Morgunblaðið - 17.09.1977, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
ÚRSLITALEIKURINN í
2. DEILD Á LAUGAR-
DALSVELLINUM í DAG
1 DAG FER FRAM A Lauj-ardals-
vi'IIinum úrslilaleikurinn í 2.
deiid lslandsmólsins í knatt-
spyrnu. Mætast þar liöin tvö sem
þegar hafa tr.VKst sér keppnisrétt
í 1. deild tslandsmotsins næsta
sumar, Þróttur, Reykjavík, «k KA
frá Akureyri, en lið þessi eru jöfn
að stigum fyrir leikinn i das, hafa
ba-ði hlotið 27 stig. Markahlutfall
þeirra er einnig mjöf; svipað, KA
hefur skorað 5.‘l mörk en fen;;ið á
sig 23, en Þróttur hefur skorað 41
mark gegn 15. Má ætla, eftir
frammistöðu liðanna í deildinni í
sumar, að þau séu mjög áþekk að
styrkleika, en þegar þau mættust
á Akureyri í fyrri umferðinni
vann Þróttur þó öruggan sigur.
Leikurinn á Laugardalsvellin-
um hefst kl. 14.00 í dag, og má
búast við að áhangendur liðanna
fjölmenni og hvetji sína menn.
Aðrir leikir í 2. deildar keppninni
um helgina verða eftirtaldir:
Á Isafirði leika heimamenn við
Þrótt frá Neskaupstað og hefst sá
leikur kl. 14.00. Á Selfossvelli
mæta Selfyssingar Völsungum
frá Húsavík og á Arskógsvelli
kveðja Reynismenn 2. deildina að
sinní með leik við Armenninga.
Sá leikur á að hefjast kl. 16.00.
HEIMSMET í
MARAÞON-
HLAUPI
VESTUR-ÞÝSKA stúlkan Christa
Vahlensieek setti nýtt heimsmet í
maraþonhlaupi kvenna er hún
hljóp á 2:34:47,5 klst. i keppni
sem fram fór í Vestur-Berlín um
helgina. Bætti hún þar með eldra
heimsmetið um 28. sekúndur, en
það var í eigu frönsku stúlkunnar
Chantal Laglac. 1 karlahlaupinu í
Berlín varð Guenter Mielke sigur-
vegari, hljóp á 2:15:18,2 klst.
Tvö lið hafa þegar lokið leikjum
sínum í 2. deildar keppninni,
Reynir frá Sandgerði og Haukar.
Haukar urðu í þriðja sæti í deild-
inni, og voru raunar óheppnir að
blanda sér ekki í baráttuna um 1.
deildar sætið á lokasprettinum.
Töpuðu Haukar aðeins einum leik
í deildinni í sumar, en gerðu hins
vegar 8 jafntefli. Reynisliðið sem
kom upp úr 3. deild í fyrra hefur
staðið sig framar öllum vonum í
keppninni í ár og hlaut það 15
stig. Hið sama má segja um Norð-
fjarðar-Þrótt, sem kom upp i
fyrra og heldur örugglega sæti
sínu í deildinni, er kominn með
14 stig eftir 17 leiki.
Staðan i 2. deild Islandsmótsins
í knattspyrnu fyrir leikina i dag
er þessi:
KA 17 13 1 3 53 —23 27
Þróttur R 17 12 3 2 41 —15 27
Haukar 18 9 8 1 33 —15 26
Ármann 17 9 3 5 27 — 19 21
IBÍ 17 5 7 5 20 —23 17
Reynir S 18 5 5 8 24- -31 15
Þróttur N 17 5 4 8 23 —30 14
Völs-
ungur 17 4 5 8 23 —33 13
Selfoss 17 2 3 12 13 —39 7
Reynir A 17 1 3 13 16—45 5
Markhæstu leikmennirnir í 2.
deild eru eftirtaldir:
Páll Ölafsson, Þróttur R 20
Gunnar Blöndal, KA 15
Armann Sverrisson, KA 14
Ólafur Jóhannesson, Haukum 13
llafþór Helgas., Völsungi 10
Sigbjörn Gunnarsson, KA 10
Örnólfur Oddsson, IBI 8
Sigurður Aðalsteinsson,
Haukum 7
Ari Arason, Reyni S 6
Halldör Arason, Þrótti R 6
Helgi Benediktss., Þrótti N 6
Magnús Jónatanss., Reyni A 6
Þorgeir Þorgeirss., Þrótti R 6
Björgúlfur Baldurss., Þrótti N 5
Halldór Arason, Þrótti R 5
Jón Hermannss., Armanni 5
Ómar Torfason, IBÍ 5
Pétur Sveinsson, Reyni S 5
Þráinn Ásmundss., Armanni 5
Bað hann um að fá að fara út til
keppninnar eftir hádegi, sem að
sjálfsögðu var auðsótt mál.
Þátttökugjald í keppninni í dag
er mikið, eða 4000 krónur, en
ágóðanum af mótinu verður vel
varið, til Kópavogshælis og
íþróttafélags lamaðra og fatlaðra.
Auk hins glæsilega golfsetts, sem
keppt verður um, verða veitt góð
aukaverðlaun frá MeGregor-
umboðinu, en af þeirri tegund er
golfsettið frá Nicklaus.
