Morgunblaðið - 17.09.1977, Page 40
AH.I.YSIV,ASI.MINN ER:
22480
\I'ííLV'SINí;ASIMINN ER:
22480
JHorjjunblníiiíi
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
RÉTTARGLEFSA — Fari knapinn á myndinni síðar
meir í göngur finnur hann sér trúlega annan farar-
skjóta. Myndina tók Friðþjófur í Mælifelli í Skagafirði
á miðvikudaginn, sjá nánar á blaðsíðum 20 og 21.
Síldin:
Mikil vinna og
bátum vísað frá
AGÆT síldveiði var hjá
reknelahátum frá Horna-
firði aftur í gær og barst
svipaður afli á land og dag-
inn áður eða um 2000
tunnur.
Geysileg vinna er nú á Höfn ok
unnið fram á kvöld oj> nólt hjá
báðum söltunarstöðvunum auk
frystingar í hraðfrystihúsinu.
Var í gær saltað í um 500
tunnur hjá nýju söltunarstöðinni,
Stemmu, og í um 1200 tunnur hjá
Ilöfðastöðinni. Þá er þegar búið
að frysta um 600 tunnur af síld á
Höfn.
Nú er svo komið á Itöfn að
vinnslan hefur ekki undan að
taka á móti síldinni, og varð í gær
að visa bátum frá, sem annað
hvort verða þá að sigla á
einhverja Austfjarðarhafna eða
vestur um með suðurströndinni
og þá helzt til Þorlákshafnar, þar
sem ekkert er saltað í Vestmanna-
eyjum.
Horfur á að háhyrn-
ingsveiðarnar tefjist
FRANSKI háhyrningafangarinn
le Grandier er orðinn svartsýnn á
að honum verði mikið ágengt nú í
ár í þeirri viðleitni sinni að ná í
háhyrninga handa sædýrasöfnum
í útlandinu, að því er hann sagði í
samtaii við Morgunblaðið í gær.
Frakkínn kvaðst vera stranda-
glópur í Vestmannaeyjum, þvi að
þar væri bátur sá sem hann hefði
leigt til háhyrningsveiðanna
Hafnarnesið bundinn við bryggju
vegna vélarbilunar en allt væri að
öðru leyti til taks til að hefja
veiðarnar hinn 20. september,
eins og leyfilegt væri.
Vegna þessarar vélarbilunar
kvaðst Frakkinn hafa átt i útistöð-
um við Sjóvátryggingarfélag Is-
lands, sem heitið hefði því að
senda þeim skoðunarmenn eh í
gær hefðu þau svör borizt að það
gæti ekki orðíð fyrr en einhvern
tima í næstu viku. Væru því allar
líkur á því að verulegar tafir gætu
Tveir með
loðnuafla
TVKIR loðnubátar tilk.vnntu um
afla í gær, Huginn með 400 lestir
og hélt hann rakleiðis til löndun-
ar f einhverri Faxaflóahafna, og
Rauðsey með 160—170 tonn.
Töluvert þróarrými er nú aftur að
opnast í Siglufirði og gæti þar
verið komið 5—6 þúsund tonna
rými um og eftir helgina. Tveir
bátar biðu löndunar í Siglufirði í
gær.
orðið á því að unnt yrði að hefja
veiðarnar og allt eins gæti svo
farið að hann yrði að hverfa héð-
an án þess að hafa fangað einn
einasta háhyrning.
Laxveiðin:
Góð nyrðra
og eystra,
lakari suðvestanlands
NIÐFRSTÖÐUR um laxveiðina í
sumar liggja enn ekki fyrir, að
sögn Þórs Guðjónssonar veiði-
málastjóra, þar sem veiðibækur
eru enn ekki farnar að berast
stofnuninni og reyndar laxveiði
rétt um það bil að Ijúka núna í
mörgum ám.
Þór sagði þó, að eftir þvi sem
bezt yrði séð hefði veiðin verið
mjög góð rtorðanlands og austan,
t.d. hefðu komið 2500 laxar upp í
Miðfjarðará, sem væri algjört
metár og veiðin þar hefði jafnan
áður verið innan við 2000 laxar.
Einnig hefði verið góð veiði í
Laxá í Þingeyjarsýslu, Víðidalsá
og Vopnafjarðaránum eftir því
sem fregnir hermdu.
Hins vegar hefði veiðin verið
tregari hér sunnanlands og vest-
an, veiðin í Elliðaám t.d. verið
innan við meðallag og einnig
hefði veiði í Borgarfjarðaránum
verið minni en i fyrrasumar.
Jón L. Árnason í samtali við Morgunblaóið:
„Fer næstum útkeyrd
ur í lokabardagann”
— en er ákveðinn í því að gera mitt bezta
Cagncs. Frakklandi.
