Morgunblaðið - 17.09.1977, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
__ÁUÍAMÍA
„Frönsku heimspekingarnir, sem kalla sig „nýja", hafa fundið þann gamla sannleika, að
skipulagið er fyrir manninn, en maðurinn ekki fyrir skipulagið."
eftir HANNES GISSURARSON
Vald listarinnar
Nóbelsræða Alexanders Solsjenitsyns árið
1970 vakti mikla athygli á Vesturlöndum,
enda hafa fáir aðrir rithöfundar stigið niður í
helvíti af mannavöldum og sagt ferðasögu
sína eins og hann Solsjenitsyn sagði í ræð
unni. að maðurinn kynni eina aðferð til þess
að velja og hafna í þessu lífi, greina gott frá
iIIu. Hún er að reyna að skilja aðra menn Og
þennan skilning á öðrum mönnum má fá
með lestri góðra bóka, því að i þeim er sagt
frá mannlegri reynslu, bætt við mannþekk-
mguna Bókmenntir færa mann að manni, i
vissum skilningi skapa þær mannmn.
mennta hann, en af þvi er nafn þeirra
dregið Bókmenntirnar eru þess vegna and
stæðar ofbeldi og lygi alræðissinna þó að
sum skáldin hafi sem emstaklingar gert
stjórnmálamistök Og Solsjenitsyn er sjálfur
lifandi dæmi þess valds, sem er bókmennt-
anna Emn hefur hann lyft grettistaki. gert
byltingu í hugarheimi vesturlandabúa, dóm-
ur þeirra um sögu Vesturlanda er ekki samur,
eftir að hann lagði fram Gulageyjarnar, Dag
i IJfi Ivans Denisovitsj og önnur málsskjöl
um reynslu manna af sósíalisma Kremlverja
Og að þessari byltingu Solsjenitsyns lokinni,
sem hefur orðið til þess, að enginn menntað
ur maður getur verið valdhafana í Kreml.
hafa fræðimenn á Vesturlöndum reynt að
greina, hvað hafi i rauninni gerzt og hvers
vegna í Ráðstjórnarríkjunum
Nýlega tóku fáeinir franskir heimspeking-
ar, en á þá hafa verk Solsjenitsyns haft mikil
áhrif, til máls um það Þeir eru kallaðir ,,nýju”
heimspekingarnir, þó að kennmg þeirra sé
reyndar alls ekki ný, en hana hyggst ég ræða
í þessari ritsmíð Þeirra hefur að vísu verið
getið i íslenzku dagblöðunum Morgunblað-
ið birti útdrátt úr timaritsgrein um þá 11
september Og Jónas Kristjánsson fagnaði
kenningu þeirra í Dagblaðinu 9 september,
og var á honum að skilja. að andstaða
frönsku heimspekinganna við alla hug-
myndafræði fæli það í sér, að menn mættu
segja og gera það, sem þeim sýndist, að
geðþóttmn mætti ráða gerðum þeirra án
aðhalds staðreynda og raka En í Þjóðviljan-
um 14 ágúst hafði Einar Már Jónsson það
eftir skoðanabræðrum sínum, kommúnistum
í Frakklandi, að kenningin væri ..innihalds-
laus orðhengilsháttur og tómur vaðall með
fjarstæðukenndum hugmyndum sem oft reka
sig hver á aðra” Við ókvæðisorðum þjóð-
viljamanna var að búast, þvi að það gat að
lesa í forystugrein blaðsins 7 marz 1 953, að
Jósef Stalín, framkvæmdastjóri þess helvítis,
sem Solsjenitsyn lýsir og frönsku heimspek-
mgarnir greina í bókum sínum, hefði verið
,,til síðustu stundar sami góði félaginn. sem
mat manngildið ofar öllu öðru' !
fræðin mestu, í mót hennar var hugsun vald-
hafanna steypt Og rætur hugmyndafræð-
mnar rannsakar Glucksmann i annarri bók,
Vitringunum. Þær liggja í hugsun þýzku
heimspekinganna — í þjóðernisstefnu Ficht
es, ríkistrú Hegels, byltingarstefnu Marxs og
tómhyggju (siðferðilegum nihilisma)
Nietzsches Þessir þýzku hugsuðir höfnuðu
allir réttarstefnunni — þeirri manngildishug-
sjón, sem komin er úr kristinni trú — en án
hennar er allt leyfilegt, ef það er i þágu
þeirrar stofnunar (flokksins eða rikisins), sem
á stórasannleilcann.
