Morgunblaðið - 17.09.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
23
■
Frá bladamannafundinum á fimmtudaf’, Gunnar Árnasun sálfr. lengst til vinstri, Kristján Sigurðsson
forstöðumaður annar frá ha'Kri.
U pptökuheímilið
í Kópavogi 5 ára
BRYNASTA verkefni í starfsemi
upptökuheimilisins í Kópavogi
(Unglingaheimili ríkisins) í das,
er að koma á fót heimili fyrir þá
unglinf>a, sem ekki hafa heimilis-
aðstæðu, þegar þeir yfirgæfu upp-
tökuheimilið, þar sem þeir ættu
að geta lifað eðlilegu heimilislífi,
og eru stjórnvöld nú að athuga
möguleika á stofnun slíks heimil-
is.
Þetta kom fram á fundi sem
starfsmenn Upptökuheimilisins
héldu á fimmtudag fyrir hlaða-
menn í tilefni þess að heimilið er
fimm ára um þessar mundir.
Markmið Upptökuheimilisins
er að gera unglingunum sem vist-
uð eru á heimilið kleift að aðlaga
sig þjóðfélaginu á ný, en það eru
ekki eingöngu unglingar sem lent
hafa í afhrotum, hcldur einnig
unglingar sem eiga í félagslegum
vandra'ðum.
Kristján Sigurðsson, forstöðu-
maður Upptökuheimilisins sagði
að um 7—8 unglingar dveldu á
heimilinu i senn, en mest tekur
það 10 manns. Þau eru frá 13—16
ára aldri, og mjög er misjafnt hve
lengi þau dvelja í einu, en það eru
yfirleitt nokkrir mánuðir.
Á Upptökuheimilinu er starf-
ræktur skóli og þar er stefnt að
•sama markmiði og í öðrum grunn-
skólum. Stór þáttur skólastarfsins
er að vinna bug á vanmetakennd
unglinganna, en við skólann
starfa tveir kennarar. A sumrin
er starfræktur eins konar vinnu-
skóli, en þá hafa vistmenn og
starfsfólk unnið að ýmsu, t.d. við-
haldi húsa og garðræktarstörfum.
Tvö siðastliðin sumur hafa ungl-
ingarnir átt kost á að stunda sjó-
mennsku og hefur það gefið mjög
góða raun, t.d. hafa sumir ung-
mennanna orðið sjómenn eftir
vistina á heimilinu.
Aðalábyrgð á unglingunum
hvílir á uppeldisfulltrúunum að
sögn Kristjáns, en þeir vinna á
vöktum allan sólarhringinn. Við
heimilið starfa einnig tveir sál-
fræðingar !4 hluta úr starfi, auk
kennaranna sem fyrr er getið, og
svo ráðskona, skrifstofumaður og
forstöðumaður, en yfirumsjón
með rekstrinum hefur þriggja
manna stjórnarnefnd.
Það er athyglisvert, að þessi
fimm ár sem heimilið hefur starf-
að, hefur það alltaf verið haft
opið, þ.e. að enginn er lokaður
inni. Sanit sem áður fara ungling-
arnir ekki út án þess að fá leyfi,
sem er ófrávíkjanleg regla. Ungl-
ingarnir geta þó fengið útgöngu-
bann þ.e. sem refsingu við aga-
broti.
A fundinum kom fram, að ,,bak-
grunnur" þeirra sem á stofnunina
kæmu, væri oft svipaður, t.d.
væru u.þ.b. 3/ af vistmönnum frá
þannig heimilum, að ekki væru
báðir kynforeldrar uppalendur,
og yfirleitt væru erfiðleikar á
heimilum unglinganna í æsku.
