Tíminn - 05.06.1965, Side 3
LAUGARDAGUR 5. júní 1965
TÍMINN
a
Frumsýning óperunnar Madame Butterfly eftir Puccini fór fram í
ÞjóSleikhúsinu £ fyrrakvöld og hlaut fádæma góSar vlStökur lelkhús-
gesta, og voru gestinum meSal leikenda, sópransöngkonunni Rut Jacob-
son frá Gautaborg, færSlr blómvendir f leikslok, en leikendur og stjóm
endur, Lelf Söderström leikstjóri og Nils Grevillius hljómsveltarstjórl
báSlr frá Stokkhólmsóperunni, marosinnis klappaSir fram. Þessi mynd
er af elnu atriSi óperunnar. í miSju er Rut Jacobson í hlutverki Madame
Butterfty, t. v. er Svala Nielsen og t.h. GuSmundur Jónsson.
Keppt í nýjum greinum á kapp
reiöum Fáks 2. hvítasunnudag
GB-Reykjavík, fimmtudag.
Hinar árlegu kappreiðar hesta-
mannafélagsins Fáks fara fram á
Háspennulína
frá Hvolsvelli
að Búrfelli?
MB-Reykjavík, föstudag.
Nú er £ -ráði að leggja
háspennulinu frá Hvolsvelli
upp að Búrfelli. Er ætlun-
in að flytja rafmagn eftir
þeirri línu upp að Búrfelli,
meðan framkvæmdir standa
þar yfir, en síðan aftur frá
virkjuninni, eftir að hún
verður komin í gagnið.
Ekki mun hafa verið tek-
in fullnaðarákvörðun um
þetta enn þá, en það verður
væntanlega innan skamms.
Á Hvolsvelli er mikil spenni
stöð, sem meðal annars miðl
ar rafmagni til Vestmanna-
eyja. Þykir hentugt að leiða
rafmagn frá henni til
framkvæmdanna við Búrfell
og mun hún einnig notuð
til að flytja rafmagn frá
virkjuninni, eftir að hún
vérður komin í gagnið. Hins
vegar verður aðallínan frá
Búrfellsvirkjuninni lögð svo
til beint í vestur og mun
hún liggja neðan Vörðufells
og að Soginu.
skeiðvellinum við Ellíðaár annan
hvítasunnud. að venju, með fleiri
þátttakendum en áður og nú
keppt í tveim nýjum greinum um
nýgefna farandbikara og ríflega
það, en bikarana er hægt að vinna
til eignar.
Fyrst er að nefna alhliða góð-
hestakeppni, sem 14 hestar hafa
verið teknir gildir til þátttöku í.
Dómarar verða Bogi Eggertsson,
Hjalti Pálsson og Ingólfur Guð-
mundsson. Keppt verður um stór-
an farandbikar, svonefndan Vice-
roy-bikar, sem borizt hefur vestan
um haf að gjöf frá tóbaksfram-
leiðanda í Bandaríkjunum.
Þá er 800 metra stökkkeppni,
sem nú er stofnað til í fyrsta
sinn, og hefur Björn Gunnlaugs-
son, fyrrverandi formaður Fáks,
gefið bikar til að keppa um, og
vinnst hann til eignar þeim, sem
fer með sigur af hólmi þrisvar
sinnum innan fimm ára. Hefur
Björn gefið bikarinn af áhuga fyr-
ir þessari nýju keppnisgrein og til
að örva til þátttöku í henni. Sig-
urvegarinn vinnur þennan bikar,
og að auki átta þúsund krónur,
en þær aðeins með því skilyrði,
að hlauptíminn verði ekki lengri
en 69 sekúndur.
Aðrar greinar, sem keppt verð-
ur í, eru 250 metra skeið, 250
metra folahlaup, 300 metra stökk
og 350 metra stökk. Alls munu
um 50 hestar taka þátt í þessum
kappreiðum Fáks og koma víða
að, m. a. úr Borgarfirði, Mosfells-
sveit og Hafnarfirði. „Og það get
ég sagt ykkur, að þetta verður
hörð keppni, þó að ég vilji ekki
nefna nein nöfn, þetta er mörg-
um viðkvæmt mál, því að það er
Framhald á bls. 11
HVAMMSTANGI AÐAL-
UPPSKIPUNARHÖFNBNK
BS-Hvammstanga, fimmtudag.
