Morgunblaðið - 16.09.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1977
3
Verzlunarráð Islands 60 ára:
um í gær og sagöi ráðið stofnað
fyrir forgöngu Kaupmanna-
ráðsins, sem þá starfaði líkt og
erlend verzlunarráð, en forveri
Kaupmannaráðsins var Full-
trúaráð kaupmanna í Reykja-
vík, sem stofnað var 1899. Af
einstaklingum átti Jes Zimsen
konsúll drýgstan þátt í stofnun
ráðsins og' lagði meðal annars
fram lög þess á stofnfundinum.
A stofnfundinum voru saman-
komnir 52 forsvarsmenn fyrir-
tækja auk þess sem lögð voru
fram umboð frá 21 aðila, er
ekki gátu mætt á fundinum.
Fyrsti formaður V.í. varGarðar
Gíslason heildsali.
— Frá upphafi hefur það
verið megintilgangur Verzlun-
34 fyrirtæki heiðruð fyrir
meira en 50 ára aðild að V.í.
SEXTÍU ár verða á laugardag,
17. september, liðin frá stofnun
Verzlunarráðs lslands og verð-
ur afmælisins minnzt með ýms-
um haMti. t gær afhenti Gísli V.
Einarsson, formaður V.Í., for-
svarsmönnum 34 fyrirtækja
viðurkenningarskjöl en öll
þessi fyrirtæki hafa átt aðild að
ráðinu í 50 ár eða lengur. A
mánudag, 19. september efnir
Verzlunarráðið til hádegisverð-
arfundar í Víkingasal Hótel
I.oftleiða og verður þar fjallað
um framt íðarhlutverk atvinnu-
stefnu Verzlunarráðs Islands í
íslenzkum efnahagsmálum.
Gerir Gísli V. Einarsson grein
fyrir stefnu V.Í í atvinnumál-
um og Gylfi Þ. Gíslason al-
þingismaður fjallar um efnið.
A afmælisdaginn heldur stjórn
ráðsins síðdegisboð fyrir fél-
agsmenn sína.
Gisli V. Einarsson, formaður
Verzlunarráðsins, lýsti nokkuð
aðdragandanum að stofnum
ráðsins á fundi með blaðamönn-
Ljósm. Mbl. Fiióþjófur.
Gísli V. Einarsson, formaður Verzlunarráðsins, afhendir Kristni
Einarssyni, forstjóra K. Einarsson & Björnsson hf„ viðurkenn-
ingarskjal. Kristinn er elzti núlifandi félagi Verzlunarráðsins.
Fulltrúar fyrirtækjanna 34, sem veittu viðtöku viðurkenningarskjölum Verzlunarráðsins í gær.
arráðsins að vinna að sameigin-
legum hagsmuna- og framfara-
málum viðskiptalifsins og efla
skilyrði fyrir frjálst framtak
einstaklinga og samtaka þeirra
i atvinnulífinu, sagði Gisli. —
En hver hefur þá orðið árangur
af félagsstarfi ráðsins?, spurðu
Gísli og benti í þvi sambandi á
að meðal verkefna þess hefði
verið að breyta verzlun úr ein-
okun í frjálsa, einhæfri verzlun
í fjölbreytta, erlendri verzlun i
innlenda og óvinsælli verzlun i
vinsæla.
Þorvaldur Elíasson, fram-
kvæmdastjóri ráðsins, gerði
Framhald á bls. 18
Sænskt skáld í
Norræna húsinu
A MORGUN heldur sænska skáld-
ið Jan Mártenson fyrirlestur í
Norræna húsinu. Fyrirlesturinn
verður fluttur á sænsku og nefnir
höfundur hann „Svensk litteratur
í dag“.
Jan Mðrtenson er fæddur í Sví-
þjóð árið 1944. Hann hefur sent
frá sér allmargar Ijóðabækur og í
haust kemur fyrsta skáldsagan
hans út en bækur hans njóta mik-
illa vinsælda í Sviþjóð. Hér á ls-
landi er hann til að kynnast is-
lenzkum skáldum og rithöfundum
og ætlar hann síðar, að kynna
verk þeirra og islenzkar bók-
menntastefnur í Sviþjóð.
Fyrirlesturinn hefst kl. 16.00.
Sama dag kl. 15.00 verður í Nor-
ræna húsinu sýnd kvikmyndin
„Tur i natten", en efni myndar-
innar er byggt á smásögu eftir
danska rithöfundinn Leif Pan-
duro.
Aðgangur að kvikmyndasýning-
unni er ókeypis.
Sænska skáldið Jan Mártenson.
Dagur náttúru-
lækningamanna
A MORGUN halda náttúru-
lækningamenn árlega hátíð sina,
sem þeir nefna „Náttúru-
lækningadaginn", i heilsuhælinu
i Hveragerði.
Að sögn Egils Ferdinandssonar
verður þetta i 3ja sinn, sem þessi
hátið er haldin, en 20. sept. 1975
átti upphafsmaður náttúru-
lækninga á Islandi Jónas
Kristjánsson læknir, 105 ára fæð-
ingarafmæli og var þá ákveðið að
i kringum þennan dag ár hvert,
skyldi „Náttúrulækningadagur-
inn“ haldinn hátíðlegur til minn-
ingar um Jónas.
Þessi hátíð er ætluð til kynning-
ar á starfsemi náttúrulækninga-
manna og þá sérstaklega á heilsu-
hælinu i Hveragerði, og er henni
ætlað að auka skilning manna á
nauðsyn þessa rekstrar.
Hátíðin er opin almenningi og
hefst kl. 13.00 og á eftir eru ræðu-
höld og söngur. Ýmsir kunnir
menn ræða þar um hollustu fæð-
unnar og náttúrulækningar.
Ný Palmolive með olivuolíu
Mild sápa lyrir alla
fjölskylduna,
jafnvel þá yngstu.
Palniólive-leyridmxlóiiHmnn
cr oliýuolíun. sem hclur
verið notuö til luiösiiyrlingar
i árþúsundir, vegna þess aö
oUvuolian, gengur inn i
húðint.
Þess vegna er olivuolia i
Palfnolive-sápunni.
N>ja Palmolive-sápan er s\i
niild aö jafnvel þeir vngstu
geta notaö hana.
Nýia Pahuolivc-sápan er
tyrir alla tjölskvlduna.