Morgunblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
111. tbl. 60. árg.
FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Orlov
úr haldi?
Lundúnum. 17. maí. AP.
„ÞAÐ eina sem ég get sagt. er
að ég á von á að sovésk yfirvöld
muni sleppa Yuri Orlov úr
haldi eftir að SALT 2 samkomu-
lagið verður undirritað,“ sagði
John McDonald, brezkur lög-
fræðingur, en Orlov bað hann
að verja sig í réttarhöldunum.
Yuri Orlov var settur á bak
við lás og slá vegna baráttu
sinnar fyrir því að Helsiki-sam-
komulagið væri virt af sovésk-
um yfirvöldum. í maí í fyrra
var Orlov dæmdur í fimm ára
þrælkunarbúðavinnu. Yuri
Orlov ar handtekinn í febrúar
1977.
„Að því er ég bezt fæ séð, þá
eru þeir Orlov og Anatoly
Scharansky agn Brezhnevs til að
fá fram meiri eftirgjöf af hálfu
Bandaríkjamanna áður en SALT
að honum verði sleppt úr
þrælkunarbúðum?
2 samkomulagið verður undirrit-
að,“ sagði McDonald í Lundún-
um. Þá sagðist McDonald ætla
að taka að sér baráttu fyrir
Nicalu Dascalu, rúmenskan
andófsmann, sem nú er í haldi
ásamt komu sinni vegna baráttu
þeirra fyrir því að Helsinki-sam-
komulagið verði virt.
40 þúsund konur hylltu
Khomeini á afmæli harts
Pílagrímsferð til Mekka í verðlaun
handa væntanlegum keisaramorðingja
Teheran, 17. mal. AP. Reuter.
VAXANDI ólga og ókyrrð
virðist vera víða úti um
landsbyggðina í íran og
magnast óðfluga eftir að
ríkisstjórnin hefur nú sýnt
lit enn einu sinni á því að
hefta ^völd byltingarráð-
anna. í Teheran var þó allt
með kyrrum kjörum og
þar var minnzt 79 ára
afmælis Khomeinis erki-
klerks. Efnt var til fjölda-
fundar og komu þangað
um 40 þús manns, konur í
meirhluta, og var við
háskólann í Teheran flutt
ur boðskapur hans. Efni
ræðu hans var einkum
árás og ganrýni á keisar-
ann en fréttaskýrendur
vekja athygli á að hann
hafi nánast ekkert reynt
að skýra fyrir fólki fram-
tíðarhorfur og almenna
stöðu þjóðmála. Konur,
klæddar skikkjum, voru á
verði á fundinum, og báru
margar labbrabbtæki og
jafnvel byssur til að hafa
heimil á óróaseggjum ef
reynt yrði að hleypa upp
fundinum.
Khomeini sagði að í stjórnartíð
keisara hefði umfram allt verið
reynt að spilla hugarfari kvenna
og villa þeim sýn. Keisarinn hefði
staðið fyrir byggingu gleðikvenna-
búra í nafni framfara og frelsis.
Keisarinn hefði á allan hátt haft
dýrslega og sjúklega afstöðu til
kvenna, en nú væri allt orðið með
öðrum brag og hann vænti þess að
íranskar konur þekktu sinn
.vitjunartíma og skildu hvað þeim
væri fyrir beztu og sæktust ekki
eftur að auglýsa kynþokka sinn
eins og þær hefðu gert á keisara-
tímanum.
Olíusala í Rotterdam
undir strangt eftírKt?
BrlisHol. 17. maí. Reuter
Orkuráðherrar ríkja
Efnahagsbandalagsins
(EBE) komu saman til
funda í dag til að ræða
ástand og horíur í olíumál-
um og munu þeir m.a. taka
ákvörðun um hvort hrinda
skuli í framkvæmd áætlun
er gerir ráð fyrir því að
olíumarkaðurinn í Rotter-
dam verði settur undir
strangt eftirlit, og að þak
verði sett á olíuverð þar.
Markaðurinn í Rotterdam hefur
starfað alveg frjálst og óhindrað
og hefur verð á olíu þar hækkað
verulega upp á síðkastið. I síðustu
viku fór verðið á tunnu af olíu þar
upp í 30 Bandaríkjadali, en hið
opinbera verð olíuframleiðsluríkja
er 14,15 dollarar. EBE hefur verið
andsnúið frjálsri starfsemi á
markaðnum og borið það fyrir sig
að gangur mála þar sé óhag-
kvæmur fyrir alla aðila og geti
leitt til þess að olíuframleiðsluríki
hækki verð sitt enn frekar.
Hollendingar hafa lýst sig
fylgjandi tillögum sem Frakkar
hafa lagt fram um eftirlit á
markðinum. I tillögum er m.a.
gert ráð fyrir því að leyfi þurfi til
olíusölu á markaðinum í Rotter-
dam, og að bannað verði í milli-
ríkjasamningum um olíukaup að
miða við verðlag á markaðinum í
Rotterdam til að draga úr þeim
sálrænu áhrifum sem markaður-
inn hefur haft.
Areiðanlegar heimildir hermdu
að helztu olíuframleiðsluríki væru
hlynnt ströngu eftirliti á
markaðinum í Rotterdam þar eð
þau teldu að vestræn olíufyrirtæki
græddu óeðlilega mikið eins og
málin gengju þar fyrir sig nú.
