Morgunblaðið - 16.09.1977, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1977
Norski dómarinn gengur milli æstra leikmanna í leiknum í nærkvöldi.
ALDREI KYNNZT ÖÐRUM EINS ROLABRÖGÐUM
— ÉG hef aldrei á ævi minni leikið
gegn öðrum eins villimönnum og
leikmönnum Glentoran, sagði Ingi
Björns Albertsson, fyrirliði Valsliðs
ins, eftir leikinn í gærkvöldi, en Ingi
Björn var illa útleikinn eftir leikinn.
Fætur hans útsparkaðir og á andlit-
inu bar hann einnig minjar frá leikn-
um. — einn leikmanna írska liðsins
notaði tækifærið er markvörðurinn
felldi mig, og sparkaði fyrst i munn-
inn á mér og siðan i ennið, sagði Ingi
Björn, — það var sem leikmenn
Blentoran neyttu alla bragða i leikn-
um til þess að sparka i andstæðing-
inn, og oftast hugsuðu þeir meira um
það en knöttinn.
Um möguleika Vals að komast
áfram í keppninni, sagði Ingi Björn
Albertsson:
— Leikurinn á írlandi verður ugg-
laust erfiður, ekki sizt ef Irarnir fá að
komast upp með annan eins rudda-
skap og þeir sýndu i þessum leik.
Hitt er annað mál að Valsliðið sýndi
að mínu mati lélegan leik hér i kvöld
og ég er sannfærður um að það getur
leikið það mun betur en það gerði,
að við eigum möguleika á að ná i það
minnsta jafntefli i leiknum a írlandi,
slikt nægir okkur nú til að komast
áfram í keppninni.
NÆRINGARGILDI:
Skyr
Efnisinnihald pr. 100g
Prótín 13,0 G
Mjólkursykur 2,5 G
Sykur 0,0 G
Mjólkurfita . 0,4 G
Kalcium 85,0 MG
Fosfór 180,0 MG
Járn 0,3 MG
Vítamín A 13,0 ALÞJ.EIN
Vítamín D 0,3 ALÞJ.EIN
Tíamín 0,03 MG
Ríboflavín Vítamín B 0,35 MG
Níacín 0,1 MG
Askorbinsýra Vítamín C 1,0 MG
Hitaeiningar 74,0
Jaröarberjaskyr
Efnisinnihald pr. 100g
Prótín 11,0 G
Mjólkursykur 2,12 G
Sykur 8,0 G
Mjólkurfita 0,35 G
Kalcium 72,0 MG
Fosfór 153,0 MG
Járn 0,25 MG
Vítamín A 11,0 ALÞJ.EIN
Vítamín D 0,25 ALÞJ.EIN
Tíamín 0,025 MG
Ríboflavín Vítamín B 0,3 MG
Níacín 0,085 MG
Askorbinsýra Vítamín C 0,85 MG
Hitaeining ar 84,0
Míólkursamsalan
ANNAÐ SKREHÐ UPP
Á m EFTIR VONBRIGÐ-
IN í ÍSLANDSMÓTINU
— SKÝRINGIN á því hvað Vals-
liðið datt niður þegar á leikinn
leið er vafalaust m.a. sú að leik-
mennirnir voru alltof spenntir,
sagði dr. Yuri Ilitchev, þjálfari
Valsmanna eftir leikinn við Glen-
toran í gærkvöldi. Nokkur veiga-
mikil atriði í leik okkar hrugðust,
og þá ekki hvað sfzt að við gáfum
bezta leikmanni frska liðsins,
Johnny Jamison, of mikið svig-
rúm. Albert Guðmundsson átti að
hafa scrstakar gætur á honum, en
undir lok leiksins hopaði Albert
of mikið frá honum, og þar með
náði hann að b.vggja upp fvrir
írska liðið.
Dr. Yuri sagði, að eftir lok 1.
deildar keppni Islandsmótsins í
knattspyrnu hefði Valsliðið verið
mjög langt niðri, enda hefðu úr-
slit mótsins orðið leikmönnum
gífurleg vonbrigði.
— Sigurinn í bikarúrslitaleikn-
um við Fram var fyrsta skref
Valsmanna upp á við að nýju og
það næsta var stigíð með þessum
rigri. Því hef ég trú á því að Valur
eigi að geta sýnt mun betri leik i
írlandi en liðið gerði hér á Laug-
ardalsvellinum i kvöld, og er ég
sæmilega bjartsýnn á að við get-
um náð í það minnsta jafntefli
þar.
Dr. Yuri var að þvi spurður
hvers vegna hann hefði ekki skipt
varamanni inná fyrir Inga Björn
Albertsson, er það var orðið aug-
ljóst að Ingi myndi ekki jafna sig
af meiðslunum sem hann fékk
snemma í leiknum. Svaraði dr.
Yuri því til, að í leik sem þennan
þyrfti bæði hörku og reynslu, og
hann teldi að varamenn Valsliðs-
ins í gær hefðu ekki verið nægj-
anlega undir það búnir að fara í
þann harða slag sem var úti á
vellinum.
Leiðrétting
í myndatexta með mynd af islands
meisturum Akraness i knattspyrnu i
blaðinu i gær var rangt farið með
nafn tveggja leikmanna liðsins.
Varamarkvörður liðsins heitir Sævar
Guðjónsson, en ekki Sævar Baldurs-
son og sá leikmaður sem lengst var
til vinstri i fremri röð á myndinni
heitir Gunnar V. Gislason, en ekki
Gunnar Guðjónsson. Biðst Morgun-
blaðið velvirðingar á þessum mistök-
um.
DREGIÐ18. NÓV.
18. nóvember n.k. verður dregið
um það í höfuðstöðvum UEFA í
Bern hvaða lið leika saman i
Evrópubikarkeppni landsliða sem
fram á að fara 1980. Þá verður
keppni þessi í fyrsta sinn með því
sniði að átta lið taka þátt i úrslita-
keppninni í stað fjögurra áður.
Hefur eitt lið þegar áunnið sér
rétt til að taka þátt i þeirri loka-
keppni — Lið Vestur-Þýzkalands,
sem sigraði í Evrópubikarkeppn-
inni síðast.
30 september n.k. verður dregið
um hvaða lið leika saman í ann-
arri umferð Evrópubikarkeppn-
innar í knattspyrnu.
DALE CARNEGIE
í ræðumennsku og mannlegum
samskiptum er að hefjast
Námskeiðið mun hjálpa þér að:
Öðlast meira hugrekki og sjáifstraust.
■£ Bæta minni þitt á nöfn, andlit og staðreynd-
ir.
Láta i Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfær-
ingarkrafti í samræðum og á fundum.
■fr Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu
og viðurkenningu.
■jf Talið er að um 85% af velgengni þinni sé
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aðra.
Starfa af meiri lífskrafti — heima og á
vinnustað.
■jf Halda áhyggjum í skefjum og draga úr
kvíða.
•^- Verða hæfari að taka við meiri ábyrgð án
óþarfa spennu og kvíða.
Okkar ráðlegging er því: Taktu þátt i Dale
Carnegie námskeiðinu.
FJÁRFESTING í MENNTUN GEFUR ÞÉR
ARÐ ÆVILANGT.
œ82411
(T E ínkílllíyfi «1 Islr'HKli
u ,/f ST J ÓRNUNARSKÓLINN
M.ÍVSKEWW Konráð Adolphsson