Morgunblaðið - 16.09.1977, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1977
Verða afnotagjöld af svart-
hvítum tækjum lækkuð?
— AKVARÐANIR um afnota-
gjöld vegna sjónvarps eru ekki í
verkahring tJtvarpsráös og því
hefur Útvarpsráð ekki fjallaö
neitt um þaö vandamál, sem nú
hefur komiö upp með innsiglun
svart-hvítra tækja um leið og fólk
fær sér littæki. Þetta er fjárhags-
mál en ekki dagskrármál, sagði
Þórarinn Þórarinsson, formaður
Útvarpsráðs, þegar Morgunhlaðið
ræddi við hann í gær um hið
óleysta vandamál vegna svart-
hvítu tækjanna.
Þórarinn sagði, að þótt afnota-
gjöldin væru ekki beinlínis mál
Utvarpsráðs. gæti vel komið til
greina að málið yrði rætt á út-
varpsráðsfundi. Að sínu mati
væri það vel hugsanlegt að taka
upp lægra afnotagjald fyrir svart-
— Tap og sigrar
Framhald af bls. 32.
úr 7. umferð. Kom biðleikur
Rúmenans mjög á óvart og eftir
hann var sigurinn vís hjá Jóni.
Jón er eðlilega orðinn þreytt-
ur, enda hefur verið teflt mjög
stíft á mótinu í Frakklandi og
flestar skákir Jóns farið i bið.
Engin grið eru þó gefin og í dag
fer 9. umferð mótsins fram.
Ekki var vitað í gærkvöldi hver
þá yrði andstæðingur Jóns en
allir sterkustu skákmennirnir
hafa telft sín á milli og mætir
Jón því einhverjum af minni
spámönnunum í dag. Er hann
ásamt Kasparov og Whitehead
frá Bandarikjunum í efsta sæti
mótsins með 6!4 vinning, en
næstu menn eru með 5 vinn-
inga.
— Krafla
Framhald af bls. 32.
titringsins vera við leirhverinn
stóra.
í samtalinu við Morgunblaðið
sagði Páll, að landrisið væri nú
byrjað aftur með svipuðum hraða
og fyrir síðustu umbrot eftir að
hafa hægt á sér í nokkra daga.
Hins vegar færi skjálftavirkni sí-
fellt minnkandi og sama væri að
segja um sprungugliðnun. Þá
kvað Páll, að gufuútstreymi hefði
enn aukizt í Bjarnarflagi, og bæri
mest á því norðan við gufuaflstöð-
ina.
— Schmidt
Framhald af bls. 1
Schmidt neitaði að gefa skýrslu
um gang samninga yfirvalda við
mannra-ningjana, en sagði að
áfram yrði haft samband við þá
með milligöngu svissneska lög-
fra'ðingsins Denis Payot. Er talið
að hann hafi þar með gefiö í skyi.
að yfirvöld álitu Schleyer enn á
llfi.
Kanslarinn vísaði á hug kriifum
um að beitt yrði örþrifaráðum,
jafnvel þótt þau væru hrot á
stjórnarskránni, til að fá Schleyer
lausan, en benti jafnframt á að
yfirviildin, sem mannræningjarn-
ir eru að re.vna að grafa undan,
væru alls ekki getulaus. „Þau
munu vinna sigur á skæruliöunum
áður en lýkur vegna þess að alþýða
manna fyrirlítur hryðjuverk".
Þegar Sehmidt hafði lokið
ávarpi sínu tóku ýmsir þingleið-
togar til máls, og lýstu allir stuðn-
ingi við fordæmingu Schmidts á
skæruliðunum. Var Ijóst að allir
flokkar stóðu saman í þeirri bar-
áttu. Helmut Kohl, leiðtogi kristi-
legra demókrata, sagði að hvorki
væri unnt að skilja, réttlæta né
afsaka morð, ógnir eða fantabrögð.
Skoraði hann á alla þá, sem til
þessa hefðu haldið að þjóðin ætti í
höggi við afvegaleidda hugsjóna-
menn sem aðeins hefðu valið sér
rangar starfsaðferðir, að gera sér
nú ljóst hvert stefndi. Herbert
Wehner, formaður þingflokks
sósialdemókrata, tók undir þau
orð kanslarans að sá fyrirsláttur
skæruliðanna, að þeir ættu í styrj-
öld við rikið, væri hrein fjarstæða.
Benti hann a að fangarnir 11, sem
mannræningjarnir viidu fá leysta
úr haldi, bæru ábyrgð á 16 morð-
um og 43 morðtilraunum.
hvít tæki sem væru á heimili þar
sem littæki væri fyrir. Gæti það
verið mjög gott frá þeim sjónar-
hóli að sjönvarpið þyrfti á sem
mestu fé að halda.