Lévy ritar bókina Skrælingjaskipulag
mannúðlegt ásýndar gegn sameignar-
stefnu (Nafnið er skopstælmg á hinu, sem
sumir sameignarsinnar á Vesturlöndum hafa
gefið stefnu sinni. ..sósíalisma mannúðlegum
ásýndar" ) Lévy er andstæðingur þeirra
manna, sem halda, að með skynsamlegri
skipulagningu sé hægt að breyta manninum
til hins betra Mannbætur er ekki unnt að
leiða í lög, mennirnir verða að bæta sig
málanna til þess að bæta sér upp missinn, en
þeir ruglast á trúmálum og stjórnmálum. á
riki og kirkju En Aron og Revel hafa ritað um
þá freistmgu, sem margir menntamenn falla
í, að telja vitsmuni sína gefa sér rétt til þess
að taka sér vald yfir öðrum mönnum Og úr
vitsmunalegri forsjárstefnu þeirra verður al-
ræðisstefna, þeir vilja taka af mönnum sið-
ferðilegt sjálfræði þeirra, gera ríkið (eða
flokkinn) að sálnahirði þeirra Lévy kallar
kenningu Marxs i blaðaviðtölum ..vimugjafa
almennings" og leikur svipaðan orðaleik (en
ekki eins góðan) og Aron, sem samdi bókina
Vímugjafa menntamannanna um aðdráttar-
afl kenningar Marxs á menntamenn (en Marx
kallaði trúna „vimugjafa almennings" í rit-
gerðmni Um Gyðingavandann árið 1843
eins og frægt er) Og fyrirrennarar frönsku
heimspekinganna eru fleiri en landar þeirra
Kenningin er mjög i sama anda og nokkurra
rithöfunda og heimspekinga. sem ég flutti
fyrirlestra um í útvarpið á síðasta ári við litinn
fögnuð kommúmstanna í útvarpinu, Háskól-
sósialista og kommúnista, i sókn þeirra til
valda Enn er það, að i farsældarrikjum
Vesturlanda, Frakklandi sem öðrum löndum,
gætir mjög gremju almennings vegna
sífelldra afskipta rikisbáknsins af efnahags-
málum og öðrum einkamálum manna, þó að
þeim megi alls ekki jafna við kúgunina i
alræðisrikjum kommúnista og fasista Þess
vegna fá þeir áheyrn almennings Og það ber
einkum að telja frönsku heimspekingunum til
tekna. að þeir hafa boðað almenningi kenn-
ingu sína, „auglýst" hana, ef svo má til orða
taka Það skýtur skökku við, þegar marxsinn-
ar ásaka þá fyrir það (eins og Einar Már gerði
í Þjóðviljanum.) Eða eru marxsinnar ekki
sammála Marx um það, að færa eigi heim-
spekina til fjöldans?
Réttur einstaklingsins gegn rikinu
Aron lauk bók sinni á þessum orðum „Við
skulum vona, að efasemdamönnunum fjölgi,
ef því fylgir, að ofstækmu linni " Og frönsku
heimspekingarnir hafa breytzt úr ofstækis-
mönnum i efasemdamenn En öll vopn eru
tvieggjuð, efinn líka Hann getur orðið að
efatrú, hóflausri einstaklingshyggju og geð-
þóttakenningu, öllu skynsamlegu mati verð
mæta er hafnað Skynsemistýran er að
sönnu dauf, en hana verður að nota, svo
langt sem hún nær, halda verður skynsemis-
hyggjunni, þó að skynsemistrúnni sé hafnað
Fleira má nefna i kenningu þeirra, sem er
varasamt og vandmeðfarið (eins og geðþótta-
skilningur Jónasar er til vitnis um): Frönsku
heimspekingarnir eru andstæðingar allrar
hugmyndafræði, og hugmyndafræði fyrir-
myndarskipulagsins kemur vitanlega engum
við nema kreddumönnum, en allir menn hafa
lifsskoðanir, einhver viðmið í stjórnmálum
Og viðmið frjálslyndra manna, sem kalla má
„hugmyndafræði" þeirra, er það, að hver
maður fái að vera í friði með sina hugmynda-
fræði, geri hann ekki á hlut annarra Frönsku
heimspekingarnir gagnrýna allar stofnanir í
anda stjórnleysisstefnunnar, enda sé allt vald
— og við það styðjast stofnanir — af hinu
illa í rauninni eru margar siðferðilegar
forsendur stjórnleysisstefnu og frjálshyggju
hinar sömu, og á það benda frönsku heim-
spekingarnir, en fylgismenn frjálshyggju eru
raunsærri en stjórnleysingjar Sumar stofn-
anir eru ill nauðsyn Einhverjar reglur eru