Skamnivistun heitir einn þáttur
í starfi Upptökuheimilisins í
Kópavogi, en það er lokað heimili
til húsa að Kópavogsbraut 9, og er
nær eingöngu notað sem þjónusta
við lögreglu, þ.e. komið er þangað
með unglinga sem lögreglan hef-
ur tekið úr umferð, t.d. vegna
ölvunar, svo og unglinga sem
grunaðir eru um afbrot, meðan
mál þeirra er rannsakað. Mun
fleiri unglingar koma við á
skammvistun en á Upptökuheim-
ilinu.
— Ég tel árangur af starfi
þessa heimilis góðan, og ég vil
taka fram, að það hafa ekki svo
margir verið i verulegum
vandræðum og ég hélt að myndi
verða við upphaf starfsins, sagði
Kristján Sigurðsson í lok fundar-
ins.
Starfsmenn og vistmenn á fundinum.
Ljosmyndir: KRISTINN
Islenzki þjóðsöng-
urinn var pantað-
ur í snarhasti
því enginn átti von á því að litla ísland
ætti möguleika á heimsmeistararatitli
('agnes. I<>. sepfemher.
frá IVIargeiri Péturssvni
fréttamanni !Vlhl:
í gang til þess að útvega
sér íslenzka þjóðsönginn
NÍUNDA umferðin i
heimsmeistarakeppni
unglinga var tefld í dag
og urðu úrslit hennar
mjög hagstæð f.vrir Jón
L. Árnason. Hann tefldi
með svörtu gegn John
Pajak frá Kanada og sigr-
aði Jón í aðeins 10 leikj-
um. Kanadahúinn missté
sig illa í bvrjuninni og
þegar hann hafði tapað
biskup gafst hann upp.
Þetta er langsstvsta skák
mótsins. Jón tefldi mjög
hnitmiðað gegn óná-
kvæmri b.vrjun andstæð-
ingsins og árangurinn
varð langstvsta skák
mótsins til þessa. Jóni
gekk allt í haginn í gær
því helstu andstæðingar
hans, þeir Garry Kaspar-
ov frá Sovétríkjunum og
Jay Whitehead frá
Bandaríkjunum gerðu
báðir jafntefli.
Bandaríkjamaðurinn
valdi óhagstæða byrjun
gegn Frakkanum Santo
Roman og stóð mun ver
er andstæðingur hans
sættist á jafntefli.
Kasparov átti hins vegar
í höggi við Moriwic frá
Chile. Kasparoc hafði
hvítt og fékk betri stöðu
eftir byrjunina en á
snjallan hátt tókst hinum
14 ára gamla Chilebúa að
bjarga sér í jafntefli.
Jón hefur því aftur tek-
ið einn forystu í mótinu
nú þegar aðeins tvær um-
ferðir eru til loka þess
meö 7Vi vinning af 10
mögulegum. Fast á hæla
hans fylgja Whitehead
og Kasparov með 7 vinn-
inga en í 4. sæti er nú
Morowic með 6 vinninga.
Kappe frá Vestur-
Þýzkalandi getur þó kom-
izt upp fyrir hann því
hann hefur 5'Æ vinning
og biðskák. Spennan í
mótinu er því farin að
færast í aukana. Nýr
heimsmeistari verður
krýndur á mánudaginn
og auðvitað vonum við
innilega að það verði Jón.
Mötshaldararnir eru í
það minnsta farnir að
búa sig undir lokaathöfn-
ina því þeir hafa sett allt
ef svo skyldi fara að Jón
hreppti titilinn. Líklega
verður þessu ekki bjarg-
að öðruvísi en að fá þjóð-
sönginn sendan frá ís-
lenzka sendiráðinu í
París. En þó við vonum
þaö bezta mega menn
ekki vera of sigurvissir.
Það eina sem vió getum
lofað héðan frá Cagnes er
að Jön mun berjast af
fremsta megni í tveimur
síðustu umferðunum og
freista þess að færa ís-
landi heimsmeistaratitil í
skák.
Ef tveir eða fleiri kepp-
endur verða efstir og
jafnir skera Sundeberg-
er-stig úr um röð, en þá
eru lagðir saman vinn-
ingar andstæðinganna.