Leiðrétting
MISHERMT var í Morgunblaðinu
í gær að ný verzlun Málarans h.f.
hefði verið opnuð í Ingólfsstræti
5. Hið rétta er, að nýja verzlunin,
sem heitir Málningavörur h.f., er
ekki á snærum Málarans h.f.
— Bjargað
Framhald af bls. 32.
björgunarhríngur. Hefði þvi
getað farið illa ef skipstjóri
Rúnu hefði ekki heyrt neyðar-
kallið. Rúna er einnig 4,5 tonn
að stærð að sögn Óskars Þ.
Karlssonar, þá eru bátar af
þessari stærð ekki skyldugir
að hafa talstöðvar, en eins og
margar aðrar trillur voru ör-
bylgjutalstöðvar um borð í
þeim báðum. Þá sagði Óskar
Þór, að það væri marg búið að
sýna sig að nauðsynlegt væri
að hafa gúmmíbjörgunarbáta
um borð í trillum af þessari
stærð.
— Saltfiskur
Framhald af bls. 32.
þessir erfiðleikar geta enn aukizt
síðustu ár, og þessir erfiðleikar
geta enn aukizt ef skreiðarmark-
aðurinn dettur niður,“ sagði Tóm-
as þegar Morgunblaðið spurði
hann hvort ekki hefði orðið veru-
leg aukning í framleiðslu tiltölu-
lega smás saltfisks. Eins og málin
standa í dag vantar nokkuð upp á
að framleitt hafi verið upp í
samninga af stórfiski 1, en Tómas
bjóst við að lokið yrði við að fram-
Ieiða upp í stórfisksamninginn
það sem á vantar f.vrir áramót.
Þá sagði hann, að engar breyt-
ingar hefðu enn orðið á þurrfisk-
markaðinum í Brasilíu, af og til
bærúst fréttir um að 100% inn-
borgunarskylda á saltfiski yrði af-
numin, en þegar á reyndi gerðist
ekkert.
Að lokum sagði Tómas, að Is-
iendingar ættu skæða keppinauta
á Grikklandsmarkaðinum, sem
væru Norðmenn, Færeyingar,
Kanadamenn og Danir.
Auk Tómasar Þorvaldssonar
önnuðust samningagerðina við
Grikki þeir Helgi Þórarinsson
framkvæmdastjóri og . Friðrik
Pálsson skrifstofustjóri.
— Rústirnar
Framhald af bls. 2
sem dr Sigurður Þórarinsson jarð
fræðingur fann í Þjórsárdal 1 939 og
er eldra en landnám í Þjórsárdal —
Við héldum að þetta væri rétt þar til
að framkvæmdar voru rannsóknir í
Skálholti 1960, þar sem ég gerði
nákvæma frjógreiningu og kom þá í
Ijós að gróðurfarsbreytingin sem
varð við landnám, var byrjuð áður
en þetta landnámsöskulag féll Þetta
sannaði að landnám var hafið sums
staðar á íslandi áður en öskulagið
féll, sagði Þorleifur
Sem dæmi um skekkju í geisla-
kolsmælingum sagði Þorleifur að
við uppgröft í Tjarnargötu 4 árið
1 944 hefði fundizt spónn úr lerki og
kurl úr birki og hefði hvorttveggja
verið tekið úr neðsta mannvistarlag-
inu Við aldursgreiningu með C 14
sýni lerkið aldurinn 810 e Kr og
birkið 760 e Kr Við rannsóknir
1972—'75 á þessum sama stað
hefðu hins vegar ekki fundizt neinar
rústir eldri en frá landnámsöld og
sagði Þorleifur að þarna hefði því
komið fram um það bil 100 ára
skekkja í mælingunum
— Ég held að geislakolaðferðin
sé tæplega nothæf til að ákvarða
aldur gamalla húsarústa og í öðru
lagi er landnámsöskulagið ekki fallið
fyrir landnám heldur á landnámsöld
Það þýðir að rústirnar í Vestmanna
eyjum þurfa ekki að vera eldri en frá
fyrri hluta landnámsaldar Mér sýn
ist bezta aðferðin til að ákvarða
aldur rústanna vera rannsóknir á
þeim sjálfum, lögun þeirra eða
áhöldum og verkfærum sem þar
finnast Þvi hafi t d Papar, verið
þarna á ferðinni, er líklegt að við
getum fundið aldur rústanna af forn-
leifum, sagði Þorleifur að lokum
— V.í. 60 ára
Framhald af bls. 3.
