Morgunblaðið - 18.05.1979, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MAI 1979
Óttast að atvinnu-
ástand skólafólks
verði verra í ár en
á síðastliðnu sumri
UM 150 námsmenn eru nú
á skrá hjá Atvinnumiðlun
námsmanna, en að þessaji
miðlun standa Háskóli ís-
lands, mennta- og fjöl-
brautaskólar. Að sögn
Benjamíns Bjartmarsson-
ar starfsmanns Atvinnu-
miðlunarinnar berast enn
umsóknir um atvinnu, en
hins vegar hafa ekki
borizt nema 15 — 20
atvinnutilboð frá því að
miðlunin tók til starfa
síðastliðinn mánudag.
— Við óttumst að ástandið með
sumaratvinnu skólafólks verði enn
verra í ár en það var í fyrra, sagði
Benjamín. í fyrra leituðu um 370
manns til atvinnumiðlana þessara
skóla, en þá voru starfandi fleiri
Borgarfjörður eystri:
Ekkert lát
a otiðinni
BorKarfirði eyntri 17. mal.
SVO SEGJA mér fullorðnir Borg-
firðingar, að þeir muni vart eftir
svo miklum snjó í miðjum maí og
nú er. Segja má að hvergi sjái í
dökkan dfl og meðan ég rita þessi
orð gengur hann á með dimmum
éljum svo að ekkert lát virðist
vera á þessari ótíð. Víða eru farin
að sjást merki eftir hörku veður-
farsins og er það sízt að furða.
Hjá sumum bændum munu hey
nú farin að minnka, en mér er sagt
að í hreppnum séu til það mikil
hey, að enginn þurfi að óttast
algjört heyleysi, a.m.k. á næstunni.
Fóðurbætir mun enn þá vera til
vegna þess að hann var fluttur
hingað á bíium þegar vegurinn til
Héraðs var fær, en auðvitað klár-
ast hann eins og annað ef heldur
áfram sem horfir.
Nú er sauðburður í fullum gangi
og mun hann vera mesta vandamál
bænda þegar allt fé er í húsum og
hefur a.m.k. einn bóndi orðið að
reka geldfé sitt suður á Víkur
vegna húsleysis heima þótt köld og
jarðlaus hljóti vistin að vera þar.
Einnig hafa hestar verið reknir
þangað á húslausan gaddinn. Rið-
an hefur herjað sauðfé bænda og
er mér tjáð að um 200 fjár hafi
drepist úr henni í vetur nér í
hreppnum.
Sömu sögu er að segja frá
sjávarsíðunni. Fyrst var það ísinn,
sem varnaði sjómönnum þess að
ýta á flot og síðan gæftaleysi, svo
að nú hefur engin grásleppuveiði
verið hér í vor, en hún hefur verið
drjúgur tekjuliður sjómanna
undanfarin vor. Þegar ég horfi út
um gluggann minn sé ég vini
okkar, skógarþröstinn og máríu-
erluna, sem komin eru um langan
veg heim til átthaganna. Nú eru
þau hljóð og hnípin og vekja okkur
ekki á morgnana með söng sínum.
Ef ekki hlýnar á næstunni mun
ávinningur þeirra með ferð sinni
hingað til sumardvalar verða
hungurdauði og gröf í köldum
skafli. — Sverrir.
0
INNLENT
en ein. Um 200 tókst að útvega
vinnu í gegnum atvinnumiðlun,
100 björguðu sér sjálfir, en 70
fengu enga atvinnu. Mennta- og
fjölbrautaskólum er flestum lokið
nema hjá þeim, sem eru í
stúdentsprófum, en síðustu prófin
í HI á þessu sumri verða ekki
tekin fyrr en í júnímánuði.
Frá Atvinnumiðlun námsmanna í Félagsstofnun stúdenta.
(Ljósm. Kristján).
90% íbúa Reykholtshrepps
mótmæla frumvarpi um eignar-
upptöku Deildartunguhvers
FULLTRÚAR íbúa Reykholts-
dalshrepps f Borgarfirði gengu í
gær á fund Hjörleifs Guttorms-
sonar iðnaðarráðherra og for-
manna iðnaðarnefnda beggja
deilda Aiþingis og afhentu þeim
harðorð mótmæli íbúa hreppsins
vegna framkomins lagafrum-
varps á Alþingi um eignarnám
Deildartunguhvcrs til handa
Ilitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar.
í mótmælaskjalinu segir m.a.:
„Við undirritaðir íbúðar í Reyk-
holtsdalshreppi mótmælum harð-
lega fram komnu lagafrumvarpi á
Alþingi um eignarnám á Deildar-
tunguhver, ásamt spildu úr landi
jarðarinnar Deildartungu, til
afhendingar Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar. Teljum við óþol-
andi gerræði af hálfu ríkisvalds-
ins, að taka með valdboði lang-
verðmætustu eign sveitarfélagsins
og afhenda öðrum sveitarfélögum
til eignar og umráða um alla
framtíð.
Þó Reykholtsdalshreppur og
íbúar hans hafi ekki enn sem
komið er aðstöðu til að notfæra
sér þessa eign til fulls, þá teljum
við fráleitt að aðstandendur
„Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar" hafi ekki í krafti fjár-
magns, fjölmennis, og með til-
styrk ríkisvalds, siðferðislegan né
lagalegan rétt til að svæla undir
sig eign, sem tilheyrir Reykholts-
dalshreppi og getur, þegar fram
líða stundir orðið undirstaða at-
vinnulífs og lífsafkomu í uppsveit-
um héraðsins og stöðvað flótta
ungs fólks á mölina.
Lágmarkskrafa okkar er, að í
I ■•r«k»lM<alaftr*»< “
u...... i« larr»rfj*ra*r' (Ul).
