Morgunblaðið - 17.09.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
31
— Verzlunarráð
Framhald af bls. 15
frystum fiskflökum, sem eru ein
mikilvægasta útflutningsafuröin,
hafa fallið niður að fullu, svo og
tollur á fiskimjöli, rækjum,
hrognum og fleiri afurðum. Engir
tollar eru nú i viðskiptum milli
EFTA-ríkjanna nema varðandi Is-
land, en hjá okkur falla tollar á
innfluttum iðnaðarvörum ekki
niður að fullu fyrr en 1980.
Þrátt fyrir þennan merka
áfanga er enn verk að vinna á
sviði fríverzlunar. Við höfum
ekki staðið fyllilega við gerða
samninga um afnám innflutnings-
hafta og jafnvel aukið á innflutn-
ingshöftin, að vísu óverulega en
að ástæðulausu. Slíkt er ljótt til
afspurnar og skapar slæmt for-
dæmi fyrir aðrar þjóðir sem vildu
e.t.v. hefta okkar innflutning til
þeirra. Listinn yfir vörur háðar
innflutningsleyfum er enn til og
er allt of langur. Einnig þarf að
afnema, það sem eftir stendur af
innflutningseinokuninni: inn-
flutningseinkasölunnar. Það er
því enn verk að vinna á frí-
verzlunarsviðinu á meðan síðustu
leyfar innflutningshaftanna eru
enn við lýði.
Ef við víkjum að lokum að
skattamálunum. Hver er stefna
Verzlunarráðsins á sviði skatta-
mála?
Þau grundvallarsjónarmið, sem
Verzlunarráðið telur að fylgja
List frá Lettlandi
Sýning á bókaskreytingum (grafik), auglýsinga-
spjöldum og skartmunum eftir lenttneska lista-
menn er opin í Bogasal Þjóðminjasafnsins laug-
ardag og sunnudag kl 14 — 22 báða dagana.
Síðustu sýningardagar.
MÍR.
Vorum að taka upp barna-
kuldaskó og götuskó
„Arauto
//
Portugal
KULDASKQR
Stærð 22—33
Litið rauðbrúnt.
Verð frá 5.975 —
Stærð 22—36.
Póstsendum
Skóglugginn hf.,
Hverfisgötu 82
sími 1 1 788.
G0TUSK0R
Teg. 4
Stærðir 24—30.
Litur rauðbrúnt.
Verð frá 3.915.—
Stærðir 24—
Litur rauðbrúnt.
Morgunblaðið óskar
eftir blaðburóarfólki
Austurbær: Lindargötu,
Vesturbær: Vesturgata, lægri
númer. Skerjafjörður sunnan
Flugvallar I og II
Úthverfi: Laugarásvegur, hærri
númer. Selás.
Upplýsingar í síma 35408
eigi i skattlagningu atvinnu-
rekstrar, eru einkum þessi:
1) Að skattlagning atvinnu-
rekstrartekna dragi ekki úr arð-
samri fjárfestingu og hagvexti.
2) Að atvinnuvegunum og rekstr-
arformum fyrirtækja sé ekki mis-
munað í skattlagningu.
3) Að skattar séu almennir, hlut-
lausir og skekki ekki atvinnu-
starfsemi þjóðfélagsins frá því
fyrirkomulagi, sem frjálst mark-
aðshagkerfi ákveður.
4) Að verðrýrnun peninga valdi
ekki ofsköttun.
5) Að af sama skattstofni sé
greiddur sami skattur og ekki oft-
ar en einu sinni.
Það mætti telja upp fleiri sjón-
armið, sem rikja ættu við skatt-
lagningu atvinnurekstrar, en
þessi eru mikilvægust.
Er þessum grundvallarsjónar-
miðum fylgt í núgildandi skatta-
lögum?