þessu næst grein fyrir starf-
semi þess og sagði 400 fyrirtæki
og félög nú eiga aðild að ráðinu
og eru þar i hópi bankar, bila-
leigur bygginga- og verktaka-
fyrirtæki, iögfræðiskrifstofur,
fiskvinnslufyrirtæki, flugfélög,
iðnfyrirtæki, innflytjendur,
skipafélög, smásöluverzlanir,
tryggingafélög, umboðs- og
heildverzlanir, útflytjendur, út-
gefendur blaða og bóka og veit-
inga- og gistihús. Meðal þátta í
starfsemi ráðsins nefndi Þor-
valdur, að mikið berst af fyrir-
spyrnum frá útlöndum um
möguleika á sölum vara hingað
eða héðan. Þá rekur ráðið upp-
lýsingaskrifstofu um lánstraust
íslenzkra fyrirtækja. Veittar
eru umsagnir um lagafrumvörp
og reglugerðir sem snerta við-
skiptamál og reynt er að sinna
• þeim málum, sem félagsmenn
óska eftir að ráðið leysi úr.
Sem fyrr sagði voru það 34
fyrirtæki sem fengu viðurkenn-
ingarskjöl fyrir meira en 50 ára
aðild að Verzlunarráðinu en að-
ild margra þessara fyrirtækja
var i fyrstu bundin við aðild
stofnenda þeirra og eigenda að
ráðinu og hefur siðar færzt yfir
á félög, sem stofnuð hafa verið
um fyrirtækin. Fyrirtækin, sem
viðurkenningu fengu, voru:
Bókaver/lun Sif'fúsar Kymundssonar —
Almenna bókafélaf'ió h.f.. Timburver/lun
Arna Jónssonar & C’o. h.f.. Arvakur h.f.,
Bernhard Petersen h.f.. Ver/lunin
Brynja. KnKerl Krisljánsson & Co h.f..
II.f. ÖlKeróin KkíII Skallagrfmsson, II.F.
KimskipafélaK íslands. Ver/lunin O. K11-
inf>sen h.f.. KélaKsprenlsmidjan h.f.. Ciaró-
ar (iíslason h.f.. (iunnar Olafsson & Co.
h.f.. II. Benediklsson h.f.. Ilaraldur
Böóvarsson & Co. h.f.. Verzlun Haraldar
Júliuvsonar. I. Brynjólfsson & Kvaran
h.f.. Isafoldarprenlsmiója h.f.. J. Þorláks-
son & Norómann h.f.. Jes Zimsen h.f..
Skipaafí'reiósla Jes Zimsen. Jóhann
Olafsson & Co. h.f.. K. Kinarsson &
Björnsson h.f.. LauKavegs apólek. Leóur-
ver/lun Jóns Brynjólfssonar. Nalhan &
Olsen h.f.. Nýja bíó h.f.. O. Johnson &
Kaaher h.f.. Olafur (ifslason & Co h.f.,
SjóválryKKlhKafélaj' Islands h.f.. Smilh &
Norland h.f.. SlurlauKur Jónsson &Co. sf..
l'lvej'shanki íslatids. áóur Islandshanki
h.f.. Timhurverzlunin Völundur h.f.. Þóró- ‘
ur Sveinsson & Co h.f.
Bergur Gíslason forstjóri
þakkaði fyrir hönd þeirra fyrir-
tækja sem fengið höfðu viður-
kenningu og- óskaði þess að
Verzlunarráðið, samtök frjáls
framtaks, mættu starfa um
langa framtið. Gislí V. Einars-
son færði fyrirtækjunum 34
heillaóskir og þakkaði stuðning
og tryggð þeirra við V.I og
minntist orða, sem sögð höfðu
verið við hann fyrr um daginn,
að það hlyti að vera mikið afrek
að láta fyrirtæki lifa svo lengi,
sem þau fyrirtæki sem hér
hefðu verið heiðruð.
— Guðmundar-
málið
Framhald af bls. 2
Auk Gunnlaugs sitja sakadóm-
ararnir Armann Kristinsson og
Haraldur Henrýsson i dóminum
og mun dómurinn á morgun úr-
skurða hvort óskin um að Gunn-
laugur viki sæti verði tekin til
greina. Liggja öll störf dómsins
niðri á meðan, en áformað var að
hefja munnlegan málflutning í
Guðmundar- og Geirfinnsmálun-
um í sakadómi Reykjavíkur 3.
október n.k. en Bragi Steinarsson
vararíkissaksóknari mun flytja
málið af hálfu ákæruvaldsins.
