Morgunblaðið - 18.12.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.12.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977 77 . .Pórshöfn Togari Þórshafn- arbúa sex mán- uði fr á veiðum í ár vegna bilana Jóhann A. Jónsson „ÞAÐ er hálfdapurlegt að hafa hér frystihús eins og þau gerast bezt, en sitja svo uppi með, senni- lega, lélegasta togarann í flotan- um. Togari er húsinu mikilvægur, raunar forsenda þess að það geti gengið eðlilega,“ sagði Jóhann A. Jónsson skrifstofustjóri Hrað- frystistöðvarinnar á Þórshöfn og aðstoðarframkvæmdastjóri húss- ins og togara útgerðarfélagsins, er Mbl. hafði tai af honum á Þórs- höfn nýverið. Jóhann sagði okkur að afli báta- flotans sem fyrir er á Þórshöfn hefði að verulegu leyti brugðizt siðustu tvö árin. Vantar í ár um þúsund tonn upp á að meðaltal áranna ’73 — ’74 — ’75 náist og var svo einnig f fyrra. „Togarinn hefur í ár borið á land 1485 tonn, og bátarnir 1422 í lok nóvember, en til að eðlileg atvinna sé í frysti- húsinu þarf það að fá um 4—5 þúsund tonn á ári,“ sagði Jóhann. Jóhann bætti við að með sæmileg- um bátaflota ættu að nást um 2 þúsund tonn af fiski og til að húsið nýttist vel þyrfti togarinn því að afla um 3 þúsund tonn á ári. „Húsið vantar í ár a.m.k. 1 þúsund tonn til að afkoma geti talizt þokkaleg, en þó mundi það vart nægja til að endar nái saman," sagði Jóhann ennfremur. Sex mánuðir f bilanir á árinu Jóhann A. Jónsson tjáði Mbl. að togarinn hefði átt við tíðar bilanir að striða frá þvf hann kom til Þórshafnar í ágústmánuði 1976. Hann sagði; „Hann gekk þokka- lega fram í nóvember í fyrra. Þá komst sjór i lest hans og var skip- ið frá veiðum allan desember. Hann er vart kominn á stað aftur um áramótin, því í febrúar varð önnur bilun í togaranum og var hann stopp út mánuðinn, veiddi aðeins 56 tonn í febrúar. I maí verður enn eitt óhappið og þegar togarinn bilar svo í lok ágúst hef- ur hann verið frá veiðum f um tvo mánuði það sem af var ári. Vart hefur hann því verið við veiðar i nema sex mánuði á árinu, hinn tfminn fer í bilanir og viðgerðir.” Fram kom hjá Jóhanni að togar- inn er ekki útbúinn fyrir veiðar með flottroll en slíkt veiðarfæri sagði hann hafa skipt sköpum fyrir mörg skip. Jóhann sagði að tiltölulega lftið hefði verið unnið i frystihúsinu frá lokum ágústmánaðar. Sagði hann að i húsinu sjálfu störfuðu upp undir 100 manns þegar það væri i fullum gangi. „Það þyrfti að stjórna fiskveið- um okkar og fiskvinnslu betur,” sagði Jóhann. „Meðan sumir staðir eru að kafna i fiski þá er ekkert unnið i dýrum húsum f næstu byggðum. Mætti dreifa lönduninni svolitið svo aflinn væri unninn meira i dagvinnu. Þetta er ekki gert og er fólk út- piskað myrkranna á milli i sum- um sjávarplássum meðan vinnslu- stöðvar í öðrum standa auðar”. Vinnsluborðin stóðu auð og yfirgefin þennan dag sem margra aðra i haust og vetur. hann. Þórir sagði það sína skoðun að hafa þyrfti fjölbreyttari samsetningu atvinnutækifæra í sjávarplóssum sem Þórshöfn. „Hér hafa mjög fáir framfæri af öðru en fiskveiðum og fiskvinnslu og þvi er ekki nema eðli- legt að allt atvinnulif sé hér lamað þegar fiskur berst ekki i land," sagði Þórir. Þórir Björgvinsson bætti þvi hér við að ráðamenn staðarins væru að hans mati afskaplega daufir fyrir öllu öðru en útgerðarmálum og væri það slæmt þvi ákaflega oft væri við lélegt atvinnuástand að glima á Þórshöfn. ÓNÝTUR TOGARI Þórir Björgvinsson sagði i spjallinu við Morgunblaðið að Þórshafnarbuar væru ákaflega vonsviknir með þann árangur sem orðið hefur af togaran- um Fonti. „Hann hefur verið okkur nokkuð dýr þessi bátur. Hann kom hingað i byrjun ágústmánaðar 1976 og hefur verið sibilaður frá þvi. Það var bráðónýtt skip sem keypt var, held ég megi segja. miðað við þá reynslu sem orðið hefur af honum. Togarinn var mjög illa farinn þegar hann var keyptur hingað, búinn að sökkva. öll tæki meira og minna ónýt. vélin í lamasessi. o.s.frv. Bæði er að við höfum ekki haft vit á þvi hvað við vorum að kaupa og einnig má segja að inn á okkur hefur verið platað bráðónýtu skipi. Ég tel sökina ekki liggja hjá forráðamönnum hér. heldur hjá stjórnvöldum landsins, þvi á sama tima og við vorum studdir af hinu opinbera til að kaupa þetta 8 ára gamla og illa útbúna skip á tæpar 400 milljónir þá stóð okkur til boða örlitið stærri 2ja ára togari á 240 milljónir í Noregi. Stjómvöld neituðu okkur um að eignast það skip. buðust i staðinn til að hjálpa okkur með að eignast það skip sem Framhald á bls. 94 .. .