Helgafellið kom hingað í dag
með ábnrð og i dag hefur verið
unnið hér við uppskipun á áburði
fyrir báðar Húnavatnssýslumar.
Nokkrum erfiðleikum er bundið
að komast að bryggju vegna jaka-
hrafk og varð að stjaka frá jök-
um við innsiglinguna.
Ekki er fært á Blönduós né
Skagaströnd vegna íssins og verður
því að skipa hér upp öllum áburð-
inum fyrir sýslumar, sem eftir var
að flytja, þegar ísinn lokaði höfn-
um, en þá var búið að flytja um
helming áburðarins. Bílar frá
Blönduósi og Skagaströnd koma
hingað með áburð, sem búið var
að skipa upp á Skagaströnd til
bráðabirgða, en átti að fara á
Strandahafnir, en taka svo hér
áburð til að flytja heim. Vegir era
ekki góðir og eru þungatakmark-
anir á þeim og verður því að
hlaða bílana minna en ella.
Helgafellið kom hingað frá
Hólmav. og átti upphaflega aðeins
að skipa hér upp áburði fyrir vest
ursýsluna, en vegna íssins úti fyr-
ir Blönduósi og Hvammstanga
verður að skipa hér einnig upp
áburði fyrir austursýsluna, eins og
fyrr segir. Ekki hefur komið skip
til okkar síðan Skjaldbreið kom
hingað seint í marzmánuði og síð-
an hefur verið hér fullt af ís þar
til nú um helgina.
Eins og fyrr segir var um helm-
ingur áburðarins kominn hingað
áður en ísinn lagðist að og meðan
hann lá hér úti fyrir var flutt tals-
vert af áburði frá Skagaströnd í
vestursýsluna.
Myndln sýnir nokkrar af Norge-þurrhrelnsunarvélunum
hreinsun.
NYJUNG I FA TAHREINSUN
FB-Reykjavík, föstudag.
Fatahreinsun í því formi, sem
flestir þekkja í dag hefur ætíð
verið mjög tímafrek. Fyrir nokkr-
um árum byrjaði bandaríska fyr-
irtækið Borg-Wamer að framleiða
sjálfvirkar þurrhreinsunarvélar,
sem geta hreinsað 4 kg. af fatn-
aði eða öðru taui á fimmtíu mín-
útum. Þessar vélar eru framleidd-
ar undir hinu kunna heimilis-
tækjanafni Norge. Nú í vikunni
opnaði nýtt fyrirtæki, Fljóthreins-
un, fatahreinsun með Norge-út-
búnaðL
Norge þurrhreinsunarvélarnar
eru þegar viðurkenndar fyrir gæði
og vandvirkni, enda hafa hundruð
Norge þurrhreinsunarstaða verið
opnaðir í Ameríku og Evrópu og
eru nú t. d. um 20 slíkir staðir
í Kaupmannahöfn einni.
Einn megin kosturinn við þessa
nýtízku þurrhreinsun er sá hve
ódýrt og handhægt er að hreinsa
í vélunum. Það tekur vélina
fimmtíu mínútur að skila fötun-
um hreinum og í flestum tilfell-
um þarf ekki að pressa þau á
eftir. Norge þurrhreinsunartækin
nota hreinsunarefni sem’hafa ver-
ið marg reynd og viðurkennd af
sérfræðingum. Meðan fötin eru í
þurrhreinsunarvélunum, getur hús
móðirin fylgzt með hreinsuninni
í gegn um glugga sem er á þeim.
Með tilkomu þessara nýtízku
þurrhreinsunartækja geta hús-
mæður fengið mikið magn af föt-
um, gluggatjöldum, rúmábreiðum
og hlífðarklæðnaði hreinsað á stutt
um tíma. Það kostar kr. 114.00 að
hreinsa fjögur kíló hjá Fljóthreins
un h. f., og fatnaðurinn er af-
greiddur sama daginn og getur við
skiptavinurinn einnig beðið eftir
fötunum.