Nei, það má auðveldlega finna
dæmi þess að öll þeirra séu i
meiri eða minni mæli brotin. Að-
stöðugjaldið er bezta dæmið, en
önnur má finna. Sumir atvinnu-
vegir greiða t.d. launaskatt aðrir
ekki. Hin ýmsu rekstrarform at-
vinnurekstrar greiða ekki sama
hlutfall tekna i tekjuskatt. Verð-
bólgan veldur ofsköttun, sérstak-
lega vegna reglna um mat vöru-
birgða og meðferð afskrifta. Mis-
munun í greiðslu söluskatts
stendur í vegi fyrir örum vexti
verksmiðjuframleiðslu húsein-
inga en jafnframt skekkir sölu-
skatturinn atvinnustarfsemina á
ýmsa lund. Fyrirtæki annast t.d. í
auknum mæli prentun og viðgerð-
ir í stað þess að kaupa hana frá
öðrum á hærra verði vegna sölu-
skattsins. Þannig mætti lengi
telja.
Hver eru helztu verkefnin, sem
vinna þarf að í skattamálum at-
vinnurekstrar?
Mín skoðun er sú, að það þurfi
að endurskoða og endurskipu-
legggja skattlagningu atvinnu-
rekstrar frá grunni. Ekki endi-
lega í þeim tilgangi að lækka álög-
ur á atvinnureksturinn, þótt það
geti verið æskilegt í ýmsum tilvik-
um, heldur fyrst og fremst til þess
að gera skattlagninguna réttlát-
ari. Að þvi þarf að vinna.
Verzlunarráðið hefur nú starf-
að í 60 ár, sem heildarsamtök
viðskiptalífsins, á tímum örustu
atvinnuuppbyggingar í sögu
landsins. Ertu bjartsýnn á fram-
tfðina?
Á undanförnum áratugum
hefur vissulega átt sér stað gífur-
leg uppbygging á flestum sviðum
eins og við getum séð allt í kring-
um okkur. En við höfum einnig
fjárfest mikið i menntun lands-
manna. Við ráðpm yfir góðri al-
mennri menntun og verðmætri
sérþekkingu. Þessa þekkingu
verðum við að nýta til hins ítr-
asta. Við verðum að leyfa lands-
mönnum að njóta sín og nýta
hæfileika sína i atvinnulífinu, en
megum ekki láta stjórnvöld og
misvitra haftakónga hefta fram-
tak og dugnað landspianna með
óæskilegri frelsisskerðingu.
Ef við tileinkum okkur þá at-
vinnustefnu, að byggja upp
traust, heilbrigt og umfram allt
frjálst atvinnulif, munu eðlilegar
og örar framfarir eiga sér stað i
atvinnulífinu og þjóðin búa við
batnandi lifskjör. Ef við höfum
frelsið að leiðarljósi, mun okkur
vegna vel.
— Bókmenntir
Framhald af bls. 18
vinna sem skapar meistarann.
Mjög vönduð og eiguleg sýn-
ingarskrá er með þessari yfir-
litssýningu á verkum Al-
copleys. A henni er aðeins einn
galli: það er svo smátt letur á
þeirri skruddu að menn, sem
komnir eru á minn aldur og
reyna að notfæra sér hana i því
ljósi sem á Kjarvalsstöðum er,
lenda i vandræðum. Þessi sýn-
ing er annars svo merkur við-
burður i menningarlífi borgar-
innar að ég vil helzt skylda
borgarbúa til að heimsækja
Kjarvalsstaði og kynnast verk-
um eins af hinum frægu
tengdasonum Islands. En hér
áður og fyrr sögðu gárungarnir
að Reumert væri tengdasonur
Islands. Siðan kom Ashkenazy,
og þá er rökrétt að bæta Al-
copley í hópinn. Hafi hann
þakkir fyrir komuna að þessu
sinni, og vonandi verður þetta
ekki í einasta sinn sem við fá-
um að sjá verk eftir Alcopley
hériborg. Valtýr Pétursson.
— Jónatan
Framhald af bls. 14.
þá ekki ónýtt að fræðast af hon-
um um þá, sem hann hafði virt
þess að átta sig vel á og mynda sér
skoðun um.