þess vegna berst enginn fiskur á land á Þórs- höfn og fer því engin flökun fram í frystihúsi staóarins, sem er nýtt og fullkomið... ÞAÐ VAR stöðugur straumur í atvinnuleysisskráninguna hjá Sigurði Jakobssyni á Þórshöfn þá dagparta sem tíðindamaður Mbi. staldraði við á Þórshöfn nýverið. Sigurður sagði okkur að frystihúsfólkið væri uppi- staðan ( skráningunni og að jafnaði hefðu 60 manns á dag skráð sig síðustu dagana. Hjá Sigurði fengum við þær upplýs- ingar að skráðir atvinnuleysis- dagar i nóvember hefðu verið Sigurður Jakobsson Æmmmmf £?* — .. .þar af leiðandi berst enginn fiskur inn á hreinsi-1 borðin né pökkunarborðin og f jöldi Þórshafnarbúa | þvf atvinnulaus. 822 talsins, 338 hjá körlum og 484 hjá konum. Daginn áður en við stöldruðum við hjá Sigurði skráðu 57 manns sig atvinnu- lausa, og sagði Sigurður að at- vinnuieysisdagar í desemher yrðu að lfkindum öllu fleiri en þeir voru í nóvember. Loks sagði Sigurður að talsvert væri af fólki á Þórshöfn sem stund- aði engin störf um þessar mundir án þess þó að það léti skrá sig til atvinnuleysisbóta. Sextíu manns eru nú atvinnulausir «... , * Kemur verr við konurnar Bodil Petersen, Kristín Þorsteinsdóttir og Oddný Matthíasdóttir (frá v. til h.) ásamt nokkrum barna sinna. SIGURÐUR í atvinnuleysis- skráningunni á Þórshöfn fékk ekki mörg tækifæri til að kveikja í pfpunni sinni, því vart var eitt hollið farið út úr dyrunum hjá honum er hið næsta kom inn. f einu slfku voru þær Oddný Matthíasdótt- ir, Kristfn Þorsteinsdóttir og Bodil Petersen. „Atvinnuleysið leggst frekar illa f okkur,“ sögðu þær. „Við finnum þó næg verkefni í stað- inn á heimilum okkar, en öllu betra væri að geta lagt eitthvað að mörkum við verðmætafram- leiðslu f stað þess að þurfa að þiggja atvinnuleysisbætur.“ Þær stöllur söðgu atvinnu- leysið á Þórshöfn koma öllu verr niður á kvenfólki, það hefði Iftið svigrúm til að fara til annarra staða í atvinnuleit þar sem konurnar væru flestar húsmæður. „Við verðum að vonast til að togarinn komist sem fyrst í lag og að hann byrji að koma með fisk strax um ára- mótin, bátarnir geta engan veg- inn séð öllu fólkinu fyrir nægri atvinnu,” bættu þær við. 1 spjallinu kom fram að at- vinnuástandið á Þórshöfn er viðmælendum vorum til ama, Oddný hefur fyrir þremur börnum að sjá, Bodil fyrir tveimur og Kristfn fyrir þrem- ur. Allir eru frekar daufir „ÞaS er búi8 að vera frekar litið a8 gera hjá okkur i vetur," sögSu þær Helga Haraldsdóttir, Stein- unn Björnsdóttir og Jónina Gu8- jónsdóttir á Þórshöfn er viS röbb- uSum vi8 þær um atvinnuástandiS á staSnum þegar þær komu frá þvi a8 skrá sig atvinnulausar á skrif- stofu hreppsins. Helga hafSi orð fyrir þeim stöll- um í rabbinu. „Það var sæmileg atvinna hjá okkur út október. en er bátarnir hættu að stunda sjóinn þvarr vinnan. Það eru allir frekar Helga Haraldsdóttir (t.v ), Steinunn Björnsdóttir og Jónina Guðjónsdóttir daufir yfir ástandinu hérna. Menn byggja vonir sinar á togaranum, vona að hann komi sem fyrst úr viðgerð og málin komist i betra lag," sagði Helga. Helga tjáði okkur að hún hefði fyrir sex manna fjölskyldu a8 sjá. Kvað hún það erfitt hlutskipti að vera atvinnulaus fyrirvinna. en menn reyndu þó að dunda sér eitthvað heima við til að stytta stundir og koma í veg fyrir leiða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.