nauðsynlegar til þess að tryggja rétt einstakl-
inganna í ófullkomnum heimi, og réttarrikið
og markaðskerfið („kapitalisminn") eru slík
reglukerfi Og núverandi kerfi á Vesturlönd-
um kemst næst þessari hugsjón Skáldlegur
innblástur andófsmannanna í austri og
frönsku heimspekinganna er ágætur, en auk
þess er þörf reynsluvits hagfræðinga og
lögfræðinga Vesturlandamenn verða að hafa
þann húmanisma eða mannúðarstefnu að
leiðarljósi í stjórnmálum, sem sameinar anda
trúarinnar og bókstaf visindanna Og ég
JIYJU" HEIMSPEKINGMmiR
Kenning frönsku heimspeking
anna
Franska skáldið Albert Camus sagði i bók
sinni um stjórnmál. Uppreisnarmanninum,
að til væru tvenns konar glæpir ástríðuglæp-
ir og glæpir, sem framdir eru í nafni ein-
hverrar hugmyndafræði Tuttugasta öldin er
öld þessara hugmyndafræðilegu glæpa
Hryðjuverkanna i Buchenwald og Kara-
ganda Óp fórnarlambanna, sem slátrað er til
dýrðar byltingunni, skothvellirnir og
sprengjugnýrinn eru viðlög nútimans Og
verkefni fræðimanna er að reyna sð skilja
þessa glæpi, reyna að taka afstöðu til þeirra
Það reyna þessir frönsku heimspekingar, en
foringjar þeirra eru Bernard-Henri Lévy og
André Glucksmann Athyglisverðasta kenn-
ing þeirra er að mínu viti, að draumur
margra menntamanna um „vísindalegt" fyrir-
myndarskipulag verði að martröð alræðis-
ríkisins og að þýzku heimspekingarnir Fichte,
Hegel, Marx og Nietzsche séu hugmyndar-
fræðingar alræðisstefnunnar, en hvort
tveggja vissu reyndar allir hugsandi menn á
Vesturlöndum aðrir en franskir og þýzkir
menntamenn, sem verið hafa í vímu þessarar
hugmyndafræði Glucksmann spyr í bókinni
Matseljunni og mannætunni þeirrar spurn-
ingar, sem alla áhugamenn um nútímastjórn-
mál varðar Hvers vegna varð sósialisminn
að þeim óskapnaði. sem ráðstjórnarskipulag-
ið er? Og svar hans er, að kenning Marxs og
Leníns hafi falið kúgunma i sér, hún var
byltingarkenning. og án kúgunar var bylting-
in óframkvæmanleg — hin algera bylting,
sem gerir einstaklinginn að engu Ofbeldið,
sem var tæki. varð að tilgangi Að vísu réðu
einstaklingarnir (t d Lenin og Stalín) og
aðstæðurnar (t d innrás erlendra ríkja í Ráð-
stjórnarríkm á fyrstu árum þeirra) miklu um
hina sögulegu framvindu, en hugmynda-
sjálfir, hver og einn Og tilraunir, sem gerðar
eru til þess að smíða fyrirmyndarskipulag
eftir vinnuteikningum hugmyndafræðinQa,
mistakast, því að „mannkynið er gert úr
kræklóttum trjávið" eins og heimspekmgur-
mn og réttarsmninn Immanúel Kant kvað að
orði Skynsemistrúarmenn og skipulagsinnar*
telja mannsskepnuna tilraunadýr til kynbóta,
mannkynið leir, sem þeir megi móta að vild
sinni Þeir ætla að frelsa mannkynið með því
að fórna mönnunum Lévy hafnar slikri skyn-
semistrú, þrælskorðuðu skipulagi, sem frels-
un mannkynsins, en er fylgismaður hófsam-
legrar umbótastefnu án allsherjarkenningar
Hann og Glucksmann taka báðir afstöðu
gegn nýjasta ham sameignarsinna, „evrópu-
kommúnismanum," telja hann reyndar ekki
blekkmgarbragð Kremlverja. heldur.að skipu-
lagshyggja sósíalista fari ekki saman við
frelsi einstaklinganna
Nýjum orðum komið
að gömlum sannleik
Margir fremstu hugsuðir Frakka hafa sagt
hið sama og þessir frönsku heimspekingar, þó
að marxsinnar hafi til þessa verið áhrifameiri
i Frakklandi en i öðrum menningarlöndum
Nefna má kaþólska heimspekmginn Jacques
Maritain, Camus, félagsfræðinginn Raymond
Aron og rithöfundinn Jean-Francois Revel,
sem allir hafa ritað gegn alræðisstefnu
kommúnista og fasista Vandmn, sem hefur
orðið bæði Maritain og Camus að viðfangs-
efni, þó að þeir leysi hann hvor með sínum
hætti, er tómið, sem fylgir trúleysi margra