Stendur Jón fremur illa
að vígi ef til þess kemur.
Hér á eftir kemur skák
Jóns frá í dag:
Hvítt: Pajak. Kanada.
Svart: Jón L. Arnason.
Sikileyjarvörn:
1. e4 — e5. 2. Ro3 — Re6, 3. f4
— e6, 4. Be4 — Rf6. (lakara er
4 ... Rge7 vegna 5. Dh5!) 5. d3
— d5!, 6. Bb3 — c4!, (óvæntur
oj> snjállur leikur 7. dxc4 yröi
svaraö meö 7 ... d4) 7. Ba4 —
Bb4, 8. exd5 — Dxd5!, 9. Dd2?
— (betra var 9. Df3) 9. ...
Bxc3, 10. bxc*3?? (Tapleikur.
NauösynU'Kt var 10. Bxc6+. Nú
tapar hvítur manni). 10. ... b5
og hér sá hvítur sér þann kost
va'nstan aö gefast upp.
* £ %
á á á á
4 í 4
i m ÉL á á
. ss
s at ha
a ± &
Þetta er stysta skák, sem Jón
hefur teflt og sú langstysta i
mótinu til þessa. Athyglisvert
er aó Jón notaði aðeins 40 mín-
útna umhugsunartima en hing-
að til hefur hann lent i tíma-
þröng í flestum skákanna.
Skákin stóð yfir í 2 tíma svo
þetta var nánast frídagur hjá
Jöni.
Líklegt er að andstæðingur
Jöns í 10. og næst siðustu urn-
ferðinni i dag verði Morowic.
Bygging dagheimilis
að hefjast á horni
Hagamels og Einimels
A N/ESTUNNI verður boðin út
bygging tveggja deilda dagheimil-
is, sem reist verður á horni Haga-
mels og Einimels. Ef hægt verður
að bjóða byggingu heimilisins út i
þessum mánuði er gert ráð fyrir
að það verði tilbúið til notkunar
seint á næsta ári.
Sveinn Ragnarsson, félagsmála-
stjóri Reykjavíkurborgar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
hið fyrirhugaða dagheimili væri
ætlað 34 börnum. ,,Það skortir
tilfinnanlega dagheimili í gamla
bænum. Það halda kannski marg-
ir að meiri þörf sé á dagheimili
annarsstaðar i borginni, en svo er
ekki. Hins vegar er tilfinnanlegur
skortur á leikskólum i Breiðholti.
1 vesturbænum er mikið af fólki
sem nýtur forgangs að dagheimil-
um, svo sem börn skólafólks,"
sagði Sveinn þegar hann var
spurður hvers vegna dagheimili
væri nú byggt í vesturbænum.
Þá sagði hann, að áherzla væri
lögð á að hraða útboði sem mest
og reynt yrði að bjóða út f.vrir lok
þessa mánaðar. Ef það tækist
mætti vænta þess að hægt yrði að
opna dagheimilið seint á næsta
Prestvígsla í
Akureyrarkirkju
Akureyri, l<>. septenibei*.
PRESTVÍGSLUMESSA veróur í
Akureyrarkirkju á sunnudags-
morgun og hefst kl. 10.30. Séra
Pétur Sigurgeirsson vigslubiskup
vigir Pálma Matlhíasson cand.
ári. Teikningar að heimilinu
liggja nú fyrir að sögn Sveins, en
byggt verður eftir staðlaðri dag-
heimilisteikningu frá mennta-
málaráðuneytinu.
theol, sem hefur verið settur
prestur i Melstaðaprestakalli í
H ú n a v at nspröf ast sdæm i.
Prestarnir séra Pétur Ingjalds-
son, séra Gisli Kolbeins. séra
Birgir Snæbjörnsson og séra Pét-
ur Þórarinsson munu þjóna fyrir
altari, en séra Bolli Gústafsson
lýsir vígslu, en vigsluþegi mun
flytja prédikun. —sv. p.