Alþýðublaðið - 06.12.1958, Page 3
ÞETTA er bókin, sem allir
strákar vilja lesa. Hún segir
frá smíði eldflaugar, sem senda
á til tunglsins, og' margvísleg-
um spennandi ævintýrum,
keilla alla stráka.
lEYSlfl VANDANN
KYNNIST leyndardómum flug-
freyjustarfsins. Fljúgið mót ævin-
týrunum með flugfreyjunni Viku
Barr. Vika Barr er skemmtilegur fé-
lagi, og ævintýrin sem hún ratar i,
eru mörg og spennandi.
VIKA BARR er söguhetja ungu
stúlknanna, og FLUGFREYJAN
LEYSIR VANDANN óskabók þeirra.
oq vinir hennar
SAGAN um litlu telpuna í
stutta kjólnum, með stuttu
fæturna og stutta hárið.
Ævintýrin, sem Millý Mollý
Mandý og vinir hennar lenda
í, eru skemmtileg. Sérstak-
lega eru þau skemmtileg fyr-
ir það, að þau gætu gerzt
hvar sem er, í daglegu lífi
hvaða lítillar telpu sem er,
já, litla telþan, sem sagan
segir frá, gæti iaínvel ver-
ið þú, og vinir hennar
beztu vinir þínir.
NÆSTK. þriðjudág heldur
SinfóíJÍuhljóínsveit íslands
hijómleika í Þjóðleikhúsinu.
Stjórnandi að hessu sinni er
dr. Páll ísólfsson, en einleik-
ari Jórunn Viðar .
Viðfangsefnin á þessum
hljómleikum eru: Ossian-for-
leikur onus 1, eftir Niels W.
Gade. Síðan leikur Jórunn Pí-
anókonsert í D-dúr eftir Moz-
art K537 (Krýningarkonsert).
Loks er Sinfónía nr. 1 í C-dúr
opus 21 eftir Beethoven.
NIF.LS W. Gade.
Ossianforleikurinn er fluttur
hér í fyrsta skipti. Höfundur
hans, Niels W. Gade, var daiisk
ur samtímamaður og samverka
maður Mendelzon. Gade var
fyrstur Norðurlandabúa, sem
ávann sér heimsfrægðar, en
verkio, sem hann er þekktast-
ur fyrir, er þessi forleikur.
Ossian var Keltneskur að
I uppruna og álitinn mikið ljóð-
skáld, sem hafði víðtæk áhrif
í tíð rómantíkurinnar. Síðar
kom aftur í liós, að annar mað-
ur, Macpherson, hafði ort öll
ljóðin. En út af þessum svika-
kvæðum samdi Gade forleik-
inn. í verkum Gade er álitinn
vera sérstakur danskur tónn og
hann starfaði í Danmörku sem
stjórnandi Konunglegu Kap-
ellunnar.
Hljómleikar þessir verða
síðustu tónleikar hljómsveitar-
innar fyrir jól.
myndakotrur og
LITBRÁ h. f. gefur út
nokkrar litabækur, myndakotr-
ur o. fl. núna fyrir jólin. Lita-
bækurnar heita: Toppur og
tappi, Jói frændi, Galdrakver
og kúrekinn. Eru myndirnar í
þeim öllum eftir Walt Disney.
Verðið á þeim er 10 kr. Þá eru
tvær litakotrur, verð 27 kr. Og
að lokum myndabókin „This is
Iceland“ (þetta er ísland).
Verðið á henni er 45 kr.
KpninprMld Feriafélags Akureyrar.
Blsku psf ru mvarpið
BISKUPSFRUMVARPIÐ var
tekið til fyrstu umræðu í efri
cleild í gær. Frumvarpimi var
vísað til 2. umræðu og alls-
Jierjarnefndar.
arfjarðar
ALÞYÐUFLOKKSFELAG
Hafnarfjarðar heldur fund n. k.
mánudagskvöld kl. 8,30. Sagð-
ar verða fréttir af flokksþingi
o. fl.
ÁSKRIFENDASOFNUN
SUJ stendur nú yiir. Sá sem
safnar hlutfallslega flestum
áskrifendum að Alþýðublað-
inu (miðað við íbúðatölu),
fyrir áramót, fær að verð-
launum, ferð með Gullfossi
til Kaupmannaliafnar. Ung-
ir jafnaðarmenn, — Herðið
söfnunina.
