Alþýðublaðið - 01.11.1958, Blaðsíða 4
4
Alþýðublaðið
Laugardagur 1. 'nóvember 1958
l/£TTV4*6ttR MGS/A/S
ÞAÐ EB EKKI HÆGT að
starfa með þeim, sem ekki er
hægt að treysta að standi við
geröa sanuiinga. Þetta er ohjá-
kvæmileg regla í viðskiptum eín
stakiinganna og sama regla gildi
um samninga vinnuseljenda og
vinnukaupenda og milli stjórn-
málaflokka. Ef samið er miili
stjómmálaflokka, og annar
þeirra þykist komast að raun
um, pð hann tapi á því að standa
við samningana, og svíkur þá
þess vegna, þá er ekki hægt að
treysta honum, ekki hægt að
starfa með honum.
SAMKOMIILAG VARÐ í verð
lagsnefnd landbúnaðarafurða
milli þriggja fulltrúa neytend-
anna, fulltrúi Alþýðusambands-
ins, Sjómannafélagsins og iðnað
■armanna — og fulltrúí bænd-
• anna, en samkomulagið var rof-
ið og verðið hækkað á kjötinu í
.heildsölu um áttatíu og fimm
aura. Fulltrúar neytenda hafa
nú höfðað mál gegn framleiðslu
ráði landbúnaðarins fyrir þessi
samningsrof og krefjást þess að
'samkomulagið sé látið gilda. —
Slík samningsrof og hér hafa átt
sér slað geta haft ófyrirj.jáanleg-
ar afleiðingar.
ÓLÍKT HÖFUMST við að. —
Við eigum mikið skáld, sem hef-
'ur húðílett' auðvaldshyggjuna
og fulltrúa hennar Pétúr Þrí-
• hross og Óla fígúrú. Ennfremur
hefur það „ráðist á það sem er
Er bezt að starfa með þeim |
sem svíkja gerða samn-
inga?
Málaferli út af verði á
kjöti.
Ólíkt höfumst vér að á
Islandi og í Rússlandi
okkur heilagt“ (svo að notuð séu
orð, sem voru viðhöfð um Past-
ernak). Þormóð Kolbrúnarskáld
og garpinn Þorgeir Hávarðsson.
En hvað um það? Við daum
skáldið og Pétur Þríhross og Óli
Fígúra og öll þeirra halarófa
rís upp á alþingi og krefst þess,
að skáldið, sem þannig hefur lif-
að og starfað skyldi njóta heið-
urslauna óskertra og engir skatt-
ar skulu á þau lagðir.
ER NOKKUR furða þó að máð
ur freistist til að gera saman-
burð? Rússneska milljónaþjóð-
in á mikið skáld, sem hefur leyft
sér að skrifa svolítið öðruvísi en
stjófnmálamennirnir telja heppi
•legt. Það hlýtur heiðurslaun og
alheimsviðurkenningu um leið.
En heima fyrir er lögregluvórð-
:ur séttur um heimili þess þágn-
að til búið er að reka það út, —
það er rekið úr samtökum rithcf
unda og skálda, svift heimili
sínu, launum og atvinnu — og
til viðbótar neytt til að afsala
sér heiðursverðlaununum. í of-
análag er það kallað svívirði-
legum ónöfnum.
ÍSLENZK SKÁLD og rithöf-
undar, sem ekki fyllast reiði og
fyrirlitningu út af slíku fram-
ferði eru skækjur á torgi, sem
selja sig hæstbjóðanda. Þeir
geta ekki þagað þegar annað
eins og þetta á sér stað. Þeir
geta ekki látið sjá sig í félags-
skap, sem ver slíkt framferði.
Það er hvorki mannlegt né líkt
íslendingum. —; Hvað á maður
að bíða lengi eftir því, að þeir
sýni manndóm sinn? Okkav Nó-
belsverðlaunaskáld hefur þegar
sagt álit sitt og fordæmt íram-
komu rússnesku valdhafanna.
ÉG LA.S einhversstaðar skamm
ir um revýu íslenzkra leikara,
sem nefnd er: „Rokk og róman-
tík“. — Þessi revýa er mjög
skemmtileg og stendur framar
að gáska og gletni nær öllum
revýum, sem hér hafa verið sýnd
ar undanfarin ár. Þarna eru
margvísleg uppátæki og leikur-
unum tekst að koma þeim þann-
ig fyrir, áð máður veltist um af
hlátri hvað eiftir annað. Nokkr-
ar sýningár háfa verið í Austur-;
bæjárbíói — og alltaf húsfylli.
