Morgunblaðið - 17.09.1977, Side 1
40 SIÐUR OG LESBOK
206. tbl. 64. árg.
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
Prcntsmiðja Morgunblaðsins.
Bretland:
Verðbólgan komin
niður í 16,5%
London. 16. septcmbor. Koutor.
JAMES Callaghan. forsa'tisráð-
herra Bretlands. sagði í kvöld að
nú væri að rætast úr efnahags-
málum Breta og að eins tölustafs
verðbólga væri innan seilingar.
Ummæli ráðherrans komu i lok
viku, sem hefur gefið brezku
þjóðinni beztu efnahagsmála-
fréttir, sem hún hefur fengið um
árabil. A miðvikudag var tilkynnt
að vöruskiptajöfnuðurinn í ágúst
hefði verið hagstæður um 316
milljónir sterlingspunda og í dag
var frá því skýrt að verðbólgan í
landinu hefði la-kkað um 1.1% í
ágúst úr 17.6% I 16.5% á árs-
grundvelli. Englandsbanki til-
k.vnnti einnig í dag um aðra
vaxtalækkunina á hálfum mánuði
úr 6‘/2% í 6% fyrir lægstu útláns-
vexti.
Callaghan sagði i sjónvarpsvið-
tali að Bretar væru nú á leið
enduruppbyggingar: „Við getum
Framhald á bls. 22.
Maria Callaslátin
París, 16. sept. Reuter.
MAKIA Callas sem af mörgum
hefur verið álitin mesta sópran-
söngkona samtíðarinnar, lézt í
París f dag. Hún var 53 ára.
Banamein hennar mun hafa
verið hjartaslag. Vinir söng-
konunnar sögðu að hún hefði
látizt á heimili sínu í París.
Maria Callas var fædd i New
York af grískum foreldrum.
Hún sýndi snemma sönghæfi-
leika og ung að aldri reyndi
hún að flýja lítt bærilega
bernsku með því að syngja. Eft-
ir siðari heimsstyrjöldina tók
hún helztu óperuhús Evrópu og
Bandaríkjanna með trompi og
skipaði sér þá á bekk með frá-
bærustu sópransöngkonum
heimsins.
í átta ár 1965—’73 kom Maria
Callas ekki fram á sviðið, en
hún tilkynnti aldrei formlega
að hún hefði lagt sönginn á
hilluna. Síðasta hlutverk henn-
ar var Tosca í samnefndri
óperu Puccinis i London 1965.
Margir aðdáendur hennar
héldu að hún væri búin að vera,
en í október 1973 hóf hún eins-
hljómleikaför sem byrjaði i
Hamborg og tók Guiseppe Di
Stefano þátt í hljómleikunum
með henni, en þau höfðu oft
sungið saman. Margir gagnrýn-
endur skrifuðu um tónleika
Framhald á bls. 22.
María Callas.
„Yfirdráttur ekki sama
og ósiðsamlegt athæfi,>
Lance lætur engan bilbug á sér finna
Washinfíton, 16. september. AP.
RANNSÖKNARNEFND öldunga-
deildar Bandarfkjaþings hélt í
dag áfram að yfirheyra Bert
Lance, fjárlaga- og hagsýslustjóra
Bandaríkjanna, um fjármál hans
og eins og í gær hélt I.ance fast
við sakleysi sitt og kvikaði hvergi
frá f.vrri yfirlýsingu sinni um að
hann m.vndi ekki segja af sér.
Vitnaleiðslum Lance átti að
ljúka í kvöld, föstudag, en Jackob
Javits, öldungadeildarþingmaður
frá New York, sagði að þær
myndu halda áfram í marga daga
eftir helgina. Lance kvaðst alls
óhræddur við að svara spurning-
um þingmannanna.
Lance sagði í dag að hann hefði
í gerðum sínum gert meira en að
halda sig rétt innan við mörk lag-
anna, bæði sem bankastjóri og
fjárlagastjóri Bandaríkjanna, og
hann hefði fullkomlega uppfyllt
þær háu siðferðilegu kröfur, sem
Carter gerði til æðstu embættis-
manna sinna.
Er einn þingmaðurinn þjarmaði
að honum i sambandi við banka-
yfirdrátt hans og fjölskyldu hans
svaraði Lance eins og hann gerði i
gær: „1 bæ eins og Calhun, þar
sem yfirdráttur er daglegt brauð
er yfirdráttur ekki Ijótt orð. Það
er ekki rétt að segja að yfirdrátt-
ur sem slikur sé sama og ósiðsam-
legt athæfi. Ég reyndi aldrei að
fela fjármál mín eða liggja á upp-
lýsingum."
Lance sagði að alvarlegasta
ásökunin á hendur sér hefði verið
að hann hefði legið á upplýsing-
um, er hann svaraði spurningum
þingmanna i janúar er fjallað var
um stöðuútnefningu hans. Hann
hélt þvi ákveðið fram að hann
hefði skýrt þingnefndum frá fjár-
málum sínum og yfirdrætti með-
an hann var bankastjóri. Þessi
ummæli Lance urðu til þess að
Jacob Javits lagði til að þingmenn
yrðu látnir bera-vitni um viðræð-
ur sínar við Lance þá!
