Morgunblaðið - 18.12.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.12.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977 87 Minning: Bergsveinn S. Berg- sveinsson yfirvélstjóri F. 7. október 1906 D. 11. desember 1977 Þeim fækkar nú óðum þeim ís- lenskum sjómönnum, sem lifóu og tóku þátt i hinum stórstígu framförum sem urðu uppúr fyrri stríðsárunum að því er varðar skip og búnað þeirra. Margt hafði byggst á vana og hefð. Þessvegna, og aðeins þess vegna mátti ekki breyta. Skipsstjórnendur stóðu t.d. undir berum himni og pírðu augun uppi veðurofsann, ber- skjaldaðir fyrir öllum veðrum. Veðurbarðir og þreyttir af löng- um stöðum komu þeir oft til hafn- ar. 1 dag er setió á stólum, á skirtunni, inní heitum vistarver- um með radar og alls konar tæki til hjálpar. Þetta og svo margt fleira kemur í hugann þegar minnst skal Bergsveins yfirvél- stjóra. Og þó að hann stæði ekki í brúnni, þá er það vist að hliðstæð- ar framfarir áttu sér stað niðri i vél. En þar átti hann langa starfs- ævi. Bergsveinn hafði kennt van- heilsu um alllangt skeið, sl. sumar var hann á spítala af þeim sökum og þá mikið veikur. Ég hefi það á tilfinningunni að Bergsveinn hafi einhvernveginn ekki fundið sjálf- an sig, eins og sagt er, eftir að þeirri spítalaveru lauk. Svo var það að hann veikist skyndilega á heimili sínu laugardagskvöldið 10. þ.m. og lést hann örfáum stundum siðar á Borgarspítalan- um. Bergsveinn Sigurður var fædd- ur 7. október 1906 að Aratungu i Steingrímsfirði. Faðir hans var Bergsveinn Sveinsson bóndi þar, Kristjánssonar i Sunndal og konu hans Bjargar Ólafsdóttur frá Hellu (og Bakka) Bjarnasonar. Móóir Bergsveins var Sigríður Guðrún Friðriksdóttir. Um hana látna skrifaði tengdasonur henn- ar, Marinó L. Stefánsson eftir- mæli, sem um ieið lýstu svo vel lifi og afkomu fólksins á Strönd- um: ,,Hún fæddist á Drangavík á Ströndum. Sá bær er nú löngu kominn i eyði. Foreldrar hennar voru Friðrik Jóhannesson og Guð- björg Björnsdóttir. Þau eignuðust 11 börn. Fimm ára gömul var Sig- ríður látin í fóstur til Hallvarðs Jóhannessonar, föðurbróður síns i Skjaldabjarnarvik, og konu hans. Þarna á nyrsta bæ á Strönd- um, inn við Geirólfsgnúp ólst Sig- ríður upp og dvaldist þar þangað til hún var 22 ára. Mikil vinnu- harka var þarna, eins og víðast í þá daga. Hún smalaði og sat hjá, bar vatn langar leiðir í tréfötum í hvaða veðri sem var að vetrinum, var lánuð í fiskiróðra eða á sel- veiðar. Ef tveir kópar veiddust bar hún annan heim. Þegar hart var í búi á vorin borðaði fólkið stundum eingöngu rúgkökur, sem það dýfði ofaní hákarlalýsi.“ Sig- ríður náði þvi nú samt að verða 96 ára og nokkrum mánuðum betur. Á hinni kostarýru jörð, Ara- tungu í Steingrímsfirði bjuggu þau hjónin Bergsveinn Sveinsson og Sigríður Friðriksdóttir í 22 ár. Þar eignuðust þau 15 börn. Af þeim dóu 3 ung. En 12 komust til fullorðins ára, og er Bergsveinn sá, er fyrstur kveður úr hópnum þeim. Vandalaust hefur það ekki verið að sjá heimilinu í Aratungu borgið, þar sem bústofninn var ekki nema 25—30 ær og ein kýr. Töluvert hjálpaði að heimilisfað- irinn hafði nokkrar tekjur af barnakennslu, sem ekki var há- launað starf í sveitum landsins i þá daga. Systkinahópurinn frá Aratungu skal nú talinn upp í þeirri röð, sem börnin fæddust: Guðbjörg gift Marinó L. Stefánssyni kenn- ara í Reykjavik. Bergsveinn. dr. Sveinn prófessor í Berlín, var tvi- kvæntur. Jóhannes verkstjóri i Reykjavik kvæntur Kristínu Jónsdóttur. Hjálmfríður ljósmóð- ir gift Lárusi Guðmundssyni í Reykjavík. Guðlaugur lést 12 ára. Kristján lést 1 árs. Pétur iðn- verkamaður i Reykjavík kvæntur Björgu Aradóttur. Kristján sim- 'stjóri á Hólmavík kvæntur önnu Jónsdóttur. Olafur framkvæmda- stjóri í Reykjavík ókvæntur. Frið- rik lést vikugamall. Anna hús- freyja á Blesastöðum gift Magnúsi Guðmundssyni bónda. Ananias vélamaður á Akureyri kvæntur Brynhildi Þorleifsdótt- ur. Ragnar lögregluvarðstjóri í Reykjavík kvæntur Gyðu Jóns- dóttur. Og yngst er Guðný hús- freyja í Ólafsfirði gift Arngrimi Guðbjörnssyni