Hannes á horninu.
( ÍÞróttir )
Glœsilegur árangur sœnskra
knattspyrnumanna í sumar N
ÞAÐ er langt síðan sænskir
knattspyrnumenn hafa náð
eins góðum árangri í lands-
leikjum og í sumar. Alls hafa
Svíar leikið 10 landsleiki, sigr-
að £ 7, jáfntefli í 2 og aðeins 1
tapaðist, en það var úrslita-
leikui’inn í heimsmeistara-
keppninni gegn Brasilíu.
Leikirnir eru:
Sviss ..... 3:2
Mexico (HM) . . 3:0
Ungverjal. (HM) 2:1
Wales (HM) .... 0:0
Rússland (HM) 2:0
V.-Þýzkal. (HM) 3:1
Brasilía (HM) . . 2:5
Noregur 2:0
Finnland 7:1
Danmörk . ..... 4:4
Svíar hafa gert 28 mörk í
þessum leikjum, en fengið á
sig 14. í þessum leikjum hafa
Landsleikir í knaft-
spyrnu
FRAKIKAR og Þjóðverjar
léku landsleik í knattspyrnu á
Colombes leikvanginum í Par-
ís s. l. sunnudag. Alls voru á-
horfendur um 45 þúsund. Jafn-
tefli varð 2:2, en staðan í hálf-
leik var 1:1, Ungverjar sigruðu
Rúmena í Búkarest um sömu
helgi með 2:1. Áhorfendur
voru um 100 þúsund.
Mef Etfioffs í mífu
staðfesl
HBIMSMET ástralska hlaup
arans Herb Elliot á 1 enskri
mílu, 3:54,5 mín., hefur nú ver-
ið staðfest af alþjóðafrjáls-
íþróttasambandinu.
tekið þátt 28 leikmenn. Þrír
hafa verið með í öllum leikjun-
um, en það eru Orvar Berg-
mark, Sven Axbom og Sigge
Parling. Mörkin 28 hafa 11
leikmenn skorað, Agne Simon-
sen 8, Kurt Hamrin 4, Tor-
björn Jonsson 3, Gunnar Gren
3, Nisse Liedholm 2, Reino
Börjeson 2, Rune Börjesson 2,
og Gösta Löfgren, Nacka Skog-
lund, Putte Kállgren og ,,Föl-
et“ Berndtsson eitt mark hver.
Hr. ritstjóri, Helgi Sæmunds
son.
Athygli mín hefur verið vak
in á fyrirspurn, birtri á for-
síðu Alþýðublaðsins síðastlið-
inn fimmtudag, þar sem spurt
er um viðhorf mitt og fleiri
íslenzkra riithöfunda til ein-
hverra orða, sem Halldór Kilj-
an Laxness á að hafa látið falla
í viðtali við Morgunblaðið. Ég
hef mjög takmarkaðan áhuga á
því, sem Halldór Kiljan og
Morgunblaðið fer á milli, og
mun ekki svara svona klaufa-
legum spurningum. En sé Al-
þýðublaðinu hugleikið að kynn
ast afstöðu minni til ihnnar lúa
legu framkomu sovézku vaida-
manna og handbenda beirra í
Sambandi sovéthöfunda gagn-
vart skáldinu Boris Pasternak,
er mér útlátalaust að fræða yð-
ur um eftirfarandi: Á aðalfundi
Rithöfundafélags íslands
kvaddi ég mér hljóðs utan dag.
skrár til að ræða árásirnar á
á Pasternak og bar ásamt nokkr
um rithöfundum öðrum fram
tilögu í málinu. 1 tillögunni
kemur skýrt fram skoðun mín
á þessum og öðrum áþekkum
tilraunum ruddalegra pólitík-
Þing vörubílstjóra
hefst í dag.