Vestur-Þjóðverjar munu hafa lýst
því á fundinum að engin ástæða
væri til að setja markaðinn í
Rotterdam undir strangt eftirlit
þar sem olíufyrirtækin flyttu þá
aðeins starfsemi sína þar um set.
íranska blaðamannafélagið lét í
dag frá sér fara orðsendingu til
Khomeinis þar sem segir að orð-
stír byltingarinnar sé í hættu
vegna þess hver sé staða blaðanna
í Iran og nauðsynlegt sé fyrir
framgang byltingarinnar að leyft
verði að stunda frjálsa blaða-
mennsku í landinu.
Maður nokkur sem er eigandi
blaðs í Qom auglýsir í dag í blaði
sínu að hann muni veita væntan-
legum morðingja keisarans vegleg
verðlaun: boðsferð til hinnar
heilögu borgar Mekka.
Sló í brýnu milli
Begins og Weizmans
ÞAÐ fer ekki á milli mála að þeir stefna á Viðey lóðsbátarnir Haki og Nóri og það
er eins og Viðeyjarstofa sé að kíkja eftir þeim yfir höfðann í lognkyrru. En
mannskapurinn um borð var ekki á þeim nótunum að spranga um velli Viðeyjar,
þeir voru að prófa olíugildrur til þess að vera við öllu búnir ef eitthvað af þeirri
ætt rákaði Sundin blá.
Ljósmmynd Mbl. Kristján.
Jerúsalem. Kairó. 17. maí. AP. Reuter.
í BRÝNU sló í dag milli Weiz-
mans varnarmálaráðherra og
Begins forsætisráðherra ísraels
og óskaði Weizman eftir þvf að
vera leystur undan því að sitja í
samninganefnd þeirri sem mun
hefja viðræður við Egypta hinn
30 slösudust
í sprengingu
Sassari. 17. maí. Reutcr.
EINN maður lézt og að
minnsta kosti þrjátíu slösuðust
þegar ægileg gassprenging
varð í Sassari á Sardiniu í
kvöld. Fyrst var talið að um
skemmdarverk væri að ræða
en svo var ekki. Gashylki í
tóbaksbúð á aðaltorgi bæjarins
sprakk þegar mikill fjöldi
manna var þar á ferli._
25. maí um framtíðarskipan mála
á Vesturbakkanum og á Gaza-
svæðinu. Begin forsætisráðherra
mun hafa fallizt á að leggja ósk
Weizmans undir rfkisstjórnar-
fund og verður að Ifkindum
greint frá þvf á morgun hvern
endi málið fær að sinni.
Fréttaskýrendur segja að þessar
væntanlegu samningaviðræður
gætu orðið langtum erfiðari en
ella ef Weizman neitar að taka
þátt í þeim, þar sem Egyptar telja
að afstaða hans, snöggtum hóf-
samari og að sumra mati raun-
særri en Begins, gæti fleytt mál-
um áfram sem ella myndu fljót-
lega steyta á skeri.
I Kairó sagði Sadat Egypta-
landsforseti í dag að hann sæi
enga ástæðu til að hafa fulltrúa
Palestínumanna með í viðræðum
ísraela og Egypta um sjálfsfor-
ræði Palestínumanna.
Castro 1 Mexico í
fyrsta skipti í 23 ár
Cozumel, Mexleo. 17. ma(. AP. Reuter.
FIDEL Castro, forseti Kúbu
kom til Mexico í dag, nánar til
tekið eynnar Cozumel, og er það f
fyrsta skipti í tuttugu og þrjú ár
að hann stfgur fæti sfnum á
mexicanskt land. Það er ekki ýkja
langt frá þeim stað sem Castro
lagði upp frá er hann hóf bylt-
ingarundirbúning sinn árið 1956.
Forseti Mexico Lopez Portillo
tók á móti Castro á flugvellinum
og þar voru einnig nokkur þúsund
borgarar sem fögnuðu Kúbu-
forseta og veifuðu fánum og
spjöldum þar sem hann var hyllt-
ur.
Mikill og öflugur vopnaður
öryggisvörður var við komu
Castros til Cozumel og í föruneyti
Castros voru 20 sérstaklega þjálf-
aðir öryggisverðir. Auk þess eru
með honum ýmsir háttsettir menn
úr stjórn hans, þar á meðal Rafel
Roderigvez aðstoðarforseti og fleiri
ráðherrar. Castro og Portillo munu
meðal annars ræða um að auka
útflutning á rommi til Mexico,
kaup á olíu tii Kúbu, fiskveiðimál
og ýtnislegt sem lýtur að málefnum
Mið-Ameríku. Castro sagði við
komuna að hann kæmi til að
styrkja vináttubönd þjóðanna
tveggja, og það væri honum mikil
gleði að koma í eigin persónu
þeirra erinda að bera mexicönsku
þjóðinni kveðjur sínar og þjóðar
sinnar. Svaraði Mexicoforseti í
sama dúr og sagði: „Fyrir meira en
tuttugu árum yfirgáfuð þér þetta
land í leit að því sem þér leituðuð
fyrir þjóð yðar og lögðuð þá allt
undir og snúið nú hingað á ný
forseti."
Castro verður tvo daga í
Cozumel.