16. seplombcr
frá iVIargciri Fólurssyni.
fréttaritara >11)1:
— EG ER að sjálfsögðu mjög
ánægður með skákirnar mínar
á þessu móti, allar nema tap-
skákina gegn Kasparov. Þó
finnst mér að ég hafi oft teflt
betur en á þessu móti, sagði
Jón L. Arnason skákmaður,
þegar Morgunhlaðið ræddi við
hann að lokinni níundu um-
ferðinni á heimsmeistaramóti
unglinga yngri en 17 ára. Jón
vann Pajak frá Kanada í aðeins
10 leikjum f gær á meðan
helstu keppinautarnir, Kaspar-
ov frá Sovétríkjunum og
Whitehead frá Bandaríkjunum
gerðu jafntefli. Hefur Jón l'/i
vinning þegar tveimur umferð-
um er ölokið en Kasparov og
Whitehead hafa 7 vinninga.
Jön á því töluvert mikla mögu-
leika á því að hreppa heims-
meistaratitilinn. Nánar segir
frá níundu umferðinni á bls. 23
í blaðinu í dag.
— Ég fann mig aldrei í skák-
inni gegn Kasparov, sagði Jón.
Mér urðu strax á mistök í byrj-
uninni og eftir það jók hann
stöðugt yfirburðina jafnt og
þétt þar til ekki var um arinað
að ræða fyrir mig en gefast
upp. Ég var aðeins ánægður
með eitt í þeirri skák og það var
að hún skyldi ekki fara í bið. Eg
hafði fengið fjórar biðskákir í
röð fyrir þessa skák og álagið
var orðið allt of mikið. Einn
daginn tefldi ég t.d. í 10
klukkustundir og þegar því var
lokið þurfti ég að rannsaka erf-
Framhald á bls. 22.
Ýsan
veidd í
of smá-
ridin
net?
LANDHELGISGÆZLAN hefur
fengið beiðni um að kanna hvort
ýsuveiðar í of smáriðin net eigi
sér stað á grunnslóðum í ná-
grenni höfuðborgarsvæðisins.
Landhelgisgæzlan hefur fengið
upplýsingar um, að í fiskhúðum
hafi verið á boðstólum mjög smá
netaýsa, sem Ijóst sé að fengizt
hafi í net með of litla möskva, en
að því er Þröstur Sigtryggsson
skipherra tjáði Mbl. í gær hefur
könnun Landhelgisgæzlunnar
ekki leitt neitt athugavert í Ijós
enn sem komið er.
Bátar hafa undanfarið fengið
mjög góðan ýsuafla í næsta ná-
grenni Reykjavíkur — milli Eng-
eyjar og Kjalarness — og rétt
fyrir utan Hafnarfjörð og víðar
hefur orðið vart við töluvert mik-
ið af ýsu. Að því er Ólafur Karvel
Pálsson fiskifræðingur sagði í
samtali við Morgunblaðið má telja
víst að hér sé um 4ra ára ýsu að
ræða, en sá árangur er óvenju
traustur og veiðist nú víða tölu-
vert af þessum fiski, t.d. bæði út
af Vestfjörðum og Norðurlandi.
Nefndi Ólafur, að í fyrradag hefði
Vestfjarðatogárinn Páll Pálsson
til að mynda landað 80 tonnum af
fallegri ýsu einvörðungu.
Sedlabankinn:
Útlán ýmissa innlánsstofn-
ana verda að dragast
saman fram til áramóta
ÚTLANAAUKNING viðskipta-
bankanna, að frádreginni endur-
sölu, varð 26,5% fyrstu átta mán-
uði þessa árs, en í upphafi ársins
var gert ráð fyrir því að aukning-
in yrði ekki nema 20% á árinu. A
fundi Seðlabanka og við-
skiptabankanna urðu menn sam-
mála um að óraunhæft væri að
hækka útlánaþakið, sem sett var í
upphafi ársins og verður því leit-
ast við að halda aukningunni á
öllu árinu innan 20% rammans.
Af þessum sökum munu ýmsar
innlánsstofnanir verða að minnka
útlán sin töluvert það sem eftir er
ársins.
Frá þessu er skýrt í fréttatil-
kynningu frá Seðlabanka Islands
sem Morgunblaðinu barst i gær,
en þar er skýrt frá þessu sam-
komulagi. Fréttatilkynning Seðla-
bankans er svohljóðandi:
,,í upphafi þessa ,árs var gert
samkomulag um hámark útlána-
aukningar viðskiptabankanna á
árinu. Var samkomulagið i sam-
ræmi við heildarstefnu í lánamál-
um, sem mörkuð var í skýrslu
ríkisstjórnarinnar um lánsfjár-
áætlun fyrir árið 1977. Sk.vldi að
því stefnt, að útlán bankanna, að
frádregnum endurseldum birgða-
og rekstrarlánum til atvinnuveg-
anna, ykjust ekki meira en 20% á
þessu ári.
Tölur liggja nú fyrir um þróun
útlána til ágústloka og hefur
bankastjórn Seðlabankans haldið
fund með bankastjórnum við-
skiptabankanna og fulltrúa spari-
sjóðanna til að ræða um fram-
vindu og horfur á þessu sviði.
IJtlánaaukning viðskiptabank-
anna, að frádreginni endursölu,
Framhald á bls. 22.