NEITA því ekki að mér varð ekki um sel, því ég hélt að ef til vill væri að opnast nýtt eldgos þarna undir fótum mér. Ég kom mér þvi niður af hnúknum", sagði Hjörtur Tryggvason, vaktmaður á skjálftavakt, er Mbl. ræddi við hann i nótt, en Eysteinn mun hafa orðið fyrstur manna var við um brotin. í samtalinu við Mbl. sagð ist Hirti svo frá: ,,Það er um klukkan 1 6 sem ég sé á Kröflumælinum að eitthvað er um að vera og held frá Reynihlíð upp i stöðvarhúsið við Kröflu. Þar sé ég að þegar er orðið talsvert landsig, á að gizka sambærilegt við landrisið siðasta hálfan mánuðinn Upp úr klukkan fimm held ég síðan í átt að Fratnhald á bls 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.