Um nokkurra ára skeið vann
Jónatan á Pósthúsinu í Reykja-
vik, en síðar var hann um skeið
unglingakennari á Skagaströnd.
Nú hefur hann um árabil háð
hetjulega baráttu við alvarlegan
heilsubrest, og hefur hann lengi
verið i Asi i Hveragerði. Kemur
honum nú eflaust i góðar þarfir
hversu víða hann getur borið nið-
ur á akri mennta og lista, sjálfum
sér og öðrum til ánægju. En trú-
lega yljar hann sér lengst og mest
við ljóðagerð og tónlist.
Um árabil átti Jónatan álitlega
syrpu ljóða, sem nægt hefði i
þokkalegt ljóðakver. Hann fór sér
þó að engu óðslega og mun seint
hafa fundizt sem hann hefði lagt
þar siðustu hönd á allt. Loks kom
frá honum 1975 lítil bók Dverga-
skip. Þar ritar gamall samferða-
maður hans úr Háskóla tslands
þessi inngangsorð, sem ég leyfi
mér að tilfæra:
„Ljóðlistin hefur gengið eins og
rauður þráður gegnum islenzkt
þjóðlif frá upphafi. Hún hefur
bætt mönnum upp fátækt og
gleðisnautt líf, sefað sorg og
læknað mein. Kvæðin i þessari
bók eru ort af sömu nauðsyn og
löngum hefur legið til grundvall-
ar íslenzkum skáldskap, þau hafa
veitt höfundinum dýrmæta sköp-
unargleði, svo að hann getur tekið
undir með skáldinu sem sagði,
eiginlega lifði ég aðeins þegar ég
orti.“
Ég og minir færum Jónatan
æskuvini mínum innilegustu
hamingjuóskir á þessum merkis-
degi i lífi hans og óskum þess, að
ökomin ár reynist honum ánægju-
legri en undanfarin ár erfiðleika
og heilsubrests.
Bergsteinn Jónsson.
— Minning Árni
Framhald af bls. 30
Brimið og stormgnýrinn segir
honum nóg, að erfitt muni um
landtöku. Allt þetta skynjar hann
frekar en að hann sjái, þvi sjónin
er svo til engin. Smátt og smátt
liður hann burt og myndin máist
út. Vindinn og brimið lægir og
eftir stendur lognsær sem hjalar
við sker og boða. Og inn i þennan
ramma streyma hugljúfar minn-
ingar um atburði liðinna ára, um
hann sem stóð á Kambinum, Arna
í Akri. Og umgerðin er jafnfögur,
Eyrarbakki og fólkið þar, sem
hann bjó með öll sin 93 ár.
E. 0, hve sæll er sá, er treysti
Sínum guði hverja tið! Hann á
bjargi hús sitt reisti, Hræðist ekki
veðrin strið; Hann i allri segir
sorg; Sjálfur drottinn min er
borg; Náð og fullting hans mig
hugga, Hans ég bý í verndar
skugga.
2. I það skjól vér flýjum, faðir,
Fyrst oss þanað boðið er; Veginn
áfram göngum glaðir, Glaðir, þvi
vér treystum þér. Ein er vonin
allra best, A þér sjálfum byggð og
fest, Að þú sleppir engu sinni Af
oss kærleikshendi þinni.
(Sálm. 389).
Þórarinn G. Sigurjónsson.
Croft - A rd well
9^ TÆKI
Við kynnum Croft Ardwell 320
réttinga og rafhjitunartæki í
fyrsta sinn á íslandi.
Tækið er notað til réttinga á
litlum skemmdum á bifreiðum.
Auðvelt er að rétta skemmdir,
sem eru á stórum flötum t.d
hurðum, toppum o.fl. án
ikveikjuhættu og án þess að
taka klæðningu úr.
Tækið vinnur bæði á þunnum
og þykkum málmi.
Við sýnum Croft Ardwell tæki og
meðferð þess á sunnudag 18.
september kl 14 til 16 í Skeif-
unni 1 7.
Þ. Jónsson & Co
Skeifan 1 7. Rvík.
Símar 8451 5 — 84516.