— SUS-þing
Framhald af bls. 2
ins, Sviinn Per Arne Arvidsson,
sem er formaður samtaka ungra
hægri manna á Norðurlöndunum,
NUU, ávarpar þingið. Á þinginu
verða lagðar fram tillögur um inn-
göngu SUS i Æskulýðssamband Is-
lands, æskulýðssamtök lýðræðis-
sinna í Vestur-Evrópu, DEMYC og
norrænu samtökin NUU.
í kvöld verða nefndafundir og
verður þeim fram haldið í fyrra-
málið en að þeim loknum hefst
afgreiðsla ályktana. Klukkan 17.30
á laugardag fara þingfulltrúar í
skoðunarferð um Heimaey en við
kvöldverð þá umkvöldið flytur dr.
Gunnar Thoroddsen, varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, ávarp.
Þingstörfum verður fram haldið á
sunnudag í Félagsheimilinu við
Heiðarveg og er gert ráð fyrir að
þeim ljúki um kl. 16 með kosning-
um.
— Sjónvarpið
Framhald af bls. 2
hefur þetta safn vaxið smám sam-
an á þessum árum. Ljósmyndarar
sjónvarpsins hafa og að undan-
förnu verið að safna litmyndum
utan af landi, en Eiður kvað lang-
an tíma að sjálfsögðu myndu líða
áður en þetta safn yrði að stofni
til litmyndasafn. Yfirleitt kvað
hann fréttamyndir ekki hafa ver-
ið teknar í lit hingað til, nema
atburðirnir hefðu sérstætt sagn-
fræðilegt gildi. Yfirleitt heföi
myndataka fyrir fréttastofuna
verið í svart-hvítu og aðeins smá-
ræði tekið í lit til geymslu.
Eiður Guðnason kvað það skoð-
un sina að ekki ætti að flýta sér
um of við það að hefja litaútsend-
ingar á fréttum. Bíða ætti þar til
unnt yrði að hafa enn stærra hlut-
fall fréttamynda i lit, en upphafið
að fréttaútsendingum í lit yrði að
þulir og það efni, sem sérstaklega
væri tekið upp í upptökusal sjón-
varpsins, gæti verið i lit. Innlend-
ar fréttakvikmyndir yrðu ekki í
lit, þar sem enn væri ekki til
aðstaða til framköllunar litkvik-
mynda hjá sjónvarpinu. Þó
myndu erlendar fréttakvik-
myndir, sem teknar væru upp á
myndsegulband, geta komið strax
i lit. Einnig geta kyrrar myndir
komið í lit strax.
Enn eru ekki til tæki til þess að
sýna kvikmyndir i lit, og getur
einhver bið orðið á því að þau
tæki fáist, þar sem alllangur af-
greiðslufrestur er á slíkum tækj-
um.
Loks sagði Eiður að auðvitað
vildu allir fá lit sent fyrst ,,en þótt
konungur vilji sigla, hlýtur byr að
ráða.“
í dag eiga að hefjast námskeið
fyrir starfsfólkið í sambandi við
litaútsendingar, og eru það tækni-
og dagskrármenn frá norska sjón-
varpinu, sem annast kennsluna
þar. _______ _
— Bankamenn
íhuga verkfall
Framhald af bls. 2
ingafundi hinn 8. september síð-
astliöinn var hins vegar undirrit-
aður sérstakur samningur um
starfsemi og réttarstöðu trúnaðar-
manna.
Af hálfu Sambands íslenzkra
bankamanna hefur verið skipuð
verkfallsnefnd og sitja í henni
formenn starfsmannafélaganna
innan SÍB, ásanit stjórn og vara-
stjórn SÍB. Verkefni verkfalls-
nefndar er að sjá um hugsanlegar,
verkfallsaðgerðir og undirbúning
þeirra — og framkvæmd verk-
fallsins, ef af því verður.
1 áðurnefndu fréttabréfi segir
að ekkert hafi verið ákveðið um
verkfallsboðun, en bent er á að
gangur samningaviðræðnanna
undanfarið lofi ekki góðu, og ekki
sízt sú staðreynd að engin svör
hafa enn komið af hálfu bank-
anna um föstu launin og aðra
launaliði kröfugerðarinnar. Nýr
fundur hefur nú verið boðaður
með formönnum og varastjórn,
þar sem staða mála verður metin
á ný og ákvörðun tekin um næstu
aðgerðir.
— Auglýst eftir
vitnum
Framhald af bls. 5.
Hægra framaurbretti dældað.
Appelsínurauður litur var i
ákomustað.