Tóniistarkynning í
háskólanum kl. 5
e. h. á morgun
Á MORGUN kl. 5 síðdegis
verður tónlistarkynning í há-
tíðasal háskólans. Flutt verður
af hljómplötutækjum skólans
S. sinionía Beethovens, í f-dúr.
Hún er í sjaldnara lagi flutt af
síðari sinfóníum Beethovens,
og taldi hann þó sjálfur, að hún
tæki 7. sinfóníunni fram.
Hljómsveitin Fílharmónía
leikur, Herbert von Karajan
stjórnar. Á undan verður flutt
svonefnd „Orustusinfónía“
Beethovens, sérstætt tækifær-
isverk, sem er frá svipuðum
tíma og 7. sinfónían, ekki talin
með hinum níu eiginlegu sin-
íóníum tónskáldsins og örsjald
an flutt.
Eins og að undanförnu mun
dr. Páll ísólfsson skýi'a verkin,
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Þessari samfelldu kynningu
háskólans á sinfóníum Beethov
ens mun svo ljúka með flutn-
ingi 9. hljómkviðunnar eftir
áramót.
JÓLABLAÐ Sunnudags-
biaðsins er komið út. Söhi-
böi'n eru kvödd til að koma
á afgreiðslu hlaðsins í Al-
þýðuhúsinu.
Júgósiavar iá lán
í vesturlöndum
Belgrad, 5. des. (Reuter).
TALSMAÐUR júgóslavnesku
stjórnarinnar sagði í dag. að
Júgóslavar hefðu náð „nokkr-
um árangri11 í að fá löng efna-
hagslán hjá vestrænum ríkj-
um. Hann vildi ekki fara nán-
ar út í þetta en viðræður — að-
allega við Breta og Banda-
ríkjamenn — standa enn vfir.
Vitað er, að Bandaríkjamenn
hafa samþykkt að lána Júgó-
slövum 22 milljónir dollara til
að bygg'ja áburðarverksmiðju.
* Fregn til Alþýðublaðsins.
Akureyri
FERÐAFÉLAG Akureyrar hélt
fund í Alþýðuhúsinu s*. 1.
sunnudag, þar sem ákveðið var
að efna til kynningarkvölds um
næstu helgi. Er hugmyndin að
kynna þar íslenzkar kvikmynd-
ir.
Sigurður Þórarinsson, jarð-
fræðingur, kemur hingað á
laugardaginn og á sunnudag -
inn kl. 2 e. h. verður fundur
í félaginu, þar sem hann murr
balda fyrirlestur og sýna
skuggamyndir frá rannsóknar- •
leiðangri Jöklarannsóknafé-
lagsins á Vatnajökul. Þessi
fundur verður aðeins fyrir fé-
lagsmenn í F. A. og aðgangur
ókeypis.
Kl. 9 á sunnudagskvöld verð
ur sýning fyrir almenning í
samkomuhúsi bæjarins. Sýnd
verður Heklukvikmynd Stein-
þórs Sigurðssonar og Árna Ste-
fánssonar. Sigurður Þórarins-
son skýrir myndirnar. Einnig
verður sýnd Hornstrandarkvik-
mynd Ósvaldar Knudsen, með
skýringum Kristjáns Eldjárns,
þjóðminjavarðar.Hvort tveggja
eru litmyndir. — Loks verða
mvndirnar sýndar á mánudag-
inn kl. 5 í samkomuhúsinu. Er
sú sýning' einkum ætluð skóla-
fólki og aðgangseyrir lægri en
á sunnudag,- — K. H.
sumra
í fyrrinólt
Fregn til Alþýðubl-aðsins.
Keflavík í g-ær.
ÁTJÁN bátar voru á sjó í
nótt og komu þeir allir að í
morgun, 9 bátar vora með;
meira en 100 tunnur, aðrir
minna, en sumir ekkert. Mest-
an afla fékk „Vonin“ 145 tunn-
ur, „Vísir“ fékk 142 tunnur og
,,Huginn“ 137 tunnur.
t
Alþýðublaðið — 6. des. 1S58 3