Fljóthreinsun h. f., er til húsa
að Gnoðavogi 44 rétt við Háloga-
land, í mjög skemmtilegu og
björtu húsnæði.
Framkvæmdastj óri er Ásgeir H.
Magnússon, og uppsetningu á vél-
unum annaðist S. Larsen, tækni-
fræðingur frá Norgeverksmiðjun-
um.
Vinnubúðir í samvinnu
við skozku kirkjuna
Undanfarin sumur hafa verið
starfræktar hér á landi vinnubúð-
ir fyrir ungt fólk á vegum Þjóð-
kirkjunnar. Þessar vinnubúðir
hafa verið starfræktar í samvinnu
við erlenda aðila, t. d. Alkirkju-
ráðið og Skozku kirkjuna. Hefur
verið unnið að margvíslegum verk-
efnum, m. a. við kirkjubyggingar.
En rík áherzla er alltaf lögð á
kristilegar samverustundir unga
fólksins, með biblíulestram, bæna-
stundum, fræðslustundum o. s. frv.
Hefur íslenzkum unglingum gef-
izt kostur á að kynnast erlendum
jafnöldrum sínum, og hafa vinnu-
búðirnar verið bæði til þroska og
ánægju.
Á þessu sumri verða hér á landi
vinnubúðir í samvinnu við skozku
kirkjuna. Þær verða að Eiðum í
Suður-Múlasýslu dagana 22. júní
til 10. júlí og era ætlaðar ungl-
ingum frá 16 ára aldri. Þeir, sem
hafa áhuga á að taka þátt í vinnu-
búðunum, hafi samband við æsku-
lýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar, sr.
Hjalta Guðmundsson, Klapparstíg
27, sími 12236.
Undanfarin sumur hefur Þjóð-
kirkjan sent hóp unglinga til þátt-
töku í vinnubúðum í Skotlandi.
í sumar verður hafður sá háttur
á, að efnt verður til kynnisferðar
til Skotlands í samvinnu við Ferða
skrifstofuna Sunnu og heimsóttir
nokkrir staðir, þar sem æskulýðs-
starf skozku kirkjunnar fer fram.
Allar upplýsingar um þessa ferð
gefur Ferðaskrifstofan Sunna,
Bankastræti 7, sími 16400.
(Frá Biskupsstofu.)
Fyrsta útsýnisflugferðin
Eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum, mun Flugfélag íslands
efna til sérstakra útsýnisferða í
sumar. Ferðir þessar verða
á sunnudagsmorgnum, farið frá
Reykjavík kl. 10:00 og komið aftur
um hádegi. Um tvær leiðir er að
velja í útsýnisflugferðunum og
mun veður ráða hvor leiðin verð
ur farin hverju sinni.
Syðri leiðin liggur frá Reykja-
vík um Surtsey, Vestmannaeyjar,
Heklu, Landmannalaugar, yfir
Skaftáreldahraun að Arnarfelli og
Hofsjökli og þaðan suðvestur um
Hvítárvatn, yfir Gullfoss og til
Reykjavíkur. Nyrðri leiðin liggur
frá Reykjavik norðvestur yfir Snæ
fellsjökul að Bjargtöngum og það-
an yfir ísafjarðarkaupstað og
norður að Hornbjargi og síðan
suðaustur með Ströndum, yfir
Breiðafjörð og inn yfir Borgar-
fjörð og yfir Þingvelli og
til Reykjavíkur.
í sambandi við þessi væntan-
legu útsýnisflug, hefur F. í. gefið
út bæklinga með upplýsingum um
það sem fyrir augu ber á ferð-
unum.
Fyrsta útsýnisflugferðin í sumar
verður sunnudaginn 6. júní (hvíta-
sunnudag.)
Flogið verður með Blikfaxa
hinni nýju Friendship skrúfuþotu
félagsins, en sú flugvél er mjög
ákjósanleg til slíks.
Allar upplýsingar um útsýnis-
flugin eru veittar hjá ferðaskrif-
stofum og hjá F. 1, og öllum af-
greiðslum bess.