Miðvikud. 14. sept.
Ekið á bifreiðina G-5863, Fiat
128 Rally, gula að lit, þar sem hún
stóð í Austurstræti á móts við
verzlunina Torgið á tímabilinu kl.
17:00—17:10. Skémmdir: Dæld á
farangursgeymsluloki og gafli.
— Sýning
Framhald af bls. 11.
bókanna svo og kennslufræði-
legs. A sýningunni er að finna
smábarnabækur, mynda-
bækur, alls kyns sögubækur,
bækur um munnmæli og ævin-
týri og dæmisögur. Þá eru
nokkurs konar fræðibækur og
bækur sem leitast við að kynna
umheiminn fyrir börnunum.
Flestar bækurnar eru þýzkar,
en einnig er nokkuð um
þýddar bækur.
—Dagur dýranna
Framhald af bls. 8
þessi dýr hafa og þann rétt sem þau
óumdeilanlega hafa til landsins Við
troðum meira og minna á þessum rétti,
án umhugsunar Og þegar hagsmunir
mannanna og dýranna í landinu rekast
á, — hver hefur þá sitt fram???
Við setjum friðunarlög Stundum að
því er virðist dálítið handahófskennd.
Við fáum gífurlega verndartilfinningu
gagnvart einni dýrategund fram yfir
aðra og verndum hana þá með oddi og
egg, en reynum að eyða og helzt
útrýma annarri, og erum þá ekki ætíð
vönd að meðulunum
Stundum alfriðum við ýmsar fugla-
tegundir, eins og t d æðarfuglinn, og
þá lokum við augunum fyrir þvi að
æðarkollur drukkna hundruðum
saman í grásleppunetum sem lögð eru
á grunnsævi. Við fóðrum svartbakinn
gegndarlaust á sorpi og fiskúrgangi
með annarri hendinni en viljum svo
eitra fyrir hann með hinni. Og svona
má lengi telja
Stjórn S.D.Í skorar á yfirvöld að
taka upp nýja stefnu í þurrkunarað-
gerðum á mýrum og öðru votlendi,
þannig að aldrei verði þurrkað upp
landsvæði án þess að nákvæmar at-
huganir sérfræðinga á lifríkinu verði
látnar ráða Einnig skorar stjórn S.D í
á yfirvöld að sorpi og fiskúrgangi verði
eytt á annan hátt en nú er, þannig að
fuglar komist alls ekki að honum Þá
mun náttúran sjálf sjá til þess að
fjölgun þeirra helzt í skefjum
Stjórn S.D í beinir þvi til lands-
manna að virða rétt villtu dýranna í
landinu og gera þeim ekki landið
óbyggilegt "
— Minning
Guðmundar
Framhald af bls. 22.
minningarnar um Guömund
Jóhannesson og hans góðu konu
og þakka þeim. Þakka guði fyrir
gjöf góðra vina.
Hittumst heil.
Sfra Sigurður Haukdal
19. ágúst 1971 kvöddum við Sig-
riði Jóhannsdóttur með eftirfar-
andi orðum:
„Fyrir fáum árum komum við
fyrst inn á heimili þitt, þá með
öllu ókunnug. Frá þeirri stund
nutum við þar umhyggju og ástar
sem hefðum við dvalist þar frá
fyrstu bernsku. Það þarf réttsýni
og góðmennsku til að taka þremur
ókunnugum börnum sem væru
þau manns eigin, en þetta auð-
sýndir þú okkur í rikum mæli. En
það gleymist oft i dagsins önn að
þakka það sem vel er gert, og að
lokum er það orðið um seinan. Því
viljum við nú þakka þér og Guð-
mundi afa alla þá ástúð sem við
urðum aðnjótandi á heimili ykk-
ar. Víð þökkúm um leið og við
kveðjum".
Þessi orð áttu ekki síður við um
Guðmund afa, og því endurtökum
við þau nú þegar hann er kvadd-
ur.
Páll, Fanný, Herjólfur.
r
— „Eg samdi. .
Framhald af bls. 13
hvernig væri að leika Róbert:
„Róbert er góður strákur, en
hann hefur lokazt illilcga inni i
starfi sínu og gleymt bæði sjálf-
um sér og konu sinni vegna þess.
Þetta leikrit er fyrst og frémst
skemmtiefni, og ef það hefur ein-
hvern boðskap að flytja, þá er
hann að minnsta kosti ekkert
hættulegur“
Aðspurður kvað Pétur ekkert
erfiðara að leika fyrir sjónvarp,
on á sviði, ,,en maður þarf að
venjast því,“ sagði Pétur að lok-
um.