nútimamanna, missir algilds siðferðilegs
mælikvarða Maritain fmnur þennan siðferði
lega mælikvarða (eins og Solsjenitsyn) í
manngildishugsjón kristinnar trúar, einu
raunverulegu andstæðu alræðisstefnunnar
Margir menn taka trú á alræðisstefnur stjórn-
anum og á Þjóðviljanum Solsjenltsyns,
Karls Poppers, Friedrichs von Hayeks og
Artúrs Koestlers Popper telur Hegel og Marx
óvini hins „opna samfélags" Vesturlanda, en
háttur þess er rökræða, gagnrýni og visinda-
leg hugsun Popper, sem er eðlisfræðingur
og heimspekingur, er án efa rökvisasti gagn
rýnandi kenningar Marxs á þessari öld
Hayek, sem hlaut nóbelsverðlaunin í hag-
fræði 1974, er svarinn andstæðingur þess
áætlunarbúskapar og miðstjórnarkerfis, sem
er stjórnmálatakmark flestra sósialista, og
færði rök gegn sósialismanum i bókinni
Leiðinni til ánauðar Koestler var sam-
eignarsinni, en er efasemdamaður, enda hafa
engar byltingar eða stórbreytingar á stjórn-
skipulaginu náð tilgangi sínum að hans mati
Hann samdi Myrkur um miðjan dag, ágæt-
lega skrifaða skáldsögu um Moskvuréttar-
höldin 1938 og siðferðilegt gjaldþrot rúss-
nesku sósialistaforingjanna
Kenning „nýju" frönsku heimspekinganna
er því alls ekki frumleg, en margar ástæður
eru til þess, að hún vekur slíka athygli Ein
er, að flestir voru þeir róttæklmgar fyrir
fáeinum árum, efndu til óeirða, sungu bylt-
ingarsálma og hlóðu götuvigi eins og
franskra námsmanna er háttur Kenning
þeirra er til marks um það, að lýðræðislegar
stjórnmálaskoðanir eru að fá það fylgi
franskra menntamanna, sem þær hafa með
andans mönnum í Bretlandi og Bandaríkjun-
um, þar sem marxtrúarmenn eru taldir sér-
vitringar og ekki teknir alvarlega (En kynlegt
er það, að á sama tíma eru marxsinnaðir
furðufuglar að hreiðra um sig í Háskóla
íslands og klekja út kreddum ) Önnur ástæð-
an til athyglmnar er, að sú lausn þeirra á
sögulegum vanda sósíalismans, að í kenn-
ingu hans sé kúgunin falin, kemur sér illa
fyrir samstarfsflokkana tvo í Frakklandi,
held, að slikum húmanisma sé að aukast
ásmegin á Vesturlöndum Frönsku heim-
spekingarnir eru ekki einir um að gera upp-
reisn gegn forsjárstefnu, sem verður að al-
ræðisstefnu. Þeim hagfræðingum hefur fjölg-
að, sem gera gagnrýni Hayeks og Miltons
Friedmans á efnahagsstefnu alræðisrikja og
farsældarríkja nútimans að sinni, og lögfræð-
ingar og heimspekingar eins og Ronald
Dworkin og Robert Nozick hafa mjög eflt
réttarstefnuna að rökum Vegna sífelldra
réttarbrota er stef nútimastjórnmála að verða
réttur einstaklingsins gegn rikinu
Halldór Laxness
og frönsku heimspekingarnir
Frönsku heimspekingarnir eiga einn fyrir-
rennara á íslandi Hann er Halldór Laxness
Halldór var heltekinn af sömu staðleysustefn-
unni (útópismanum) árið 1928 og frönsku
róttæklingarnir árið 1968 og samdi Alþýðu
bókina, sigilda stefnuskrá hennar En hann
skipti um skoðun eins og þeir Hann er
orðinn efagjarn húmanisti, sem er ekki hrif-
inn af „hörundslausri tröllskessunni Byltíngu
sem vill mannblót" eins og segir í Kristni-
haldi undir Jökli Hann hefur hafnað öllum
draumum manna um paradísarheimt í þess-
um heimi, „sannleik voldugra stofnana,
vopnum studdra," talið marxsinna stunda
veraldleg trúarbrögð og kallað þýzka heim-
speki „orðagjálfur grillufángara" og land-
plágu" Og í Upphafi mannúðarstefnu kem-
ur hann orðum að því, sem reynt hefur verið
að segja í þessum samsetningi „Einsog ég
sagði, þá er húmanisminn eingin heimspeki,
heldur frjálsræði til að stunda hvaða tegund
heimspeki sem vera skal eða hafna öllum, og
þvisiður er hann rétttrúnaður eða alsherjar-
kenníng Æðstiprestur húmanismans er heil
brigð skynsemi."