TILKYNNTIUM ÞÁTTTÖKU
í NICKLAUS-MÓTINU
LANGT SUNNAN ÚR HAFI
SVO VIRÐIST sem mikil þátttaka
a'tli að verða í golfkeppninni um
golfsetl það sem Jack Nicklaus
gaf í fyrrahaust. Hefst keppnin
klukkan 9 fyrir hádegi í dag á
Nesvellinum en einnig verður
ræst út klukkan 13.00. A morgun
hefst keppnin klukkan 9, en
leiknar verða 36 holur eftir svo-
nefndu Stableford-punktakerfi.
1 gær bárust Kjartani L. Páls-
syni, framkvæmdastjóra Nes-
klúbbsins, þátttökutilkynningar
frá kylfingum viðs vegar að af
landinu. Sumir sem tilkynntu
þátttöku í gær voru þá ekki einu
sinni á þurru landi. Þannig hafði
loftskeytamaðurinn á Arna Frið-
rikssyni samband við Kjartan í
gær og tilkynnti um þátttöku
sína. Maðurinn er enginn annar
en Óskar Sæmundsson, sigurveg-
ari i „Icelandic Open“ fyrr i sum-
ar. Var Arni Friðriksson talsvert
suður af Eyjum, en Óskar sagði að
strikið hefði þegar verið tekið á
Reykjavík og reiknaði Óskar með
að vera í landi um hádegisibilið.
Malmö FF með
góða forystu
MALMÖ FF hefur nú svo gott
sem tryggt sér sænska meistara-
titilinn í knattspyrnu annað árið í
röð. Eftir 20 leiki var liðið komið
með 31 stig, 5 stigum meira en
liðið sem var í öðru sæti, Elfs-
borg, og hafði það þó leikið einum
leik fleira. 1 þríðja sæti í deild-
inni er svo Landskrona með 25
stig en síðan koma Kalmar með 24
stig, Norrköping með 24 stig,
Halmstad með 22 stig, Öster með
21 stig, Örebro með 20 stig, Göte-
borg með 20 stig, Hammarby með
20 stig, Sundsvall með 17 stig,
AIK með 16 stig og á botninum
eru Djurgaarden með 15 stig og
Derby með 11 stig.
í 2. seild — suðurdeildinni þar
sem lið íslendinganna leika er
staðan sú að Atvidaberg hefur
náð góðri forystu og er liðið með
32 stig eftir 21 leik. Atvidaberg
lék um síðustu helgi við Jönköp-
ing, lið Teits Þórðarsonar og fóru
leikar svo að Jönköping sigraði í
leiknum 1:0. Var þetta annar tap-
leikur Átvidabergs á þessu
keppnistímabili. Jönköping er nú
í fimmta sæti i deildinni með 22
stig, Halmia, leið Matthíasar Hall-
grímssonar, er í 10. sæti með 20
stig og Norrby, Iiðið sem Vil-
hjálmur Kjartansson leikur með,
er í 11. sæti með 19 stig.
Sapporo sækir
um OL1984
Borgarstjórn Sapporo í Japan til-
kynnti nýlega að hún hygðist sækja
um að halda vetrarólympiuleikina
1984. Sem kunnugt er voru leikarnir
haldnir i Sapporo 1972, og þá var
lagt i mikla mannvirkjagerð þar.
Þðtti framkvæmd Japananna á leik-
unum til mikillar fyrirmyndar, og er
ekki ótrúlegt að þeir fái leikana að
nýju, enda fáir staðir sem telja sig
tilbúna að halda þá.
Nicklaus á Nesvellinum 1 fyrra-
sumar. umkringdur áhugasömum
áhorfendum. Golfkylfurnar sem
hann sveiflaði svo fagurlega á
sýningu sinni verða verðlauna-
gripir í keppninni um helgina, og
meðal þeirra sem keppa um þær
er Óskar Sa'mundsson, sem er til
vinstri á þessari mynd (með
myndavél í höndunum)
MUNAÐIMJÚU
Þarna munaði mjóu. Myndin er úr leik Vals og írska liðsins Glentoran í
Evrópubikarkeppni meistaraliða á Laugardalsvellinum i fyrrakvöld.
Eftir fyrirgjöf kastar Guðmundur Þorbjörnsson sér aftur og spyrnir
,,hjólhestaspyrnu að marki íranna. Lenti knötturinn í einum Glentor-
an-leikmanninum, á marklínunni, en þegar þetta skeði var írska liðið
komið með fjóra „markmenn". Sá sem stendur i irska markinu var sá
leikmanna Glentoranliðsins sem hafði sig hvað mest í frammi í
leiknum og var greinilega fullnuma i grófustu brögðum knattspyrnunn-
ar. Gaf hann Valsmönnum i skyn, að þetta væri ekkert hjá þvi sem
þeirra biði i írlandi. Vonandi er að Valsmenn nái þar að fylgja sigri
sínum á Laugardalsvellinum og komist i aðra umferð Evrópubikar-
keppninnar. Verður það þó ugglaust erfitt, þar sem irska liðið hefur
náð mjög góðum árangri á heimavelli í Evrópukeppninni.