Alsirforseta í gær og voru vanga-
veltur um að Schmidt hefði viljað
kanna hvort Alsírstjórn myndi
vilja veita skæruliðunum 11, sem
ræningjar Schleyers krefjast að
verði látnir lausir í skiptum fyrir
hann, landvistarleyfi.
Þá neitaði talsmaðurinn því
einnig að staðfesta að yfirvöld
hefðu fengið í hendur nýtt mynd-
segulband með sönnun um að
Schleyer væri á lifi og frekari
kröfum frá ræningjunum. Fregn-
ir hermdu að á bandinu væri
Schleyer sýndur vera að lesa blað
frá sl. þriðjudegi i „fangelsi al-
þýðunnar".
Denis Payot, svissneski lög-
fræðingurinn, sem er milligöngu-
maður ræningjanna og stjórn-
valda i V-Þýzkalandi sagði frétta-
mönnum í kvöld að hann hefði
fengið ný skilaboð frá v-þýzku
lögreglunni, sem hann hefði þeg-
ar komið áleiðis, og er getum að
því leitt að þar hafi verið um að
ræða svar við fyrrnefndu mynd-
segulbandi.
Ræningjarnir hafa nú gefið
rikisstjórninni lokafrest 5 sinnum
á sl. 12 dögum um að verða við
kröfum sínum, að öðrum kosti
yrði Schleyr tekinn af lífi. Ekki er
vitað hvenær næsti frestur renn-
ur út.
Þreyttur Helmut Schmidt kanslari V-Þýzkalands i
ræðustól i v-þýzka þinginu.
Tíðinda brátt að
vænta frá Bonn?
Bonn, 16. sept. Rcuter—AP.
AF FREGNIJM frá Bonn í kvöld
mátti ráða að innan skamms
k.vnni að draga til tíðinda í máli
Hanns Martins Schleyers, forseta
vinnuveitendasambahds V-
Þýzkalands, sem nú hefur verið á
valdi hryðjuverkamanna Rauðu
herdeildarinnar í Baader-
Meinhofhreyfingunni í 12 daga.
Sem fyrr er mjög erfitt um alla
fréttaöflun vegna nær algers
banns rikisstjórnarinnar við
fréttaflutningi, en í kvöld var v-
þýzka stjórnin á áríðandi auka-
fundi með hinni sérskipuðu neyð-
arástandsnefnd leiðtoga allra
stjórnmálaflokka, talsmaður Hel-
muts Schmidts kanslara tilkynnti
að kanslarinn hefði frestað 5 daga
heimsókn til Póllands á mánudag
og óstaðfestar fregnir í Bonn
hermdu að Hans Juergen
Wischnevski, sérlegur ráðgjafi
Schmidts, hefði í vikunni flogið
með leynd til Alsír til fundar við
Boumedienne forseta um málið.
Talsmaður v-þýzku stjórnarinn-
ar neitaði að svara spurningum
fréttamanna er þeir spurðu um
ferðir Wischnevskis, en fregnir
hermdu að hann hefði rætt við
Kóleran á
undanhaldi
Amman, 16. scptcmhcr Rputer.
TILKYNNT var um nokkur ný
kólerutilfelli í Miðausturlöndum
í dag, þ.á.m. á vesturbakka
Jórdanár, og um borð í dönsku
skipi við strönd Egyptalands, en
alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
í Genf sagði að flest benti til að
faraldurinn væri í rénum. Yfir-
Ráðherra
skilað
Bogota 16. sept. Reuter.
FERREIRA Neira, fyrrverandi
landbúnaðarráðherra Columbíu,
sem vinstri sinnaðir skæruliðar
rændu þann 19. ágúst, var í dag
sleppt heilum á húfi, að þvi er
lögreglan sagði. Honum var
sleppt tveimur dögum eftir að
samhingar höfðu tekizt í deilu-
máli sem hann átti aðild að.
Hópurinn, sem rændi ráðherran-
um, M-19, hafði áður rænt nokkr-
um málsmetandi mönnum í
Colombíu og drepið suma þeirra.
völd 1 Sýrlandi, þar sem veikinn-
ar hefur mest gætt, sögðu í dag að
tala sjúkra væri nú um 2250 og 70
hefðu látist, en faraldurinn væri
greinilega á undanhaldi og aðeins
verið tilkynnt um 50 ný tilfelli í
þessari viku.
1 Jórdaníu hafa nú 324 veikst,
en aðeins var tilkynnt um 10 ný
tilfelli sl. sólarhring, sem er
lægsta tala undanfarna daga. I
Beirút höfuðborg Líbanons var
aðeins vitað um 2 ný tilfelli en
þar hafa aðeins 22 veikst og eng-
inn látið lífið.
Heilbrigðisyfirvöld i Egypta-
^landi sögöu að talið væri að 4 ný
kólerutilfelli hefðu komið upp í
danska skipinu Helle Sku, sem
liggur i söttkví undan Alex-
andríu. Fyrr í vikunni lézt einn af
áhöfninni úr veikinni eftir að
skipið hafði lestað i Líbanon og
fór útför hans frant á hafi úti.
Ekki er vitað um kólerutilfelli í
Egyptalandi að sögn blaðsins A1
Ahrams í dag, en ákveðið hefur
verið að bólusetja 6,5 milljónir
nemenda í skólum landsins, er
kennsla hefst 24. þessa mánaðar.