T*)JU »*• tuuui prrWl «f rllunil.lu. i
,<»UI Iw.'W-o ^iurf******- •« *r'*“*
lopu til •i|Mr Ot » •)*• rrwtia
>• l.jt»llt«»™tf<' •« l*4** h*fl **“' *“
stað eignarnám komi leigunám til
25—30 ára á ákveðnu vatnsmagni,
en ráðstöfunarréttur sé jafnan í
hendi sveitarstjórnar Reykholts-
dalshrepps.
Skorum við því á ríkisstjórn og
Alþingi að draga þetta frumvarp
til baka, eða breyta því á þann veg
að hreppsbúar megi við una, og
neyðist ekki til að verja hendur
sínar að hætti Mývetninga."
Einn fulltrúi Reykholtsdals-
manna Bjarni Guðráðsson, for-
maður Búnaðarsambands Borgar-
fjarðar, sagði í samtali við Mbl. að
um 90% allra hreppsbúa yfir 18
ára aldri hefðu skrifað undir
mótmælin, sem væri fyrst og
fremst beint gegn 3. grein frum-
varpsins um afhendingu, eins og
kemur fram í mótmælunum.
Hvad geta börn og unglingar gert í sumar?
Kynnisferð í
sveit og reiðskóli
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
Samband sunnlenskra kvenna
fer með börn á aldrinum 10—12
ára í kynnisferð í Ölfus og
Grafning fyrrihluta júnfmánað-
ar. Ferðin mun taka 3 daga og
verður dvalið á sveitaheimilum.
Dvölin þar er ókeypis en þátt-
takendur skuldbinda sig til að
veita jafnöldrum úr sveitinni
fyrirgreiðslu í Reykjavík. Far-
gjaldið verður um 4000 krónur
en hámarksfjöldi þeirra sem
ferðina fara er 40 börn. Innrit-
un fer fram á Fríkirkjuvegi 11
frá 1. maí.
Reiðskóli verður starfræktur í
Saltvík á vegum æskulýðsráðs
Reykjavíkur og Hestamanna-
félagsins Fáks. Námskeiðið er
fyrir börn á aldrinum 8—14 ára
og er þátttökugjaldið 25.000 krón-
ur. Námskeiðin verða sem hér
segir: 5. júní til 15. júní, 18. júní
til 29. júní, 2. júlí til 13. júlí, 16.
júlí til 27. júlí, 30. júlí til 10. ágúst
og 13. ágúst til 24. ágúst. Há-
marksfjöldi á hverju námskeiði
eru 60 nemendur.
Hver hópur sem þátt tekur í
námskeiðinu hverju sinni fer frá
Reykjavík kl. 8.20. Skólinn er
síðan starfræktur frá 9.00 til
16.00 í þrennu lagi og með matar-
hléi. Komið er til Reykjavíkur
aftur kl. 17.00 að kvöldi. Þeir
hópar sem ekki verða við nám
verða við leiki og aðra útivist á
staðnum. Bíll sem fer í Saltvík
stöðvast á eftirtöldum stöðum í
Reykjavík: Við Fríkirkjuveg 11,
við Hlemmtorg, á horni Miklu-
brautar og Lönguhlíðar, við bið-
skýli SVR á Miklubraut, við
Stigahlíð, á horni Miklubrautar
og Háaleitisbrautar, á horni
Réttarholtsvegar og Miklubraut-
ar, á horni Bústaðávegar og
Réttarholtsvegar, við Fáksheim-
ilið, á horni Suðurlandsvegar og
Vesturlandsvegar og við Smá-
lönd. Innritun í reiðskólann fer
fram á Fríkirkjuvegi 11 frá 1.
maí.
Frá reiðskólanum í Saltvfk
Siglingar í Nauthólsvík
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
mun eins og undanfarin ár
bjóða upp á siglingar f Naut-
hólsvík fyrir börn og unglinga
fædd 1967-1970. Námskeið í
siglingum verða 10,6 byrjenda-
námskeið og 4 framhaldsnám-
skeið. Hámarksfjöldi á hverju
námskeiði er 20 nemendur.
Byrjendanámskeiðin verða sem
hér segir: 28. maf til 8. júní, 11.
’
júní til 22. júní, 25. júní til 6.
júlí, 23. júlf til 3. ágúst og 7.
ágúst til 17. ágúst. Námskeið
þessi verða í Nauthólsvík 5
daga f viku (frá mánudegi til
föstudags). Kennd verður
meðferð og sigling á seglbátum,
einfaldar siglingareglur, varúð
og viðbrögð við óhöppum á sjó
og umhirða búnaðar. Þátttöku-
4
'^Í'yJS,
/•
“ f; I f
V..
10,
gjald námskeiðsins er 5000
krónur.
Framhaldsnámskeiðin verða
fjögur, 5. júní til 15. júní, 18. júní
til 29. júní, 2. júlí til 13. júlí og
16. júlí til 27. júlí. Framhalds-
námskeiðin verða einnig 5 daga
vikunnar og eru ætluð fyrir þá
sem kunna eitthvað í meðferð
seglbáta og hafa t.d. verið á
byrjendanámskeiðum s.l. ár.
Gjald fyrir þetta námskeið er
6000 krónur. Innritun í bæði
námskeiðin fer fram á
Frikirkjuvegi 11 frá 1. maí.
Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga er
Siglingaklúbburinn í Nauthóls-
vík öllum opinn frá kl. 17.00 til
19.00. Auk þess eru æfinga-
keppnir á fimmtudögum frá kl.
19.00 til 22.00. Siglingaklúbbur-
inn er einnig opinn á laugardög-
um í maí. Gjald fyrir þátttöku í
starfsemi klúbbsins er 300
krónur.