verzlunarmanni. Niðjar Aratunguhjónanna eru nú samtals um 120 talsins, börn barnabörn og barnabarnabörn. Bæði voru hjónin komin á tíræðis- aldurinn er þau féllu frá hann 90 ára en hún 96 ára. Það er viss reisn yfir orðinu „Strandamaður". Óblíð veður við ysta haf — fjöll og björg i sjó fram; og hafið, sem um leið geymdi lífsbjörgina, allt þetta ógnaði lifi manna um aldir. Mann- líf á Ströndum fór svo sannarlega i deiglu. Hið máttvana og magn- litla beið ósigur og dó drottni sín- um. En úr henni kom hinn skiri málmur: sterkir ættstofnar. Bergsveinn var i foreldrahús- um til tvitugsaldurs og vann heimilinu allt sem hann mátti af miklum dugnaði. Þá lá leiðin til Isafjarðar og fór hann í læri í Vélsmiðjunni Þór hjá nafna sín- um Bergsveini Árnasyni, og stundaði þar vélstjóranám í 3 ár. Aður en þeirri vist lauk hafði Bergsveinn komist í samband við Alexander Jóhannesson, rektor, forustumann á sviði flugmála á þeim tíma. Það mun hafa verið árið 1931 að hann flaug suður í boði Alexanders og rætt var um nám i flugvirkjun í Þýskalandi. Flugfélag Islands hafði eignast tvær flugvélar, Veiðibjölluna og Súluna. Fyrsti íslenski flugmað- urinn Sigurður Jónsson stjórnaði nú Súlunni en þýskur maður hinni vélinni. Skyndilega lenti flugreksturinn í vandræðum og atvinnuhorfur ekki góðar og áformin breyttust. Bergsveinn hóf þá nám í Vélstjóraskólanum i Reykjavík og lauk þaðan prófi vorið 1933. Árið eftir kvænist Bergsveinn eftirlifandi eiginkonu sinni Val- gerði Jónsdóttur frá Hvammi i Dýrafirði. Hinni ágætustu konu, sem bjó manni sínum og börnum yndislegt heimili í hvívetna. Sjó- mannskonur verða að annast alla þætti heimilislífsins í fjarveru eiginmannsins. Það gerði frú Val- gerður með stakri prýði. Börn þeirra urðu fjögur, sem öll eru uppkomin: Erna, gift Guðjóni Jónssyni, búsett í Hafnarfirði. Unnur bankaritari í Verzlunar- Framhald á bls. 95 Guðmundur G. Hagalín »SK/IX>S«3A gian er ekki alltatótukt GUÐMUNOUR QlSlASON HíGALlN HAMINGJAN ER EKKI ALLTAF ÓTUKT segir Guómundur Ilagalín. í þessari nýju skáldsögu bætir hann enn við hinn sérstæða persónuleika, sem hann hefur skapaö á nær 60 ára ritferli. Hér er þaó lílill og Ijótur maður — Markús Móa-Móri. Það er einmitt Ijótleikinn sem ræóur sköpum um manni og hamingjumanni. gerir Markús að mikl- Guðmundur Daníelsson VEST AN GULPUR GARRÓ Aðdáendum vel skrifaðra sakamálasagna býðst nú mikill fengur. í skáldsögunni Vestangúlpur Garró skröltum við eftir gamla Keflavíkurveginum að næturþeli í forn- fálegum vörubíl. Á pallinum eru líkkistur. Um innihald þeirra vitum við ekkert. Gréta Sigfúsdóttir | #■ r w' 28 cjat DTC5 T ðU-L Jtvlð L V Lð 1 JtvJl Norður er nú uppeftir, suður niðureftir, austur er til hægri og vestur er til vinstri —*eða öfugt. Svo er jafnvel komið að sól rís í vestri. Þannig lýsir Gréta siðgæðisvit- und okkar. Hún sýnir okkur stéttamismun, vafasama viðskiptahætti, pólitískan loddaraieik og siðspillingu. Gylfi Gröndal Cyffi Cröndal Þegar bam fæðist Endurminningar Helgu M Nielsdóftur linsmóður Sir Andrew Gilechrist Gísli J. Ástþórsson I>EGAR BARN FÆÐIST endurminningar Helgu Níelsdóttur ljósmóður. Helga þorir að standa á eigin fótum í þjóðfélagi þar sem karlmenn ráða ríkjum. Hún hefur meðal margs annars tekið á móti 3800 börnum um dagana. Helga segir hér hispurslaust frá því sem fyrir hana hefur borið. LnpcF a öTpfn FUivolVAo 1 rvlU OG HVERNIG Á AÐ TAPA ÞEIM Hvers konar starfsemi fer fram innan veggja erlendra sendiráóa í Reykjavík og hvert er hlutverk sendiherr- anna? Lesið berorða lýsingu Sir Andrews Gilehrists fyrrum sendiherra Breta á íslandi á samskiptum hans við forvstumenn þjóðarinnar á dögum þorskastríðsins mikla 1958—60. FIFA Skáldsagan Fífa er háðsk nútímasaga, ádeilusaga og ástar- saga. Hún segir frá Fífu ráðherradóttur, sem neitar að gerast þátttakandi í framakapphlaupi föður síns, og gerir yfirleitt allt andstætt því sem faðirinn hefði kosið. m Almenna bókaféláif Austurstreti 18, Bolholti 6, sfmi 19707 slmi 32620

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.