ÞING Landssambands vöru-
bifreiðarstjóra hefst í dag í fé-
Iagsheimili múrara og rafvirkja
að Freyjugötu 27, Rvík. Sitja
þingið 35 fulltrúar frá 30 félög-
urn. En í landssambandinu eru
nú 36 félög með 1070 meðlimi
Gert er ráð fyrir, að þingið
standi í 3 daga. Helztu mál
þingsins verða heildarsamning
ar við vinnuveitendur, félags-
réttindamá! og áfrýjun Mjölnis
á ákvörðun landssambands-
stjórnar í deilunni um flutning
ana við Efra-Sog. Núverandi
forseti sambandsins er Einar
Ögmundsson.
usa til að kúga listamenn til
hlýðni og æsa ofsóknarhug
fólks gegn Þeim sem; neita að
láta segja sér fyrir verkum. —
Ég leyfi mér enn fremur að
vekja athygli á að tímaritið
Birtingur birti fyrst allra ís-
lenzkra rita Ijóð eftir Boris
Fastenak, og er það tekið upp
í safn erlendra nútímaljóða, —
sem er að koma út undir umsjá
ckkar Jóns Óskars. Bæði í Birt
ingi og Ijóðasafninu er stuttur
kynningarpistill sem ég hef tek
ið saman um Pasternak. Af-
staða mín til þessa skálds á því
að vera kunn öllum, sem kæ.ra
sig um að kynna sér hann. • —
Álit mitt á Pasternak hefur
að sjálfsögðu ekki rénað við
það, að hann hefur nú á stór-
mannlegan hátt löðrungað
frammi fyrir öllum heiminum
fulltrúa þeirra dólgslegu aflá,
sem listamenn allra alda hafa
sýnkt og héilagt átt í útistöðum
við: hinna purkunarlausu póli.
tíkusa.
Viðingarfyllst,
Einar Bragi.
Tillagan, sem E.B. segir frá,
er birt á öðrum stað í blaðinu.
Einar Bragi og Pasfernak
Sextug í dag
Hjálmfríðiir
SEXTTJG er í dag frú Hjálm-
fríður Eyjólfsdóttir, Barðavogi
44, Reykjavík. Hún fæddist 1.
nóvember 1898 í Firði í Múla-
sveit, og voru foreldrar henn-
ar Guðmunda Snæbjörnsdótt-
ir og Eyjólfur Jóhannsson kaup
maður í Flatey. Á fyrsta ári
fluttist hún til föðursystur
sinnar, Guðnýjar Jóhannsdótt-
ur og manns hennar Magnús-
ar Jóhannssonar, sem bjuggu
í Svefneyjum á Breiðafirði og
ólst upp hjá þeim. Hún giftist
árið 1921 Jóni Hákonarsyni frá
Reykhólum. Hófu þau búskap
að Skálmanesmúla, bjuggu síð
ar í Skógum í Þorskafirði og
Reykhólum, en fluttust svo til
Flateyjar á Breiðafirði og það-
an til Reykjavíkur 1932.
Þau Hjálmfríður og Jón eign
uðust fjögur börn, sem öll eru
á lífi, gift og búsett í Reykja-
vík, Sólborgu, Eyjólf, Hall-
grím og Hákon. En mann sinn
missti Hjálmfríður árið 1952.
Hjálmfríður er kjarkmikil-
dugnaðarkona. Þau hjón ráku
um árabil sumarhótel í Bjark-
arlundi í Reykhólasveit af
myndarskáp og rausn, og hélt
Hjálmfríðúr hótelrekstrinum
áfram um sinn eftir lát Jóns.
Naut dugnaður hennar og út-
sjónarsemi sín vel í því starfi.
Nú á sextugsafmælinu munu
vinir Hjálmfríðar senda henni
hlýjar kveðjur. En u.m leið og
hennar er minnzt, er manns
hennar líka minnzt. Höfðings-
lund og hjálpfýsi einkenndi
heimiii þeirra og voru þau
Hjálmfríður Eyjólfsdóttir.
hjón samvalin í því efni.
Veit sá, er reynt hefur.
í dag dvelst Hjálmfríður
með börnum sínum, téngda-
börnum og barnabörnum, sem
hylla hana sextuga, ásamt öðr-
um vinum hennar. Og henni
munu berast hugheilar heilla-
óskir frá fjölmennum vinahópi
bæði sunnan lands og vestan.
Sigvaldi Hjálmarsson.
Gala of London
tilkynnir
Nýjasti hausttízkuliturinn í varalit og naglalakki er
SHOCK RED NO. 18.
Einnig nýkomið CREM FUFF. fljótandi make-up
®g cleanising —skin og Fanclasion í túbum.
Heildsölubirgðir:
PÉTUR PÉTURSSON,
Hafnarstræti 4, — Sími 1-90-62.